Morgunblaðið - 03.12.1991, Page 51
1MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGWR 8. DESEMBER' 1991
51
Hálfdán Örnólfs
son - Kveðja
Hann elsku afi okkar er dáinn.
Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði
23. nóvember sl. og verður jarðs-
unginn í Hólskirkju í Bolungarvík
í dag.
Hálfdán afi var fæddur að Kross-
stöðum í Önundarfirði 28. nóvem-
ber 1913. Faðir hans var Örnólfur
Hálfdánsson og móðir hans var
Hólmfríður Halldórsdóttir. Hann
var fjögurra ára gamall þegar>hann
fluttist til föður síns og konu hans
Margrétar Reynaldsdóttur og ólst
hann þar upp í Skálavík við mikið
ástríki þeirra hjóna. Ungur fór hann
að stunda sjó og seinna eignaðist
hann eigin trillu sem hann réri á,
en samhliða sjómennskunni hafði
hann búfénað. Hann kynntist henni
ömmu, Hallfríði Kristínu Jónsdótt-
ur, á ísafirði og eftir að þau gengu
í hjónaband settust þau að í Bolung-
arvík, fyrst á Mölunum og síðan á
Hóli 3 þar sem þau bjuggu þar til
amma lést 25. apríl 1985. ,
Amma og afi eignuðust 7 börn
en áður eignaðist afi Ragnar Inga
sem er búsettur í Bolungarvík,
kvæntur Sigríði Þ. Jakobsdóttur og
eiga þau 3 börn og 2 barnabörn.
Móðir okkar er elst af alsystkinun-
um og er gift Þorsteini Einarssyni
og erum við 3 systkinin og erum
búsett í Rvík. Örnólfur Grétar er
kvæntur S. Elfu Þórðardóttur og
eru þau búsett á Fáskrúðsfirði. Þau
eiga 4 börn. Einar Draupnir er
kvæntur Ingibjörgu B. Jónsdóttur
og eiga þau 3 syni og eru búsett í
Rvík. Jón er kvæntur Guðrúnu Ól-
afsdóttur og eiga þau 3 börn en
áður eignaðist Guðrún einn son.
Kristín er gift Gunnari Þórðarsyni
og eiga þau 3 börn og eru búsett
á Nýfundnalandi. Sjöfn á 3 börn
108 Reykjavík. Sfmi 31099
Opið öli kvöld
til kt. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
og er gift Pálma Jónssyni. Þau eru
búsett í Bolungarvík. Lilja er yngst
af systkinunum og er hún gift Þor-
katli Birgissyni og eiga þau 3 börn
og eru þau búsett í Bolungarvík.
Þó að við vissum að afi gekk
ekki heill til skógar og að kallið
gæti komið þá og þegar kom frétt-
in um andlát hans okkur í opna
skjöldu og upp í hugann koma allar
minningarnar. Minningar um ferð-
irnar ófáu sem farnar voru vestur
til afa og ömmu á Hóli. Þangað var
alltaf yndislegt að koma. Alltaf var
mikið um að vera á Hóli, mikill
gestagangur og enn í dag skiljum
við ekki hvernig Fríða amma gat
töfrað fram veisluborð án þess að
hafa fyrir því. Við fengum oft að
fara með afa á sjóinn og ekki spillti
fyrir að á bænum voru hænur og
kindur og er okkur sérlega minnis-
stætt þegar við fengum í heyskapn-
um að færa afa kaffi í flösku í ullar-
sokk.
Núna iíður afa vel kominn til
elsku ömmu sem hann syrgði svo
sárt. Blessuð sé minning þeirra.
HálfdánJEinar og Elín Ósk
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
KÁRI SIGURBJÖRNSSON,
Ásgarði 13,
lést í Borgarspítalanum þann 15. nóvember.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Laufey Einarsdóttir,
börn, tengdabörn
og barnabörn.
t
Útför ástkærs eiginmanns míns,
KJARTANS GUÐNASONAR,
verður gerð frá Hallgrímskirkju í dag, þriðjudaginn 3. desember,
kl. 13.30.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu
minnast hans, er bent á SÍBS.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jóna Jónasdóttir.
+
Elskuleg móðir okkar,
KRISTÍN SVEINSDÓTTIR
frá Viðfirði,
Kaplaskjólsvegi 51,
Reykjavík,
er lést 23. nóvember, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mið-
vikudaginn 4. desember kl. 15.00.
