Morgunblaðið - 03.12.1991, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1991
Fjarskipti
Mikilvægi háhraða-
neta að aukast
Þörf er á nýrri hugsun í tölvu- og fjarskiptamálum
HALLDÓR Kristjánsson, verkfræðingur, lýsti framtíðarsýn í fjar-
skiptum, á ráðstefnu Rafmagnsverkfræðingadeildar Verkfræðinga-
félags Islands, sem haldin var 8. nóvember sl. Hann talaði um mikil-
vægi háhraðaneta í tölvusamskiptum og fjarskiptum, og vandamál
a þessum sviðum.
Halldór sagði að þróun netkerfa
væri langt því frá lokið og hægt
að sjá fyrir margt sem myndi auka
gildi þeirra. Þegar hefðu verið
kynntar hugmyndir sem myndu
gera mikilvægi háhraðaneta meira
en nú er. „Á næstunni mun hugbún-
aður geta leitað sér að lausu reikn-
iafli á netinu og notað það þegar
þörf er á meira afli en ein vinnu-
stöð ræður yfir. Reikniaflið getur
verið á einni eða fleiri miðlægum
tölvum, einni eða fleiri vinnustöðv-
um og svo framvegis. Það er því
ljóst að við hættum að tala um tölv-
Verslun
ur sem tölvur og net sem ríet. Net-
ið verður tölvan. Þannig fæst að-
gangur að afli sem er margfalt það
sem nú þekkist í stórum tölvumið-
stöðvum fyrir brot af þeim kostnaði
sem nú þekkist,” sagði hann. Að
sögn Halldórs mun miðlæg tölvu-
vinnsla í framtíðinni gegna hlut-
verki skiptistöðvar fyrir upplýs-
ingar og þjónustumiðstöðvar fyrir
tölvunotendur.
Halldór sagði að þörfin fyrir
flutningsgetu myndi einnig ráðast
af þróun í fjölmiðlun, þar sem
blandað er saman lifandi myndum,
Grænlendingar segja
skilið við miðstýringu
Grænlenska landsstjórnin hefur ákveðið að segja skilið við miðstýr-
inguna, sem hefur gegnsýrt efnahagslífið í 12 ár, og innleiða frjálsa
samkeppni. Meðal annars verður horfið frá því að halda uppi sama
verði á ýmissi vöru og þjónustu hvar sem er í landinu án tillits til
ólíks kostnaðar.
Stærsta skrefið verður stigið með
því að skipta KNI, arftaka Konung-
legu Grænlandsverslunarinnar, upp
í fjögur minni fyrirtæki, sem að
hluta eða öllu leyti verða í einka-
eigu. KNI er stærsta fyrirtæki í
Grænlandi og hefur í sínum höndum
heildverslunina, flutninga og póst-
dreifingu og stóran hluta af smá-
söluversluninni. Er áætlað, að með
þessum breytingum sé unnt að
lækka aðeins flutningskostnaðinn
milli Danmerkur og Grænlands um
helming eða úr fimm milljörðum
ÍSK. í 2,5.
Landsstjórnarformaðurinn og
jafnaðarmaðurinn Lars Emil Jo-
hansen segir, að tilgangurinn með
þessu sé að ná fram lækkun á vöru-
verði alls staðar í landinu, einnig á
landsbyggðinni. Á móti komi, að
ekki verður lengur reynt að halda
uppi sama vöruverði hvar sem er.
„Við viljum svipta hulunni af því
hvað varan kostar í raun og veru.
Þessi hrærigrautur af pólitík og
viðskiptum hefur verið notaður sem
skálkaskjól fyrir léleg vinnubrögð,”
segir Johansen.
KNI verður nú skipt upp í póst-
dreifingar- og þjónustufyrirtæki við
landsbyggðina; flutningafyrirtæki á
viðskiptagrundveili; fyrirtæki, sem
annast verslanarekstur og heild-
sölufyrirtæki. Áuk þess verða flutn-
ingar á milli Danmerkur og Græn-
lands boðnir út á frjálsum markaði.
VERSLUNARRÁÐ
ÍSLV\NDS
Morgunverðarfundur í Skálanum, Hótel Sögu,
fimmtudaginn 5. desember 1991, kl. 08-09.30
Einkavæðingaráform ríkisstjórnarinnar:
STORMUR í
VATNSGLASI?
Við myndun núverandi ríkisstjórnar voru hafðar uppi mikl-
ar heitstrengingar um einkavæðingu opinbers reksturs.
Nánari fregnir hafa fáar borist rúmlega hálfu ári síðar.
Og nú er spurt: Var einhver alvara á bak við fyrirheitin?
