Morgunblaðið - 11.12.1991, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 11.12.1991, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1U DESEMBER 1991 Eyfirska sjónvarpsfélagið: Fimm ár liðin frá fyrstu útsendingu FIMM ár eru í dag, 11. desember, liðin frá fyrstu útsendingn Ey- firska sjónvarpsfélagsins hf. en Viðræður um kjarasamn- inga strax Á FJÖLMENNUM fundi með stjórn, fulltrúaráði, samninga- nefnd og trúnaðarmönnum Starfs- mannafélags Akureyrarbæjar sem haldinn var á þriðjudagskvöld var skjali samninganefndar ríkis- ins „Efnisatriði vegna kjarasamn- inga““, harðlega mótmælt. I ályktun sem samþykkt var á fundinum er lýst furðu og vanþóknun á því að samninganefnd ríkisins leyfí sér að leggja fram til samningavið- • ræðna skjal sem felur í sér mikla kjaraskerðingu og skerðingu á lífeyr- isréttindum svo og öðrum félagsleg- um réttindum sem opinberir starfs- menn hafa. „Fundurinn vísar ábyrgð á efndum þjóðarsáttar til ríkisstjórnar og sveit- arfélaga. Við krefjumst þess að við- semjendur okkar gangi þegar í stað til viðræðna við viðræðunefnd Sam- flots um gerð kjarasamninga sem -verði sanngjarnir og ásættanlegir." félagið annast dreifingu á sjón- varpsefni Stöðvar 2 í Eyjafirði. Af þessu tilefni verður á dagskrá- inni í kvöld, miðvikudagskvöld þáttur þar sem sýnd verða brot úr gömlum sjónvarpsþáttum. Á fyrstu starfsárunum sendi fé- lagið út umtalsvert magn sjónvarps- þátta sem eingöngu var sýnt í Eyja- firði, en í seinni tíð hefur norðlenskt efni nánast alfarið verið sent út á landsrás Stöðvar 2 og hefur einkum borið á auknum fréttaflutningi. Tæplega 3.500 heimili eru nú í áskrift að dagskrá Stöðvar 2 í Eyja- firði, en útsendingar nást til allra þéttbýlisstaða í firðinum og víða í dreifbýlinu. Fyrir dyrum stendur stækkun á útsendingarsvæði Ey- firska sjónvarpsfélagsins og verður sjónvarpssendum komið fyrir í Svarfaðardal og Hörgárdal auk þess sem sendistyrkur verður aukin frá Hrísey til'Dalvíkur og Grenivíkur. Þá verður útsendingarsvæðið einnig stækkað til suðurs, þ.e. inn Eyja- íjörðinn. Í þættinum í völd verða sýnd brot úr gömlum sjónvarpsþáttum þar sem m.a. bregður iyrir öllum umsjónar- mönnum þessara ára og nokkrum viðmælenda þeirra í umræðum um hin ólíkustu mál. Umsjón með þætt- inum hefur sjónvarpsstjóri Eyfirska sjónvarpsfélagsins, Rjarni Hafþór Helgason. fle I g i J ó n s s o n ►►►►►►► „Virkilega spennandi og óvenjuleg unglingasaga eftir einn efnilegasta rithöfund okkar.“ Arnaldur Indriöason, kvikmyndagagnrýnandi Morgunblaósins Morgunblaðið/Trausti Frá opnun Kristjánsstofu í Minjasafninu Hvoli á Dalvík, á myndinni eru Halldóra Eldjárn, ekkja Krisljáns, og systkini hans, þau Hjörtur og Petrína. Minjasafnið á Dalvík: Minningarstofa um Kristján Eldjárn fyrrverandi forseta MINNINGARSTOFA um Kristján Eldjárn fyrrverandi forseta var opnuð í Minjasafninu Hvoli á Dalvík föstudaginn 6. desember, en þann dag hefði Kristján orðið 75 ára hefði honum enst aldur. Frú Halldóra Eldjárn kona Kristjáns var viðstödd athöfnina ásamt Ing- ólfi syni sínum, tveimur systkinum Kristjáns og öðrum ættingjum. Það var stjóm Byggðasafnsins sem vann að því að koma á fót minningarstofunni, en Kristján var fæddur á Tjörn í Svarfaðardal 6. desember 1916, sonur hjónanna Þórarins Kr. Eldjárns bónda og hreppstjóra