Morgunblaðið - 11.12.1991, Page 11

Morgunblaðið - 11.12.1991, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1991 11 Berklar og kaþólsk trú Bókmenntir Guðrún Þóra Gunnarsdóttir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir: Þeg- ar sálin fer á kreik. Minningar Sigurveigar Guð- mundsdóttur. Forlagið 1991. Minningar eru merkilegur þáttur í lífinu, án þeirra væri lífið harla tóm- legt. Atburðir dagsins í dag öðlast mikilvægi í ljósi þess sem var, við erum alltaf með mælistiku fortíðar- innar á lofti. Það sannar hvað best hin skemmtilega og sígilda setning „elstu menn muna ekki annað eins“. Mér hefur hins vegar ætíð verið það mikið undrunarefni hversu mikið fólk man 'og kemur það einna best í ljós í sjálfsævisögum og ævisögum. Oft er þetta fólk sem rekur líf sitt komið á efri ár en þrátt fyrir það standa atburðir sem gerðust fyrir sextíu, sjö- tíu árum því ljóslifandi fyrir sjónum. Vandræðalaust getur það lýst hugblæ og tilfinningum svo náið sem atvikið hefði gerst í gær. Mér finnst þetta mikil- gáfa þó kannski sé eitthvað skáldað. Aðalatriðið er ævisagan standi sem heild, líkt og skáldverk og hún hafi einhveiju að miðla. Sigurveig Guðmundsdóttir hefur, eins og öll hennar kynslóð, lifað tím- U111540 Einbýlis- og raðhús Mosfellssveit — lögbýli. Nýbýli úr landi Úlfarsfells 3/4 úr hekt- ara. 160 fm nýl. íbhús. 160 fm útihús. Digranesvegur. Mjög fallegt 150 fm tvíl. parhús. Saml. stofur, 4 svefnherb. Parket. 38 fm bílsk. Áhv. 4,3 millj. húsbr. Réttarholtsvegur. Mjög gott 115 fm raðhús kj. og tvær hæðir. Laust. Áhv. 3,5 millj. byggsj. Verð 10,0 millj. Freyjugata. Mjög skemmtil. 130 fm tvíl. einbhús. Saml. stofur, 3-4 svefn- herb. Verð 9,5 millj. Geitland. Mjög gott 192 fm raðh. á pöllum. Stór stofa. Suðursv. 5 svefn- herb. Bílsk. Markarflöt. Mjög gott 135 fm einl. einbhús auk 53 fm bílsk. Saml. stofur, 3-4 svefnherb. Parket. 4ra, 5 og 6 herb. Furugrund. Mjög góð 4ra herb. íb. á 1. hæð ásamt einstaklíb. í kj. Laus strax. Lyklar á skrifst. Laugarnesvegur. Skemmtil. 5 herb. íb. á tveimur hæðum sem er öll endurn. Áhv. 3,0 millj. byggsj. Laus fljótlega. Alfheimar. Góð 100 fm íb. á 4. hæð auk 30 fm innr. riss. Tvennar sval- ir. Þvhús í íb. 15 fm aukaherb. í kj. Nýtt þak. Blokk er nýmáluð. Bilskréttur. Neðstaleiti. Mjög falleg og vön- duð 100 fm endaíb. á 2. hæð. Saml. stofur. 2 svefnherb. Parket. Þvottah. í íb. 32 fm stæði í bilskýli. Framnesvegur — viö Grandaveg. Mjög góð 105 fm íb. á 1. hæð. Saml.' stofur, 3 svefnherb. Suðursvalir. Fellsmúli. Góð 106 fm íb. á 3. hæð. 3 svefnh. Vestursv. Áhv. byggsj. 3,3 millj. Fiskakvísl. MJög falleg 112 fm íb. á tveimur hæðum. Áhv. 2,6 millj. byggsj. Laust strax. Lyklar á skrifst. Kaplaskjólsvegur. Góð 120 fm íb. á 4. hæð m. óinnr. risi yfir. 3 svefnh. Parket. Suðvestursv. Áhv. 3,5 millj. byggsj. Laus. Lyklar á skrifst. 3ja herb. Gnoðarvogur. Glæsil. nýstands. 75 fm íb. á 1. hæð. 2 svefnh. Parket. Suðvsv. Verð 6,5 millj. í Suðurhlíðum Kóp. Glæsil. 85 fm íb. á 1. hæð. Allt sér. 24 fm bílsk. Áhv. 4,7 millj. Byggstj. Eign í sérfl. Bólstaðarhlíð. Góð 80 fm íb. í góðu fjölbýlish. Stór stofa. 2 svefnherb. Suðursv. m. sólhýsi. 