Morgunblaðið - 12.01.1992, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 12.01.1992, Blaðsíða 6
6 C MORGUNBLAÐIÐ mannlíimamBŒ SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 1992 Byggðastofnun Könnun á markaði fyrir minjagripi og gjafavörur Byggðastofnun og Útflutningsráð íslands hafa látið gera ítarlega könnun meðal erlendra ferðamanna á markaði fyrir minjagripi og gjafavörur. Könnunin leið- ir meðal annars í Ijós hve miklu ferðamenn eyða, hvað þeir kaupa og hvað þeir vilja kaupa. Úrtakinu er skipt eftir þjóðernui, aldri og ferðamáta. Könnunin getur orðið öllum sem starfa að ferðamál- um að gagni, bæði þeim sem framleiða og selja minjagripi og gjafavöru sem ætluð er ferðamönnum og þeim sem reka eða skipuleggja ferðaþjónustu. Þeir sem hafa áhuga á að nýta sér þessar niðurstöð- ur geta pantað eintak af könnuninni hjá Byggðastofn- un í síma 605 400 og kostar það kr. 10.000,- Við fögnum nýju ári með nýjum sólfasettum frá Ítalíu úr úrvals leðri I mörgum litum: Bleiku, bláu, grænu, svörtu og brúnu. Sjón er sögu ríkari Sófasett úr leðri 3+1 +1 Verð frá kr. 166.000 stgr.- Hagstæð greiðslukjör Verið velkomin ÁRMÚLA 8 ■ SÍMI 812275 SPORT Mörkin 8, austast v/ Suðurlandsbraut, s. 679400 KARATE TAEKWON-DO JUDÓ AIKIDÓ Fullkomin líkamsræktartæki á staðnum. UMHVERFISinAL//;,// er hlutverk markabarins í umhverfisvemdf Orðstírog hagnaður í BÓRINNI „Grænn kapítalismi" sem kom út í Bretlandi árið 1987 er fjallað um margháttuð tíma- mót sem framundan eru í um- fjöllun og athöfnum manna að því er varðar umhverfisvernd. Enda þótt nokkuð sé um liðið síðan bókin kom út fyrst kemur þar ýmislegt fram sem athyglis- vert er og jafnvel má segja að margt hafi gengið fram af því sem þar er spáð. Höfundurinn heitir John Ellington og er einn þeirra sem fremstir standa í flokki umhverfisverndarsinna í blaðamannastétt. Hann hefur skrifað fjölda bóka um um- hverfismál sem hafa hlotið mikla útbreiðslu og hefur verið ráð- gjafi risafyrirtækja víða um heim um bætta framleiðsluhætti. Nú er hann forsljóri stofnunar sem veitir ráðgjöf um rekstur fyrirtækja með sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Iþessarri bók bendir höfundurinn á ný viðhorf og áhersluatriði í umhverfisvernd og telur að nú sé nóg af því gert að horfa til baka og harma ástandið. Nú eigi menn að horfa fram á leið. Athafnamenn bæði í opinbera kerfínu og einka- geiranum eigi nú leikinn. Allt sé undir því komið eftir Huldu hvemig þeir Voltýsdóttur bregðist við vand- anum. Þeirra sé að snúa þróuninni til betri vegar. Nú verði ekki síst að ieggja áherslu á framtíð komandi kynslóða. Ófæddir geti hvorki notið kosningaréttar, Iagt fram fjármagn eða gert kröfur og því verði aðrir að tala þeirra máli. Höfundur bendir líka á að for- svarsmenn umhverfís og náttúm- vemdarsamtaka eigi engan einka- rétt á þessum málstað. Margar greinar atvinnulífsins og hins fijálsa markaðar hafí þegar unnið þar umtalsvert til bóta og hann nefnir þar til með dæmum mörg stærstu iðnfyrirtæki hins vestræna heims. Mörg þeirra hafí breytt ímynd sinni í augum almenn- ings til hins betra með bættum framleiðsluháttum. Slíkt megi flokka undir raunvemlegan hagnað þegar til lengdar lætur. Tæknin á líka sinn þróunar- feril eins og líffræðileg heiid, segir á einum stað. Hún er undirorpin lögunum um „náttúrulegt" val eins og segir í kenningum Darwins. Sumar framleiðsluvörur muni hverfa af markaðinum og framleiðslu- aðferðir leggjast af vegna úreltrar tækni sem er umhverfínu skaðleg. í þessarri bók gætir meiri bjart- sýni um úrbætur í umhverfismálum en við eigum að venjast í slíkri umfjöllun þótt höfundur geri sér grein fyrir þeim vandrataða vegi sem framundan er. Einn kafli bók- arinnar ber yfírskriftina Málamiðl- un og verður hér vitnað í inngangs- orð nokkurra undirkafla: „Fram- Ieiðendur munu í ríkara mæli leggja áherslu á umhverfisvænar vörur allt frá niðursuðudósum upp í far- þegaþotur. Á öld örtölvunnar fær mannvit meira um ráðið hvernig hagræða má framleiðslunni betur en áður. Nýja tæknin sem höfundur leggur mikla áherslu á og byggir á örtölvutækni muni geta orðið grundvöllur nýrrar framtíðar ef menn ákveða að taka hana í þjón- ustu sína. Ef sjálfbær þróun á að geta orð- ið annað og meira en loftkastalar verða athafnamenn atvinnulífsins skilyrðislaust að taka höndum sam- an við náttúruverndarsamtök til að fínna nýjar lausnir. Þá hafa