Morgunblaðið - 12.01.1992, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JANUAR 1992
C 11
um árið 1992?
NAUTIÐ
21. apríl-20. maí
Árið býður upp á margt nýstárlegt fyrir nautið og það verður
að sýna aðlögunarhæfni því margt kemur á óvart. Meiri kröfur eru gerðar
til huglægrar iðju þess og þar sem það er ekki sterkasta hlið nautsins
gæti það útheimt nokkurt sálarstríð svo að nái að uppfylla þetta. Úranus
og Neptúnus eru nú í nánd hvor við annan og sem þeir mjaka sér frá
mun lífið fara í fyrri skorður að verulegu leyti. Spumingin er hvort naut-
inu léttir við það eða tekst á við að hugsa öll mál upp á nýtt og væri full
þörf á því.
Nautið hefur löngum þótt jarðbundið og þijóskt og verður lítið ýkt um
þá eiginleika. En nautið á til heil ókjör af blíðu og ástríðu og verður öllu
geðfelldara sínum ef það leyfír þessum eiginleikum að blómstra. Illindi í
fjölskyldu hjá ýmsum nautum, einkum þeirra sem eru í miöju merkinu,
má að sumu leyti rekja til stífni þeirra og tregðu til að fallast á annarra
sjónarmið. Þessum nautum væri mjög hollt að sýna öðrum þá hlýju sem
það býr yfir og langar kannski til að láta i ljós.
Efnalegt gildismat nautsins fer lika í taugamar á mörgum en naut
segja sjálf að þau séu hagsýn og praktísk og kalla þetta kosti. Skipulags-
hæfni nautsins er til fyrirmyndar á árinu og getur farið út í öfgar eins
og margt annað hjá þessum verum.
Þegar kemur fram í júní gætu komið upp óvænt atvik og nautið er á
báðum áttum hvemig það á að taka á þeim. Best er að það hugsi sitt ráð
og vinur í steingeitarmerki væri líklega góður til að leggja eitthvað til
málanna. í ágúst er rómantíkin á fullu hjá yngri nautum og virðist þá fara
í hönd skemmtilegur timi og ekki að vita nema nautinu fmnist ástæða til
að taka ákvarðanir um framtíðina og fjölskyldu.
Það benda flest sólarmerki til þess að nautið hafi þegar líður fram í
nóvember fengið ýmsu því áorkað sem þvi óx í augum í upphafi ársins.
Þó gæti utanaðkomandi þrýstingur leitt til að einhver dráttur verður á
að allt verði leitt til lykta á þann hátt sem nautið kysi sjálft.
Mörg naut sem eru komin til vits og ára hafa lagt upp úr því að spara
peninga og/eða ávaxta þá. Varað er við nýjum fjárfestingum í október.
Einnig er óheppilegt að vera mikið á ferðalögum um það leýti og gæti
það tengst innbyrðis.
SPORÐDREKINN
24. október-21. nóvember
Árið 1992 verður nokkuð sviptingasamt hjá sporðdrekanum. Orka hans,
sem er venjulega mikil, magnast til muna og hann mun því verða æði
athafnasamur. Sporðdrekar í viðskiptalífinu eiga gott ár framundan, að
því leyti að allt sem þeir snerta verður að gulli. En þeir verða að gæta sín
á öfund og afbrýðisemi annarra, sérstaklega þeirra sem eru í aðstöðu til
að bregða fyrir þá fæti. Sporðdrekunum er hollt að hafa það í huga að
orka þeirra dregur að sér marga sem vilja njóta spennunnar sem fylgir
henni og því mun honum reynast auðvelt að fá fólk til að vinna með sér.
Hann ætti ekki að leika einleik á ferð sinni upp á toppinn.
Ástarlíf sporðdrekans verður dálitið óvenjulegt þetta árið. Orku hans
fylgir mikil spenna og því mun ástarlífið einkennast af því að sporðdrek-
ar draga að sér fólk sem á ytra borði virðist kyrrt, en þarf í rauninni á
spennu að halda til að vakna til lífsins. Það verður því nokkuð mikið um
flugeldasýningar í ástarlífinu. Sporðdrekinn ætti hinsvegar að forðast
bælda einstaklinga, því yfirborðskuldi hans hefur áhrif til hins verra á þá
og getur kallað fram viðbrögð sem grafa undan hans eigin sjálfsáliti. Þar
sem árið er hagstætt til úppbyggingar og umsvifa eru það áhrif sem drek-
inn ætti að forðast.
