Morgunblaðið - 11.12.1991, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 11.12.1991, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1991 varaformaður, Gestur Jónsson, hrl., formaður, Sigurður G. Guðjónsson, hrl., ritari, Óskar Magnússon, hdl., meðstjórnandi og Mar- teinn Másson, framkvæmdastjóri Lögmannafélags íslands. Lögmannafélag‘ Islands 80 ára í dag: Skal lögmaður svo til allra mála leggja sem hann veit sannast eftir lögum og sinni samvisku Á myndinni sjást málflutningsmennirnir Eggert Claessen, og Sveinn Björnsson, fyrsti forseti íslands, í dómsal Hæstaréttar íslands skömmu eftir að rétturinn tók til starfa, 16. febrúar 1920. Báðir koma þeir mjög við sögu Lögmannafélagsins. Eggert Claess- en var fyrsti formaður Málflutningsmannafélags íslands, forvera Lögmannafélags Islands, og Sveinn Björnsson var ritari fyrstu stjórnar og tók við formennsku félagsins af Eggert árið 1918. Rætt við Gest Jónsson formann Lögmannafélags Islands LÖGMANNAFÉLAG íslands er 80 ára í dag. 17 lögmenn stofn- uðu Málflutningsmannafélag íslands þann 11. desember 1911 en í árslok 1944 var heiti félags- ins breytt í Lögmannafélag Is- lands. Félagsmenn eru allir þeir lögfræðingar sem starfa sem málflytjendur og eru þeir nú 360 talsins, 130 hæstaréttarlög- menn og 230 héraðsdómslög- menn. 34 konur eru í Lögmann- afélagi íslands. Félagið hefur þá sérstöðu að tilvist þess og aðild málflytjenda að því er ákveðin með lögum um málflytj- endur frá 1942 og félagsstjórn- inni er gert að koma fram fyrir hönd málflytjenda gagnvart dómurum og stjórnvöklum í málum er stéttina varða. Fé- lagsstjómin hefur úrskurðar- vald sem jafngilda dómsorði i tilteknum málum og er hægt að kæra þá úrskurði til Hæsta- réttar, auk þess sem stjómin hefur eftirlitsskyldu og agavald yfir félagsmönnum. Fyrsti for- maður Málflutningsmanna- félagsins var Eggert Claessen en ritari félagsins var þá Sveinn Bjömsson, síðar forseti, sem tók við formennsku af Eggert Cla- essen árið 1918. Eftir Svein Bjömsson hafa eft- irtaldir menn gegnt formennsku í Lögmannafélagi íslands: Jón Ás- bjömsson, Guðmundur Ólafsson, Theódór B. Líndal, Einar B. Guð- mundsson, Magnús Thorlacius, Kristján Guðlaugsson, Lárus Jó- hannesson, Ágúst Fjeldsted, Jón N. Sigurðsson, Guðmundur Ingvi Sigurðsson, Benedikt Blöndal, Páll S. Pálsson, Guðjón Stein- grímsson, Þorsteinn Júlíusson, Helgi V. Jónsson, Jóhann H. Níels- son, Jón Steinar Gunnlaugsson, Sveinn Snorrason, Hákon Árnason og núverandi formaður: Gestur Jónsson hæstaréttarlögmaður. Þrír hæstaréttarlögmenn hafa ver- ið kjömir heiðursfélagar í Lög- mannafélaginu: Rannveig Þor- steinsdóttir, sem er látin, Ágúst Pjeldsted og Egill Sigurgeirsson. Sérhæfing eykst Morgunblaðið tók Gest Jónsson taii af tilefni 80 ára afmælis Lög- mannafélagsins og fyrst barst ta- Gestur Jónsson formaður Lög- mannafélags íslands. lið að því hvaða breytingar hafi orðið á störfum lögmanna í áranna rás: „Meginbreytingin sem orðið hefur frá stofnun félagsins er ef til vill sú að eftir því sem þjóðfélag- ið hefur þróast hafa reglur þær sem gilda um mannleg samskipti orðið flóknari. Fyrstu árin held ég að lögmenn hafi sinnt nánast hverju sem var innan lögfræðinn- ar, sérhæfing hafi verið Iítil. Þetta er að breytast. Lögmenn hafa nú ríkari tilhneigingu til þess að taka að sér verkefni á ákveðnum svið- um, sérhæfing fer vaxandi. Þá er augljós þróun í þá átt að lög- mannsstofur séu að stækka. Það verður æ algengara að lögmenn sameinist um rekstur skrifstofu til að reyna að safna meiri þekk- ingu á einn stað og veita fjöl- breyttari og meiri þjónustu heldur en mögulegt er að gera þegar aðeins um einn lögmann er að ræða.