Morgunblaðið - 03.12.1991, Side 47
Minning:
Olafur H.
Fæddur 15. júní 1927
Dáinn 26. nóvember 1991
Okkur langar til |>ess að minn-
ast okkar elskulega Óla afa í örfá-
um orðum. Hann hugsaði mikið
um aðra og var óþreytandi að
gefa af sjálfum sér. Hann var með
afbrigðum hændur að börnum og
barngóður, og hafði mikla ánægju
að ræða við okkur um viðfangs-
efni okkar og hugðarefni. Hann
hafði góða frásagnarhæfileika og
var fundvís á það spaugilega í til-
verunni. Við munum yndislegar
samverustundir með Óla afa og
Haddý ömmu í sumarbústaðnum
sem var þeirra unaðsreitur. Þar
leið öllum vel. Hann skipaði stóran
sess í lífí okkar allra. Það er dálít-
ið undarlegt til þess að hugsa, að
sá tími er liðinn að hann komi og
líti við hjá okkur. Þessi fasti punkt-
ur í tilverunni er horfinn, en eftir
stendur í huga okkar þakklæti
fyrir að hafa notið samvistar hans.
Elsku Haddý amma, sorgin er
mikil en lífið heldur áfram, og við
munum ávailt eiga hvort annað
að. Samheldni fjölskyldunnar er
það mikilvægasta sem við eigum
og það má aldrei gleymast. Þann-
ig mun minningin um Óla afa lifa
með okkur öllum.
Nú legg ég augun aftur,
6 Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vöm í nótt.
Æ, virzt mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka,
þinn engil, svo ég sofi rótt.
Barnabörn
Hinn 26. nóvember sl. lést á
Grensásdeild Borgarspítalans
Ólafur Högni Egilsson eftir erfiða
banalegu. Hann var sonur hjón-
anna Rögnu Þoi'varðardóttur,
móðursystur minnar, og Arin-
björns Ólafssonar, sem bjuggu í
Vestmannaeyjum, en þau voru
frændsystkin af Njarðvíkurætt,
sem nú til dags er kennd við Svein-
björn Egilsson. Þau hjón skildu
þegar Ólafur var á barnsaldri og
var hann tekinn í fóstur en síðar
ættleiddur af frænku sinni Sigur-
björgu Ögmundsdóttur og manni
hennar, Agli Jónassyni útvegs-
bónda í Njarðvíkum ytri. Mjög var
kært með þeim og má kalla að
Ólafur hafi verið augasteinn þeirra
hjóna, enda átti hann góða æsku
í Njarðvík. Þar og í Keflavík
bjuggu fjölmargir ættingja hans,
þar eignaðist hann marga góða
vini og héldust þau bönd allt til
æviloka Ólafs. Segja má að Ólafur
hafi þekkt nánast alla Suðumesja-
menn sem voru á svipuðu reki og
hann og undraðist ég oft hve vel
hann fylgdist með þessu fólki og
hvað hann hélt góðum tengslum
við það allt.
Ólafur gekk í Verzlunarskóla
Hefuröu
litiö á
SPAR
VERÐKH
nýlega ?
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1991
47
TROOPER
PL 64
Búnaður
Vél OOCC. 115HÖ bensín.
/ Samiojsing á hurðum.
/Útvarpm/segulbandi.Tregðulæsing
IRafstýrðar rúðuvindur.
Háþrýstiþvottur á aðalljósum.
Hæðarstilling og I
upphitað bílstjórasæti. /
■
Frá 2.289.000 stgr.
á götuna
Fagmenn biðja um
G) DEITERMANN
flísalímið, því það er
ÖRUGGT og þjált í notkun.
Fúgusement í litum.
ALFABORG?
BYGGINGAMARKAÐUR
KNARRARVOGI 4 — SÍMI 686755
★ Pitney Bowes
Frímerkjavélar
Egilsson
íslands og lauk þaðan prófi en að
því loknu gekk hann til liðs við
föður sinn í útgerðinni. Einnig rak
hann eigið fyrirtæki í Njarðvík.
Árið 1948 kvæntist Ólafur Nils-
ínu Larsen og eru börn þeirra Sig-
urbjörg, Egill, Bjarni Þór, Ragna,
Ólafur Högni og Sóley. Fyrir átti
Nilsína dótturina Þórdísi, sem var
Ólafi afar kær og hann ól upp sem
sína dóttur. Börn þeirra eru nú
uppkomin og eru flest búsett suð-
ur með sjó. Þau Nilsína slitu sam-
vistir þegar Ólafur var á miðjum
aldri og fluttist hann þá til Reykja-
víkur þar sem hann bjó til .ævi-
loka. Hann stundaði ýmis störf og
undanfarin ár starfaði hann sem
Íeigubílstjóri. Ólafur kvæntist aft-
ur árið 1969 Höllu Jónsdóttur, en
hún átti tvo drengi sem Ólafur
gekk í föðurstað. Síðustu árin
bjuggu þau á Tjarnargötu 41, þar
sem þau áttu afar fallegt og hlý-
legt heimili. Þau Halla og Ölafur
voru einkar samhent og samrýnd,
ferðuðust mikið saman innanlands
og utan og fyrir nokkrum árum
byggðu þau sér fallegan sumarbú-
stað við Álftavatn þar sem þau
undu löngum.
