Morgunblaðið - 11.12.1991, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 11.12.1991, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1991 9 Hjartans þakkir til allra, sem sýndu Útskála- kirkju hlýhug og vinsemd á 130 ára afmceli hennar 17. nóvember sl., meÖ gjöfum, heilla- skeytum, kveðjum og þátttöku í afmælishá- tíðinni. Sérstakar þakkir til hreppsnefndar Gerðáhrepps og kvenfélagsins Gefnar. Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól. Sóknarnefnd Útskálakirkju. Gríptu daginn! Núna er rétta tækifærið til að hefja reglulegan sparnað með áskrift að Spyma þarf viðfótum Ótti við atgervisflótta Stúdentum fjölgar stöðugt í háskólum Danmerkur án þess að fjár- veitingar séu auknar. Framlög til rannsókna dreifast á of margar hendur. Þetta kemur niður á gæðum rannsóknanna og kennslan v'erður slök. Vaxandi hætta er á að hæfileikaríkir ungir Danir leiti til útlanda. Þetta kemur fram í umfjöllun danska dagblaðsins Berl- ingske Tidende fyrir skemmstu. Samkvæmt fréttum í Berlingske Tidende 23. nóvember síðastliðinn telja margir sem til þekkja, þ. á m. Ove Nath- an, rektor Kaupmanna- hafnarliáskóla, að nú þurfí að spyraa við fótum til þess að slæmt ástand í rannsóknum og há- skólakennslu í Dan- mörku leiði ekki til at- gervisflótta, þ.e.a.s. að hæfileikaríkt ungt fólk leiti annað eftir námi og störfum við sitt hæfi. Margir aðilar innan háskólánna vilja fækka stúdentum til að hægt verði að sinna þeim betur sem fá inngöngu. Ekki gangi lengur að fjölga sifellt námsmönnum án þess að auka fjárfram- lög. Bruno Hansen, for- maður Ramisóknaráðs Danmerkur, tekur i sama streng og Ove Nathan: „Unga fólkið er n\jög duglegt og hyggið, og sjái það að kostur er á betii menntun erlendis þá fer það úr landi.“ Hansen telur að alþjóða- samstarf skipti æ meira máli í raimsóknum. En til þess að njóta sín þar verði Danir að sérhæfa sig meira, nú dreifist Qárveitingar til rann- sókna á of margar hend- ur. „Vissulega er þörf fyrir aukið fé til rann- sókna en rannsóknar- aðilar ættu fyrst og fremst að leiða í þós hvar við getum staðið okkur og slíkiu' rannsóknir ættu að ganga fyrir. Þá verður fýsilegt að eiga samstarf við okkur.“ Leif Kjærgaard, for- stjóri fyrirtækisins Dan- isco, sem leggur mikla áherslu á rannsóknir seg- ist hins vegar ekki óttast það að unga fólkið læri í útlöndum. „Það er æski- legt, fólk leitar og fær innblástur. En það verð- ur aldrei mcirihluti námsmanna sem gerir þetta. Danir eru of heimakærir til þess að svo verði. Mörg af vanda- málum okkar má jú relga til þess að fólk vill ekki einu sinni flytjast um set innan landamæra Dan- merkur." Breið sam- staða um fjár- lögin Óvenju breið samstaða náðist um fjárlagafrum- varp dönsku stjómarinn- ar þegar það var sam- þykkt 5. desember síð- astliðinn. Sex flokkar studdu frumvarpið, jafn- aðarmenn, íhaldsflokk- urinn, Venstre, mið- demókratar, Radikale Venstre og Kristilegi þjóðarflokkurinn. Ein- ungis Framfaraflokkur- imi og Sósíalíski þjóðar- flokkurinn stóðu ekki að frumvarpinu. Samkvæmt fjárlögunum dragast út- gjöld rikisins saman um 8 milljarða danskra króna frá þessu ári og verða 245 miHjarðar króna. Telgumar verða 217 miiyarðar króna. Hlutfall skatta af þjóðar- framleiðslu lækkar fimmta árið i röð og verður 47,9%. Af einstök- um þáttum fjárlaganna má nefna að sejja á hluti i ríkisfyrirtælgum, i viss- um tilfellum getur fólk farið á eftirlaun 55 ára gamalt, skorin verða nið- ur útgjöld til vamarmála, og laun í atvinnubóta- vinnu lækkuð. Um þessi tiðindi segir danska dag- blaðið Det fri aktuelt í forystugrein 6. desember síðastliðinn: „Þetta er í fyrsta sinn í tið Pouls Schliiters forsætisráð- herra að svo breið sam- staða næst. Vissuiega stóðu ríkisstjórnin og jafnaðarmenn saman að fjárlögum 1987 en þá fóru Radikalar í fýlu og ekki jókst tiltrú þeirra á að jafnaðarmenn gætu myndað stjóra... Þau tæp tíu ár sem Poul Schliiter hefur verið við stjórnvöl- inn hafa sýnt að hann lætur harða stjórnarand- stöðu ekki slá sig út af laginu. Og fjárlögin nú sýna að ríkisstjórnin er reiðubúin til að sitja næstum sama hvað það kostar. Fátt getur komið í veg fyrir að ríkisstjóra- in fagui tiu ára afmæli i september 1992. Þjóðþing sem tekst samhent á 'við stærri vandamál er besta trygg- ingin fyrir varanlegum lausnum. Og það er líka besta leiðin til að vinna á þeirri vantrú á getu stjórnmálamanna sem stór hluti almennings er veig'ulega haldinn." spariskírteinum ríkissjóðs Hringdu eða komdu í Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa eða Seðlabanka íslands ogpantaðu áskrift að spariskírteinum ríkissjóðs. ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ RÍKISVERÐBRÉFA 5 S s Kalkofnsvegi 1, sími 91-699600 Hverfisgötu 6, sími 91- 626040 Kringlunni, sími 91- 689797 RABBFUNDUR I VIB-STOFUNNI Eru Flugleiðir á réttri leið? Á morgun, fimmtudaginn 12. desember, mun Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða hf. verða í VlB-stofunni og ræða við gesti um rekstur félagsins. Hver eru áhrif EES samningsins á Flugleiði og hvernig ætla þeir að nýta sér aukin tækifæri á evrópumarkaði? Verður viðunandi hagn- aður af rekstri félagsins í framtíðinni? Fundurinn hefst kl. 17:15 og er öllum opinn. Verið velkomin! Afih4 " S T O F A N 1 Ármúla 13a, 1. hæö.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.