Morgunblaðið - 11.12.1991, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1991
Útúrsnúningar
Finns Ingólfssonar
eftir Ólaf F.
Magnússon
Laugardaginn 7. desember sl.
birtist í Morgunblaðinu grein undir
heitinu „Þjónustuna fil fólksins" eft-
ir Finn Ingólfsson, alþingismann
Framsóknarflokksins. Grein Finns
fjallar að verulegu leyti um ræðu,
sem ég flutti í borgarstjórn Reykja-
víkur 7. nóvember sl., en þá mælti
ég fyrir tillögu borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins, um að leggja beri
niður svokallað samstarfsráð heilsu-
gæslustöðva í Reykjavík, en Finnur
er formaður þessa ráðs. I grein sinni
snýr Finnur útúr málflutningi mín-
um og kemst oft að rangri niður-
stöðu, m.a. þeirri að ég sé á móti
heilbrigðisþjónustu í úthverfum
borgarinnar!
„Þjónustuna til fólksins"
Ég hef í blaðagreinum ítrekað þá
skoðun mína, að vinda beri að því
bráðan bug, að koma á fót heilbrigð-
isþjónustu fyrir íbúa Grafarvogs-
hverfis í íbúðarbyggðinni þar. Á
fundi borgarstjórnar Reykjavíkur 5.
desember sl. samþykkti borgarstjóm
samhljóða, að skora á ríkisstjómina
að verja fé til uppbyggingar heilsu-
gæslustöðvar í Reykjavík „til að
koma á fót heilsugæslustöð í Grafar-
vogshverfí og til að sinna öðrúm
brýnum forgangsverkefnum". Frétt
um þessa samþykkt borgarstjórnar
birtist í Morgunblaðinu sama dag
og grein Finns Ingólfssonar um
„þjónustuna til fólksins", en sem
kunnugt er hefur Finnur ranglega
haldið því fram, að borgarstjómar-
flokkur Sjálfstæðisflokksins vilji
„grafa undan“ starfsemi heilsu-
gæslustöðva í borginni. Með þessu
á Finnur væntanlega við það, að
sjálfstæðismenn telja, að vel sé hægt
að byggja upp heilsugæsluþjónustu
í borginni, án þess að Ieggja niður
þá heilsuvemdarstarfsemi og heimil-
islæknaþjónustu, sem veitt er utan
heilsugæslustöðva. Framsóknar-
menn hafa hins vegar sýnt það og
sannað, að þeir vilja hafa heilsugæsl-
una í Reykjavík sem líkasta þeirri,
sem íbúar dreifbýlisins búa við.
Það væri of langt mál að leiðrétta
í einni grein alla þá útúrsnúninga,
sem Finnur Ingólfsson viðhefur í
áðumefndri grein sinni. En til að
lesendur Morgunblaðsins geti borið
saman fullyrðingar Finns Ingólfs-
sonar og þá ræðu sem hann fjallar
um í grein sinni vil ég biðja Morgun-
blaðið að birta_ tvo stutta kafla úr
þessari ræðu. í fyrri kaflanum eru
færð fram rök fyrir því, að leggja
beri samstarfsráð heilsugæslustöðva
niður, en í þeim síðari em tilnefnd
dæmi um óvönduð vinnubrögð sam-
starfsráðsins.
Rök gegn samstarfsráðinu
„í heilbrigðisþjónustulögunum,
sem afgreidd vom frá Alþingi 4.
maí 1990, er yfirlætislítil en afdrifa-
rík setning, þar sem segir: „Ráð-
herra setur reglugerð í samráði við
héraðslækni um fyrirkomulag á
samvinnu heilsugæslustöðva innan
Reykjavíkurlæknishéraðs." Á þess-
ari setningu í lögum um heilbrigðis-
þjónustu byggði fyrrverandi ráð-
herra reglugerð, sem gefin var út
4. september 1990. Þar var kveðið
á um stofnun „samstarfsráðs heilsu-
gæslustöðva" og að í þessu ráði
skyldu sitja 4 formenn stjóma
heilsugæsluumdæmanna, sem að
sjálfsögðu vom allir flokksbræður
ráðherrans úr Framsóknarflokkn-
um. Auk þess skyldi héraðslæknirinn
í Reykjavíkurlæknishéraði sitja í ráð-
inu og til bráðabirgða formaður
stjórnar Heilsuvemdarstöðvar
Reykjavíkur.
Samstarfsráð heilsugæslustöðva
hefur að vemlegu leyti sniðgengið
stjórnir heilsugæsluumdæmanna og
stjóm Heilsuvemdarstöðvar Reykja-
víkur. Af því hef ég reynslu sem
fulltrúi Reykvíkinga í stjóm Heilsu-
vemdarstöðvar Reykjavíkur og í
stjóm heilsugæsluumdæmis Vestur-
bæjar.