Börn hinnar látnu.
+
Elskuleg fósturmóðir mín, tengdamóðir og amma,
MARGRÉT BJARNADÓTTIR,
dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi,
áður Vesturgötu 66,
verður jarðsungin frá Akraneskirkju fimmtudaginn 5. desember
kl. 14.
Bjarni Vésteinsson, Steinunn Sigurðardóttir,
Margrét Bjarnadóttir, Sigurður Bjarnason.
+
Faðir okkar, tengdafaðir og efi,
PÁLL GUNNARSSON
fyrrverandi skólastjóri á Akureyri,
LækjarásiH,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 6. desember
kl. 13.30.
Gerður Pálsdóttir, Einar Ragnarsson,
Hólmgeir Þór Pálsson, Ástríður Erlendsdóttir
og barnabörn.
Morgunblaðið tekur afmæl- is- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- + Elskuleg konan min, móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
stjórn blaðsins á 2. liæð í Aðal- amma,
stræti 6, Reykjavík og á skrif- STEINUNN JÓHANNSDÓTTIR,
stofu blaðsins í Hafnarstræti Garðavegi 8,
85, Akureyri. Hafnarfirði,
Athygli skal á því vakin, að verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði miðvikudaginn
greinar verða að berast með 4. desember kl. 13.30.
góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast henn- ar, er bent á líknarstofnanir.
dagsblaði að berast síðdegis á Þorgils Þorgilsson,
mánudegi og hliðstætt er með börn, tengdabörn,
greihar aðra daga. barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÞÓRÐUR JÓN ÞORVARÐARSON
verslunarmaður,
Birkihvammi 6,
Hafnarfirði,
er lést í Landspítalanum 24. nóvember, verður jarðsunginn frá
Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði miðvikudaginn 4. desember kl. 15.00.
Sjöfn Bachmann Bessadóttir,
Lilja K. Þórðardóttir, Björgvin H. Hilmarsson,
Ingibjörg Þórðardóttir, Árni Sigmundsson,
Jón Þórðarson, Ásbjörg Björgvinsdóttir,
Geirþrúður Þórðardóttir, Jóhannes P. Davíðsson
og barnabörn.
+
Þökkum auðsýnda samúð við andlát föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
KRISTINS M. SVEINSSONAR,
Hrafnistu v/Kleppsveg,
áður Austurbrún 25.
Sveinn Kristinsson, Elín Snorradóttir,
Þorkell Kristinsson, Guðrún Ármannsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
GRIKKLAND AR OG SIÐ
Skemmtilegar og firæðandi greinar
um Grikkland og gríska menningu.
G rikkland hefur löngum staðið mönnum fyrir
hugskotssjónum sem táknmynd varanlegra gilda
í líli og list, þar sem viska og fegurð renna saman
í eitt. í fornöld var þar lagður sá grundvöllur sem
allt menntalíf Vesturlanda - listir og fræði,
heimspeki og vísindi - hefur síðan hvílt á.
Bókin Grikkland ár og síð hefur að geyma tuttugu
og fimm greínar eftir íslenska samtímamenn,
rithöfunda og fræðimenn á ýmsum sviðum. Þær
varpa ljósi á ólíka þætti griskrar menningar að
fomu og nýju. I bókinni em einnig tveir kaflar með
ljóðaþýðingum úr fomgrísku og nýgrísku.
Höfundar
Sigurður A. Magnússon
Kristján Ámason
Þorsteinn Þorsteinsson
Patricia Kenig Curd
Eyjólfur Kjalar Emilsson
Vilhjálmur Ámason
Þórjakobsson
Guðmundur Amlaugsson
Þórarinn Guðnason
Sveinn Einarsson
Þorsteinn Gunnarsson
grema em:
Sigurbjöm Einarsson ''
Hrafnhildur Schram
Guðmundur J. Guðmundsson
Jón Sveinbjömsson
Einar Sigurbjörnsson
Ragnar Sigurðsson
Friðrik Þórðarson
Magnús A. Sigurðsson
Þorkell Sigurbjömsson
Þóra Kristjánsdóttir
Thor Vilhjálmsson
mz
%
HIÐ ÍSLENZKA BÓKMKNN'IAFÉLAG
SIÐÚMOLI 21 • PdSTHÖl.FÖ935 • 128 RKVKJAVlk . SlMI 91-679060
1816 1991