Morgunblaðið - 11.12.1991, Side 20

Morgunblaðið - 11.12.1991, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1991 Sameinumst gegri EES „Mér er í minni stundin þá marbendill hló“ eftír Önund * Asgeirsson Franski rithöfundurinn Alexander Dumas mun hafa verið fyrstur til að skrifa nútíma spennusögu er nefndist Maðurinn sem hlær (L’homme qui rit). Nú hefir hann heldur betur verið sleginn' út með sögu Jóns Baldvins af þjóðhetjunni ódauðlegu: „Pípumaðurinn sem hló aldrei" (í 3 ár og sagði alltaf nei). Enginn hafði reyndar heyrt af öllum þessum hetjuskap þar til þeir félagar tóku að skýra landsmönnum frá hetjudáðinni í fjölmiðlum, og hlógu hátt og í heyranda hljóði að fáráðun- um í Lúxemborg og Brussel, sem létu þá plata sig upp úr skónum, og sitja nú eftir með sárt ennið í EB- kastölum sínum þarna úti í Evrópu. Þótti nú reyndar mörgum sem ekki væri mikil stjómkænska fólgin í frá- sögnunum af hetjudáðinni. Morgunblaðið, hið sanngjama og hlutlausa dagblað allra landsmanna, studdi þessa ævintýralegu frásögn af „þjóðhetjunum" með heilli opnu og myndum í fullri stærð af þeim báðum og ítarlegum en einhliða texta um hetjuskapinn. Ekki hefir enn þótt ástæða til að birta landsmönnum hinn raunvem- lega texta samkomulagsins við tals- menn EB varðandi aðild íslands að efnahagssvæðinu, EES. Þess í stað hefír utanríkisráðherrann ferðast vítt og breitt um landið til að kynna sína eigin afstöðu til málsins og gefa sínar eigin skýringar. Vitað er þó að 15 manna lið vinnur dag og nótt að þýðingum á þeim lögum og reglugerðum, sem taka skal í lög hérlendis til að ísland geti fullnægt þeim kröfum, sem þjóðhetjurnar gengust undir við talsmenn EES, og eru forsendur samningsgerðar- innar. Gert er ráð fýrir að þýðing kröfu- Það er peningur i Egils gleri! Nú er skilagjald margnota glers 15 krónur. Ekki henda verömœtum, hafðu tómt Egils gier meðferðis þegar þú endurnýjar Egils birgðirnar í ncestu verslunar- eða sjoþpuferð. Það er drjúgur peningur! gerðarinnar á hendur íslendingum ljúki snemma næsta árs og að kostn- aður, sem áætlaður var 55 milljónir króna, fari eðlilega fram úr áætlun. Síðan ber að leggja þessi gögn fyrir Alþingi, sem ekki má breyta neinum stafkrók í fýrirmælunum frá EES, því að ella megi íslendingar eta það sem úti frýs og aldrei komast í Para- dís. Mun þá mörgum málglöðum þingmanni þykja sem hann muni sinn fífíl fegri, sviptur málfrelsi um sjálfsákvörðunarrétt og fullveldi lands og þjóðar, sem þeir með þin- geiði höfðu heitið að veija til hinsta blóðdropa. En þjóðhetjunum frá Lúxemborg þykir þetta næsta lítið mál, og lýsa hvern þann óalandi og ófeijandi, sem í móti mælir, en það mun reyndar vera verulegur meiri- hluti þjóðarinnar. Þeir eru ósammála um umfang þess tollsparnaðar, sem samningam- ir valdi. Segja sumir nokkur hundr- uð, aðrir 1.600 eða 2.000, og jafn- vel 3.000 milljónir, án sundurliðunar á einstökum liðum, sem í sjálfu sér hlýtur að teljast fyrirlitning á upp- lýsingaskyldu stjómvalda. Þess í stað er hótað að beita flokksaga til að kúga alþingismenn til hlýðni við samþykkt aðildarinnar að EES. Þetta ber vitni um slæman málstað og er með öllu óviðunanlegt frá lýð- ræðislegu sjónarmiði, og minnir frekar á miðstýringuna, sem menn Önundur Ásgeirsson „Aðild að EES er ekki bara mál nútímans og stundarhagsmuna, heldur afsal íslenskra réttinda til langs tíma, e.t.v. um langa fram- tíð.