Morgunblaðið - 12.01.1992, Blaðsíða 25
ATVINNURAD-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
ATVINN MMAUGL YSINGAR
U*CEJtJ
Aðstoðar-
deildarstjóri
húsgagnadeildar
Óskum að ráða starfsmann í stöðu aðstoðar-
deildarstjóra húsgagnadeildar.
Verksvið: Dagleg umsjón með sölusvæði.
Verkstjórn (10-12 starfsmenn).
Aðstoð við innkaup.
Æskilegt er að umsækjandi uppfylli eftirfar-
andi: Sé á aldrinum 25-45 ára. Hafi góða
enskukunnáttu. Eigi auðvelt með að stjórna
fólki. Sé góð/ur í umgengni og samstarfsfús.
Geti unnið langan vinnudag.
Umsóknir, er tilgreina menntun, aldur og
fyrri störf, skulu sendar IKEA merktar:
IKEA, c/o Hulda Haraldsdóttir,
pósthólf 3170, 123 Reykjavík.
Aðalbókari
Óskum eftir að ráða aðalbókara til að sjá
um bókhald og fjármál DHL á íslandi, í beinu
sambandi við framkvæmdastjóra DHL á
íslandi.
Við bjóðum fjölbreytt og spennandi starf hjá
alþjóðlegu fyrirtæki með mikla þróunarmögu-
leika. Starfið krefst haldgóðrar þekkingar á
þókhaldi og fjármálastjórn, auk mjög góðrar
enskukunnáttu. Starfssviðið er einnig útgáfa
reikninga auk umsjónar með innheimtu.
Ráðning er áætluð í síðasta lagi 1. mars
1992.
Skrifleg umsókn með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, sendist til DHL Hrað-
flutninga hf., Skeifunni 7, 108 Reykjavík,
merkt: AB92, í síðasta lagi föstudaginn
17. janúar 1992.
WORUJWIDE EXPRESS ®
Framkvæmdastjóri
Skátafélagið Hraunbúar í Hafnarfirði óskar
eftir að ráða framkvæmdastjóra í fullt starf
sem fyrst.
Helstu verkefni:
- Útgáfumál.
- Fjáraflanir/auglýsingaöflun.
- Undirbúningur vormóts.
- Aðstoð við skátastarf.
- Umsjón með fasteignum.
Við ieitum einstaklings sem er eða hefur
verið skáti, getur unnið sjálfstætt og á auð-
velt með að vinna með ungu fólki.
Vinnutími getur verið breytilegur.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist til Bandalags
íslenskra skáta, Snorrabraut 60, 105
Reykjavík, merktar: „Hafnarfjörður" fyrir
19. þ.m.
Húsvarsla -
gistiheimili
Fyrirtæki í Reykjavík óskar eftir að ráða hjón
til húsvörslu, reksturs gistiheimilis og ann-
arra starfa.
Leitað er eftir rösku, laghentu fólki, sem er
tilbúið að leggja á sig mikla sumarvinnu.
Nokkur tungumálakunnátta nauðsynleg.
íbúð fylgir.
Umsóknir merktar: „H - 6532" sendist aug-
lýsingadeild Mbl. fyrir 20. janúar nk.
----------Sólheimar-----------------------
laJ iGiímsnesi
Sólheimar í
Grfmsnesi
Meðferðarstjóra vantar til starfa frá 1. febrúar nk.
Starf meðferðarstjóra er fólgið í stjórnun á
meðferðarstarfi á Sólheimum. Meðferðar-
stjóri skipuleggur störf fólks á heimiliseining-
um, í heilsugæslu, við þjálfun og frístunda-
störf. Hann sér um samskipti við skóla,
skipuleggur námskeið og ráðstefnur. Hann
er ráðgefandi við mannaráðningar á staðnum
og fylgist með störfum og aðbúnaði fólks á
vinnustöðum heimilisins.
Sólheimar eru sjálfseignarstofnun á vegum þjóðkirkjunnar. Heimilið er
staðsett miðsvæðis í Grímsneshreppi í 80 km fjarlægö frá Reykjavík.
