Morgunblaðið - 11.12.1991, Síða 49

Morgunblaðið - 11.12.1991, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1991 49 Anna S. Pálmadóttir frá Isafirði - Minning• Fædd 11. apríl 1910 Dáin 3. desember 1991 „Minningamar mætar mýkja hvetja þraut.” Þegar góðir vir.ir falla í valinn streyma minningarnar fram í hug- ann, og meðal góðvina tel ég Önnu Pálma, en svo var hún oftast nefnd. Hún var fædd að Hjalteyri við vest- anverðan Eyjafjörð. Foreldrar hennar voru Pálmi Kristjánsson, fyrst sjómaður en síðan um langt skeið verkstjóri, og kona hans Þór- hildur Arinbjarnardóttir, sem bæði voru ættuð úr Eyjafirði. Þau hjón áttu aðra dóttur, Evu, sem er sex árum eldri en Anna. Pjölskyldan tók sig upp og flutti til ísafjarðar þegar Anna var tveggja ára. Sama ár fluttu foreldrar mínir með fjöl- skyldu sína frá Isafirði, en við sner- um aftur nokkrum árum seinna og kynntumst þá ýmsu er gerst hafði í fjarverunni. Það mun hafa verið sumarið 1916 eða 1917, er ég var á rölti um bæinn, að ég rakst á litla ókunnuga stúlku, sem eitthvað var að dútla sunnan við húsið „Ás- byrgi”. Ég gaf mig á tal við hana og aðspurð kvaðst hún heita Anna Pálma, hún sagði mér nöfn foreldra sinna og að hún ætti eldri systur sem héti Eva og að þau hefðu kom- ið „að norðan”. Mér fannst þetta skýr og skemmtileg stúlka, en svo gleymdist þetta — og þó — stað- reyndin er að það hefur geymst öll þessi ár í einu af þeim fjölmörgu minningahólfum sem mönnum eru gefin. Þær frænkurnar Áróra Halldórs- dóttir og Elín Magnúsdóttir, systir mín, voru bræðrabörn og léku sér mikið saman í uppvextinum, enda voru feðrahúsin svo að segja hlið við hlið í Sólgötunni. En nokkru eftir að þær hófu nám í barnaskóla kom ný stúlka í „kompaníið”. Það var Anna Pálma. Þær voru.um langt skeið óaðskiljanlegar, fóru saman á bíó, skemmtanir og dansleiki. Þær undu sér vel í faðmi fjalla blárra, en þurftu þó að fara í smáferðalög um nágrennið og eins og flestir ísfirðingar að bregða sér út í Arn- ardal til að horfa á miðnætursólina svífa eða velta fyrir mynni Djúpsins og gylla fjöllin og spegilsléttan sæinn og láta „blysin blika um blá- dimm klettaskörð” uns hún hvarf bak við Ritinn. En skemmtilegustu ferðirnar held ég þó að hafi verið „skógartúrarnir” inn í Tungudal. Þangað sóttu menn til að njóta feg- urðar og veðursældar dalsins og þar var oft glatt á hjalla. Eftir barna- og unglinganám á ísafirði hafði Önnu ekki gefist tæki- færi til frekari menntunar, en nú frétti hún um kvennaskóla í Þýska- Iandi, sem byði upp á ódýrt og hag- kvæmt nám fyrir íslenskar stúlkur. Hún fékk mikinn áhuga á að sækja þennan skóla og með guðs hjálp og góðra manna tókst það, og dvaldi hún þar frá hausti 1929 og fram á sumarið 1930. Henni líkaði þar mjög vel og batt vináttubönd við margar af íslensku stúlkunum en þó einkum við forstöðukonuna, Regine Dinse, sem hafði áður verið kennslukona á íslandi og var mikill íslandsvinur, enda nefndi hún hús sitt „Islandshaus”. Oft minntist Anna þessárar dvalar og hinnar frábæru forstöðukonu, sem fór m.a. í sjö vikna eftirminnilegt ferðalag um Þýskaland með nemendum sín- um. Þær héldu stöðugu sambandi og heimsóttu hvor aðra uns Regine Dinse lést fyrir tveimur árum. Anna flutti með foreldrum sínum til Reykjavíkur um miðjan íjórða áratuginn, enda var eldri dóttirin, Eva, búsett þar með manni sínum, Elíasi Halldórssyni, og börnum, Erlu, Halldóru og Ágústi. í Reykja- vík vann Anna við saumaskap, m.a. á kjólasaumastofu í nokkur ár en einnig sjálfstætt, þar til hún giftist Ólafi P. Stefánssyni, nafna mínum og frænda, árið 1948. Kom ég oft á þeirra fallega og hlýlega heimili, er ég var á ferð í Reykjavík og eins eftir að við hjónin fluttum suður 1956. Anna og Ólafur voru sam- hent hjón og Anna studdi mann sinn af fremsta megni við rekstur prentsmiðju hans, Ingólfsprents. Þau byggðu sér sumarbústað við Þingvallavatn og dvöldu þar hvenær sem tækifæri gafst, og höfðu þau mikið yndi af að bjóða þangað vin- um sínum og vandamönnum, enda var þar unaðsreitur. Ólafur lést í ágúst í fyrra eftir langvarandi veikindi, 87 ára að aldri. Eftir lát hans var eins og lífs- vilji Önnu minnkaði smám saman og heilsu hennar hrakaði. Síðustu fjóra mánuði lá hún á Landakots- spítala og naut þar frábærrar umönnunar lækna og hjúkrunar- fólks. Ég sendi Evu og hennar börnum og barnabörnum, svo og öðru frændfólki og vinum innilegar sam- úðarkveðjur. Far vel heim, heim í Drottins