“ eru nú að bijóta af sér austantjalds. Mest af þessum „tollaspamaði" er hins vegar þegar í milliríkjasamn- ingum milli íslands og EB nú þeg- ar, og er þannig aðeins villandi og óraunhæft reikningsdæmi. Stærsti liðurinn mun vera saltfiskurinn, en skv. núverandi fríverslunarsamning- um ber ekki að greiða innflutning- stolla af honum. Verulegur hluti inn- flutningsins er tollfijáls, en það sem umfram er ætti innflytjandinn að greiða tollinn af og verð að hækka samsvarandi til neytenda. Þetta er þó ekki svo, því að Norðmenn greiða innflutningstollana sjálfir með niður- greiðslum úr ríkissjóði þeirra, sem í ár mun nema yfír 30 milljörðum ís- lenskra króna. Þetta skekkir sam- keppnishæfni íslenskra útflytjenda, sem hafa þess vegna greitt inn- flutningstollinn sjálfir, og gera það að sjálfsögðu á eigin ábyrgð og fyr- ir eigin reikning. Ríkissjóður hér hefir ekki burði til að taka þetta verkefni að sér. Norðmenn hafa ávallt reynst svik- ulir á alþjóðlegum samkeppnis- mörkuðum, og svo er enn. Nýjar fréttir eru, að þeir greiða lýsi niður 100%, þ.e. þeir fá ekkert sjálfir fýr- ir framleiðsluna, því að ríkissjóður þeirra borgar. Þetta er sennilega enn vitlausara en nokkru sinni var austantjalds. Einnig berast nú frétt- ir um að þeir séu að undirbjóða ís- lenska sfld á öllum helstu mörkuðum okkar og hjá öllum helstu viðskipta- mönnum Síldarútvegsnefndar er- lendis. Þetta er eflaust gert í skjóli norskra niðurgreiðslna, sem er al- gjört siðleysi. Engar heimildir benda til þess, að slík mál séu rædd í Norð- urlandaráði, og væri þó full ástæða til. í drögum að samningum við EES mun gert ráð fyrir að þessum niður- greiðslum verði hætt, en hver trúir því, að norskir sjávarvöruframleið- endur sleppi þessum niðurgreiðslum? Það mun örugglega reynt að fínna "leiðir til að beina þessum nið- FLYTJUM VERSLUN- INAINN í LANDIÐ eftír Jóhann J. Olafsson Glasgow-ferðir Enn á ný, nú í jólakauptíðinni, eru innkaupaferðir íslendinga til útlanda í brennidepli. Almennt er ekkert við því að segja þótt fólk bregði fyrir sig betri fætinum og skreppi í búðir ytra. Alla jafna skapar það inn- lendri verslun aðhald og nauðsynleg- an samanburð til þess að mæta sam- keppni. Gallinn er bara sá að á sama tíma dregur hið opinbera nteð ofsköttun úr hæfni íslenskrar verslunar til þess að mæta þessari samkeppni. Afleið- ingin er sú, að þessar innkaupaferð- ir hafa vaxið úr hófi, og eru famar að grafa undan eðlilegri verslunar- starfsemi í landinu. Viðbrögð Eðlilegust viðbrögð væru þau að innlend verslun mætti þessari sam- keppni með því að bjóða betri þjón- ustu. Þetta hefur hún gert bæði með lægra vöruverði og lengri opnunar- tíma verslana, allt til kl. 10 og 11 á kvöldin, svo og aukinni þjónustu á laugardögum og jafnvel sunnudög- um. En þetta dugar ekki tií. Skattar Jóhann J. Ólafsson Hið opinbera leggur verslunina í einelti og þjakar,hana alveg sérstak- lega með þungum álögum. íslensk verslun er búin að ganga langan veg frá gjaldeyris- og inn- flutningshöftum, verðlagshöftum og