Morgunblaðið - 03.12.1991, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1991
41
Kauphallarmótið í brids:
Heimsmeistaram
ir voru sterkastir
á lokasprettinum
son í síðustu umferðinni en þessi pör urðu í 1. og 3. sæti á Kauphallarmótinu.
Það var oft líf og fjör í Kauphöllinni þar sem hlutabréf í pörun-
um gengu kaupum og sölum.
Brids
Guðmundur Sv.
Hermannsson
Heimsmeistararnir Guðmund-
ur Páll Arnarson og Þorlákur
Jónsson unnu á sunnudag til
hæstu peningaverðlauna sem
veitt hafa verið á innlendu
bridsmóti þegar þeir sigruðu
á Kauphallarmóti Bridgesam-
bands Islands, Verðbréfa-
markaðar Islandsbanka og
Vífilfells. Heildarsigurlaunin
voru G50 þúsund krónur og
komu 133 þúsund í hlut spilar-
anna sjálfra, en 517 þúsund í
hlut þeirra sem keyptu hlut í
þeim á uppboði fyrir mótið eða
í kauphöll sem starfaði meðan
á mótinu stóð. En fyrir utan
Guðmund og Þorlák og
Matthías Þorvaldsson og
Sverri Ármannsson sem end-
uðu í 3. sæti, náði ekkert
þeirra para, sem dýrast voru
seld, að skila arði.
26 pör tóku þátt í mótinu og
voru þau öll boðin upp af Har-
aldi Blöndal áður en mótið hófst.
Aðalsteinn Jörgensen og Jón
Baldursson voru eftirsóttastir og
seldust á 200 þúsund krónur.
Þeir seldust einnig fyrir hæstu
upphæðina á þessu móti á síð-
asta ári, 145 þúsund. Eftirspurn
eftir þeim hefur því aukist um
38% milli ára, enda hafa þeir
síðan orðið heimsmeistarar.
Guðmundur Páll og Þorlákur
seldust fyrir 150 þúsund krónur,
heimsmeistararnir Guðlaugur R.
Jóhannsson og Örn Arnþórsson
fyrir 140 þúsund og Sverrir Ár-
mannsson og Matthías Þorvalds-
son og Karl Sigurhjartarson og
Sævar Þorbjörnsson seldust á
120 þúsund krónur. Guðmundur
Sveinsson og Valur Sigurðsson
seldust á 120 þúsund og Björn
Eysteinsson og Magnús Olafsson
á 100 þúsund. Alls seldust pörin
26 fyrir 1.965.000 krónur en
verðlaunaféð var um 2,2 milljón-
ir króna, um 25% hærra en á
síðasta móti.
í raun voru boðin upp hluta-
bréf í viðkomandi pörum og var
algengt að hópar manna tækju
sig saman um að bjóða í pörin
og sumir keyptu í mörgum pör-
um til að dreifa áhættunni. Eftir
uppboðið var eigendum hluta-
bréfanna frjálst að selja þau aft-
ur hveijum sem var og á hvaða
verði sem var, en gengi bréfanna
hækkaði og lækkaði eftir því
hvernig pörunum gekk. Verð-
bréfamarkaður íslandsbanka sá
um kauphöll þar sem verslað var
með þessi hlutabréf og var oft
líf og fjör í viðskiptunum en
upplýsingar um kaup- eða sölut-
ilboð, gengi og stöðuna í mótinu
birtust jafnóðum á sjónvarpsskj-
ám.
Notaður var margfaldur
sveitakeppnisútreikningur á
mótinu, þannig að hvert par bar
hvert spil saman við öll pörin sem
sátu í sömu áttum. Þetta keppn-
isform býður upp á miklar sveifl-
ur þar sem ein geimsveifla gat
kostað rúmlega 100 stig og þús-
undfalda þá peningaupphæð.
Sem dæmi um þetta má nefna,
að í síðasta spili síðustu umferð-
ar varð einum spilaranum á að
gefa 5 hjörtu dobluð á meðan
flestir aðrir spiluðu 4 hjörtu
ódobluð sem unnust. Hefðu 5
hjörtu farið niður hefði parið
fengið yfir 100 stig, en í stað
þess tapaði það öðru eins. Þetta
kostaði parið tvö sæti og um 100
þúsund krónur.