Samstarfsráð heilsugæslustöðva á
sér hæpna stoð í lögum um heilbrigð-
isþjónustu, eins og valdsvið þess og
umfang er skilgreint í reglugerð um
samvinnu heilsugæslustöðva. Sam-
starfsráðið hefur tekið sér það vald,
að vera yfirstjóm stjórna heilsu-
gæsluumdæmanna og stjómar
Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur.
Að mínu mati hefur samstarfsráðið
fremur stuðlað að stjórnunarlegri
óvissu og sundrungu en samræm-
ingu og ég hef áður lýst þeirri skoð-
un minni að nafngift þess sé löngu
orðin að öfugmæli. Ég legg því til,
að samstarfsráð heilsugæslustöðva
verði lagt niður og að framkvæmda-
stjóri heilsugæslustöðva og héraðs-
læknirinn í Reykjavík sjái um sam-
ræmingu á starfi heilsugæslustöðv-
anna í samráði við stjómir heilsu-
gæsluumdæmanna og heilbrigðis-
ráðherra. Þetta er viðunandi bráða-
birgðalausn en breytir ekki þeirri
staðreynd, að ný ríkisstjóm Sjálf-
stæðisflokks og Alþýðuflokks þarf
að breyta heilbrigðisþjónustulögun-
um í átt til aukinnar valddreifingar
og sjálfstæðis heilbrigðisstofnana,
eins og stjórnarsáttmáli flokkanna
gefur fyrirheit um.“
Dæmi um vinnubrögð
„í heilsugæsluumdæmi Vestur-
bæjar, þar sem Anna K. Jónsdóttir,
borgarfulltrúi, situr í stjórn ásamt
mér fyrir hönd borgarstjómarflokks
Sjálfstæðisflokksins, hefur sam-
starfsráðið verið með áætlanir í
gangi um kaup á nýju húsnæði fyrir
heilsugæslustöð Hlíðahverfis, án eðl-
ilegs samráðs við stjóm umdæm-
isins. Á síðasta fundi í stjórn um-
dæmisins vom sýndar teikningar af
þessu húsnæði, sem unnar vora í
samráði við starfsfólk heilsugæslu-
stöðvarinnar, án vitundar stjórnar-
innar! Við Anna lýstum undran okk-
ar á þessum vinnubrögðum, þó sam-
starfsráðið hafi fyrir löngu sýnt, að
það kann listina að koma á óvart!
I heilsugæsluumdæmi Miðbæjar
hafði samstarfsráðið ekki eðlilegt
Ólafur F. Magnússon
„Þetta er viðunandi
bráðabirgðalausn en
breytir ekki þeirri stað-
reynd, að ný ríkisstjórn
Sjálfstæðisflokks og
Alþýðuflokks þarf að
breyta heilbrigðisþjón-
ustulögunum í átt til
aukinnar valddreifing-
ar og sjálfstæðis heil-
brigðisstofnana, eins og
stjórnarsáttmáli flokk-
anna gefur fyrirheit
um.“
samráð við stjórn umdæmisins, þeg-
ar gengið var til samninga við lækna
í Álftamýri um kaup ríkisins á
rekstri þeirra, en nú reka læknamir
heilsugæslustöð fyrir Laugarnes-
hverfi samkvæmt samningi og í
tengslum við fjárlög. Jóna Gróa
Sigurðardóttir situr í stjórn umdæm-
isins fyrir hönd borgarstjómarflokks
Sjálfstæðisflokksins og getur eflaust
frætt viðstadda nánar um þau sér-
kennilegu vinnubrögð, sem sam-
starfsráðið hefur viðhaft í þessu
heijsugæsluumdæmi.
I heilsugæsluumdæmi Austurbæj-
ar nyrðra, sem nær yfir Árbæjar-,
Seláss- og Grafarvogshverfi gerðist
landsfrægt heilsugæsluævintýri í lok
aprílmánaðar á þessu ári. Én þá
gerðist það, að formaður samstarfs-
ráðsins, sem jafnframt var og er
formaður stjórnar heilsugæsluum-
dæmisins, auk þess sem hann var
aðstoðarmaður þáverandi heilbrigð-
isráðherra og blaðstjómar dagblaðs-
ins Tímans reyndi að bjarga fjár-
hagsvandræðum blaðsins, með því
að láta ríkið kaupa húsnæði Tímans
á Lynghálsi 9 undir heilsugæslustöð
fyrir Árbæjarhverfi! Ingólfur Sveins-
son, sem situr í stjórn heilsugæslu-
umdæmisins fyrir hönd borgar-
stjórnarflokks Sj álfstæðisflokksins
getur staðfest það hér í kvöld, að
áætlanir formanns samstarfsráðs
heilsugæslustöðva um heilsugæslu-
stöð í húsnæði málgagns Framsókn-
arflokksins vora ekki aðeins án sam-
ráðs við stjórn umdæmisins, heldur
gengu þær í berhögg við yfirlýstan
vilja stjórnarinnar og íbúa Árbæjar-
hverfis."
