Morgunblaðið - 12.01.1992, Side 14
14 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 1992
Fyrsta íslenska stórsveitarverkið ó erlendum hljómdiski:
- segir höfundurinn Stefón S. Stefónsson
Stefán S. Stefánsson. Morgunblaðið/Emilia
eftir Guðjón Guðmundsson
STEFÁN S. Stefánsson er eini
Islendingurinn sem samið hefur
tónverk fyrir stórsveit sem flutt
er á erlendri grundu og fyrir
skömmu kom út hljómdiskur í
Noregi með tónverkinu, Agara
Gagara. Hljómdiskurinn ber heit-
ið Big Five og á honum eru fimm
tónverk eftir jafnmarga af kunn-
ustu stórsveitarhöfundum Norð-
urlanda í flutningi dönsku út-
varpshljómsveitarinnar, Radioens
Big band, sem talin er vera ein
besta stórsveit heims. Hljómsveit-
arstjóri er hinn kunni danski pían-
isti Ole Koch Hansen. Hljómdisk-
urinn verður innan tíðar fáanleg-
ur í hljómplötuverslunum hér-
lendis.
að kom upp sú hugmynd
innan Nordjazz 1987 að
halda svokallað sam-
norrænt „Jazz compos-
ers workshop“. Ég var
valin til verkefnisins af íslands-
deild Nordjazz. Ákveðið var að við
semdum 8-15 mínútna löng verk
hver. Seinnihluta árs 1987 eyddum
við allir einni viku saman í húsi
danska útvarpsins í Kaupmanna-
höfn og vorum viðstaddir æfingar
og upptökur á verkum hvers ann-
ars. I lok vikunnar var síðan kon-
sert í Montmartre í sneisafullu
húsi,“ sagði Stefán.
Stefán er kunnur saxafónleikari
með ýmsum íslenskum jasssveit-
um, en þekktastur er hann ef til
vill fyrir framlag sitt til poppaðs
jass og fönk-jass með Ljósunum í
bænum og Gömmunum. Hann fór
til framhaldsnáms í Berklee-skó-
lanum í Boston þar sem hann lagði
stund á saxafónleik og síðar tón-
smíðar. Síðastliðin átta ár hefur
hann kennt í tónlistarskóla FÍH,
en er nú í ársleyfi frá störfum.
Danska útvarpshljómsveitin er af
mörgum talin vera ein fremsta
stórsveit heims. Hún var stofnuð
upp úr 1970. Bandaríski trompet-
leikarinn og stórsveitarstjórinn
Thad Jones var ráðinn tónlistar-
stjóri sveitarinnar og markmið
hennar var strax að komast í
fremstu röð. Nokkrir liðsmanna
sveitarinnar eru Islendingum að
góðu kunnir síðan þeir spiluðu hér
á landi á norrænum jassdögum ’90
og Rúrek ’91, m.a. Bent Jædig,
sem leikur sóló í verki Stefáns,
Jesper Thilo og fleiri.
Nordjazz ákvað síðar að gefa
þetta efni út þvi menn á þeim bæ
töldu gæði verkanna og spila-
mennskuna þess eðlis að þetta
ætti fullt erindi á hljómdisk. Auk
Stefáns eiga verk á disknum Finn-
inn Karin Karppa, Daninn Kim
Kristensen, Svíinn Peter Gullin og
Norðmaðurinn Vidar Johansen.
Steinar Kristiansen, fulltrúi Norð-
manna í Nordjazz, beitti sér síðan
fyrir því að diskurinn var gefin
út núna í byijun árs.
„Ég var í yfir tvo mánuði að
semja efnið og svo tók við önnur
vinna - raddskrif og annað sem
tekur langan tíma. Þetta er skrifað
fyrir tuttugu manna hljómsveit og
mikið verk að koma þessu öllu í
kring. Ég ákvað að skrifa eitthvað
sem ég heyrði fyrir mér og jafn-
framt eitthvað sem er skemmtilegt
áheyrnar og gaman að spila. Eg
held að það hafi lukkast því að
það einhvem veginn létti yfir
hljómsveitinni þegar hún spilaði
þetta. Sum hin stykkin er dálítið
alvarleg þannig að mitt verk var
kannski ákveðið mótvægi á diskn-
um. Ég hef reyndar grun um að
íslenskir jassmúsíkantar séu meira
„ameríkanseraðir“ en Skandina-
var, og það á líka við um Finna.
Skandinavar eru í nánari tengslum
við evrópska kammertónlist og
nútímatónlist. Þama er dálítið
önnur hugmyndafræði sem maður
kallar stundum „Skandinavíu-
jass“. Þetta er akademískari tónl-
ist. Mér finnst á hinn bóginn sveifl-
an kjarninn og ef við nefnum aðal-
manninn í þessu öllu saman að
mínum dómi, sem er Mingus, -
hann er alltaf með aðalatriðið í
gangi sem er ijúkandi sveifla -
sama hvað hann spilaði. Sumt í
evrópska jassinum verður fyrir
minn smekk dálítið fjarskylt jass-
tónlist."
Stefán kvaðst hafa skemmt sér
vel við samningu Agara Gagara.
Það hafi verið fjarri því að hann
reyndi að leysa einhveija af lífs-
gátunum í verkinu. „Þess vegna
vildi ég finna titil sem hæfði því
og Agara Gagara, úr vísu Æra-
Tobba, varð fyrir valinu.“
Stefán er með mörg járn í eldin-
um þrátt fyrir ársleyfið. Fyrir það
fyrsta annast hann eins árs gam-
alt barn sitt og nú stendur yfir
lokafrágangur á nýrri plötu
Gammanna, sem kemur út í næsta
mánuði. Þá er hann að útsetja lag
Jóns Múla Árnasonar, Fröken
Reykjavík, fyrir stórsveitir. Hann
sagði að ekki gæfust mörg tæki-
færi til að flytja stórsveitaverk hér
á landi og mikill söknuður væri
að léttsveit Ríkisútvarpsins. Hún
hefði ekki fengið að dafna og
sanna sig þótt hún hefði haft alla
burði til þess. „íslendingar eru
stórhuga og það er aldrei að vita
nema að útvarpshljómsveitin verði
endurreist bregðist loðnuveiðar
okkur ekki í framtíðinni."
VIÐ ERUM FLUTTI
VATNAGARÐA 26
NÝTT SÍMANÚMER ER 682100
NÝTT FAXNÚMER ER 682101
£
SLENSK' SéPRLENDA
Vatnagarðar 26, 104 Reykjavík
Sími 91-682100, Fax 91-682101
Kennit. 660169-1809, Vsknr. 14507
—
*
EINKATIMAR
Ábvrgð er í sambandi við reykingar sem þýðir fulla
durgreiðslu ef dóleiðslan ber ekki
en<
arangur.
Friðrik Páll er viðurkenndur í alþjóðlegum
fagfélöaum dáleiðara eins og International
Medicaf and Dental Hypnotherapy Association,
American Guild of Hypnotherapists og National
Society Of Hypnotherapists.
Friðrik PállÁgústsson R.P.H. C.Ht.
Vesturgata 16, Simi: 91-625717