Til næstu byggðarkjarna, eins og Selfoss, Skálholts, Laugarvatns, eru
u.þ.b. 20 km.
Á Sólheimum dvelja 39 heimilismenn með búsetu á sex heimiliseiningum
og í tveimur þjónustuíbúðum. Starfsmenn eru 33. Reknar eru vinnustofur
fyrir fatlaða, s.s. kertagerð, vefstofa, smíðastofa og garðyrkju- og skóg-
ræktarstöð auk dálítils búskapar.
Aðstaða fyrir frítímastarf er með ágætum, t.d. í nýju íþróttaleikhúsi.
Starfandi er m.a. leikfélag, íþróttafélag og hestamannafélag.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í
síma 98-64432.
Sölumaður
Óskum eftir að ráða sölumann til starfa við
sölu á gosdrykkjum. Þarf að hafa reynslu af
sölu- og þjónustuumhverfi og eiga gott með
að umgangast fólk. Æskilegur aldur er á
milli 25-35 ára. Góð laun eru í boði á
skemmtilegum vinnustað fyrir réttan aðila
sem þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Skriflegum umsóknum er tilgreini aldur,
menntun og fyrri störf skal skila til starfs-
mannastjóra að Stuðlahálsi 1.
Vífilfellhf.
Vífilfell hf. er fyrirtæki istöðugri markáðssókn. Við erum einkaframleið-
andi Coca-Cola á íslandi aukþess sem við flytjum inn, framleiðum og
dreifum fjölda annarra heimsþekktra vörutegunda. Við erum stolt affram-
leiðslu okkar og leggjum ríka áherslu á að viðhalda háum gæðum og
góðriþjónustu við markaðinn. Vífilfellhf. villstuðla að bættu umhverfi og
við erum bjartsýn á framtíðina.
Umbpðsmaður
á íslandi
NB er alþjóðlegt heimasölufyrirtæki með
aðalaðsetur í Noregi. Fyrirtækið er í örum
vexti og hyggur á sölu á íslandi.
NB kynnir sínar vörur á heimilum og selur
barnaöryggisbúnað og aðrar barnavörur.
Við leitum að umboðsmanni á íslandi. Réttur
aðili getur reiknað með töluverðum tekjum
gegn góðu framtaki. Lágmarks fjárfestingar
er krafist.
Fagréttindi eru ekki áskilin en góð þekking
á sölumálum, sölustjórnun og sölufyrirkomu-
laginu er æskileg.
Lögð er mikil áhersla á getu til að útvega
sölufólk og hvetja það. Þjálfun og góður
stuðningur verður veittur.
Skriflegar umsóknir óskast sendar:
NB-INTERNATIONAL,
PB 17, Alnabru, 0614 Oslo, Noregi.
Umsóknarfrestur er til 20. janúar 1992.
Kleppsvegi 64
Sambýli fyrir aldraða með heilabilun
Laus störf
Fyrirhugað er að hefja rekstur sambýlis fyrir
aldraða með heilabilun. Auglýst er eftir
áhugasömu starfsfólki, t.d. sjúkraliðum,
þroskaþjálfum og starfsfólki með reynslu af
starfi með öldruðum. Vaktavinna.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
688500.
67 ára eða eldri
Óskum að ráða starfsmann til eftirlits og
viðhaldsstarfa með tækjabúnaði á sviði Ijós-
myndunar. Hér er um hlutastarf að ræða.
Viðkomandi þarf að:
1. Hafa bíl til umráða.
2. Geta mætt við útkall auk reglulegs eftir-
lits.
3. Vera reiðubúinn í starfsþjálfun (1 -2 vikur).
4. Hafa kunnáttu á véla- og tæknisviði.
5. Áhuga á Ijósmyndun.
6. Vera snyrtilegur í umgengni.
Eins og fyrr segir er hér um hlutastarf að
ræða er gæti hentað þeim, sem hættur er
fastri vinnu fyrir aldurssakir eða af öðrum
ástæðum.
Þeir sem áhuga hafa á starfinu, sendi um-
sókn til auglýsingadeildar Mbl. fyrir 19. jan-
úar merkta: „Eftirlit - 7444".
í umsókn skal greina aldur og starfsreynslu.