Morgunblaðið - 03.12.1991, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1991
Tjúlli í nýju ævintýri
Bókmenntir
Eðvarð Ingólfsson
Ingi Hans Jónsson:
Tjúlli. Á fullri ferð.
Teikningar: Haraldur
Sigurðarson.
Örn og Örlygur 1991.
Kötturinn Tjúlli er aftur kominn
á kreik. í fyrra lenti hann í ævin-
týri með borgarstjóranum í Reykja-
vík en í þessari nýju sögu fær hann
smjörþefinn af því hvað forvitni
katta, ekki síður en manna, getur
reynst dýrkeypt. Hann lokast óvart
inni í lest vöruflutningaskips sem
hann var að skoða í Reykjavíkur-
höfn og siglir með því alla leið til
ísafjarðar. Á ýmsu gengur í þeirri
ferð.
Sagan er sögð með aðstoð lit-
ríkra teikninga sem prýða hverja
síðu. Þær eru bæði fallegar og
skemmtilega útfærðar og ríma
mjög vel við textann. Samvinna
höfundar og teiknara hefur því
heppnast með miklum ágætum. Því
miður vill það stundum brenna við
þegar gefnar eru út stuttar sögur
með mörgum myndum fyrir yngstu
bömin að misvægi er á milli texta
og mynda. En hér er það ekki svo.
Saga Inga Hans er vel skrifuð.
Hann er góður höfundur og á auð-
velt með að skapa hraða og spennu.
Söguþráðurinn er einfaldur og
yngstu lesendurnir eru því alltaf
vel með á nótunum. Þetta er raun-
sæissaga sem gæti hafa gerst eða
átt eftir að gerast. Hún er kannski
ekki frumleg því að öll þekkjum við
sögur af börnum eða dýrum sem
hafa villst eða strokið að heiman
um stundarsakir, lent í ýmsum
ævintýrum en skilað sér svo aftur
heim að lokum. Sagnaminnin eru
kunn en engu að síður er hér um
nýtt söguefni að ræða, nýjar pers-
ónur, nýjar aðstæður.
Nokkrar athyglisverðar auka-
persónur setja skemmtilegan svip á
söguna, s.s. Sigga, fóstran hans
Tjúlla; Þórður fisksali, vinur hans;
og séra Kari Matthíasson, fyrrum
sóknarprestur á Isafirði, sem gaf
höfundi bókarinnar leyfi til að nota
sig sem sögupersónu. Þegar Tjúlli
kemur vegvilltur og umkomulaus
til ísafjarðar þá er það presturinn
sem tekur hann upp á sína arma.
Það er eins með þetta ævintýri
og flest önnur að það endar vel.
Lausn sögunnar er góð þó að hún
sé ekki langsótt: Börnin kannast
við Tjúlla úr fyrri bókinni og benda
prestinum á að lesa hana í von um
að þar megi finna einhverjar upp-
lýsingar um aðstandendur hans.
❖
SAGAISLANDS 1.-5. BINÐI
Umfangsmesta yfirlit sem komið hefur út
um sögu lands og þjóðar.
Nú eru komin út fimm bindi í bókaflokknum
Saga íslands. I bókunum er saga lands og þjóðar
rakin allt frá myndun landsins og lýkur
fimmta bindinu í upphafi 16. aldar þegar skammt
er til siðaskipta.
Virtir ffæðimenn rita um einstaka
þætti sögunnar s.s. fund íslands og landnám,
atvinnuvegi, stjómskipun, veðurfar, trúarlíf,
kirkjusögu, stéttaskiptingu, mataræði, bókmenntir,
myndlist og skólahald.
Fjöldi mynda og uppdrátta prýða bækurnar
sem eru sannkallaðir kjörgripir og ættu
að vera til á hverju heimili.
Ritstjóri Sögu Islands er Sigurður Líndal.
HIÐ ÍSLENZKA BÓKMENNTAFÉLAG
SlUUMÚU 21 ♦ PÖSTHÓLF8935 • 128 REYKJAVlK • SlMI 9W7W60
M
1816 1991
Ingi Hans Jónsson
Ómögulegt er að hafa upp á Siggu
fóstru í símaskránni því að prestur-
inn veit ekki föðurnafn hennar en
Fiskbúð Þórðar er hins vegar þar.
Tjúlla er þar með borgið.
Þeir Ingi Hans og Haraldur eiga
hrós skilið fyrir þessa skemmtilegu
bók. Þeir hafa greinilega iagt metn-
að sinn í að gera hana sem best
úr garði. Vonandi halda þeir áfram
að segja frá ævintýrum Tjúlla.
------» ♦ ♦-------
■ ÚT ER komin hjá Hörpuútgáf-
unni ný bók eftir danska rithöfund-
inn Erling Poulsen. Bókin heitir
Tvíburasysturnar og er 16. bókin
í bókaflokknum Rauðu ástarsög-
urnar. í kynningu á bókarkápu
segir m.a.: „Þau heyrðu skelfing-
aróp. Holm forstjóri hafði orðið fyr-
ir skoti. Hann var látinn. Einkadæt-
ur hans tvíburasystur, þurftu nú
að takast á við stjómun hins stóra
fyrirtækis föður þeirra. Onnur
þeirra hafði verið blind frá fæð-
ingu. Tvíburasystumar er mögnuð
og spennandi ástarsaga. Hver var
hinn skelfilegi banamaður Holms
forstjóra, sem vildi ná eignum hans
hvað sem það kostaði? Hvaða öfl
voru örlagavaldamir í lífi tvíbura-
systranna? Spenna, dulúð, ljúf róm-
antík og ást eru aðalsmerki þessar-
ar nýju bókar eftir Erling Poulsen.”