2ja herb. Súluhólar. Mjög góð 51 fm íb. á 1. hæð. Áhv. 2,5 millj. byggsj. Keilugrandi. Falleg 52 fm íb. á 2. hæð. Suðaustursv. Stæði í bílskýli. Áhv. 1,8 millj. byggsj. Víkurás. Mjög góð 60 fm íb. á 2. hæð. Flísar. Áhv. 1750 þús Byggsj. Veghús. Mjög falleg 75 fm íb. á 2. hæð. Suöursv. Áhv. 4,5 millj. byggsj. rík. Verð 6,9 millj. FASTEIGNA ILÍl MARKAÐURINN Óðinsgötu 4 11540 - 21700 Jón Guðmundsson, sölustj., lögg. fast,- og skipasali, Leó E. Löve, lögfr. Ólafur Stefansson, viðskiptafr. m anna tvenna og stórkostlegar breyt- ingar hafa orðið á íslensku samfélagi á æviskeiði hennar. í mótun persónu Sigurveigar, sem fæddist í Hafnar- fírði árið 1909, skipti þó mestu sú staðreynd að henni var sem ungri stúlku í blóma lífsins kippt út úr sam-. félaginu og inn á berklahæii þar sem hún barðist við hvíta dauða í mörg ár, þar af marflöt í gipsi í tvö ár. Er svo sem frá nokkru að segja í slíkri tilveru? Jú, reyndar, því þegar hinn ytri heimur lokast, utan eins klefa, þá fer sáiin á kreik. Heimurinn var hjáieigan, höfuðbólið draumsins ríki. (180) Annar og ekki síðri áhrifavaldur var sú ákvörðun Sigurveigar að taka kaþólska trú rétt tvítug að aldri og uppfrá því var kaþólska kirkjan ieið- arstjarna hennar í lífinu. Sigurveig hefur minningar sínar á ffásögnum um foreldra sínum, Guð- mund Hjaltason lýðskólafrömuð og Hólmfríði Björnsdóttur sem var bláfátæk vinnukona úr Fljótunum áður en hún giftist Guðmundi. Á þeim hjónum var talsverður aldurs- munur og Sigurveig naut samvista við föður sinn aðeins í níu ár. Það kemur berlega í ljós að hún leit mik- ið upp til hans og var mikið hænd að honum. Faðir hennar var mikill menntamaður og ól dóttur sína upp í víðsýni og virðingu fyrir fræðum ■ og þekkingu allri. Árangur þessa uppeidis skilaði sér vel því Sigurveig hefur alla tíð verið afar fróðleiksfús, einkum hefur áhugi hennar beinst að bókmenntum og heimspeki. Henni er tamt að kryfja hlutina og horfa á þá frá mörgum hliðum og mynda sér þannig skoðanir. Hún kemur lesand- anum fyrir sjónir sem ákveðin en skarpgreind kona. Sigurveig virðist ekki hafa verið jafn náin móður sinni og hún var föður sínum, þrátt fyrir að þær mæðgur ættu eftir að búa þröngt í mörg ár eftir að Margrét eldri systir Sigurveigar giftist og fór að heiman. Föður Sigurveigar þótti það sjálf- sagt mál að stúlkur menntuðu sig til EIGIMASALAN REYKJAVIK SAMTENGD SÖLUSKRÁ ÁSBYRGI IM.WSMW Símar 19540- 19191 Yfir 30 ára reynsla tryggir öryggi þjónustunnar ARNARTANGi - MOS. 140 fm einb. á einni hæð. í húsinu eru stofa, borðstofa og 4 svefnherb. m.m. 33 fm góður bílsk. fylgir. Hér er um að ræða sórlega vandað og skemmtil. hús á frábærum útsýnisstað. KVISTHAGI - HÆÐ 34 FM BÍLSKÚR Rúml. 120 fm ib. á 2. hæð. 2 rúmg. stofur og 3 svefnherb. m.m. Tvennar svalir. Góð eign é góðum stað. 34 fm bflsk. fylgir. Ib. er laus og til sýnis daglega. GAUTLAND - 4RA-5 HERB. Rúml. 100 fm góð Ib. á 2. hseð (efetu) í fjölb. Skiptlst f'rúmg. hol, stóra stofu og 3 svefnherb. m.m. Stórar euðursv. Öll sam- eign utanhúss sem innan ný- stands. Góð eign á góöum stað. SÓLHEIMAR 25 4ra herb. rúmg. íb. á hæð í þessu vinsæla lyftuh. íb. er til afh. strax. (Húsvörður í húsinu.) HRINGBRAUT - 3JA 3ja herb. íb. á 2. hæð í fjölb. Laus. Verð 5,1-5,2 millj. LJÓSHEIMAR - 2JA Góð 2ja herb. íb. á 9. haeð i lyftuh. Miklð útsýnl. Verð 4,9 mlllj. EIGIMASAL/\IM