Morgunblaðið - 11.12.1991, Side 31

Morgunblaðið - 11.12.1991, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ IMIÐVIKUDAGUE 'll.iDESBMBER 1991 VERKFÆRATASKA # BLACKSlDECKER - um .and allt Undirtitill: Neistar úr sögu þjóðhátíöarára- tugar. Beint er sjónum að ungum samherjum Jóns forseta, sem stofnuðu leynilegt félag í Kaupmanna- höfn árið 1872 undir nafninu Atgeirinn og kölluöu félagsmenn sig oft Geirunga. Rakin er viðleitni til að halda uppi vörn fyrir landsréttindum Islands. Brugðið er Ijósi á framgöngu margra landskunnra manna. BRÉF TlL JÓNS SiGURÐSSONAR >U»ao,-<VO»j<*S «IjOlHlS AdUSi UVKMVtK Wl BRÉFTIL JÓNS SIGURÐSSONAR. ÚRVAL. 3. BINDI Umsjón: Jóhannes Halldórsson f bókinni eru birt bréf til Jóns forseta Sig- urðssonar frá þremur bréfriturum: Guð- mundi Ólafssyni, búfræðingi á Fitjum, Halldóri Kr. Friðriks- syni, yfirkennara, og Jóni Péturssyni, háyfir- dómara. Nafnaskrá fylgir yfir öll bindin, en tvö þau fyrri komu út 1980 og 1984. jjnxnmi Bókaufgáfa /HENNING4RSJOÐS SKÁLHOLTSSTlG 7 • REYKJAVÍK SÍMI 621822 Jón Sigurðsson m iar JÓN SIGURÐSSON 0G GEIRUNGAR Lúðvík Kristjánsson SINDRI Allir fa þa eitthvaö verklegt... Harði pakkinn í ár er verkfærataskan frá Black&Decker hlaðinn nytsömum tækjum fyrir alla fjölskylduna 13.420, Verö aðeins BORGARTÚNI 31-105 REYKJAVÍK ■ SÍMI 62 72 22 Norður-Noregur: Olíuæði gríj)- ur um sig meðal íbúa Osló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunbladsins. VAXANDI olíuæðis gætir í Norð- ur-Noregi eftir að Statoil fann olíu fyrir utan strendur Norður- lands. Er þetta af öllu að dæma fyrsta olíulindin sem mun borga sig að nýta, sem finnst, eftir að boranir hófust fyrir norðan 62. breiddargráðu. Statoil hefur ekki viljað gefa út neina opinbera yfirlýsingu um hvort borgi sig að nýta Íindina eða ekki en vel upplýstar heimildir dagblaðs- ins Aftenposten innan olíuiðnaðarins segja það nokkurn veginn hundrað prósent öruggt að þarna sé nægjan- lega olíu að finna til að það borgi sig_ að sækja hapa. íbúar Norður-Noregs hafa í mörg ár beðið þess að olíuævintýrið í Norð- ursjó myndi teygja anga sína til þeirra landshluta. En þrátt fyrir miklar boranir og jákvæð ummæli jarðfræðinga hafa vonbrigðin ekki látið á sér standa fram til þessa. Þegar fréttir bárust af því að olía hefði fundist flögguðu því margir íbúar Norðlands og sumir skáluðu jafnvel í kampavíni. Ef fer sem horf- ir, og olíuvinnsla hefst fyrir utan strendur Norður-Norega, mun það "verða til að skapa mörg ný atvinnu- tækifæri í þessum landshluta sem verið hefur í mikilli efnhagslegri deyfð. Sjómenn og náttúruverndarsinnar eru á hinn bóginn ekki eins ánægð- ir. Þeir óttast vistfræðilegt slys vegna þeirrar mengunar sem olíu- vinnsla gæti haft í för með sér.‘ Mengunareftirlit norska ríkisins hefur bent á að eins og stendur sé ekki til mengunarvarnarbúnaður sem hægt sé að nota við hefðbundið veð- urfar á þesum slóðum. Jafnvel í frek- ar litlum öldugangi hættir búnaður- inn að gera gagn. Reuter. Burmískir munkar inótmæltu fangelsun Aung San Suu Kyi, handhafa friðarverðlauna Nóbaels, við sendi- ráð Burma í Bangkok í Thailandi í gær og kröfðust þess að henni yrði sleppt. Hermenn stöðva mótmælafundi í Rangoon: Stúdentar krefjast að Aung San Suu Kyi verði sleppt Fjölskylda andófskonunnar tók við Nóbelsverðlaunum hennar í Ósló Bangkok. Reuter. HUNDRUÐ hermanna leystu upp 2.000 manna útifund skammt frá háskólanum í Rangoon í Burma í gær, að sögn vestrænna stjórnarer- indreka. Fyrr um daginn höfðu hundruð