Heimilish'f sporðdreka verður fremur viðburðaríkt og talsvert um upp-
gjör, sem annaðhvort leiða til meiri samstöðu, eða til sundrungar á þeim
vígstöðvum. Það er dálítið mikið undir vilja sporðdrekans komið, hversu
vel tekst til. Hann verður að reyna að vinna á langrækni sinni og venja sig
af því að heyra án þess að hlusta. Það er einkum fyrri hluta árs sem fjöl-
skyldu- og heimilislífið er í brennidepli. Sporðdrekinn verður líka að treysta
á dómgreind sína, sem er með betra móti þetta árið, og gæta þess að
hirða ekki um hvemig hlutimir líta út á yfirborðinu.
Vegna mikils orkuflæðis, verður heilsa sporðdrekans með besta móti
allt árið og óhætt að segja að hann verði ekki pestagjam. Til að nýta sér
orkuna og bæta heilsuna varanlega ætti hann að stunda mikla líkams-
rækt og hefja hana sem fyrst, til dæmis með skíðagöngum og skauta-
hlaupi, því hætta er á bakeymslum í mars og april — þar sem ónýtt orka
safnast fyrir sem s|x?nna. Ef unnið er á spennunni verður vorið vel til
þess fallið að njóta rómantíkur.
Sporðdrekinn hefur ekki mikla svefnþörf á árinu og ætti að nýta dauð-
an tíma, eins og kvöld og nætur, til að lesa bækur um fjármúl og við-
skipti, því seinni hluta ársins bjóðast honum tækifæri til að bæta fjárhags-
stöðu sfna mikið.
TVÍBURINN
21. maí-20. júní
Eins og er innan fiskamerkisins eru innan tvíburamerkisins afar ólíkir
einstaklingar og þversagnir í eðli margra tvíbura era líka stundum í það
mesta. Innan merkisins er fólk þrjóskara og einsýnna en nokkur naut,
blíðlyndara en krabbinn, framkvæmdasamara en hrúturinn og smámuna-
samara en jómfrúr. Því er óhugsandi að alhæfa.
Fyrir þá sem eru fram að miðju i merkinu má búast við að þetta verði
ár athafna og mikill kraftur er í tvíburanum. Honum er ráðlagt að hafa
meiri samvinnu við þá sem nærri honum standa og hafa hemil á tor-
tryggni gagnvart öðram. Með því móti nær hann einnig meiri árangri og
uppsker laun erfiðis síns.
Svo virðist sem tvfburar í byijun og undir lok merkis verði ekki eins
framkvæmdasamir en það kann einnig að stafa af þv! að þeir era að
upplagi með kyrrara skap og hlédrægari og skyldu þó engir taka það sem
leti eða framtaksleysi. Þeir tviburar era dýpri í hugsun og beita öðram
aðferðum í því sem þeir ætla sér.
Sumir tvíburar sem hafa stofnað til varanlegra tengsla á liðnu ári án
þess að hafa hugsað ráðið nógu vel sjá nú að ýmislegt er ekki eins bráð-
sniðugt í þeim málum og þeim fannst. Undarleg er sú tilhneiging sumra
tvíbura að flana að ákvörðunum og ættu þeir að íhuga þennan veikleika
sinn og gera eitthvað í að hafa meira vit í hiutunum.
Ferðalög tvíbura á árinu þykja æskileg og fyrir þá sem era í viðskiptum
eða þvílíku gæti árið orðið ábatasamt einmitt vegna samninga sem gerð-
ir era í ferðum. Viðskiptatvíburinn er hygginn og gætnari en ýmsir aðrir
tvíburar og honum er treystandi.
Tvíburar era klofnir í tilfinningalífinu sem mörgu öðra. Sumir tvíburar
era einhvetjir bestu íjölskyldumenn sem fyrirfinnast, aðrir skeyta litlu um
sitt fólk og öll orkan virðist fara í að heimta af öðram án þess að gefa neitt
á móti. Þeim tvíburum — sem sjálfsagt taka það ekki til sín þó — er vitan-
lega eindregið ráðlagt að líta í eigin barm í stað þess að hafa alltaf uppi
háværa gagnrýni á aðra.
