Morgunblaðið - 11.12.1991, Side 26

Morgunblaðið - 11.12.1991, Side 26
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER'1991 26 Verðlaun og sölumennska eftir Svein Einarsson í dag, þegar þessar línur eru ritaðar, verður tilkynnt hvaða bækur verða tilnefndar til hinna svokölluðu íslensku bókmennta- verðlauna 1991, jafnt fagurbækur sem fræðibækur. Ég vil ekki reyna að dyljast þess, að kveikjan að þessum skrifum mínum er gremja mín og sárindi yfir því, að bók mín íslensk leiklist I, sem kemur út nú í vikunni, skuli ekki vera þar á meðal — ekki vegna þess að dómnefnd hafi ekki talið hana hæfa, heldur vegna þess að útgef- andi hafði ekki'sinnu eða döngun til að leggja hana fram. Nú skal það að sjálfsögðu látið ósagt, hvort umrædd bók væri verðlaunaverð, um það verða auðvitað aðrir að dæma, en maður hefði þó haldið að samkvæmt skilgreiningu mætti gefa fyrstu tilraun til að rækja einn þátt íslenskrar menningar- sögu tækifæri, jafnvel þótt útgef- andi þyrfti að punga út með skitn- ar 30 þúsund krónur. Undanfama daga hef ég orðið meira og meira hissa á þeim að- ferðum sem bókaútgefendur beita til að láta vaxa í potti hjá sér. í tveim tilvikum hefur það orðið að blaðamáli. Einn auglýsti út- gáfubækur sínar í umgjörð sem var eftirlíking af því sem hannað er í kringum þuli Sjónvarpsins. Hér var augljóslega verið að seil- ast inn í landhelgi, þar sem ætlast er til að staðreyndir og traustleiki ráði ríkjum en auglýsingar - eru aftur nokkuð oft skrumkenndar — fýrir nú utan það að gengið var á höfundarrétt hönnuðarins. Hitt dæmið er enn grófara og tengist líka hinu vinsæla jóladaga- tali Sjónvarpsins. Þar hefur höf- undur dagatalsins látið hafa sig í að útbúa nýtt dagatal með skír- skotun til umræddra sjónvarps- þátta. Því dagatali er svo dreift í bókaklúbbi og litlir tilburðir hafðir í frammi til þess að upplýsa daga- talsunnendur um að reyndar sé ekki um Sjónvarpsdagatalið að ræða. Framleiðsla Jóladagatals- þáttanna er ákaflega dýrt fyrir- tæki — enda um tvo og hálfan klukkutíma samanlagt af Ieiknu efni að ræða og kostar á 7. milljón í útlögðum kostnaði. Dagatalið hefur verið ein af forsendum fyrir því að þetta hefur verið hægt, en trúlega verður að endurskoða for- sendur, þegar svo er vegið að allri hugmyndinni. Siðlaust en löglegt sagði Vilmundur heitinn Gylfason. kannski ekki löglegt heldur. Þejgar efnt var til hinna svoköll- uðu Islensku bókmenntaverðlauna fyrir tveimur árum, komu fram „íslensku bókmennta- verðlaunin rísa ekki undir heiti eins og nú er í pottinn búið o g for- seti Islands á ekki að Ijá þeim lið fyrr en þarna hefur verið gerð brag- arbót.“ ýmsar gagnrýnisraddir. Það er þó bersýnilegt, að það er ekki fyrr en á sjálfum skellur, að augu manns uppljúkast almennilega. Fjöldinn allur af höfundum er úti- lokaður, annað hvort vegna þess að þeir gefa sínar bækur út sjálfir eða íjárvana forlag. Rokið er í til- nefningar áður en allar bækur eru útkomnar og nokkur hefur yfír- vegaða yfirsýn yfir uppskeruna. Og það er sem sagt geðþótta- ákvörðun útgefanda, hvaða bækur eru Iagðar fram (með þessum ein- kennilegu 30 þúsundum); dóm- nefnd getur engin áhrif haft þar um. Af hverju? Það er augljóst. Höf- uðtilgangur þessara verðlauna er að vekja athygli á einstaka bókum, sem líklegt er að megi með þessu móti auka sölu á fyrir jólin — þá Sveinn Einarsson auðvitað á kostnað annarra. Með öðrum orðum, þetta eru ekki bók- menntaverðlaun heldur söluaukn- ingarverðlaun og auglýsinga- mennska. Hvað sölu á umræddri bók minni snertir myndi nefnilega slík tilnefning sennilega ekki breyta miklu. Hana kaupir 500-1.000 manna hópur, sem telur sig þurfa að umgangast bók sem þessa, bókmenntafólk, leikhúsfólk, al- mennt áhugafólk um menningar- sögu, bókasöfn; þetta er þó frum- heijaverk og efni dregið til í ein