Morgunblaðið - 11.12.1991, Page 52

Morgunblaðið - 11.12.1991, Page 52
52 , MORGUNBLAÐID MIDVIKUDAGL.H U.. .DESEMBKH .,1,991 t Astkær faðir okkar, KRISTJÁN ÁRNASOIM, lést í Perth, Ástralíu, 8. desember. Kristbjörg Kristjánsdóttir, Hjördfs Kristjánsdóttir, Árni Haukdal Kristjánsson, Ólafur Unnar Kristjánsson, Theódóra Kristjánsdóttir, Elín Lóa Kristjánsdóttir, Rut Skúladóttir. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ANNA BJARNADÓTTIR fyrrverandi kennari og prófastsfrú í Reykholti, lést mánudaginn 9. desember. Bjarni Einarsson, Gi'slína Friðbjörnsdóttir, Steinunn Einarsdóttir, Heimir Þorleifsson, Guðmundur Einarsson, Dóra Sigurðardóttir og barnabörn. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SÆMUNDUR BJARNASON pípulagningameistari, Skúlagötu 40a, áður Skipholti 49, er látinn. Kristín Grímsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. + Móðir mín og systir okkar, HRAFNHILDUR (ABELLA) SNORRADÓTTIR CHRISTOPHERSON, dvalarheimilnu Stafholti, Blaine Wa., lést miðvikudaginn 4. desember. Stefani Anne Christopherson, Haukur Snorrason, Jónína S. Snorradóttir, Snorri Snorrason. + GYÐA GUÐMUNDSDÓTTIR, Barmahlíð 55, Reykjavfk, lést 29. nóvember sl. Útförin hefur farið fram. Benedikt Kristjánsson, Kristján Benediktsson, Friðgerður S. Benediktsdóttir, Jón ísaksson, Ársæll Benediktsson, barnabörn og barnabarnabarn. + Hjartans þakklæti fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför VILHELMS ANTONS SVEINBJÖRNSSONAR, Vegamótum, Dalvík. Steinunn Sveinbjörnsdóttir, Steingri'mur Þorsteinsson. + Hjartans þakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát og útför ást- kærs eiginmanns míns, föður, sonar og afa, SIGURÐAR F. HARALDSSONAR framreiðslumanns. Sérstakar þakkir færum við Sigurði Björnssyni lækni og hjúkrun- arfólki á deild 2A Landakótsspítala, Framsóknarflokknum, Búseta og Handknattleikssambandi íslands. Guð blessi ykkur öll. Fyrir hönd aðstandenda, Hanna B. Jónsdóttir. Lokað Vegna jarðarfarar MARGRÉTAR GUÐMUNDS- DÓTTUR, Skólavörðustíg 18, verða skrifstofur okkar lokaðar miðvikudaginn 11. desember nk. Lögmannsstofa Arnar Höskuldssonar hrl. Lögmannsstofa Arnmundar Backman hrl. Lagastoð hf. málflutningsskrifstofa: Sigurmar Albertsson hrl. Magnús H. Magnússon hdl. Skúli E. Sigurz ftr. Hallgrímur Jónasson kennarí - Kveðjuorð Hallgrímur Jónasson lifði nær- fellt öld, aldamótamaður í bestu merkingu. Það gefur augaleið að spor hans liggja víða. Fáir munu hafa þekkt betur óbyggðir landsins og byggð ból. Hann braust til mennta af litlum eða öngvum efn- um. Ævistarfið hófst í Vestmanna- eyjum þar sem hann var kennari við bamaskólann 1921-1931 og að hluta við unglingaskóla. 'Svo hafa nemendur hans í Eyjum sagt mér, að hann hafi verið frábær kennari. Þegar Hallgrímur kom til Eyja hafði bókasafnið verið lokað og safnbækur umhirðulausar í barna- skólanum. Hann tók að sér að endurreisa safnið og hefja útlán að nýju 1924, í tveim herbergjum á lofti vörugeymsluhúss. Árið 1978 átti ég þess kost að sýna Hallgrími bókasafnið í nýjum og glæsilegum húsakynnum. Þótti honum ærin umskipti hafa orðið enda mál til komið. — Hallgrímur var bókavörð- ur þar til hann og Elísabet