Af þessu má væntanlega skilja að árið getur orðið tvíburanum hag-
stætt að mörgu leyti en hann hefur það meira á valdi sínu en einstaklingar
í ýmsum öðram stjörnumerkjum að smíða sjálfur sína gæfu.
BOGMAÐUR
22. nóvember-21. desember
Bogmaðurinn ætti að huga vel að fjármálum sinum þetta árið, þar sem
miklar sveiflur verða í tekjumöguleikum hans. Janúar, júní og desember
era einkar vel til þess fallnir að drýgja tekjurnar til muna og ef bogmaður-
inn heldur rétt á spilunum, verður tekjuaukningin honum til framdráttar
í félagslegum skilningi.
Það sem einkennir árið 1992 hjá bogmanninum er heppni. í maí gætu
orðið miklar breytingar hjá honum hvað atvinnu varðar og ef hann er að
hugsa um að skipta um atvinnu ætti hann að nýta sér hagstæð skilyrði
sem þá skapast til að finna sér starf sem veitir honum frekari völd og
virðingu en nú er. En bogmaðurinn hefur þegar unnið fyrir þessu með
þolinmæði sinni gagnvart samverkamönnum sínum allt síðastliðið ár, þar
sem hann hefur ekki haft sig í frammi heldur verið meira sem áhorfandi
og því lært býsna margt.
En þó að gæfuhjólið sé bogmanninum hliðhollt þetta árið, ætti hann
að vara sig á þvi að ofmeta hæfileika sína til að ráða við það. Hann ætti
að fara að öllu með fullri gát hvað fjármál snertir, sérstaklega upp úr
miðju ári og fram á haustið og ætti að vara sig á því að eyða því sem
hefur áunnist.
Sálarlíf bogmannsins verður i meira jafnvægi en oft hefur verið, einbeit-
ing hans einnig með betra móti, þótt vissulega hafi hann tilhneigingu til
að vera i sínum venjubundnu loftköstum. Samskipti hans við nánustu
ættingja og vini verður meira og betra en verið hefur seinustu árin og
það má segja að hann baði sig í hlýju og þægilegheitum sinna nánustu.
Hins vegar er árið ekki vel til þess fallið að mynda ný tengsl sem eiga að
vera varanleg, a.m.k. ekki fyrr en í lok ársins.
Rómantíkin verður allsráðandi í sumar hjá bogmanninum; það er að
segja kyrrlát og notaleg en ekki ástríðufull. Sá tími er einkar heppilegur
til ferðalaga. Vegna þess hversu mikil kyrrð rikir í lífi bogmannsins á
árinu, ætti hann að velja sér ferðalög sem falla að þvi ástandi og eyða
tfma sínum sem mest við að njóta klassiskrar tónlistar og skoða söfn þar
sem líta má helstu meistara myndlistarsögunnar. Þeir staðir sem henta
honum best til ferðalaga eru óbyggðir, þá sérstaklega skipulagðar óbyggða-
ferðir í Kanada eða um norðurhluta Finnlands þar sem sofið er úti undir
berum himni eða í tjöldum og setið við eldinn á kvöldin. Það ætti að henta
rómanlísku hugarfari bogmannsins þetta árið.
KRABBINN
21. júní-22. júlí
Viðkvæmni og blíðlyndi krabbans er viðbragðið og stundum gert meira
úr þessu en góðu hófi gegnir og fer jafnvel út í að verða neikvætt í sumra
hugum. Þó krabbinn sé blíðlyndur og oft dreyminn er hann fjarri því að
sitja með hendur í skauti sér.
Þegar á þarf að halda brettir hann upp ermarnar og best á það liklega
við krabbann að vinna i skorpum — og sést þá ekki ailtaf fyrir. Og hann
er langt frá þvi líka að vera skaplaus, hann reiðist ve.rr en margir aðrir og
á til að vera langrækinn. Finnist honum hann vera beittur ósanngirni
dregur hann sig inn í skel og er ekki fyrir hvern sem er að ná honum
þaðan fyrr en hann hefur sleikt sin sár og er tilbúinn sjálfur.
Árið sem er nýhafið býður upp á.mörg tækifæri fyrir krabbafólk. Þeir
krabbar sem fást við listsköpun í einhverri mynd-geta vænst þess að
ýmsar vonir rætist og þeir fái verðskuldaða umbun fyrir störf sín. Krab-
bar sem era í viðskiptum eiga velgengni að fagna og margir sýna þeim
traust til meiri ábyrgðarstarfa enda krabbinn samviskusamur en þarf þó
að vera skipulagðari í verkum sínum. Það er kannski helsti veikleiki krab-
bans í vinnu, honum hættir til að vilja gera of margt samtímis svo að
þetta getur farið í dálítinn graut. En þetta má laga.