Ótvíræð bókun
heilsugæslustj órnar
í áðumefndri grein sinni reynir
Finnur Ingólfsson að draga fjöður
yfír þátt sinn í heilsugæsluævintýr-
inu í Árbæjarhverfi með raglings-
legu orðalagi, þegar hann segir: „í
fjórða lagi nefnir Olafur til sem rök
og þau kannski þyngst, að sennilega
hafí staðið til að kaupa húsnæði á
Lynghálsi 9, sem Ólafur segir að sé
eign Tímans, sem er nú auðvitað
rangt að gera að heilsugæslustöð
fyrir Árbæjarhverfi í trássi við allt
og alla. Þegar málflutningurinn er
kominn á þetta plan þá dæmir hann
sig sjálfur."
í fundargerð stjórnar heilsugæslu
Austurbæjaramdæmis nyrðra frá 6.
júní sl. er þess getið, að 3 stjórnar-
menn af 5 hafi lagt fram yfirlýsingu
til heilbrigðisráðherra, dags. 28.
apríl sl., þar sem þeir mótmæla fyrir-
ætlunum ráðherra, um kaup á hús-
næði Blaðaprents á Lynghálsi 9,
fyrir heilsugæslustöð fyrir Árbæjar-
hverfí. Síðan bókuðu allir stjórnar-
menn, að formanninum, Finni Ing-
ólfssyni, undanskildum eftirfarandi:
„Undirrituð harma þau vinnubrögð
formanns að vinna utan funda, beint
gegn samþykktum og stefnu stjórn-
arinnar eins og fram kemur í með-
fylgjandi yfirlýsingu frá 28. apríl
1991.“ Undir bókunina rita: Ingólfur
Sveinsson, Anna Kristjánsdóttir,
Valgerður Gunnarsdóttir og Hrönn
Kristjánsdóttir.
Svo mörg voru þau orð!
Höfundur er læknir og
varaborgarfulltrúi í Reykjavík.
SIEMENS
Litlu raftœkin frá SIEMENS gleðja
augað og eru afbragðs jólagjafir!
kaffivélar
jf hrærivélar
ff brauðristar
íl vöfflujárn
| strokjárn
| handþeytarar
eggjaseyðar
djúpsteikingarpottar
hraðsuðukönnur
dósahnífar
áleggshnífar
kornkvamir
,j-aclette“-tæki
veggklukkur
vekjararklukkur
rakatæki
bílryksugur
handryksugur
blástursofnar
hitapúðar
hitateppi o.m.fl.
Lítiö inn til okkar og skoðiö vönduö tœki.
Munið umboðsmenn okkar víðs vegar um landið!
Bíldudalur:
Syndugir svallarar eftir Haf-
liða Magnússon komin út
Bíldudal.
RITHÖFUNDURINN og lista-
maðurinn Hafliði Magnússon
hefur sent frá sér sína þriðju
bók, sem ber nafnið Syndugir
svallarar. Hafliði gefur bókina
út sjálfur, en hún er prenluð hjá
Odda.
Syndugir svallarar er um tvo
náunga í þorpi sem eru lítið fyrir
vinnu gefnir) en kjósa frekar að
drekka og djamma. Þeir eru oft
auralitlir og þurfa að fara í eitt og
annað grams til að komast af og
lenda þeir félagar í ýmsum ævintýr-
um vegna þess. Þetta er gaman-
saga, myndskreytt með 20 skop-
teikningum eftir Hafliða sjálfan.
Syndugir svallarar er þriðja bók
Hafliða. Árið 1978 kom út bókin
Bíldudals grænar baunir og seinna
Togarasaga, með tilbrigðum, árið
1981.
Hafliði hefur líka samið söng-
leiki, m.a. söngleikinn Sabínu, sem
Litli leikklúbburinn á ísafirði fór
með á leiklistarhátíð í Bergen í
Noregi. Leikfélag Akureyrar sýndi
sama söngleik við góðar undirtekt-
Hafliði Magnússon
ir. Þá hefur Hafliði bæði leikstýrt
og gert leikmyndir fyrir Leikfélagið
Baldur á Bíldudal.
R. Schmidt.
RfjjR ÓGNÞRUNGIN ÖRIAGASAGA
ÚR BYGGÐUM ÍSIENDINGA
EFTIR JANE SMILEY Á GRÆNIANDI
Bókaútgáfan
Hildur
AUÐBREKKU 4 - 200 K0PAV0GUR
SÍMAR 91-641890 OG 93-47757