Hvers er að vænta, ef einhvers, á árinu 1992 oq á kjörtíma-
bilinu?
Framsögumenn:
Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra.
Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ.
Fundarstjóri:
Ellert B. Schram, ritstjóri DV.
Ráðherrarnir flytja í upphafi inngangserindi um stefnu og áform
stjórnarflokkanna og ríkisstjórnarinnar varðandi einkavæðingu
opinbers reksturs. Þórarinn mun rekja viðhorf i atvinnu- og við-
skiptalífinu til opinbers reksturs og einkavæðingar og lýsa af-
stöðu sinni til stefnu og efnda ríkisstjórnarinnar.
Framsögumenn sitja fyrir svörum í allt að 30 mínútur.
Aðgangur með inniföldum morgunverði af hlaðborði kr. 1.000,-
Fundurinn er opinn, en mikilvægt er að tilkynna þátttöku fyrir-
fram í síma 678910 (svarað kl. 08-16).
kyrrmyndum, tali og tónum. Að
hans sögn er fjölmiðlun áhugaverð
sem tæknilegt fyrirbrigði en nota-
gildi hennar fyrir almenning er ekki
fyrir séð. Ástæður þess eru meðal
annars sá vandi sem höfundarréttur
skapar, og tölvufælni, sem enn er
útbreidd. „Nái þessi tækni hins veg-
ar því stigi að almenn þörf verði
fyrir hana, þá krefst það aukins
hraða í samtengingu tölva, umfram
það sem nú þekkist, vegna þess
gífurlega gagnamagns sem þarf að
koma út úr netinu,” sagði Halldór.
Halldór talaði um þau vandamál
sem þarf að leysa á næstu árum,
varðandi notkun einstaklinga á tölv-
um og ijarskiptatækni. Hann sagði
að flestir notuðu fleiri en eina að-
ferð, til að veita öðrum aðgang að
sér með aðstoð fjarskipta og tölvu-
kerfa, og nefndi t.d. heima- og vinn-
usíma, farsíma, símboða og X.25
net. „Öll hafa þessi kerfi sjálfstæð
númer og mörg þeirra eru þar að
auki sjálfstæð, þannig að hvern ein-
stakling einkenna á bilinu 2 til 12
mismunandi númer. Á þessu er sá
megingalli að það getur kallað á
notkun margra eða allra þessara
númera að ná til einstaklingsins,
og jafnvel þá er ekki tryggt að til
hans náist með þeim hætti sem
óskað er eftir. Hér þurfa tölvufram-
leiðendur og fjarskiptaframleiðend-
ur að sameinast um að leysa þetta
mál,” sagði hann. Að sögn Halldórs
hefur ISDN kerfið ekki haft við
tölvutækninni og mun ekki leyfa
hreyfanleika einstaklingsins þannig
að hægt sé að ná í hann með hvaða
hætti sem er. Hann sagði að því
væri þörf fyrir nýja hugsun í tölvu-
og fjarskiptamálum.
llll.tltl —
Ný bók um
hagfræði,
stjórnmál
og menningu
HAGFRÆÐI, stjórnmál og menn-
ing er nafn á nýrri bók eftir
Þorvald Gíslason, prófessor, sem
Hið íslenska bókmenntafélag
hefur gefið út. Bókinni er ætlað
að'bregða birtu á þjóðarbúskap
Islendinga og vekja lesandann til
umhugsunar uin ýmis alvarleg
vandamál, gömul og ný, á þeim
vettvangi, eins og segir í frétta-
tilkynningu frá félaginu.
í bók Þorvaldar er greint frá
þeim margþætta vanda, sem íslend-
ingar standa frammi fyrir nú, þegar
Evrópuríkin renna saman í eina
öfluga markaðsheild. Færð eru rök
að því, að öruggasta leiðin til að
bæta hag fólksins í landinu til fram-
búðar sé að gefa markaðsöflum
lausari taum í hagkerfinu í sam-
ræmi við öra þróun mála í nálægum
löndum.
Ennfremur er í bókinni rætt um
verðbólguvandann, atvinnumál og
afkomu fyrirtækja, og færð rök
með og móti veiðigjaldi. Það efni
leiðir óhjákvæmilega að stjórnmál-
um og stjórnarfari. Stefnu stjórn-
valda ber á góma víða í bókinni.
Þá er einnig fjallað um umhverfis-
vernd og menningarmál af sjónar-
hóli hagfræðings.
Evrópubandalagið
Deilur vegna reglna um
samruna fyrirtækja
MEIRA en ár er liðið síðan reglur um samruna fyrirtækja tóku gildi
í Evrópubandalaginu. Reglunum sem einkum er ætlað að koma í
veg fyrir að stórfyrirtæki geti sameinast og hlotið einokunarað-
stöðu hefur þó ekki verið beitt, fyrr en loks í síðasta mánuði.