kona hans fluttu úr Eyjum 1931. í Reykjavík var Hallgrímur kennari við Kennaraskóla íslands frá 1931 til .1968. Hann starfaði við blaða- mennsku nokkur ár fyrir 1940, þá við Tímann og var meðritstjóri Nýja Dagblaðsins 1934-1935. Hallgrímur var mikill landkynn- ingarmaður. Hann var í stjórn Ferðafélag íslands 1944-1972 og leiðsögumaður á vegum þess um 30 sumur. Var heiðursfélagi Ferða- félagsins og Útivistar. Hann var bæði fararstjóri og fræðari, ein- stakur leiðsögumaður um landið. Ég held, að harin hafi þekkt með nafni flesta bæi landsins. Og „hver einn bær á sína sögu“ sagði skáldið. Sá sem hér skrifar fátækleg kveðjuorð minnist Vestfjarðaferðar 1948 og Hallgrímur var farar- stjóri. Sú ferð var um flest frá- brugðin rútuferðum á malbiki. Frá Eyjum flugferð til Hellu á Rangár- völlum. Frá Reykjavík áætlunarbíll til Stykkishólms, hægfara bátur til Flateyjar, „þar sem öll mannaverk höfðu yfirbragð fortíðarinnar, en náttúran svip hinnar eilífu fegurð- ar“ (HKL). í Svefneyjum sagði hún Kristín okkur frá Nonna bróður sínum og skemmtilegum bréfum hans utan úr heimi. í Oddbjarnarskeri voru skoðaðar rústir sjóbúða hinna breiðfirsku sægarpa. Þar þætti nú daufleg vist. Frá Bijánslæk farið ríðandi yfír Lækjarheiði í Trostansfjörð þar sem lítill vélbátur beið okkar, geng- ið á land í Geirþjófsfirði og Hall- grímur sagði okkur frá Auði og Gísla, sigling út Amarfjörð, fyrir Kjartan Guðna- son - Minning Það kom mér á óvart er ég fletti síðum blaðsins hinn 3. des. sl. að þar gat að líta minningarorð um Kjartan Guðnason, en ég hafði ekki haft af því spurnir að hann •væri allur. Það vár svo stutt síðan hann lét af störfum hjá Trygginga- stofnun ríkisins kominn hátt á átt- ræðisaldur eftir langan og óvenju heilladijúgan starfsferil hjá stofn- uninni. Mér er ljúft og skylt að minnast þessa látna öðlings með nokkrum síðbúnum orðum. Ég kynntist Kjartani fyrst fyrir réttum 30 árum þegar þáverandi bæjarfógeti á Akranesi, Þórhallur Sæmundsson, réð mig á skrifstofu embættisins til þess að annast um tryggingaumboðið. Ég kom til þessa starfs beint frá prófborði í Samvinnuskólanum reynslulaus og fákunnandi um innviði þessa marg- þætta málalokks, sem ég átti að sinna. Ekki var þá, fremur en nú, völ á neinskonar undirbúningsnámi fyrir störf á þessu sviði. Það kom sér því vel fyrir nýgræðinginn að geta leitað til manns eins og Kjart- ans Guðnasonar, enda kom þar maður ekki að tómum kofunum og Ijúfmannlega brást hann ætíð við. Um þær mundir var einmitt verið að koma í kring meiriháttar breyt- ingum í almannatryggingum, , rýmka bótarétt og stórauka við bóta- og lífeyrisgreiðslur. Samskipti umboðsmanna út um land við Tryggingastofnun ríkisins og starfsfólkið þar eru mjög mikil og getur þar reynt á ýmsa mann- lega eiginleika. Ekki er ofsögum sagt að í þeim efnum hafi Kjartan verið réttur maður á réttum stað. Mest voru samskiptin símleiðis og með tímanum urðu þau að nánu trúnaðarsambandi og vináttu og veit ég fyrir víst að svo var einnig um aðra, sem unnu við umboðin. Fyrir okkur var ómetanlegt að hafa sem tengilið hjá Tryggingastofnun- inni mann á borð við Kjartan Guðn- ason. Hugur starfsfólks umboð- anna til