Jón og Aðalsteinn tóku
snemma forustuna en misstu
hana til Matthíasar og Sverris.
Á meðan voru Guðmundur og
Þorlákur með rauða tölu, en um
miðbik annarar lotunnar af
þremur tóku þeir á mikinn sprett
og skutust í annað sætið.
í upphafi þriðju lotunnar náðu
Sævar og Karl forustunni en þá
fengu bræðurnir Kristján og
Valgarð Blöndal risasetu og
skutust í efsta sætið. Þessi fimm
pör, ásamt Jakobi Kristinssyni
og Pétri Guðjónssyni, og Júlíusi
Siguijónssyni og Jónasi P. Erl-
ingssyni, voru í efstu sætunum
það sem eftir lifði mótsins.
Úrslit í þremur síðustu setun-
um voru ekki birt fyrr en í lokin
og því ríkti mikil spenna þegar
Helgi Jóhannsson las upp loka-
stöðuna. Og þessi pör enduðu í
verðlaunasætunum:
1. Guðmundur Páll Arnarson-
Þorlákur Jónsson, 900 stig
(verðlaunaupphæð: 650 þúsund,
uppboðsverð 150 þúsund)
2. Jakob Kristinsson-Pétur Guð-
jónsson 789 stig
(verðlaunaupphæð 421 þúsund,
uppboðsverð 75 þúsund)
3. Matthías Þorvaldsson-Sverrir
Ármannsson 765 stig
(verðlaunaupphæð 343 þúsund,
uppboðsverð 120 þúsund)
4. Júlíus Siguijónsson-Jónas P.
Erlingsson 607 stig
(verðlaunaupphæð 239 þúsund,
uppboðsverð 80 þúsund)
5. Kristján Blöndal-Valgarð
Blöndal 556 stig
(verðlaunaupphæð 221 þúsund,
uppboðsverð 40 þúsund)
6. Aðalsteinn Jörgensen-Jón
Baldursson 459 stig
(verðlaunaupphæð 161 þúsund,
uppboðsverð 200 þúsund)
7. Karl Sigurhjartarson-Sævar
Þorbjörnsson 417 stig
(verðlaunaupphæð 86 þúsund,
uppboðsverð 120 þúsund)
8. Gylfi Baldursson-Sigurður B.
Þorsteinsson 401 stig
(verðlaunaupphæð 46 þúsund,
uppboðsverð 50 þúsund)
Ofangreindar verðlaunaupp-
hæðir eru samtala spilaraverð-
launa, arðs eigenda og umferðar-
verðlauna sem eigendur þriggja
stigahæstu para í hverri umferð
fengu. í fyrstu umferðinni urðu
efstir Sverrir-Matthías, Aðal-
steinn-Jón og Karl-Sævar. í ann-
ari umferð urðu efstir Guð-
mundur-Þorlákur, Gylfi-Sigurð-
ur og Kristján-Valgarð; og í
þriðju umferð Sveinn Rúnar Ei-
ríksson-Svavar Björnsson, Jak-
ob-Pétur og Guðmundur-Þorlák-
ur.
Mótið fór fram á Hótel Loft-
leiðum. Agnar Jörgensson var
keppnisstjóri að venju, en Krist-
ján Hauksson sá um útreikning.
OG HANDKLÆÐI NÝKOMIN.
HÁGÆÐAVARA FRÁ
CANNON OG ffivMcrcsf*
Jtu llb^-1 llL’i
Stórhöfða 17, viö Gullinbrú
sími 67 48 44
MAZDA 323 STATION
NÚMEÐ
ALDRIFI !
1600 cc vél með tölvu-
stýröri innspýtingu, 86 hö •
Sídrif • 5 gírar • Vökva-
stýri • Álfelgur o.m.fl.
Verö kr. 1.099.000 stgr.
með tyðvöm og skráningu.
MAZDA - ENGUM LÍKURI
SKÚLAGÖTU 59, S 61 95 50
Opið laugardaga kl. 10-14.
SKIPHOLT119
SÍMI 29800
i I!■.
■ 1