Morgunblaðið - 03.12.1991, Page 39
8
9
■ FRÓÐIHF. hefu gefið út bók-
ina í tætlum eftir dönsku skáldkon-
una Synnöve Söe í íslenskri þýð-
ingu Steinar J. Lúðvíkssonar. I
kynningu Fróða segir m.a.: „Bókin
sem heitir Fars á frummálinu kom
fyrst út í Danmörku árið 1989 og
seldust fimm upplög bókarinnar
upp á örskömmum tíma. Synnöve
Söe er tæplega þrítug. Hún starfaði
sem blaðamaður í heimalandi sinu
en er nú búsett í New York. Hún
leynir því ekki að í sögunni í tætlum
fjallar hún um sjáfia sig. „í bókinni
I tætlum segir ung kona sögu sína
og bregður upp svipmyndum frá
barnæsku sinni. Foreldrar hennar
eru af hinu fræga ’68 kynslóð og
svo upptekin af sjálfum sér að barn-
ið fær nánast enga athygli. Þegar
foreldrarnir skilja flytur barnið á
kommúnu með móður sinni. Þar eru
allir með öllum. Aðstæðurnar verða
til þess að dýpka þrá barnsins eftir
föðurumhyggju en hún er engin til
staðar. Hið sama verður upp á ten-
ingnum hjá hinni fullorðnu konu
sem einnig segir sögu sína í bók-
inni. Hún verður nánast að
strengjabrúðu sem karlmenn vilja
að dansi eftir þeirra höfði.” í tætlum
er 108 bls. Bókin er prentunnin og
bundin í Prentsmiðjunni Odda hf.
en kápuhönnun annaðist auglýs-
ingastofan Nýr Dagur.
■ IÐUNN hefur gefið út skáld-
söguna Skaði eftir breska rithöf-
undinn Josephine Hart í þýðingu
Sverris Hólmarssonar. í kynningu
útgefanda segir m.a.: „Skaði er
áhrifarík og mögnuð saga sem lýs-
ir því hvernig sterkar ástríður og
óhamdar þrár taka völdin og leiða
persónur á vit glötunar og tor-
tímingar: Hann er virtur borgari
og fjölskyldufaðir, ráðsettur og
skyldurækinn. Hún er ung dular-
full, tælandi, örgrandi; sködduð af
fortíð sinni, banvæn gjöf. Forboðin
ást hans hrífur hann með sér, ógn-
ar allri tilveru hans, dregur hann
sífellt dýpra ofan í kviksyndi, og
hann skeytir ekki um viðvörun
hennar: Skaddað fólk er hættu-
legt...” Bókin er prentuð í Prentbæ
hf.
■ MÁL OG MENNING hefur
sent frá sér unglingabókina Leikur
að eldi eftir hinn þekkta enska rit-
höfund Gillian Cross. Útgefandi
segir söguefnið þannig: „Nikka hef-
ur lengi dreymt um að komast í
mótorhjólaklíku stóra bróður síns
og fær loks inngöngu eftir að hafa
vingast við tvö systkini á sínu reki.
Með þeim leikur hann ævintýraleiki
sem taka aðra stefnu en ætlað var
og Nikki stendur frammi fyrir erfið-
um spurningum um hvað sé rétt
og hvað rangt.” Björg Árnadóttir
þýddi bókina sem er 202 bls. Einn-
ig er komið út bókin Súrar gúrkur
og súkkulaði frá Máli og menn-
ingu. Höfundur hennar er frönsk
stúlka Stéphanie og er þetta dag-
bók hennar frá því hún var 13 og
14 ára. í kynningu útgefanda seg-
ir: „Bókin er ótrúlega vel skrifuð
af unglingi að vera og segir höfund-
ur á einlægan hátt frá leyndustu
hugsunum sínum. Hún segir sögu
stúlku sem er að breytast úr barni
í konu og er að kynnast heimi full-
orðna fólksins sem er spennandi en
á margan hátt öðruvísi en hún hélt.
Frásögnin er gamansöm og segir
sannleika sem flestir þekkja, ekki
síst unglingsstúlkur.” Guðlaug
Guðmundsdóttir þýddi bókina sem
er 212 blaðsíður og kemur út í
bókaflokknum MM-UNG. Önnur
bókin í bókaflokknum MM-UNG er
bókina Flóttinn frá víkingunum
eftir norska verðlaunahöfundinn
Torill Thorstad Hauger. Sagan
er framhald bókarinnar í víkinga-
höndum sem kom út í íslenskri
þýðingu á síðasta ári. í kynningu
útgefanda segir: „Hér segir áfram
af írsku systkinunum Patreki og
Sunnefu sem voru hneppt í þrældóm
af norskum víkingum. Nú hefur
þeim tekist að flýja frá Noregi og
komast með landnámsmönnum til
íslands. Dvölin hér verður ævin-
týraleg enda flækist Patrekur óvart
inn í höfðingjadeilur. Systkinin
leggja enn á flótta en skyldi þeim
takast að komast heim til írlands?
