Morgunblaðið - 03.12.1991, Qupperneq 28
,Æ8
, MOB.GWBIAWÐ ÞRIf)J,UDAGUil 3, DESEMBER, 1991
SJALFSTÆÐI SAMÞYKKT I UKRAINU
Loforð um lán til Sovét-
manna endurskoðuð?
Kíev, París, Moskvu, Brussel. Reuter.
LEIÐTOGAR Úkraínu voru sigri hrósandi eftir þjóðaratkvæða-
greiðsluna á sunnudag og gerðu lítið úr þeim vandamálum sem
margir spá að hljóti að fylgja í kjölfarið. Embættismenn hjá
Evrópubandalaginu (EB) sögðu m.a. að niðurstaða kosninganna
gætu valdið því að loforð EB um stórlán til Sovétmanna er nem-
ur 1.6 milljörðum Bandaríkjadollara yrði tekið til endurskoðun-
ar. EB-leiðtogar hafa hvatt Úkraínu til að greiða eðlilegan hluta
af erlendum skuldum Sovétríkjanna gömlu, þrátt fyrir sjálfstæð-
ið. Anatolíj Sobtsjak, borgarstjóri í Pétursborg, sagði í gær að
úrslitin í Úkraínu væur áminning um það hve brýna nauðsyn
bæri til að ná samkomulagi um yfirstjórn kjarnavopna Sovétríkj-
anna.
Fjárhagsvandi ríkjasambandsins
verður æ illvígari. Borís Jeltsín
Rússlandsforseti og Míkhaíl Gorb-
atsjov Sovétforseti náðu þó sam-
komulagi á laugardag um að Rúss-
ar ábyrgðust auknar greiðslur til
sameiginlegra útgjalda. Á föstudag
sagði stjómandi ríkisbankans að
framlög á fjárlögum væru uppurin
og ekki væri lengur hægt að greiða
embættismönnum laun.
Kosningaþátttaka í Úkraínu á
sunnudag var rúm 83%. Bráða-
birgðaniðurstöður sýndu að 90.85%
greiddu atkvæði með sjálfstæði, að
sögn yfirmanns kjörstjórnar, Vítalís
Boikos, sem einnig er dómsmála-
ráðherra Úkraínu. Stuðningur við
sjálfstæði var víða yfir níutíu af
hundraði í vesturhéruðunum, einnig
í höfuðborginni Kíev, en á Donetsk-
iðnaðarsvæðinu í austurhlutanum
var hann minni eða um 70% og á
Krímskaga 54%. Á báðum síðast-
nefndu svæðunum býr fjöldi Rússa
sem eru alls um 20% íbúa Úkraínu;
á Krím eru þeir í meirihluta. í hafn-
arborginni Sevastopol, sem er ein
af mikilvægustu bækistöðvum her-
flotans, var minnihluti meo sjálf-
stæði, eða 36%. Boiko sagði að
Leoníd Kravtsjúk hefði fengið um
60% atkvæða í forsetakjörinu sem
fór einnig fram á sunnudag en
helsti andstæðingur hans, Vjat-
esjlav Tsjornovíl, hefði fengið 24%.
Kravtsjúk sagði að Úkraína væri
með þjóðaratkvæðinu orðin sjálf-
stæð. „Landið er orðið sjálfstætt
ríki. Þetta er meginatriðið - sjálf-
stætt ríki sem byggir tilveru sína
ERLENT
á vilja þjóðarinnar. Framvegis
verða samskiptin við önnur ríki
byggð á reglum um alþjóðleg sam-
skipti”. Hann sagði að úrslitin
hefðu í för með sér að tilraunir
Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétforseta
til að koma á fót nýju sambands-
ríki á rústum Sovétríkjanna gömlu
væru endanlega úr sögunni. Kravt-
sjúk sagðist myndu fara til Minsk,
höfuðborgar Hvíta-Rússlands, á
föstudag til viðræðna við þarlenda
leiðtoga um myndun nýs efnahags-
bandalags lýðveldanna í stað hug-
mynda Gorbatsjovs um laustengt
ríkjasamband. Fyrirmyndin yrði
Evrópubandalagið og ekki yrði um
að ræða eiginlegt ríkjasamband.
„Aðalstöðvarnar yrðu svo sannar-
lega ekki í Moskvu - kannski í
Minsk eða Kíev,” sagði forsetinn
en gaf í skyn að leiðtogar Rússa
myndu einnig vera þessum áform-
um hlynntir. Kravtsjúk mótmælti
þeirri skoðun Gorbatsjovs að þótt
Úkraínumenn kysu sjálfstæði
merkti það ekki að þeir væru að
vísa ríkjasambandi á bug. Gorbatsj-
ov hefur oftar en einu sinni sagt
að hann geti ekki séð fyrir sér ríkja-
samband án Úkraínu.
Gorbatsjov varaði Úkraínumenn
við fyrir atkvæðagreiðsluna, sagði
að efnahagsleg eymd biði þeirra ef
þeir kysu sjálfstæði og með þessari
þróun mála væri öllum heiminum
stefnt fram á hengiflugið. Sovétfor-
setirin sagði að það gæti komið til
erfiðra deilna um landamæri við
Rússa. Kravtsjúk sagði Gorbatsjov
ekki hafa neinn rétt til afskipta af
þessu tagi.