Hér var um að ræða sameigin-
legt tilboð frönsku og ítölsku ríkis-
reknu flugvélaframleiðendanna
Aerospatiale og Alenia í kanadíska
dótturfyrirtæki Boeing-verksmiðj-
anna, de Havilland.
Ákvörðun framkvæmdastjórnar
EB að koma í veg fyrir þennan
samruna byggir á því að sam-
keppni innan sameiginlegs Evrópu-
markaðar myndi stórlega minnka.
Kaupin á de Havilland hefðu fært
fyrirtækjunum 67%.markaðshlut-
deild í Evrópu fyrir 20-70 farþega
flugvélar, og 50% af heimsmark-
aði.
Engu að síður virðist minnihluti
framkvæmdastjórnarinnar ekki
hafa talið ástæðu til að grípa inn
í. Sömuleiðis brugðust bæði
franskir og ítalskir ráðherrar
ókvæða við, og heyrst hefur að
fram hafi komið óskir um að dreg-
ið yrði úr valdi framkvæmdastjórn-
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!
arinnar til slíkra ákvarðana.
Ástæður þessa eru einkum þær
að margir töldu nauðsynlegt að til
yrði einhvers konar Evrópurisi í
flugvélaframleiðslu, til að keppa á
alþjóðlegum mörkuðum. Reglu-
gerðin tekur þó skýrt fram að það
sé skylda framkvæmdastjórnarinn-
ar að koma í veg fyrir kaupin. Það
er því mörgum áhyggjuefni að þó
þetta margir séu reiðubúnir að líta
framhjá reglugerðinni vegna ann-
arra hagsmuna.
Reglugerðin sem um er að ræða
er árangur langra sámningavið-
ræðna og ber þess greinilega merki
að víða hefur verið komist að mál-
Það var talsmaður FNV, félags
flutningaverkamanna í Hollandi,
sem skýrði frá þessu fyrir skömmu
og kvaðst hann hafa áhyggjur af,
að þúsundir Hollendinga misstu
vinnuna vegna breytinga á rekstri
KLM. Er raunár búist við, að að-
eins fragtflutningadeildin verði
rekin áfram í sömu mynd.
Talsmenn BA og KLM vilja ekk-
ert um málið segja að svo stöddu
en British Aii-ways hefur lengi
verið á höttunum eftir samstarfs-
aðila á meginlandi Evrópu. Fyrr á
árinu kom framkvæmdastjórn Evr-
ópubandalagsins í veg fyrir samn-
amiðlun. Völd framkvæmdastjórn-
arinnar til að koma í veg fyrir
samruna takmarkast meðal annars
af því að heildarvelta umræddra
fyrirtækja verður að vera að
minnsta kosti 300 milljarðar króna.
Reglugerðina á að endurskoða árið
1993 og framkvæmdastjórnin hef-
ur þegar óskað eftir auknum völd-
um. I ljósi þeirra deilna sem nú
hafa risið er þó ólíklegt að stjórn-
málamennirnir veiti þau völd.
Margir telja hinsvegar að mál
þetta allt sýni að nauðsynlegt sé
að koma á fót sérstakri nefnd inn-
an Evrópubandalagsins, skipaða
sérfræðingum og þar sem stjórn-
málamenn kæmu hvergi nærri, til
að fjalla um samruna fyrirtækja
með tilliti til samkeppnisaðstöðu
og hefði völd tií að stöðva samruna
ef ástæða þætti til.
inga þess við belgíska flugfélagið
Sabena og vegna hættu á, að svo
verði einnig nú leikur nokkur
óvissa um með hvaða hætti yfirtak-
an á KLM er.
Kunnugir telja, að um sé að
ræða flókinn samning, sem taki
einnig til bandarísks flugfélags,
líklega Northwest Orient eða Cont-
inental en þau hafa sterka stöðu
á flugleiðum til Austurlanda fjær.
British Airways stefnir að því að
vera annað eða eitt þriggja stórra
félaga í Atlantshafsfluginu og eitt
fjögurra eðá fimm stærstu í heimi
um aldamótin.
Flug
Verður KLM dótturfyr-
irtæki British Airways?
Breska flugfélagið British Airways og hollenska flugfélagið KLM
hafa undirritað viljayfirlýsingu þess efnis, að BA taki við rekstri
KLM. Viðræður félaganna liafa staðið yfir um nokkurt skeið og
einkuni um náið samstarf en nú þykir ljóst, að KLM verður dóttur-
fyrirtæki BA.