manna her- og lögreglu- sveitir stöðvað útifund á háskólalóðinni þar sem þess var krafist að andófskonunni Aung San Suu Kyi yrði sleppt úr haldi. Mótmælin í gær eru þau mestu frá því Aung San Suu Kyi var fang- elsuð, að sögn stjórnarerindreka. Að sögn japanskra sendifulltrúa hentu nokkrir stúdentanna gijóti að hermönnunum er þeir leystu upp útifundinn á háskólalóðinni en ekki er vitað hvort þeir voru teknir fastir. Réttarhöldin yfir William Kennedy Smith: Neitar ákæru o g segir kon- una hafa æst sig til samræðis Vestur-Pálmaströnd, Flórída. Reuter. WILLIAM Kennedy Smith neitaði staðfastlega ákæru um að hafa nauðgað konu á grasflöt við bú- stað Kennedy-fjölskyldunnar í West Palm Beach á Flórída í mars- lok er hann bar vitni við réttar- höld í gær. Smith hélt því fram að konan hefði átt frumkvæði að samförum þeirra og æst hann til kynmaka. En er honum hefði orðið á að kalla hana Cathy þegar leikurinn hefði staðið sem hæst hefði hún hreinlega skipt um ham og stöðvað leikinn. Hefði hún skyndilega haldið því fram að sér hefði verið nauðgað. Nokkrum mínútum síðar, þegar hún hefði ver- ið í þann mund að keyra frá bústaðn- um, hefði hún hins vegar beðist afsök- unar á skapofsa sínum, borið lof á hann sem elskhuga og þakkað fyrir ánægjulega og eft- irminnilega sam- verustund. Smith sagði að konan hefði átt upphafið að kynnum þeirra á öldurs- húsi og boðist til að aka honum heim þegar barnum var lokað. Þegar heim var komið hefðu þau tekið stutt tal saman við sundlaug bústaðarins en síðan hefði hún lagt til að þau gengju niður á ströndina. Hefðu þau leiðst niður að sjó og fljótlega bytjað að afklæðast á ströndinni. Hefði hann talið að þau ætluðu að elskast þar. Þegar hann hefði hins vegar spurst um getnaðarvarnir hefði hún sagt að hann yrði að sýna varúð. Hefði hann þá lagst við hlið konunnar og hún hefði fróað honum með liöndun- um. Að því loknu hefði hann farið í um 10 mínútna sjóbað en meðan á því stóð hefði konan farið af strönd- inni. Hefði hann síðan hitt hana á flöt bústaðarins og eftir stutt samtal kysst hana góða nótt. Þá hefði hún hins vegar byijað ástagælur og æst sig til samræðis á grasflötinni. Stúdentar áttu upptökin að fjöl- mennum mótmælum gegn herfor- ingjastjórninni í Rangoon 1988 en mótmælin voru kæfð er stjórnarher- menn drápu þúsundir óbreyttra borgara. Aung San Suu Kyi er leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Burma en hún var sett í stofufangelsi í júlí 1989. Flokkur hennar vann yfir- burðasigur í þingkosningum í maf 1990 en herforingjastjórnin sveik loforð um að koma á lýðræði og stjórnar enn með harðri hendi. Hlaut Aung San Suu Kyi friðarverð- laun Nóbels í ár fyrir andóf gegn herforingjastjórninni og tók fjöl- skylda hennar við verðlaununum í Osló í gær. í fréttatilkynningu frá íslenska utanríkisráðuneytinu í gær segir að íslensk stjórnvöld fagni friðar- verðlaunaveitingunni, fordæmi mannréttindabrot herstjórnarinnar í Burma og krefjast þess að Aung San Suu Kyi verði þegar í stað sleppt úr stofufangelsi. Þessu til áréttingar sendi Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra heillaóskaskeyti til verðlaunahafans í-gær og bréf til utanríkisráðherra Burma þar sem krafan um frelsi hennar var ítrekuð. í fréttatilkynn- ingunni segir einnig að ísland hafi verið meðflytjandi að gagnrýninni ályktun um mannréttindamál í Burma sem samþykkt hefði verið án atkvæðagreiðslu hjá Sameinuðu þjóðunum 29. nóvember sl.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.