takmörkunum á opnunartíma versl- ana. Allt er þetta að baki sem betur fer, en hart hefur þurft að beijast fyrir jafn sjálfsögðum hlut. Ennþá greiðir verslunin hærri skatta en aðrar atvinnugreinar, t.d. tryggingagjald í hæsta flokki (áður launaskatt), hæstu aðstöðugjöld til sveitarfélaga, hærri fasteignagjöld og sérstakan skatt á verslunarhús- næði. Við þetta bætist svo eignar- skattur og eignarskattsauki. Þessir skattar valda því að verslunin þarf að kaupa eigið húsnæði sitt af ríkinu á 25 ára fresti, fyrir utan annan kostnað, eins og viðhald, afskriftir, húsaleigu, vexti o.þ.h. „Verslunarstétt lands- ins og stjórnvöld verða að taka höndum saman og flytja verslunina aft- ur inn í landið. Alögur á verslunina verður að fella niður og gera að- stöðu hennar slíka að meira sé verslað hér- lendis en stjórnvöld hvetji ekki beinlínis til þess að landsmenn snið- gangi eigin búðir.“ 1 stað þess að bregðast rétt við og afnema allar þessar álögur og jafna aðstöðu verslunarinnar í land- inu er tekið upp á því að herða toll- eftirlit á Keflavíkurflugveli. Fjármálaráðherra lýsti því yfir í útvarpi að það væri gert að ósk for- ustumanna verslunarinnar. Það skal tekið fram að Verslunarráð íslands hefur ekki beðið um þetta, enda hefur það ekki trú á tollskoðun til að koma í veg fýrir samkeppni. Yfir- völd verða auðvitað sjálf að gera það upp við sig hvenær og hvemig þau framfylgja lögum landsins og þurfa engar óskir í þeim efnum. Það skal aðeins tekið fram að tollskoðun á íslandi er einhver sú strangasta í allri Vestur-Evrópu og langj, á eftir tímanum. Þá hafa heyrst um það raddir að hækka ætti verð á flugfarseðlum með því að leggja á þá virðisauka- skatt. Þannig á að hindra fólk bæði í því að komast út úr landinu og inní það aftur. En það er einfaldlega ekki hægt að loka kaupmáttinn inni. Hvenær á að horfast í augu við raunveruleikann? Auðvitað borgar verslunin þetta ekki úr eigin vasa, nema þeir sem verða gjaldþrota, heldur viðskipta- vinimir í hærra vöruverði. Þess vegna verslar fólk annars staðar. Verslunin er rekin úr landi. Skattalækkun án skattalækkunar Á Alþingi var rætt um það hvort ætti að framlengja sérstakan „tíma- bundinn" skatt á skrifstofu- og verslunarhúsnæði í 14. sinn. Niður- Það er nú að verða öllum ljóst að þvingunaraðferðir þær sem áður er lýst heyra brátt sögunni til. Á öld vaxandi nálægðar og ferðafrelsis eiga íslendingar það eitt vopn eftir að mæta samkeppni erlendra mark- aða með hagkvæmri verslun. Verslunarstétt landsins og stjórn- völd verða að taka höndum saman og flytja verslunina aftur inn í land- ið. Alögur á verslunina verður að fella niður og gera aðstöðu hennar slíka að meira sé verslað hérlendis en stjórnvöld hvetji ekki beinlínis til þess að landsmenn sniðgangi eigin búðir. staðan var sú að ríkið gæti ekki séð af þessum tekjum hvað sem afleið- ingum líður. En tekjur ríkisins af skatti þessum fara minnkandi því almenningur kemur sér hjá honum með því að versla erlendis í auknum mæli. Þannig þyrfti að hækka skatt- inn af ríkið ætlar að halda tekjunum, en þá myndu utanferðir bara aukast enn meira. Höfundur er formaður Verslunarráðs íslands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.