og Sigrúnar Sigur- hjartardóttur. Kristjáni er helgað eitt herbergi í safninu þar sem komið er fyrir ýmsum munum tengdum honum og myndir frá lífi og starfi prýða þar veggi. í stof- unni hefur verið komið fyrir bijóst- mynd af Kristjáni eftir Sigutjón Ólafsson myndhöggvara og þá má sjá þar ýmis handrit hans og allar bækur sem út hafa komið eftir hann. Við athöfnina ávörpuðu Gylfi Björnsson, formaður safnstjórnar, og Trausti Þorsteinsson, forseti bæjarstjórnar Dalvíkur, gesti og Júlíus Daníelsson frá Syðra-Garðs- horni í Svarfaðardal flutti minning- arbrot um Kristján Eldjárn. Ingólf- ur Kristjánsson færði heimamönn- um þakkir fyrir hönd systkina sinna og annarra ættingja. Halldóra Eld- járn opnaði síðan stofúna og lýstu allir víðstaddir ánægju sinni með þetta framtak og töldu að gildi safnsins hefði aukist með tilkomu Kristjánsstofu. Aðeins íjögur ár eru liðin frá því að minjasafninu var komið á fót á Dalvík, en það hefur stækkað mjög á þessum tíma og aðsókn hefur aukist með ári hveiju. í ár eru gestir orðnir liðlega 2.000 og hefur fjölgað á milli ára um nær 1.000 manns. Auk gamalla muna hefur safnið að geyma gott safn náttúru- gripá og þá hefur safn Jóhanns Péturssonar Svarfdælings, eða Jó- hanns risa eins og hann var gjarn- an nefndur, haft mikið aðdráttar- afl. Fréttaritari Reykingar meðal unglinga hafa aukist að undanförnu REYKINGAR meðal unglinga hafa aukist nokkuð að undanförnu og segja hjúkrunarfræðingar í skólum sem rætt var við að um leið og slaknað hafi á áróðri gegn reykingum láti áhrifin ekki á sér standa. Stúlkur virðast fremur reykja en piltar. Þá er neftóbak einnig nokk- uð áberandi á meðal unglinga, en þar er um að ræða svokallað mentóltóbak. Katrín Friðriksdóttir, hjúkrunar- fræðingur í Gagnfræðaskóla Akur- eyrar, sagðist sjá verulega sveiflu í þessa átt og að oft færi saman áfengis- og tóbaksneysla. Katrín hefur starfað við GA í 11 ár og sagði að í upphafi hefði um þriðj- ungur nemenda skólans reykt, en • fyrir um 5 árum hefðu afar fáir nemendur notað tóbak, eða 4-5 ein- staklingar að jafnaði á ári. I nokkur ár hefði sá árangur haldist, en nú seinnipart síðasta vetrar og nú í vetur væri farið að halla undan fæti. Einkum væru það stúlkur sem væru að fikta við reykingar, en pilt- arnir væru meira í neftóbakinu, sem væri stórhættulegt. Áuður Sigurðardóttir, hjúkrunar- fræðingur í Glerárskóla, hafði sömu sögu að segja. Reykingar nemenda einkum í 10. bekk væru að aukast og væru meira áberandi á meðal stúlkna. Hún sagði nemendur fá svipaða fræðslu um reykingar frá ári til árs, en slakað hefði verið á almennum áróðri gegn reykingum í fjölmiðlum og áhrifin létu ekki á sér standa. „Það er eins og aldrei megi slaka á í þessum efnum,“ sagði Auður. Theodóra Gunnarsdóttir, hjúkr- unarfræðingur í Síðuskóla, sagði að meira hefði borið á reykingum meðal nemenda nú í vetur en fyrir nokkrum árum, en þó væri ekki hægt að segja að unglingar reyktu í miklum mæli. Hún nefndi einnig sem skýringu á auknum reykingum unglinga, að auglýsingar um skað- semi tóbaks hefðu verið með minna móti síðasta ár. „Þessi aukning núna bendir til þess að við verðum alltaf að vera vel á verði, reykingar virðast vera í tísku og einnig það að nota neftóbak," sagði Theodóra.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.