Fjölskyldulífið er sveiflóttara hjá ýmsum kröbbum þetta árið. Krabbar
óbundnir sveiflast dálítið i samböndum eða samskiptum, vita ekki sinn
vilja eða hafa brennt sig í fyrri samböndum og vilja hafa vaðið fyrir neð-
an sig. Það er allt gott um gætni að segja en krabbinn verður samt að
sýna áræði og umfram allt átta sig á hvenær er réttur tími. Kannski er
tími til að verða ástfanginn einmitt í ár. Krabbinn er kröfuharður í ástar-
sambandi af því hann er svo fús að gefa af sjálfum sér þegar hann á
annað borð gefur.
Peningamálin eru eins og fleira, nokkuð óljós en að veralegu leyti er
það undir krabbanum komið því hann er hugmyndaríkur og útsjónarsam-
ur og sýni hann dirfsku og taki áhættu er trúlegt að það skili sér hressi-
lega til baka.
STEINGEITIN
22. desember-19. janúar
Þetta árið ætti steingeitin að varast að leggja of hart að sér
í vinnu, þar sem tímabært er að hægja á sér, líta yfir farinn veg og velta
þvi fyrir sér hvort þetta hafi allt verið einhvers virði. Það háir steingeit-
inni dálítið að hún hefur þörf fyrir að vera í sviðsljósinu, þótt hún viður-
kenni það ekki. Hún er haldin vissri fullkomnunaráráttu og er sífellt að
keppa að markmiðum sem hún fær viðurkenningu fyrir. Þetta stafar af
rótgróinni minnimáttarkennd og kemur því miður í veg fyrir að steingeit-
in njóti sín í einkalífi. Þar er hún eirðarlaus og tilætlunarsöm og krefst
þess að maki hennar og börn séu stöðugt að aðla hana. En fjölskylda
steingeitarinnar er síðust til að njóta kappsemi hennar alla jafna.
Árið 1992 er gott ár til endurmats. Ekki er ólíklegt að steingeitn finni
til doða í janúar og eitthvað fram eftir febrúar og hafi áhyggjur af því að
hún sé að tapa hæfileikanum til að slá í gegn. Af þessu þarf hún ekki að
hafa áhyggjur og ætti fremur að njóta þess að vera í kyrrð og reyna að
komast í samband við sjálfa sig og nánasta umhverfi.
Það er nefnilega svo að steingeitin hefur alla jafna margt og mikið
fram að færa samferðamönnum sínum til heilla. Það helsta sem kemur i
veg fyrir að það takist er þrá hennar eftir umbun, fremur en tilhugsunin
um að láta gott af sér leiða. Ef hún notar upphaf ársins til að endur-
hlaða rafhlöður sínar og skilja að hún er aðeins ein af óteljandi einstakling-
um sem era að reyna að skapa betri heim, verður framhaldið léttara.
Samvinna ætti að vera einkunnarorð steingeitarinnar þetta árið. Hún
ætti að leyfa sér að slaka dálítið á kröfunum til sjálfrar sín og láta þá
sem vinna með henni um puðið. Gildismat hennar er eilitið á skjön vegna
þrár hennar eftir að vera ódauðlegur sigurvegari, alltaf. Hún ætti að starfa
sem áhorfandi, hlusta meira á þá sem í kringum hana era og njóta þeirr-
ar staðreyndar að almættið kemst af án hennar um tíma.
Vegna stöðugrar sigurþarfar steingeitarinnar ætlast hún til að þeir sem
standa henni næst elski hana skilyrðislaust. En sá sem keyrir sig áfram
til þess að vera hylltur sýnir sjálfum sér litla ást og umhyggju og er þar
af leiðandi ekki tií í að leyfa öðram það. Ef steingeitin leyfir sér að sinna
persónulegum þörfum sinum þetta árið gæti hún uppskorið þá umbun sem
hún er stöðugt að leita eftir, því ástin sem nóg er af í kringum hana er
bæði græðandi og uppbyggjandi og væri góður grunnur fyrir átök framtíð-
arinnar.