þrjátíu ár og þar er reynt að gefa yfirlit um það sem ekki hefur áður verið sinnt, samhengið milli ís- lenskrar og erlendrar leiklistar, og eins fjallað um á 6. tug leikrita, sem óvíða annars staðar er getið. Svona bók mjatlast líka út af sjálfsdáðum síðar. Ég vil taka það fram til að forðast misskilning, að það var umrætt forlag sem leit- aði til mín um útgáfu bókarinnar, eftir að vitnaðist að ég væri með leiklistarsögu í smíðum. Reyndar föluðust tvö önnur forlög einnig eftir bókinni en mér þótti, líka samkvæmt skilgreiningu, að út- gáfa bóka af þessu tagi væri ein- mitt markmið og verksvið um- ræddrar bókaútgáfu. Það eru gömul sannindi, að það upphefur mann enginn nema mað- ur sjálfur né heldur niðurlægir. Ég hef þó alltaf verið þeirrar skoð- unar, að uppörvun, t.d. í formi verðlauna eða útnefninga, sé af hinu góða. En þá þarf að búa bet- ur um hnúta en hér er gert. ís- lensku bókmenntaverðlaunin rísa ekki undir heiti eins og nú er í pottinn búið og forseti íslands á ekki að ljá þeim lið fyrr en þarna hefur verið gerð bragarbót. Höfundur er dagskrárstjóri lyá Sjónvarpinu. Dýpkandi lægð eftir Birgi Hermannsson Sá sem upphafinu veldur, veldur miklu. I fjármálaráðherratíð Þor- steins Pálssonar, sællar minning- ar, setti þáverandi ríkisstjórn gengið fast, en lét allt annað hér innanlands rúlla áfram á fljúgandi ferð í óðaverðbólgu. Götur höfuð- borgarinnar yfírfylltust af ódýrum nýjum bifreiðum sem fjármagnað- ar voru af útflutningsatvinnuveg- unum. Með fastgengisstefnunni voru eitthvað á annan tug millj- arða króna fluttar frá útflutnings- atvinnuvegunum til eyðslu innan- lands. Eftir þessa kollsteypu átti margur fiskverkandinn aldrei eftir að ná landi. Verðtryggingin og okurvextimir sáu til þess. Stuttu síðar var u.þ.b. sömu upphæð dól- að út úr sjóðum ríkisins til sömu atvinnuvega, þegar allt var komið þar í strand. Það voru bara ekki allir, sem töpuðu fé sínu á tímum fastgengisstefnunnar, sem fengu þessi lán. Aðeins þeir sem gátu sýnt fram á farsælan taprekstur, helst svo skipti nokkrum hundruð- um milljóna króna, fengu þessi lán. Hver sem vita vildi, vissi að í mörgum sjávarplássunum voru ekki til svo margar hendur að þær hefðu moguleika á að skera úr og pakka það miklu af fiski að hægt væri að standa undir þeim lánum sem fyrir voru á fyrirtækjunum, hvað þá að greiða af hinum nýju lánum. Það hefur heldur tæplega nokkrum lántakanda dottið sú fá- sinna í hug, að endurgreiða ætti krónu af þessum lánum. Og hvað gerist? Jú, verið er að fresta af- borgununum um tvö ár, og hvað svo? Ekki þarf mikinn vitring til að sjá það fyrir. Við höfum í heimsku okkar ver- ið að gagnrýna vanda Sovétríkj- anna og annarra sósíalískra ríkja, sem nú standa frammi fyrir al- gjöru hruni vegna miðstýringar ríkisins og þeirra hörmunga sem af hlýst þegar ábyrgðarlausir emb- ættismenn fara að stjórna fyrir- tækjum og vasast með einstakl- ingana. Ekki er annað greinan- legt, en að við séum ennþá og höfum lengi verið á mjög líkri braut og eigum svo sannarlega Birgir Hermannsson „Þeir sem fengu úthlut- að frá því opinbera standa á mörkuðunum við hlið hinna sem ekk- ert fengu og bjóða í fisk og aflakvóta að vild.“ eftir að súpa sama beiska seiðið af sömu ástæðum. Stjómmálamenn og ríkisstarfs- menn úthluta okkur lánum eða kvótum, gera suma að öreigum, aðra að margföldum milljónamær- ingum með ráðstöfunum sínum. Allt sem kallast samkeppni snýst upp í andhverfu sína. Þeir sem fengu úthlutað frá því opinbera standa á mörkuðunum við hlið hinna sem ekkert fengu og bjóða í físk og aflakvóta að vild. Verðið skiptir þá litlu máli, þeir kaupa án ábyrgðar, það sem þeir telja sig þurfa fyrir sinn rekstur. Þeir sem ekki hljóta náð fyrir augum úthlutunarmanna fara eðlilega lóðrétt á hausinn. Ef þetta er ekki „sósíalismi andskotans“, þá væri