einnig komið til sérstakar stofnanir með lærðu fagfólki sem vinnur að því að koma á þessum tengslum, skapa vettvang til umræðna og leiða til samstarfs." í síðasta kaflanum er fjallað um hvernig markaðsöflin, forráðamenn opinberra stofnana og einkafyrir- tækja geti hafíst handa um aðgerð- ir í umhverfísvernd. Þeirra hagnað- ur sé tvöfaidur — bæði vegna þess að afstaða almennings til fyrirtæk- isins/stofnunarinnar muni verða jákvæð um leið og það leggi fram sinn skerf til umhverfisbóta, sem síðan leiði tii hagnaðar: „Það sem ber að gera: — móta stefnu um hvernig fyrirtækið hyggst beita sér fyrir umbótum, — skipa stjórnendur og starfsfólk í starfshópa þessu viðvíkjandi, — tryggja hæfílegt fjárframlag, — styðja með fjárframlögum afmörk- uð verkefni þar sem unnið er að umhverfísrannsóknum, nýtækni eða úrbætur á einhveiju sviði, — standa að fræðslu og endurmennt- un starfsmanna þar að lútandi, — annast eftirlit með því hvort áætlan- ir standist, dæma um árangur og kynna hann, — fylgjast grannt með umræðum um umhverfísmál, — leggja sitt af mörkum til að auka tengsl milli ríkis- og einkafyrir- tækja og umhverfisverndarsam- taka.“ I þessum pistli er auðvitað aðeins dregið fram lítið sýnishom af því sem fjallað er um í þessari bók, en lestur hennar gæti verið gott vega- nesti inn í síðasta áratug aldarinn- ar. (Þess má geta forstöðumönnum og forstjómm til fróðleiks að bókin er nýkomin út á dönsku hjá Höst og Sön og heitir þá Grön Profil= Profít.) LÆKNISFR/EÐI 7 / þörfá kaffisjðði? Fyrrognú FJÓRUM árum eftir að Sjúkra- hús Reykjavíkur og fyrsti spítali landsins tók til starfa skrifaði dr. Jón Hjaltalín landlæknir smá- grein í tímarit sitt, Heilbrigðis- tíðindi, undir fyrirsögninni Mikill er nú munurinn. Þar segir: ASkotlandi hafa menn reist árið sem leið sjúkrahús fyrir allan heim, það er að skilja sjúkrahús þar sem allir þeir er koma til Edinborgar geta komist inn borgunarlaust, þeg- ar þeir þurfa lækn- ishjálpar við. Hér á íslandi getum við ekki komið upp sjúkrahúsi fyrir þetta fámenna land, nema því að- eins að þeir borgi fyrir sig og hafa þó Reykvíkingar, bæði æðri og lægri, lagt fram meira en nokkur von var á og fyrir eftir Þórarinn Guónason höfðingsskap þessara manna er sjúkrahús stofnað hér í bænum og svo úr garði gjört að það getur tek- ið á móti 20 til 30 sjúklingum í einu. Þetta kalla ég mikilsvert, en nú á landslýðurinn allur eftir að styðja þessa stofnun svo að sérhver sem kæmi til bæjarins og yrði veikur gæti legið ókeypis á þessum spítala. Þetta yrði eigi svo örðugt sem menn skyldu halda ef samtökin vantaði ekki. Ég ímynda mér að ef hver ís- lendingur vildi draga af sér kaffí- nautn einn dag á ári og gefa andvirð- ið fyrir það til spítalans, þá mundi úr þessu mega búa til sjóð sem hrykki langt til hins umgetna augn- amiðs ...“ (8. nóv. 1870.) Hálfu ári síðar ritaði stjórnar- nefnd sjúkrahússins stiftsyfirvöldum bréf um ástand þess og horfur. Þá var að ljúka því fímm ára tímabili er spítalanum hafði verið lofað 400 ríkisdala styrk til rekstrar á ári og undanþágu frá vaxtagreiðslu af 1.000 rd. veðláni. Þessi fríðindi ætl- aðist nefndin til að fá framlengd í önnur fimm ár til viðbótar og er sú umleitan vitaskuld meginástæða þessa tilskrifs. í bréfínu segir m.a. á þessa leið: „Þegar nú litið er á það gagn er sjúkrahúsið hefur unnið þá hefur það, þar sem um alveg nýja stofnun er að gjöra sem þarf að ryðja sér rúms til þess að almenningur viður- kenni nauðsyn hennar, áunnið mikið. Fjöldi af sjúklingum víðsvegar úr landinu, og eigi síður af sjófarend- um, hefur komið þangað og þetta fer einlægt vaxandi ár eftir ár, því allir finna hversu góðrar aðbúðar og meðferðar sjúklingarnir njóta þar og hve mikil þörf er á sjúkrahúsi þessu sem er hið einasta á öllu land- inu. Héðan úr bænum hafur aðsókn- in einnig verið talsverð, og það má fullyrða að aðsókn af hinum fátæk- ari bæjarbúum, sem hafa slæm og óholl herbergi, hefur aukist stöðugt. Stofnunin er því komin á fastan fjót, orðin viðurkennd sem nytsamleg pg þess vegna verður að tryggja fram- gang hennar sem mest. Eftir því sem sjúklingum fjölgar verða ekki nægileg áhöld þau, sem sjúkrahúsið nú hefur handa 14 manns, heldur verður að auka þau og við bæta, eftir sem úr sér geng- ur, því ’að ekki veitir af því að stofn- unin smátt og smátt afli sér allt að

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.