dýrðargeim! Náð og miskunn munntu finna meðal dýrstu vina þinna; friðarkveðju færðu þeim. Far vel heim! (Matth. Joch.) Ólafur I. Magnússon Mig langar með fáeinum orðum að minnast Önnu Steinunnar Pálmadóttur sem í dag verður til moldar borin. Anna Steinunn fæddist á Hjalt- eyri við Eyjafjörð þann 11. apríl 1910 en foreldrar hennar voru Þór- hildur Arinbjarnardóttir og Pálmi Kristjánsson. Tveggja ára að aldri fluttist hún með foreldrum sínum til ísaljarðar þar sem hún gekk í bama- og unglingaskóla. Á Isafirði gerðist hún skáti og starfaði mikið með kvenskátafélaginu þar. 19 ára gömul fór Anna til náms í Þýska- landi og kom þaðan eftir tæplega eins árs dvöl. Skóli sá í Þýskalandi sem Anna stundaði nám við var rekinn af Reginu Dinse sem hafði dvalið á íslandi og var mikill ís- landsvinur. Skólinn var til húsa í íslandshúsi í St. Peter fyrir utan Hamborg. Á þessum árum stund- uðu þar nám stúlkur frá íslandi um árabil. Námið hófst með 7 vikna ferðalagi um Þýskaland. Hafði Anna alla tíð mikið dálæti á því landi og minntist oft dvalar sinnar þar. Voru margir staðir í Þýska- landi henni einkar minnisstæðir og lýsti hún þeim oft með undraverðri nákvæmni. Á árunum 1935-36 dvaldist Anna um hríð í Noregi. Þann 8. maí 1948 giftist Anna Óiafi Stefánssyni prentara, föður- bróður mínum. Mér er þetta tíma- bil sérstaklega minnisstætt og kannski ekki síst fyrir þá sök að ég kynntist foreldrum Önnu, þeim Þórhildi og Pálma sem þá voru komin á elliheimilið Grund við Hringbraut. Fór ég oft í heimsókn til þessara elskulegu hjóna. Mér er Þórhildur sérstaklega minnisstæð og hennar einstaka ljúflyndi. Fyrstu hjúskaparár sín bjuggu Anna og Olafur á Framnesvegi 23, en þar kom ég oft á þeim árum. Sem ungl- ingur hreifst ég þá mjög af ýmsu góðgæti sem Anna bjó tii og minn- ist ég aldrei heimsóknar á heimili Önnu og Ólafs án þess að móttökur væru með kostum og kynjum. Ekki eru mér síður minnisstæðar heim- sóknir okkar hjónanna með tvo eldri syni okkar þegar þeir voru litlir sveinar. Hafði Anna mikla ánægju af þessum heimsóknum og vildi allt gera til áð gera heimsóknina sem ánægjulegasta fyrir bömin. Var Anna alla tíð mjög hrifin af börn- um, en Önnu og Ólafi varð ekki barna auðið. Anna átti eina systur, Evu sem enn er á lífi. Var Eva gift Elíasi Halldórssyni og áttu þau þrjú börn, Erlu, Halldóru og Ágúst. Systurnar voru alla tíð mjög sam- rýndar. Sýndu börn Evu, Onnu alla tíð mikla ræktarsemi og umhyggju, ekki síst eftir að Anna veiktist. Anna og Ólafur höfðu mikla ánægju af ferðalögum og ferðuðust þau oft hér innanlands en íslensk náttúrufegurð var þeim einkar hug- leikin og oft umræðuefni. Þau eign- uðust lítinn sumarbústað við Þing- vallavatn og dvöldust þar oft en við þann stað tóku þau sérstöku ást- fóstri. Hjónaband Önnu og Ólafs var gott og farsælt, en Anna bjó manni sínum fallegt og þægilegt heimili. Var Önnu snyrtimennska og mynd- arskapur í blóð borin. Fyrir rúmu ári, eða 17. ágúst 1990, missti Anna mann sinn eftir löng og erfið veikindi. Á því tíma- bili kom best í ljós hvaða mann- eskju Anna hafði að geyma. Þegar mest á reyndi kom í ljós sérstök umhyggja hennar og ást til manns síns. I Onnu var ekki til eigingjörn hugsun og er mér til efs að nokkru sinni hafi hún hugsað nokkra hugs- un til enda án þess að velta því fyrir sér hvort það væri þægilegt eða gott fyrir Ólaf. Veit ég líka að Ólafur mat konu sína mikils og gat ekki leynt þakklæti sínu fyrir um- hyggju hennar í erfiðum veikindum hans. Anna andaðist á Landakotsspít- ala þann 3. desember sl. eftir stutta legu. Ég er sannfærður um að Anna var södd lífdaga. í raun fannst henni ekki mikill tilgangur eftir í lífi sínu eftir brottför Ólafs. Ég veit að Anna átti einlæga trú á góðan Guð, skapara himins og jarð- ar og er það trú mín að andi henn- ar sé hjá föðurnum á himnum sem gaf hann. Guð blessi minningu hennar. Stefán Ágústsson RETTU DEKKIN UNDIR 3 LADA SPORT Hakkapeffitta Finnsku NOKIA-snjódekkin reynast vel viö íslenskar aöstæöur BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR HF. Suðurlandsbraut 14108 Reykjavík Símar 6812 00 & 312 36 Varahlutaverslun, beinn sími 3 92 30 Skrifbordsstólar frá kr. 7.500,- Tolvuboró frá kr. 1 2.500,- Meó hlióarplötu kr. 14.700,- Biro skrifborósstólar meó 5 ára ábyrgó frá kr. 12.500, I mk b í r ó steinar SMIOJUVEGI2 - 211KÚPAVOGI - SlMI 46600 Gædahúsgögn á góóu verói

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.