“ Aðild að Lögmannafélagi ís- lands er eins og fyrr sagði skylda öllum þeim lögfræðingum sem hlotið hafa réttindi til málflutnings fyrir dómstólum og starfa á eigin vegum. Lögmenn í ríkisþjónustu, svo og dómarar og hinir íjölmörgu lögfræðingar sem vinna ýmis störf í stjómsýslunni eiga ekki aðild að Lögmannafélaginu heldur er Lög- fræðingafélag íslands hinn sam- eiginlegi vettvangur allra lögfræð- inga landsins. Gestur segir að miðað við höfðatölu sé fjöldi starf- andi lögmanna svipaður hér og í Danmörku og Noregi en en heldur meiri en í Svíþjóð og Finnlandi þar sem lögmenn hafa ekki sama einkarétt á málflutningsstörfum. En hvernig lýsir formaður Lög- mannafélagsins í stuttu máli starfí lögmanna og að hvaða leyti er starfsumhverfi lögmanns á Islandi frábrugðið því sem gerist í ná- grannalöndunum? Lögmaður er aðeins háður skjólstæðingi sínum „Störf Iögmanna snerta nánast öll mannleg samskipti," segir Gestur Jónsson. „Sá þáttur sem mest áberandi er út á við, mál- flutningur fyrir dómstólunum, er aðeins hluti af lögmannsstörfun- um. Miklu tímafrekari er ýmis konar aðstoð sem veitt er fyrir- tækjum og einstaklingum vegna ijárhagsmála. Við viljum líta svo á að það sem skilur lögmann frá flestum öðrum sérfræðingum sé að lögmaðurinn á ekki að vera háður í sínu starfi neinum öðrum en skjólstæðingi sínum. Hann er að vinna fyrir hann og hann ein- an. Lögmaðurinn er málsvari aðila að deilumáli en hann er ekki að vinna í eigin þágu.“ „Þingfestum málum fyrir dóm- stólum hér hefur fækkað mikið síðastliðin tvö ár og sú fækkun hefur öll orðið í vanskilamálum. Það er merkilegt að í Reykjavík voru þingfest fleiri dómsmál en í Stokkhólmi þegar mest var og það tengdist því fyrst og fremst að vanskilakröfur voru svo margfalt fleiri hér en þar. Þetta segir auð- vitað eitthvað um þjóðfélagið en það virðist vera að breyting sé að verða á þessu til batnaðar." Að einhveiju leyti hefur þetta verið afleiðing af því að verðtrygg- ingin kom til sögunnar og menn urðu að aðlaga sig nýjum sannind- um varðandi skuldbindingar sínar. Að einhveiju leyti eru fjármál ein- staklinga hér á landi með öðrum hætti en annars staðar á Norðurl- öndunum. Þar virðast fjölskyldur almennt láta eina peningastofnun annast sín fjármál en hér er miklu algengara að menn stofni til skuld- bindinga út um allt; greiði fyrir húsgögn, bíla, efni og vinnu með skuldaviðurkenningum. Lögmenn oft boðberar válegra tíðinda Hver er ímynd lögmanna í aug- um fólks? Gestur Jónsson kveðst telja að hann sé málinu ef til vill of nátengdur til leggja mat á það, en: „Okkur er afskaplega annt um að halda ímyndinni góðri. Okkur er Ijóst að lögmaðurinn er oft boð- beri válegra tíðinda í lífinu. Hann kemur fram fyrir hönd þess sem þarf að gera kröfur á hendur öðr- um og er til varnar þeim sem lend- ir í því að fremja refisverðan verknað. Þetta er kannski ekki alltaf hlutverk sem er fallið til vin- sælda. En markmið þessa félags er meðal annars að reyna að tryggja það að þeir sem eru í þessu starfi vinni eftir ströngum reglum sem stuðla að heiðarleika. Upphaf siðareglna okkar hljóðar svo: „Lögmanni ber að efla rétt og hrinda órétti. Skal lögmaður svo til allra mála leggja, sem hann veit sannast eftir lögum og sinni samvisku.