REYKJAVIK Ingólfsstræti 8 Jp Sími 19540 og 19191 11 Magnús Einarsson, lögg. fastsali, Eggert Elíasson, hs. 77789. Svavar Jónsson, hs. 657596. jafns á við pilta og trú þeirri skoðun barðist móður hennar fyrir því að hún gæti menntað sig. Þegar Sigurveig hafði lokið fullnaðarprófi frá Kvenn- skólanunt varð hún að fara á Vífil- staði því berklar sem hún hafði feng- ið nokkrunt árum fyrr höfðu tekið sig upp. Vífilstaðir voru samfélag í samfélaginu þar sem ungt fólk var í stórum hluta og návistin við dauðann gleymdist aldrei. Kaflarnir unt dvölin á Vífilstöðum hafa að geyma áhrifa- miklar lýsingar frá þessum menning- arstað því þar voru bækur og tónlist í hávegum hafðar enda segir Sigur- veig það hafa verið iítið fagnaðarefni að fara heim. Þar beið einmanalegt líf því fólk af hælinu var ekki vin- sælt til samvista. Sigurveig var ekki laus við berklahælið því árið 1929 var hún send á Kópavogshæli og þar sem líkami hennar var heftur í gips en andinn ekki. Það má gróflega skipta þessari minningaþók í fernt: æskan, berkl- arnir, kaþólskan og kvenréttindin. Trúin á hug Sigurveigar fyrst og síð- ast og ætlaði hún að verða nunna en veikindi hennar komu í veg fyrir það. Þá ákvað hún að fæða hinni kaþólsku kirkju eins mörg börn og henni væri unnt og urðu þau alls sjö talsins en maður hennar var Sæ- mundur Jóhannesson. Sigurveig segir Sigurveig Guðmundsdóttir og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. hispurslaust frá og er oft hressilega hreinskilin. Hún hefur auga fyrir húmorískum þáttum tilverunnar og er engin pempía í frásögn. En mér þótti hún afgreiða fyrstu kynni þeirra Sæmundar á fremur snautlegan hátt og raunar hleypir hún lesandanum lítt inní fjölskyldulíf sitt eftir að fyrstu æskuárunum sleppir. Trúarlífinu ger- ir hún hins vegar nákvæm skil og kann að vera að það haft verið henn- ar helsta markmið með því að láta skrá minningar sínar. En hún lýsir fjölmörgu fólki sem á vegi hennar verður og persónuiýsingar hennar eru margar áhugaverðar að ógleymdri sterkri frásögn hennar af heimsókn- inni í Herdísarvík til Einars Bene- diktssonar sem þá var farinn að kröft- um og þreki. Sigurveig hefur líka alla tíð verið mikil kvenréttindakona og aðstæður og kjör kvenna fyrr á tímum koma vel fram í minningum hennar. Ingibjörg Sólrún er ekkert að trana sér fram í frásögnina og rödd Sigur- veigar hljómar hindrunarlaust. Mér finnst það mikil kostur. Verkið er sett upp á skýran og skipulegan hátt þannig að frásögnin líður þægilega áfram. Verkið ber vitni um vönduð vinnubrögð höfundar og það hefur að geyma margar markverðar upp- lýsingar sem gagn var að skrá. Lýsiströtu á hvert heimili Bókmenntir Jóhanna Kristjónsdóttir Raisa Gorbatsjov: Ég vona. Ge- orgy skráði Ólafur B. Guðnason Útg. Iðunn 1991 Raisa Gorbatsjov segir frá lífi sínu, liðnum tímum og líðandi stund segir á undan inngangi. Forvitnileg bók nokkuð; Raisa Gorbatsjov hefur verið umtöluð kona frá því maður hennar hófst til vegs 'og valda í Sovétríkjun- urn. Hún birtist jafnan við hlið hans, fór í ferðalög með honum til útlanda, var glæsilega klædd og stakk í stúf við þá íniynd sem var af rússneskum konum sem margar virðast ferkant- aðar og ófrýnilegar og hörmulega kauðskar í klæðaburði. Þegar hún og Gorbastsjov