ánægjulegt að fá nánari skilgrein- ingu á því hugtaki. Höfundur er trillukarl og fyrrverandi fiskverkandi. KAUPMANNAHAFNARPISTILL Markaður og markaðssetning Nú haustar að hér í Danaveldi, lauf tijánna breyta ört um lit og þessa daga feykir gustur af hafi visnuð laufi langa vegu. Verslanir eru þegar farnar að undirbúa jólin og nú í byijun nóvember eru víða komnar upp jólaskreytingar. Jóla- undirbúningur kauphéðna virðist stöðugt færast fram. Unglingar hafa látið til sín heyra og vilja að reynt verði að hindra þennan ótímabæra jólaundirbúning. Þeir óttast að eftirvæntingin verði horf- in þegar kemur að jólum og hafa þeir nokkqð til'síns máls. Jólaskraut tekur breytingum Annars er greinilegt að fram- leiðsla jólaskrauts er víða orðin að öflugum iðnaði óg á ferðum erlendis í haust hefur máít sjá vandað jólaskraut í sérstökum básum í verslunum við ferðamann- astaði, bæði vestan hafs og aust- an. Tilgangurinn er að gefa ferða- mönnum tækifæri á að kaupa fal- legt jólaskraut til að bæta í jóla- skreytingasafn sitt heima. Jólaskrautið virðist einnig vera að taka breytingum. Jólasveinar rauðklæddir hafa að sjálfsögðu sinn heiðurssess. Gamaldags jóla- skraut úr máluðu tré er að ná vin- sældum og er tekið fram yfir plast- ið og glingrið. Nú má jólaskraut gjarnan vera handunnið og það á að vera vandað, litríkt, fallegt og heimilislegt. Þama ætti að vera tækifæri til tekjuöflunar fyrir „hagar hendur“ heima á Fróni. Breytt áhersla I gerð minjagripa Á ferðalagi í ár um ferðamanna- staði í Bandaríkjunum og Evrópu — í Rússlandi, vakti athygli sú breyting sem er að verða á minja- H.C. Andersen gripaverslun. Nú sjást varla „Sou- venir shops“ lengur. í þeirra stað eru komin „Art Centers“ og „Art Shops“ eða „Listamiðstöðvar“ og „Listmuna-verslanir“. Munirnir eða minjagripir sem þar eru seldir eru einnig orðnir vandaðri en þeir voru áður og þeir eru dýrari. Þessi breyting hefur komið í kjölfar breytinga sem orðið hefur á ferða- háttum fólks. Það ferðast mun meira en það gerði áður, það fer víðar og leita því gjarnan eftir góðum grip til minja sem gjarnan hefur eitthvert listrænt gildi og er á einhvem hátt sérstakur fyrir þann stað sem heimsóttur er. Lifandi safn Danir kunna vel þá þá list að markaðssetja áhugaverða vöru. Hér í Nýhöfn, Nyhavn 69, hefur nýlega verið opnað mjög fallegt og fræðandi safn um meistara ævintýranna, H.C. Andersen, en hann bjó á ýmsum stöðum hér í Nýhöfninni. í safninu er kynntur æviferill skáldsins í máli og mynd- um og er þar að finna upplýsingar um skáldið og teikningar sem ekki hafa komið fyrir augu almennings áður. Safnið er á fimm hæðum og eru veggir skreyttir litríkum myndum sem listamenn á ýmsum tímum hafa gert í tengslum við sögur og ævintýri H.C. Andersens. Það vekur sérstaklega athygli hve safnið er lifandi. Þarna hefur verið sett upp lítið brúðuleikhús. I öðrum sal eru ævintýri hans les- in af listamönnum og síðastliðinn sunnudag var hann þétt setinn ungum jafnt sem öldnum. Sviðs- setningin var mjög þjóðleg. At- höfnin hófst á því að ungur söngv- ari, klæddur í kjólfrakka og með pípuhatt í stíl H.C. Andersen, söng danska söngva með þátttöku allra viðstaddra. Síðan hófst lestur æv- intýranna Fólk naut greinilega stundarinnar. Bækur og markaðssetning Á annarrí hæð safnsins er lítil verslun sem selur ævintýri H.C. Andersens á dönsku og einnig fjöl- mörgum öðrum tungumálum, að vísu ekki á íslensku. í þýðingu barnabóka á erlend tungumál getur verið falin mikil og jákvæð landkynning sem við íslendingar höfum ekki sinnt sem skyldi. I því sambandi rifjast upp fyrir mér ferð í bókabúðir í Reykja- vík á ferðamannatíma í sumar er ég Ieitaði að barnabók eftir íslen- skan höfund í enskri þýðingu. Mér var tjáð, í bókabúð einni við mið-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.