Morgunblaðið - 11.12.1991, Page 29

Morgunblaðið - 11.12.1991, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1991 29 Sinfóníuhljómsveitin: 140 skólabörn koma fram á jólatónleikum Afla landað úr Glófaxa í Vestmannaeyjahöfn í gær. Morgunblaðið/Sigurgeir Jón Kjartansson, formaður Verkalýðsfélags Vestmannaeyja: Fólk fer að flýja héðan verði þetta viðvarandi JÓN Kjartansson, formaður Verkalýðsfélags Vestmannaeyja, segir að kvótasalan frá Vestmannaeyjum sé í tonnum talið jafngildi þess sem Aflamiðlun hafi úthlutað til útgerðarinnar í Eyjum frá miðjum október sl. til loka þessa árs í gámaleyfum. Hann segir að fólk fari að taka sig upp frá Vestmannaeyjum verði ekki lát á kvótasölu frá bænum. Elías Björnsson, formaður sjómannafélagsins Jötuns í Vest- mannaeyjum, sagði að mjög erfitt væri að áætla það tekjutap sem sjómenn yrðu fyrir vegna kvótasölunnar frá Eyjum. „Maður er gjörsamlega varnar- frá sér,“ sagði Elías. Hann sagði iaus gagnvárt þessu. Við höfum aldrei skrifað upp á neina kvótasölu og þar af leiðandi erum við ekki spurðir," sagði Elías. „Auðvitað kemur þetta okkur við, að því leyti að kvótasalan kemur niður á félags- mönnum okkar. Hitt er annað mál að útgerðarmönnum finnst okkur ekki koma þetta neitt við, þeim finnst þeir eiga þetta. Við leiddum kannski hugann að því að þetta gæti gérst en okkur datt ekki í hug að þetta yrði að veruleika - að fisk- vinnslan sjálf færi að selja kvótann þá staða Vestmanneyinga að þínu mati? „Ég segi það enn og aftur að atburðir af þessu tagi gerast í Vestmannaeyjum, þá er það vegna þess að undirstöður þessarar at- vinnugreinar í heild eru ekki nægi- lega sterkar. Það er það verkefni sem menn þurfa að einbeita sér að, að treysta þessar undirstöður. Ef þær eru nægilega traustar þá mun stærsta verstöð landsins geta haldið áfram að vera það og sinna sínu mikilvæga hlutverki." - Er það nú ekki nokkuð seint í rassinn gripið, að ætla að treysta undirstöður, þegar kvótinn er horf- inn úr byggðarlaginu? „Vissulega hefðu menn mátt huga að þessu fyrr. Ég hygg, að ef menn horfa til baka, þá hefði mátt taka aðrar og miklu skynsam- legri ákvarðanir fyrir þremur árum, þegar menn stóðu frammi fyrir vanda sjávarútvegsins. Ef menn hefðu þá náð saman um raunhæfar aðgerðir, þá væri staða þessara fyrirtækja önnur í dag og sjávarútvegsins í heild. Út frá því sjónarmiði má segja að þetta sé of seint. Þessi ríkisstjórn hefur verið að vinna að því að breyta þessum grundvelli, en það má til sanns vegar færa að tími ríkis- stjórnar Steingríms Hermannsson- ar var dýr biðtími." Viðtal: Agnes Bragadóttir. að kvótasalan leiddi sjálfsagt til aukins atvinnuleysis meðal sjó- manna. „Það er bara með ólíkindum . hvað þeir hafa mikið fjármagn þarna fyrir norðan. Þessi lög hafa frá upphafi verið þannig, sérstak- lega frá því að aflamarkið var látið ráða, að ef illa fer getur kvótinn safnast fyrir á fárra manna hend- ur,“ sagði Elías. „Okkur líst ekki vel á þetta en það er kannski ekki úr háum söðli að detta því að frá miðjum október og fram til dagsins í dag hefur Aflamiðlun úthlutað í gámaleyfum jafnmiklu og kvótasalan nemur, eða 1600 tonnum,“ sagði Jón Kjartans- son, formaður Verkalýðsfélags Vestmannaeyja. „Meiri hluti aflans fer því til að draga úr atvinnuleysi á Humber-svæðinu og í Norður- Þýskalandi. Mér finnst að stjórn- völd ættu að líta sér nær í þessum efnum. Þessi kvótasala öll er orðin ein hringavitleysa og ætti að banna hana. Það er það mikil spilling og brask í kringum hana og 'hún eitrar mikið út frá sér. Það er verið út- hluta allt niður í hálft tonn til gáma- útflutnings. Auðvitað getur hver sem er leigt sér pláss fyrir hálft tonn af fiski í gámi og fengið mun meira fyrir fiskinn. Svona gengur braskið fyrir sig. Þetta er orðið eins óheilbrigt og hugsast getur," sagði Jón. Varðandi hugsanlega sölu Vinnslustöðvarinnar á allt að 1500 tonna aflaheimildum sagði Jón: „Þetta er hálfgerður „terrorismi", það er verið að hræða fólk, jafnvel til að flýja héðan í stórum hópum. Það verður ekki byggilegt her ef farið verður að selja skip og kvóta héðan í tugatali. Það er þegar tals- vert atvinnuleysi hérna, á milli 70-80 manns eru á atvinnuleysis- skrá og