Sólveig Brynja Grétarsdóttir
þýddi bókina sem er 213 bls.
“— ZANUSSY uppþvottavélar eru til í
tveimur gerðum ZW 106 m/4 wa|k nn ID-Rn9n til innh m/7 Uúi-'í'
/ vciii\. uy iL/ juíiu iii ii ii IL/. iii// valkerfum. Báðarf. borðb. f. 12. Hljóðlátar — einfaldar í notkun. Verð frá kr. 60.640,- ©
Q /
Gufugleypar frá ZANUSSI,
CASTOR, FUTURUM og
KUPPERBUSCH eru bæði fyrir
útblástur eða gegnum kolsíu.
Verð frá kr. 10.099, v-
Jólatilboð kr. 8.786,-
RAFHA, BEHA og
KUPPERSBUSCH eldavélar eru
bæði með eða án blæstri. Með
glerborði og blæstri. 4 hellur og
góður ofn. 2ja ára ábyrgð á
RAFHA vélinni — frí uppsetning.
Verð frá kr. 41.517,-
Jólatilboð kr. 36.120,-
Um er að ræða mjög margar
gerðir af heiluborðum:
Glerhelluborð m/halogen,
helluborð 2, gas/2rafm. eða 4
rafm., hellur með eða án rofa.
Verðfrá kr. 21.655,-
ZANUSSI og KUPPERBUSCH
steikar/bökunarofnar í fjölbreyttu
úrvali og litum. Með eða án
blæstri — með grillmótor
m/kjöthitamæli — m/katalískum
hreinsibúnaði og fl.
Verð frá kr. 34.038,-
ZANUSSI örbylgjuofnar í
stærðum 18 og 23 Itr. Ljós í ofni,
bylgjudeyfir, gefur frá sér
hljóðmerki.
23 Itr. verð kr. 28.122,-
Jólatilboð kr. 26.308,-
Verð er mfðað við staðgreiðslu
5
Okkar frábæru greiðslukjör!
Útborgun aðeins 25%
og eftirstöðvar
á allt að 12 mánuðum.
OPfÐ VIRKA DAGA TIL KL. 18.00 OG LAUGARDAGA TIL KL. 13.00
Bjóðum upp á 5 gerðir
þvottavéla. 700-800-1000-1100
sn./mín. Með/án valrofa á
hitasparnaðarrofa. Hraðvél, sem
sparar orku, sápu og tíma.
Þvottavél með þurrkara og
rakaþéttingu. 3ja ára ábyrgð —
uppsetning.
Verð frá kr. 56.543,-
Jólatilboð kr. 49.192,-
Þurrkarar 3 gerðir hefðbundnir með
rakaskynjara eða með rakaþéttingu
(barki óþarfurj.Hentar ofan á
þvottavélina.
Verð frá kr. 32.407,-
Jólatilboð kr. 28.194,-
7 gerðir kæliskápa: 85, 106,124,
185 cm hæð. Með eða án frystihólfi.
Sjálfv. afhríming. Hægt að snúa
hurðum. Euðslugrannir— hljóðlátir.
Verð frá kr. 29.727,-
Jólatilboð kr. 27.810,-
Bjóðum upp á 9 gerðir
kæli/frystiskápa. Mjög margir
möguleikar í stærðum: Hæð 122,
142,175 og 185 cm. Frystir alltaf
4 stjörnu. Sjón er sögu ríkari.
Fjarlægjum gamla skápinn.
Verð frá kr. 44.779,-
Jólatilboð kr. 38.957,-
Jólatilboð kr. 44.063,-
Jólatilboð kr. 49.420,-
Frystiskápar: 50,125, 200 og 250 Itr.
Lokaðir með plastlokum —
eyðslugrannir — 4 stjörnur.
ZANUSSY frystikistur 270 og 396 Itr.
Dönsk gæðavara. Mikil frystigeta.
Ljós í loki. Læsing. 4 stjörnur.
LÆKJARGÖTU 22, HAFNARFIRÐI, SÍMI50022 OG BORGARTÚNI 26, REYKJAVÍK, SÍMI620100