fóru í eina fyrstu heimsókn sína til útlanda, og áður en hann varð númer eitt, kölluðu blaðamenn þau gjarnan „Gucci-hjón- in“ og var þar með vísað til klæða- burðar þeirra og • almennrar glæsi- mennsku. Raisa Gorbatsjov hefur oft fengið það óþvegið, sagt að hún sé svo málglöð að aðrir komist ekki að, hún sé drottnunargjörn og hrokafull og baði sig upp úr allri athygli sem hún fær. Hún hefur án efa notið meiri hylli á Vesturlöndum en heima fyrir og sama má segja um manninn henn- ar sem nú gæti orðið að hrökklast frá á ný ef svo fer sem horfir að æ meira molnar úr þessu fyrrverandi risaveldi. Raisa hefur valið sér rithöfundinn Pryakhin til að segja honum frá ævi sinni. Hann kemur óspart til sögunn- ar, leggur mörg mismunandi spakleg orð í belg og dregur ályktanir og tekur afstöðu sem er kannski ekki venja í Vesturlandabókum þessarar gerðar. Hann er mjög hrifinn af þeim hjónunt og fer ekki í launkofa með virðingu sína og fögnuð yfir því að honum er falið þetta ábyrgðarhlut- verk því Raisa segist oft og mörgum sinnum hafa verið beðin urn ævisögu áður en hún lét tilleiðast. Hún segir frá æsku og uppvexti, foreldrum og vinum, námi í Mosvku og kynnum, tilhugalífi og hjónabandi þeirra Gorbatsjov og er orðmörg um flest og hástemmd oft svo að manni þykir nóg unt. Hún er meðvituð kona og ábyrg og umhyggjusöm og raunar prýða hana flestir kostir að mati skrá- setjarans. Hún ræðir um gagnrýnina sem hún hefur sætt, þungbæra erfið- leika sem hún hefur gengið í gegnum í lífinu sem mér finnst nú raunar vera gert alltof mikið úr. Birtir eru margir útdrættir úr aðdáendabréfum, þakkarkveðjum og umsögnum sem henni hafa borist. Það er of mikið af öllu þessu lofi fyrir en einkum fannst mér þó stíll Pryakhins of fjálg- ur og skrúfaður; honum finnst nauð- synlegt að hefja hana á stall ofur- kvenna. Sá kafli sem mér þótti hvað at- hygliverðastur var þegar Raisa var að ræða tiltölulega afskiptalítið frá Pryakhin um konuna sig, móðurhlut- verkið, togstreituna sem hún átti í við sjálfa sig af því hún vildi sinna fræðigrein sinni og fannst hún van- rækja dóttur sína og uppeldisskyldur sínar. Staða kvenna almennt er henni líka hugleikin, launamisréttið og hve fáum konum tekst að komast til æðstu metorða þrátt fyrir að í sjálfu sér hafi þær ekki minni burði til þess en karlmaður. „Lýsiströtu hetju Ari- stófanesar sem stöðvaði styrjöld er nú þörf á hverju heimili og í hverri fjölskyldu til þess að bjarga henni. Því hræðilegar stytjaldir geta brotist út innan fjölskyldna. En Lýsistrata er sjálf í hættu og er verndar þurfi,“ segir hún. í þessum hugleiðingum varð hún mjög svo manneskjuleg og Raisa Gorbatsjov blátt áfram, jafnvel skemmtileg. Ólafur B. Guðnason þýðir bókina. Ekki er tekið frarn úr hvaða máli. Þýðingin virkar ósköp eðlileg og virð- ist trú málskrúði höfundar og skráse- tjara. STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN Sparið 1.300 kr. ítalskir ökklakuldaskór með loðkanti. Litir: Svartog brúnt. Stærðir: 35-42. Verð áður kr. 4.995,- Verð nú kr. 3.695,- Póstsendum samdægurs. 5% staðgreiðsluafsláttur. DOMUS MEDICA, Egilsgötu 3, sími 18519. KRINGLUNNI, Kringlunni 8-12, sími 689212. TOPPSKORINN, Veltusundi 1, sími 21212.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.