Morgunblaðið - 12.01.1992, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 1992
C 13
í bakið á Connelly fylkisstjóra, út
úr bijóstkassa hans, þaðan í gegn-
um hægri úlnliðinn á honum, tekið
svo skyndilega U-beygju niður á
við í vinstra læri Connellys. Þvílíkt
ferðalag! Það sá varla á kúlunni.
Warren-nefndin féllst á þessa skýr-
ingu þrátt fyrir prófanir FBI sem
skaut nákvæmlega eins byssukúlu
í dýr. Þegar kúlan var fjarlægð var
hún gerónýt.
En Time er ekki frekar en Warr-
en-nefndin vantníað á mátt töfra-
kúlunnar og vitnar enn einu sinni
í síðari rannsóknir sem segja að
þetta hafi verið fræðilegur mögu-
leiki. Já, alveg örugglega fræðileg-
ur möguleiki, segir Jim Garrison í
réttarsalnum. „Það er örugglega
hægt að vefja rana á fíl utan um
sóley og láta hann hanga fram af
klettabjargi." Fyrir utan töfrakúl-
una er það ótrúleg staðreynd að
Oswald hafi getað skotið þremur
skotum, af handvirkum riffli úr
mikilli fjarlægð og hitt í öll skiptin,
á aðeins átta sekúndum, eins og
Time segir að Warren-nefndin hafi
talið mögulegt. Það tekur tvær
sekúndur að hlaða í hvert skipti,
sem þýðir að eftir að hafa hlaðið
riffilinn tvisvar éftir fyrsta skotið,
hafði Oswald aðeins fjórar sekúnd-
ur til að miða og hleypa af tveimur
skotum.
Það makalausa við þessar rök-
semdafærslur Time eru athuga-
semdirnar við krufningu Kennedys.
í myndinni er Kennedy fluttur á
hersjúkrahús í Washington þrátt
fýrir mótmæli yfirvalda í Dallas og
krufningin er framkvæmd undir
nákvæmu eftirliti hershöfðingja.
Krufningsskýrslurnar eru síðan
brenndar og heili forsetans hverf-
ur. Time viðurkennir þetta, en seg-
ir þó að ýmsum ásökunum hafi
verið haldið á lofti séu engar örugg-
ar sannanir fyrir þessu. Ritstjórn
Time þykir greinilega ekkert at-
hugavert við að heili Bandaríkjafor-
seta fari á flakk og krufnings-
skýrslur hans séu brenndar.
En hvað sem „JFK“-kvikmynd-
inni líður, er vitað að CIA og FBI
neituðu Warren-nefndinni um afar
mikilvægar upplýsingar á meðan á
„rannsókninni“ stóð. Of mörgum
spurningum er ósvarað. Nefndin
neitaði að yfirheyra fjölmörg vitni.
Dauði margra vitna (sem annað-
hvort hafa lent í „slysum“ eða ver-
ið myrt) vekur einnig upp spuming-
ar. John Hart Ely, sem er lagapró-
fessor við Stanford-háskóla, var
lögfræðingur fyrir Warren-nefnd-
ina. Hann telur mögulegt að leyni-
þjónustan hafi afvegaleitt nefndina
af ásettu ráði. Hann bendir á að
verulega hafí skort á sjálfstæðar
rannsóknir og að nefndin hafí þurft
að reiða sig á rannsóknaraðila
ríkisstjórnarinnar, nefnilega CLA,
FBI og hemaðaryfirvöld.
Mikilvægast er þó að Bandaríkj-
astjóm neitar enn að gera opinber-
ar upplýsingar í leyniskjölum sem
varða morðið og geta ekki hugsan-
lega skaðað „þjóðaröryggi“ Banda-
ríkjanna, eins og yfírvöld bera fýr-
ir sig. Jafnvel þingnefndin sem
fjallaði um morðið árið 1979 og
komst að þeirri niðurstöðu eftir
tveggja ára rannsóknir að „senni-
lega var gert samsæri um að myrða
Kennedy" hefur læst sínum skjöl-
um langt fram á 21. öld.
Kenningar Oliver Stones í „JFK“
eru bæði byggðar á staðreyndum
og getgátum hans um hvað gerð-
ist. Vangaveltur hans hafa
hneykslað hina sjálfskipuðu „sér-
fræðinga“ bandarískra fjölmiðla
sem og embættismenn sem hafa
miklar áhyggjur af því að framtíð-
arkynslóðir trúi því að það sem
kemur fram í myndinni sé sannleik-
urinn.
Þessir aðilar mættu beina
áhyggjum sínum að þeim stað-
reynd að bandarísk yfírvöld neita
með hroka að veita upplýsingar,
sem bandaríska þjóðin og heimur-
inn allur á réttmætan aðgang að,
til ársins 2029, en þá munu flestir
sem upplifðu morðið á Kennedy
hafa yfírgefíð þennan heim.
Höíundur stundar háskólanám í
fjölmiðlofræðum í Son Diego.
N/bhettc
dansari frá New York kennir hjá okkur í vetur
KAYS nýjasta sumartískan '92 o.fI. o.fI.
Yfir 1000 síöur. Verð kr. 400,- án bgj.
Pöntunarsími 52868.
SJÚKRANUÞÞSTOfA
HUKC HUBCRT
Túngötu 3, sími 13680.
Hef hafið störf að nýju
Hilke Hubert, löggiltur sjúkraþjálfari.
Almanak
Háskólans
Nýtt ár - Nýtt almanak
Almanak Háskólans er ómissandi
handbók á hverju heimili.
Fæst í öllum bókabúðum
ÚTSALA ÚTSALA
IT6AI A REYKJAVÍKURVEGI62-SÍMI 650680 | IM A ■ A
U I 9ALA HAFNARFJÖRÐUR UTSALA