Jeltsín að hverfa frá
bandalagshugmyndum?
Ummæli úkraínska forsetans í
gær um afstöðu Rússa til sjálfstæð-
Alþingi hid forna
Ný bók eftir Einar Pálsson
kemur út 10. desember. Ritið er vandað að
allri gerð, 160 blaðsíður, í fallegu bandi, með
tilvísunum og nafnaskrá. í þessu riti er Al-
þingi hið forna skýrt, gerð þess og uppruni.
Ritinu er skipt í 66 kafla, þannig að nota má
það sem handbók eða uppflettirit. Er það
ætlað öllum þeim sem vilja kynnast Þingvöll-
um og fornri stjórnskipan íslendinga. Ákveð-
in kenning er sett fram um eðli hins forna
Alþingis; samkvæmt henni var Alþingi íslend-
inga ekki ólíkt öllu, sem áður þekktist í heim-
inum- eins og nú er oft haldið fram - það
var byggt á merkustu hugmyndum og vön-
duðustu stjórnskipan fornra samfélaga.
Bókaútgáfan Mímir
is Úkraínu þykja benda til þess að
Jeltsín muni ef til vill gefa upp á
bátinn stuðning við bandalagshug-
myndir Gorbatsjovs. í síðustu viku
sagði Jeltsín í blaðaviðtali að færi
svo að Úkraína neitaði að undirrita
samning um ríkjasamband myndi
„staða Rússa gerbreytast”. Sam-
skipti Kravtsjúks og Jeltsíns hafa
batnað að undanförnu en þau voru
kuldaleg fyrst eftir valdaránstil-
raunina í ágúst er mörgum þótti
Kravtsjúk ekki duga Rússlandsfor-
seta vel. Kravtsjúk fullyrti í gær
að deilur milli lýðveldanna, tri.a. um
fyrirkomulag varnarmála, yrðu
leystar á næstunni. Jafnframt lagði
hann áherslu á mikilvægi afstöðu
Rússa. „Með viðurkenningu af
hálfu vestrænna ríkja verða sam-
skipti okkar byggð á grundvelli al-
þjóðasamskipta og afstaða Rússa
mun skipta miklu máli í þessu sam-
bandi”.
taMjÉBMI
m
migarðurStj'
a
Moskva
RUSSLAND
V * *
ÚKRAÍNA
Rlatarmál:
Fó/ksfjöldi
Sk,Pt/ng fbúa.
Gkraínumenn
Russar
F/vítrússar
Mo/davar
Rólverjar
Ffnahagur
6°3-700km2/
51.704.000/
/
36.488.951
13.471.602
406.098
293.576
258.309
r MOLDOVA
R Ú MENlA
n
300 km
1 -urí
TYRKLAND
.SSKsassr
Sovésk kjarnavopn í Ukraínu
□ Langdrægar kjamaflaugar
O Gagnflaugaratsjár
v Sprengjufiugvélavöilur HaM/d. Jane.s
Inlormation Group
■ Heimild:
Spáð erað sjálfstæðisyfirlýsinq Úkra-
kvæð^'/ko^^ stuðnin9 ™ 90% at-
'kosningunum á sunnudag
níZ ^799/ast stofna sjálfsteðan
gjaldmiðil, til þess að firra sia nhoin
skattheimtu Kremlar, koma f fírteigin
herafla og láta fjarlægja öll sovésk 9
Vkjarnavopn af úkra^skri gru °du
| úkraínu riefur því
Moskvu í ^,ranÆa bundust sam-f
að Bússland og Uki a n valda.
bandssamningi onð16b ,r.ði91
rán bo\sévikka öðlast sjált- i
x&ssgS&z/
Leóníd Kravtsjúk kjörinn forseti Úkraínu:
Hugmyndafræðingurimi sem
sneri frá villu síns vegar
Kíev. Reuter.
PÓLITÍSKT kamelljón, tæki-
færissinni, þau eru ekki fögur
sum heitin sem andstæðingar
nýkjörins forseta hafa valið
Leóníd Kravtsjúk sem kjörinn
hefur verið forseti Úkraínu.
Hann var áratugum saman
sauðtryggur kommúnista-
flokknum, gegndi að lokum
stöðu aðalhugmyndafræðings
og yfirmanns áróðursmála í
flokksdeildinni í Úkraínu.
Hann reyndist síðar fádæma
snjall við að notfæra sér emb-
ætti þingforseta til að vekja á
sér athygli og þegar hug-
myndum um aukið sjálfræði
tók að vaxa fiskur um hrygg
snerist hann til fylgis við þær.
Andstæðingar hans viður-
kenna með semingi að honum
hafi tekist að „stela” hug-
myndum þeirra.