Tvíburasýsturnar er 173 bls. Þýð-
andi er Skúli Jensson. Oddi hf.
annaðist prentun og bókband.
Spök stutt ljóð
Bókmenntir
Ingi Bogi Bogason
Birgir Svan Símonarson: Ljóð
hánda ósýnilegu fólki. (57 bls.)
Fótmál 1991.
Nýyrði eða nýjar samfélagslegar
aðstæður eru oft uppistaðan í
myndmálinu hjá Birgi Svan. í þess-
ari nýjustu ljóðabók hans má finna
mörg dæmi þessa. í Stríði kemur
orðið „virðisauki” fýrir og í Sönnum
lygisögum segir: „pizzurnar aka /
í leigubílum / eins og kvikmynda-
stjörnur” og er grundvöllur mynd-
málsins hér sóttur í þá staðreynd
að ítölskum bökum er nú gjarnan
ekið inn á heimilin.
Orðanotkun sem þessi kemur les-
endum Birgis Svans ekki á óvart.
Hún er fyrir löngu orðin óijúfanleg-
ur þáttur í ljóðagerð hans, eitthvað
sem lesandinn bíður eftir.
En hvað kemur þá á óvart í þess-
ari bók? Hver er nýstárleiki hennar?
Helst af öllu er eftirtektarverð
óvenjuleg breidd í ljóðunum, bæði
að inntaki og formi. Ljóðin eru aldr-
ei beinlínis löng - þau iengstu ná
því að teygja sig, breiðletruð, yfir
tvær síður - en sum ná því þvert
á móti að verða býsna stutt, inntak
þeirra samþjappað, (Stím, Vélar-
rúm). Sum stuttljóðanna nálgast
spakmælin, eru íhugunarverð, eins
konar einfaldar hugvekjur. Almennt
inntak þeirra er auðvelt að yfirfæra
á sérstakar mannlegar aðstæður.
Gull
fölbleikar ilmandi rósir
í haustmyrkri
aldrei kaus ég
önnur gull
... og annað í svipuðum dúr...
Mímósa
okkur er tjáð
hún lokist
við snertingu
en hver
trúir því
að óreyndu
Birgir Svan Símonarson
Um efni ljóðabókarinnar í heild
má fullyrða að hún fjallar um mann-
leg samskipti í víðustum skilningi;
ástina, vináttuna, traustið. Yfirieitt
er grunnt á sársaukanum því sumt
er brothætt og margt er í heiminum
hverfult - mannleg samskipti fram-
ar öðru, (Grimmd, Vinir).
Tré
nú blómstrar
gullregnið mitt
í garði grannans
ég hef líka séð
fólk vaxa
hvort frá öðru
hvorugt virðir
múra
eða landamerki
í lokin skal rétt minnst á útlit
bókarinnar. Frágangur er í heild til
sóma. Kápumynd Tolla undirstrikar
tært og beinskeytt inntak bókarinn-
ar. Samt hnaut augað um örfáar
ritvillur sem hefðu eflaust horfið
við enn einn yfirlesturinn. Lítil
spurning í lokin: Er ekki sjálfsagt
að hafa alltaf efnisyfirlit í Ijóðabók-
um sem öðrum bókum?
Skáldsaga eftir Birg-
ittu H. Halldórsdóttur
ÚT ER komin hjá Skjaldborg
hf. bókin Klækir kammelljóns-
ins eftir Birgittu H. Halldórs-
dóttur.
í kynningu útgefanda segir
m.a.:„í þessari nýjustu bók sinni
spinnur hún örlagavef ungra
systkina sem flækjast inn í hættu-
lega atburðarás sem á upphaf sitt
í bílslysi er þau lenda í á bams-
aldri, en foreldrar þeirra fórust í
því slysi. Örlagavaldurinn er
Kamelljónið sem eins og það dýr
sem hann dregur nafn sitt af er
snjall að dyljast innan um venju-
legt fólk í daglegu lífi en breytist
óðara í hættulegt óargadýr um
leið og tækifæri gefst. En hver
var Kamelljónið? Svarið kemur á
óvart og að sjálfsögðu upplýsist
það ekki fyrr en á lokasíðum sög-
unnar.” Klækir Kamelljónsins er
157 bls.
Birgitta H. Halldórsdóttir
SILKINEGL UR
.v/v \ rr/sroi ti\ Ach sta
býðurnú hinarvönduðu Backscratchers gervineglur.
Þetta eru glæsilegar neglur sem endast vel,
skaða ekki þínareigin neglurog hægt að hafa þærán naglalakks.
Einnig bjóðum við Clarins meðferð fyrir andlit, barm og líkama. Fótaaðgerð,
vaxmeðferð, Sylvia Levis varanlega háreyðingu og að sjálfsögðu alla aðra þjónustu.
Paíitaðu tíma strax í síma 29070.
KLAPPARSTlG 16
101 REYKJAVlK
S I M I : 2 9 0 7 0
AGUSTA KRISTJANSDOTTIR
JÓRUNN SIGURJONSDÓTTIR