þar fyrir utan er fólk á kauptryggingarsamningi hjá fyrir- tækjunum heima núna. Atvinnu- leysistryggingarsjóður greiðir nátt- úrulega 70% af þeirra launum. Fari þetta að verða viðvarandi þýðir það að fólk fer að flykkjast héðan, því það býr enginn við það til Iengdar að hafa ekki nóg að gera,“ sagði Jón. Hann sagði að það væri ekki útlit fyrir að ástandið batnaði í jan- úar því vitað væri að að minnsta kosti tveir, ef ekki þrír, togarar sem hafa verið undirstaðan í hráefnisöfl- un í Vestmannaeyjum, muni sigla með aflann eftir áramót. Þar væri meðal annars um að ræða Breka VE og Sindra VE. SÍÐUSTU almennu tónleikar Sin- fóníuhljómsveitarinnar í ár verða í Háskólabíói nk. fimmtudag, 12. desember, og hefjast þeir klukkan 19 en ekki kl. 20 eins og venju- lega. Hljómsveitin fær til liðs við sig um 140 skólabörn í nokkrum skólakórum á Reykjavíkursvæð- inu. Kórarnir sem taka þátt í tónleik- unum eru: Kór Austurbæjarskóla, kórstjóri Pétur Hafþór Jónsson, Kór Öldutúnsskóla, kórstjóri Egill Rúnar Friðleifsson, Skólakór Árbæjar, kór- stjóri Áslaug Bergsteinsdóttir, Skól- akór Garðabæjar, kórstjóri Guðfinna Dóra Ólafsdóttir, Skólakór Kársness, kórstjóri Þórunn Björnsdóttir. Þá munu nemendur úr Tónmenntaskó- lanum í Reykjavík leika á sleðabjöll- ur. Kynnir á tónleikunum verður Sigurður Rúnar Jónsson og hljóm- sveitarstjóri Petri Sakari, aðalhljóm- sveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar ís- lands. Á efnisskránni verða eftirtalin verk: Troika úr „Lieutenant Kije“ eftir Prokofíeff, því næst ’s kommt em Vogel geflogen eftir Orchs og syngja kórar Austurbæjar- og Öldu- túnsskóla og skólakór Árbæjar með; úr Söngvasveigi eftir Britten og syngja þar börn úr skólakórum Garðabæjar og Kársness og Monika Abendroth leikur einleik á hörpu og Tónlistar-sleðaferð eftir Mozart með þátttöku nemenda úr Tónmennta- skóla Reykjavíkur. Eftir hlé verður svo fluttur Snjókornavalsinn úr Hnotubijótnum eftir Tsjajkovskij og taka allir kórarnir þátt í þeim flutn- ingi. Þá verður einnig lesið úr jóla- guðspjallinu og sungin jólalög. Ríkissjónvarpið mun taka tónleik- ana upp og verða þeir sýndir í sjón- varpinu um jólin. (Fréttatilkynning) Hraðfrystíhús Ólafsvíkur: Byggðastofn- un hafnar til- boði í salthúsið STJÓRN Byggðastofnunar hafn- aði á fundi sínum í gærmorgun tilboði Jóns Ásbjörnssonar fisk- verkenda í salthús Hraðfrystihús Ólafsfjarðar. '— Guðmundur Malmquist segir að stjórnin hafi ekki talið tilboð þetta viðunandi fyrir húsið. Jón Ásbjörnsson bauð rúmlega 10.000 krónur fyrir fer- metrann í húsinu eða samtals rúm- lega 20 milljónir króna. Jón Ásbjörnsson segir að hann hafi gert samkomulag við bæjar- stjórn Ólafsvíkur um kaupin á salt- húsinu og hann telur að Byggða- stofnun hafi ætlað að hafa samráð við bæjarstjórnina í þessu máli. „Á þessum forsendum lögðum við fram okkar tilboð í salthúsið og verðið sem við bjóðum er hið sama og samskon- ar fiskverkunarhús hafa gengið á í beinni sölu að undanförnu,“ segir Jón Ásbjörnsson. Jón segir að fyrirtæki hans, Fisk- ver, sé áfram tilbúið til viðraéðna við Byggðastofnun um kaup á salthús- Aima Bjarnadóttir látin LÁTIN er í Reykjavík Anna Bjarnadóttir, fyrrverandi próf- astsfrú í Reykholti, 94 ára að aldri. Anna Bjarnadóttir var fædd í Reykjavík 11. júlí 1897. Hún var dóttir hjónanna Bjarna Sæmunds- sonar,- fiskifræðings, og Steinunnar Sveinsdóttur. Hún var stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1916 og var elsti lifandi stúdent er hún lést. Anna lauk BA (Hons) gráðu í ensku frá Westfield College í London árið 1922. Anna var kennari í Menntaskó- lanum í Reykjavík frá 1923 til 1931, kennari í Flensborgarskóla frá 1931 til 1933 og í Reykholtsskóla frá 1933 til 1964. • Hún var einn af _ stofnendum Kvenstúdentafélags íslands árið 1928 og varð seinna heiðursfélagi félagsins. Einnig var hún fyrsti for- maður Prestkvennafélags íslands. Anna samdi margar kennslubækur í ensku. Anna giftist Einari Guðnasyni Anna Bjarnadóttir. prófasti í Reykholti árið 1933, en hann lést árið 1976. Áttu þau fimm börn en tvö þeirra dóu ung. SINDRI BORGARTÚNI 31 ■ 105 REYKJAVÍK • SÍMI 62 72 22

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.