Öflugasti mótframbjóðandi
Kravtsjúks var Vjatsjeslav
Tsjornovíl, lágvaxinn, 53 ára
gamall blaðamaður sem varð að
gista fangabúðir í samanlagt 15
ár fyrir andóf gegn stjórnvöldum
kommúnista. Tsjornovíl er mikill
ræðumaður og hefur einkum
höfðað til þjóðernissinna í
vesturhluta landsins þar sem
andúðin á ofríki Rússa hefur
ávallt verið sterk. En Tsjornovíl
tókst ekki að sópa til sín fylgi
um allt landið með sama hætti
og Kravtsjúk og hinum fram-
bjóðendunum fjórum enn síður.
Samkvæmt síðustu tölum benti
allt til þess að Kravtsjúk fengi
um 60% atkvæða og því óþarft
að efna til annarrar umferðar
milli tveggja efstu frambjóð-
enda.
Kravtsjúk er 57 ára gamall,
kominn af smábændum í vestur-
hluta landsins, nálægt borginni
Rovno. Hann lauk meistara-
gráðu í stjórnmálafræði við
Kíev-háskóla, klifraði síðan met-
orðastigann í flokknum af þraut-
seigju og árið 1990 varð hann
þingforseti með fulltingi komm-
únistaþingmanna. Þá var hann
orðinn landsþekktur vegna sjón-
varpsviðræðna við fulltrúa þjóð-
Leóníd Kravtsjúk
ernissinna. Hann fjarlægðist
fljótlega flokkslínuna og lagði
áherslu á sjálfstæði Úkraínu
gagnvart Moskvuvaldinu, sigldi
af varfærni milli skers og báru,
milli þingmeirihlutans, sem var
kommúnískur og minnihlutans
sem krafðist tafarlauss lýðræðis
og sjálfstæðis.
Málamiðlari
Kravtsjúk átti mestan þátt í
málamiðlun sem leit dagsins Ijós
í júlí í fyrra. Þá lýsti þingið yfir
fullveldi Úkraínu, sagði lög þess
myndu hafa forgang ef þau
stönguðust á við sovésk lög og
síðar á árinu var gerður samn-
ingur við Rússland Borísar Jelts-
íns þar sem lýðveldin viður-
kenndu fullveidi hvort annars.
Er gerð var tilraun til valda-
ráns í Moskvu í ágúst sl. studdi
Kravtsjúk í fyrstu ekki andóf
Jeltsíns, þ. á m. tillöguna um
allsheijarverkfall, heldur hvatti
til þess aö menn „sinntu störfum
sínum á venjulegan hátt”. Þegar
ljóst var að valdaránið var farið
út um þúfur sagðist Krvatsjúk
hafa rifið flokksskírteini sitt á
fyrsta degi þess en margir drógu
heilindi hans í efa. Samt sem
áður virtust þessir atburðir ekki
hafa teljandi áhrif á það traust
sem hann naut meðal almenn-
ings og reyndar sagði Kravtsjúk
að harðlínuöfl hel'ðu mistúlkað
ummæli sín. Úkraínska þingið
Iýsti yfir fullu sjálfstæði landsins
24. ágúst og var Kravtsjúk ákaf-
ur talsmaður þeirrar ákvörðun-
ar. Skömmu síðar fór hann í
heimsókn til Kanada og Banda-
ríkjanna þar sem hann hitti
helstu leiðtoga að máli og jók
mjög hróður sinn á heimavíg-
stöðvunum.
Kravtsjúk hefur lagt sig fram
um að brúa bilið milli ólíkra trú-
flokka en krytur er milli stuðn-
ingsmanna Rétttrúnaðarkirkj-
unnar og úníata en svo nefnast
kaþólikkar í Úkraínu. Einnig
vill hann sætta þjóðir Úkraínu
en öflugur rússneskur minnihluti
er í lýðveldinu. Stefna Kravt-
sjúks er að öðru leyti sú að koma
skuli á markaðskerfi og telst það
varla til tíðinda Austur-Evrópu
en gagnrýnendur hans segja að
forsetinn sé of samdauna gamla
valdakerfinu til þess að honum
muni nokkurn tíma takast að
hrinda slíkum umbótum í fram-
kvæmd. Gamla skrifræðisveldið
á vafalaust eftir að reynast
erfiður þröskuldur í vegi fram-
fara í Úkraínu sem í Rússlandi.
Ljóst er að Kravstjúk á traust
fylgi í sveitahéruðum þar sem
margir óttast of snöggar og rót-
tækar breytingar.
í mars sl. mælti Kravtsjúk
með því að landsmenn sam-
þykktu tilíögur Míkhaíls Gorb-
atsjovs Sovétforseta um að
ríkjasambandið yrði áfram við
lýði. Nú vill hann fullt sjálfstæði
og segir allar hugmyndir Gorb-
atsjovs um laustengdara sam-
band með höfuðstöðvar í Moskvu
vera dauðadæmdar. Kravtsjúk
verður ekki svarafátt þegar
hann er gagnrýndur fyrir tæki-
færismennsku. „Enginn getur
haft sömu skoðanir allt lífið.
Þetta er eðlilegt ferli. En sjálfur
hef ég aðeins breytt um skoðun
á grundvallaratriðum einu
sinni.”