Ólafur var mjög frændrækinn
og tryggur vinum sínum og lagði
ávallt mikla rækt við að halda
góðu sambandi við börn sín og
aðra ættingja. Hann var fádæma
barngóður enda hændust börn að
honum hvar sem hann kom. Þau
eru mörg börnin, og ekki síst afa-
börnin, sem nú sakna hans sáran.
Ólafur var glaðvær maður sem
átti einstaklega auðvelt með að
kynnast fólki og var vinmargur.
Afar hlýtt var með honum og
ættingjum Höllu í Kaupmanna-
höfn og marga vini eignuðust þau
hjón meðal nágranna sinna við
Álftavatn.
Ég sendi börnum hans, barna-
börnum, systur hans Helgu og
bróðurnum Fróða innilegar sam-
úðarkveðjur og sérstaklega votta
ég vinkonu minni, Höllu, samúð
mína. Ég geymi með mér minning-
una um góðan dreng sem til hins
síðasta reyndist mér góður frændi.
Landi
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33 -105 Reykjavík
Simar 624631 / 624699
CREW CAB
árum. Þá vorum við saman í jóla-
boði hjá vinum okkar og fjölskyldu
í Danmörku og ég man ávallt hvað
Óli gat skemmt okkur krökkunum
og gat manni ekki annað en líkað
strax vel við hann. Þrátt fyrir
mikinn aldursmun á okkur, var
eins og kynslóðabilið skipti ekki
neinu máli. Honum þótti vænt um
alla, jafnt krakka sem fullorðna.
Það lýsti Óla best hvað væntum-
þykjan á fólki var mikil; sem gerði
hann sérstaklega aðlaðandi til vin-
skapar. Þessi vinur okkar allra
mun seint gleymast.
Elsku Halla mín. Sorgin er djúp
og söknuðurinn er mikill í mínum
huga, sem og allra annarra sem
þekktu Óla. Veitist þér styrkur til
að yfirvinna sorgina, svo að minn-
ingar um góðan vin megi lifa með
okkur um ókomin ár.
Steinar Almarsson
um hann ávallt. Fyrir viku síðan
bárust mér þær sorglegu fréttir
að Óli væri dáinn. Þeim fréttum
var mjög erfitt að kyngja og er
ég eiginlega ekki búinn að gera
mér fulla grein fyrir þessari stað-
reynd ennþá.
Óli var alltaf glaður í bragði og
góður vinur. Það skein frá honum
sú hlýja sem einkenndi hann fyrst
og fremst. Honum þótti mjög
vænt um vini sína og fór síst af
öllu leynt með það. Allir sem komu
við í Skál hafa góðar minningar
að geyma. Gestrisni Óla var eitt
það sem laðaði fólk sífellt að því
að heimsækja Skál og ríkti þar
ávallt mikil gleði og kátína. Þær
stundir geymast í minnum manna,
og er ég þakklátur fyrir þær góðu
stundir sem Óli gaf.
Ég minnist þess nú, þegar ég
kynntist honum fyrir réttum 10
í dag er lagður til hinstu hvílu
Ólafur Egilsson, eða Óli eins og
við flest sem þekktum hann kölluð-
2300CC. 110HO- 5 gíra.
I Aflstýri. Tregðulæsing,
Ivönduð innrétting. 5" upphækkun.
/ Gúmmibrettakantar.
' Gangbretti úr áli.
B.F. Goodrich 32" dekk. Álfelgur.
Svört grind á framstuðara og i
Ijóskastarar, Warn M6000 spil. /
Frá 1.782.000 stgr.
á götuna
Hús ekki innifatid i verði.
/ISUZU bílarnirerumjög þægilegir í akstri.mjúkir og rúmgóðir.j
I Láttu ekki vetrarfærðina hafa áhrif á ferðaáætlanir þínar.
ÍTryggðu þér og fjölskyldunni traustan ISUZU bíl.
Takmarkað magn bíla
Ókeypis skoðun árlega
THUÍsVHÍfý
HÖFÐABAKKA 9 SÍMAR 670000 / 674300
á ótrúlega
hagstæðu verði