““ Hvernig er starfsemi Lögmann- afélags íslands háttað? Félagið rekur skrifstofu í eigin húsnæði að Álftamýri 9 í Reykja- vík. Þar veitir framkvæmdastjóri félagsins, Marteinn Másson, lög- fræðingur, upplýsingar og tekur á móti erindum og stjórnar dagleg- um rekstri skrifstofunnar. Auk stjórnar eru starfandi innan fé- lagsins nefndir, sem vinna að margvíslegum málum. Laganefnd fylgist með breytingu á löggjöf, lagafrumvörpum á alþingi og öðru sem talið er skipta máli skipta máli eru talin varðandi löggjöf og lagaframkvæmd hér, auk þess sem hún gefur umsagnir og fjallar um einstök frumvörp eftir því sem tilefni er til. Það að auki eru okk- ar félagsmenn til aðstoðar og ráð- gjafar og oft beinlínis höfundar við samningu lagafrumvarpa. „Námsjóður félagsins veitir ein- stökum lögmönnum styrki til námsferða og vísindastarfa. Á vegum sjóðsins eru einnig gefnar út bækur um lögfræðileg málefni. Lögmannafélagið er virkur þátt- takandi í samstarfi lögmannafé- laga á Norðurlöndum og hefur undanfarin tvö ár verið aðili að Alþjóðasambandi lögmanna. Gjaldskrárnefnd félagsins gefur stjórn og félagsmönnum álit um það hvað teljist hæfíleg þóknun fyrir lögmannsstarf ef eftir er leit- að og kjaranefnd vinnur að hags- munamálúm lögmanna og gerir tillögur um þau til stjórnar. Þá settu lögmenn að eigin frumkvæði á fót sérstakan Ábyrgðarsjóð árið 1976. í hann greiða félagsmenn eftir ákveðnum reglum og sjóður- inn hefur það hlutverk að tryggja skjólstæðingum Iögmanna að þeir verði ekki fyrir tjóni ef lögmaður verður fjárþrota og getur ekki staðið skil á fjármunum sem hon- um hefur verið trúað fyrir í starfi sínu. í tvígang hefur þurft að greiða úr þessum sjóði og nýlega kom upp þriðja tilvikið sem nú er til meðferðar. Félagið setur sér og félags- mönnum siðareglur sem tilgreina hvað eru góðir lögmannshættir, eins og það heitir. Þar er fjallað um skyldur lögmanna gagnvart skjólstæðingum, dómstólum, þjóð- félaginu í heild og Lögmannafé- laginu. Eins og fram hefur komið er aðild að félaginu skylda og það er í raun til hreinna vandræða að félagsmenn geta ekki haft áhrif á hveijir eru í félaginu, sem þýðir einnig að eftirlitshlutverkið er mjög erfitt. Lögin frá 1942 um málflytjendur eru að ýmsu leyti böm síns tíma og í gangi er um umræða breyta þeim í átt að því sem gerist hjá öðrum þjóðum, sem komnar eru mun lengra en við í þéssum efnum. Opna nú besta lögbókasafn landsins En hvernig minnast lögmenn 80 afmælis Lögmannafélagsins? „I fyrsta lagi verður á afmælis- daginn haldin móttaka fyrir lög- menn í húsnæði félagsins í Álfta- mýri og þar verður við það tæki- færi opnað bókasafn félagsins; vinnubókasafn sem stefnt er að að verði besta bókasafn lögfræði- legs eðlis á landinu. Hugsunin er sú að auk bókanna verði boðið upp á vinnuaðstöðu þar sem lögmenn hafa aðgang að síma, ljósritunar- vél, telefaxi, ritvinnslu — öllu því sem þarf til að sinna lögmanns- störfum. Þá er fyrirhuguð á vegum fé- lagsins gífurlega umfangsmikil endurmenntun fyrir lögmenn vegna þeirra miklu breytinga, sem verða á þeim lagabálkum sem kalla má kjarnann í réttarfarinu á miðju næsta ári. Þessar breytingar nálgast það að vera bylting í ís- lensku réttarfari og fela í sér að margt að því sem lögmenn hafa unnið eftir mun tilheyra sögunni og menn þurfa að læra annað í staðinn."
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.