Kjartans kom og vel fram á einu af reglubundnum námskeið- um á vegum Tryggingastofnunar fyrir fáeinum árum er hann steig í pontu, orðinn nokkuð ellilotinn en glaðbeittur að vanda, til að ávarpa viðstadda, og var hylltur vel og innilega. Kjartan var sérlega viðræðugóð- ur maður, glaðvær og skilningsrík- ur. Skopskynið var græskulaust, leiftrandi og lýsti vel næmi og nærfærni hans gagnvart þeim mannlegu vandamálum, sem sífellt eru viðfangsefni þeirra, sem við almannatryggingarnar vinna. „Kjartan hér“, heyrðist í símum umboðanna og oft kvað við dillandi hlátur og spurt var hvað væri að frétta áður en komið var að alvöru tilefnisins. En þá var iðulega verið að fá skýringar eða upplýsingar til glöggvunar við úrlausn á málefni einhvers, sem leitað hafði til trygg- inganna. Þegar Kjartan Guðnason er fall- inn frá minnumst við, sem höfum starfað við tryggingaumboðin og sjúkrasamlögin utan Reykjavíkur góðs samstarfsmanns. Kjartan var gæddur þeim persónulegu eigin- leikum að ekki var annað unnt en + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinsemd við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, LÁRUSAR G. JÓNSSONAR skókagpmanns. Sérstakar þakkir færum við öllu starfsfólki Umönnunar- og hjúkr- unarheimilisins Skjóls fyrir frábæra hjúkrun og hlýju. Anna K. Sveinbjörnsdóttir, Hrefna Lárusdóttir Kvaran, Ragnar Kvaran, Anna Margrét Lárusdóttir, Jónas Hallgrímsson, Jón Lárusson, Sigríður Guðjónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Sléttanes og inn Dýrafjörð til Þing- eyrar. Frá Þingeyri á trillu yfir Dýrafjörð og bíll frá Núpi til Isa- fjarðar. Sigling inn Djúp, stórveisla í Vigur og skoðuð fuglaparadísin í Æðey, loks ógleymanleg vornótt í Reykjanesi sem Hallgrímur lýsti í ljóði: Djúpsins kyrrð er dul og stór, daggarperlur glitra, skína, landið, blærinn, sól og sjór saman flétta töfra sína. Nú hefur hinn aldni langferða- maður og fræðaþulur lagt upp í sína síðustu ferð. Veri hann kvadd- ur með þökk og virðingu. Haraldur Guðnason að láta sér þykja vænt um mann- inn. Hann átti að baki einn lengsta starfsferil að almannatryggingum hér á landi. Er hann áreiðanlega í hópi þeirra manna, sem einna mest hafa af mörkum lagt í daglegri umsýslu til þess að tryggja að sá hlutur, sem almannatryggingunum heur verið ætlaður til að létta byrðar þeirra, sem minnst mega sín, kæmist rétt- látlega í hendur þeirra. Ég er forsjóninni þakklátur að hafa fengið að kynnast Kjartani Guðnasyni og njóta handleiðslu hans og leiðbeininga, er ég var að feta fyrstu skrefin á starfsbraut- inni. Fjölmargir skjólstæðinga al- mannatrygginganna áttu hauk í horni, þar sem hann var, ávallt reiðubúinn að líta til með fullri velvild á hvert það vandamál, sem til kasta hans kom. Þeir eru því margir, sem eiga Kjartani þökk að gjalda við leiðarlokin. Ástvinum Kjartans Guðnasonar færi ég samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hans. Guðmundur Vésteinsson Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmæl- is- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- s^jórn blaðsins á 2. hæð i Aðal- stræti 6, Reykjavík og á skrif- stofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.