Morgunblaðið - 12.01.1992, Blaðsíða 21
C 21
MORGUNBLAÐIÐ MEININIIMGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 1992
MYNDBÖND///vað erDBS-kerfi?
SkyPix kemur til skjalanm
Vinsældir myndbandanna auk-
ast með hverjum deginum.
Þann útkjálka er ekki að finna
að þar blómstri ekki myndbanda-
leigur sem kappkosta við að vera
með sem fjöl-
breyttast úrval á
boðstólum, engu
síður en kvik-
eftir Sæbjörn
Valdimarsson
myndahúsin. Og
hér þróast tækn-
in ört. í náinni
framtíð bendir
allt til þess að við
þurfum ekki einu
sinni að hafa fyrir því að tölta út
í leigu!
Fyrirtæki í Bandaríkjunum sem
nefnist SkyPix Corp., hefur hleypt
af stokkunum svonefndu DBS-
kerfi sem stendur fyrir direct bro-
adcast satellite, eða beint gervi-
hnattasjónvarp, og er hið fyrsta
sinnar tegundar í heiminum. Til-
gangur þess að seðja þarfir hinna
myndbanda/kvikmyndasjúku án
þess þeir þurfi svo mikið sem að
yfirgefa sjónvarpsherbergið. Með
endurvarpi frá gervihnetti sem
þegar er kominn á sporbraut,
hyggst SkyPix bjóða áskrifendum
sínum einar 200 myndir á dag og
greiða viðskiptavinirnir að sjálf-
sögðu einungis fyrir þær myndir
sem þeir óska eftir að sjá. Útsend-
ingamar verða fluttar á Ku-
bylgju, með nýrri, stafrænni
tækni á áttfalt breiðari tíðni en
C-bylgjunni sem gervihnattadisk-
ar nota í dag.
Þetta þýðir að SkyPix er fært
um senda út samtímis á sextíu
„sjáið og borgið“ rásum, sem
skapar nánast dramatíska fjölgun
þess myndefnis sem í boði er
hverju sinni. Vinsælustu myndirn-
ar verða sýndar á hálftíma fresti,
allan sólarhringinn, sjö daga vik-
unnar. Og allt myndavalið fer ein-
faldlega fram með fjarstýring-
unni. Vandinn allur sá að velja
rétta númeraröð! Verð myndanna
verður á bilinu 1 til 3,95 dalir,
eða frá 55 upp í 220 krónur og
skuldfærslan verður vitaskuld
sjálfvirk.
Þar sem kerfið býður úpp á að
viðskiptavinir
geti valið og hafn-
að geta þeir hæglega
komið í veg fyrir að
þeir komi að börnum sínum stjörf-
um yfir Henry og June, eða
Kokknum, þjófnum, konu hans ...
Aukinheldur hefur SkyPix látið
hanna kerfi sem kemur í veg fyr-
ir að hægt sé að taka upp myndir
í útsendingu þeirra án þess að
gjald sé greitt fyrir. Kvikmynda-
verunum líst vel á þessa tækni
því næstum öll fyrirtæki sem
framleiða kvikmyndir á 35 mm
filmum, þar með talin öll þau
stóru, hafa samþykkt að láta
SkyPix í té myndir sínar gegn
hlutdeild í tekjum af leigu áskrif-
enda. Varaforseti SkyPix, Richard
Selvage, hefur tilkynnt að stór-
myndirnar verði komnar á skrá
hjá þeim aðeins fáum vikum eftir
að þær koma út á myndböndum.
DfASS/Leita bandarískir djassararjafn
langt aflur og evrópskirfram?
Liðið diassár
eftir Vernharð Linnet
Það má segja að það sem hvarf
setji mun meira mark á liðið
djassár en það sem kom. Tveir úr
hópi höfuðsnillinga djasssögunnar
gengu á fund feðra sinna — Miles
Davis og Stan Getz
— auk fjölda ann-
arra merkra djass-
manna á Norður-
löndum kvöddu
tveir úr úrvals-
flokki: Bjarne Ner-
em og Guðmundur
Ingólfsson. Guð-
mundur Vilbergs-
son trompetleikari lést einnig á ár-
inu, en það var langt um liðið síðan
hann blés djass. Ýmsir ágætir sólóar
eru þó varðveittir með honum frá
því að hann lék með hljómsveit
Björns R. Einarssonar.
Bjarne Nerem er í hópi fremstu
saxófónleikara í norrænni djasssögu.
Hann var alla tíð hógvær maður og
það var ekki fyrr en á allra síðustu
árum að hróður hans barst til Banda-
ríkjanna. Barney kölluðu kanarnir
hann og m.a. hljóðrituðu A1 Grey og
Flip Philips diska með honum.
Heldur var tíðindalítið í íslenskum
djassi á árinu. Tómas R. Einarsson
gaf út ágætan disk, íslandsför,
fékk ágætis gagnrýni í Danmörku,
þó betri fyrir diskinn frá 1989, Nýjan
tón, heilsteyptasta íslenska djassdi-
skinn til þessa. RÚREK-djass-
hátíðin var haldin í maí og
kom margt ágætra gesta.
Bar þar af Nýja frum- /
skógartríóið hans Pi- /
erre Dörges. Hann
stofnaði íslenska /
frumskógarsveit á /
þessari hátíð, en
steytti hún á því
skeri hve íslenskir
eru lítt hagvanir á
hinum frjálsa djas-
sakri.
Einhver frum-
legasti djass sem
ég hlustaði á síð-
asta ár var evrópsk-
ur: Frumskógarsveit
Pierre Dörges eins og séi
og svo með bandaríska saxafón-
snillingnum David Murray, sveit
breska saxafónleikarans Ians Bell-
amy og svo hin hollenska sveit, Will-
iam Brauker Kollektief. Hann hefur
lengi blásið glatt í saxafóna og klari-
nettur og leitt frábæra hljómsveit
sem hefur vafið kabarettmúsík og
öðrum glaðningi í djassinn. Hljóm-
borðsleikari sveitarinnar er Henk de
Jonge og gaf hann út aldeilis frábær-
an disk á árinu sem leið: Jumping’
shark. Það er svo yndisleg tilbreyting
þegar menn leita nýrra leiða um
þessar mundir — það má líka gera
á þjóðlegan hátt eins og Jan Garba-
rek hefur sannað manna best undanf-
arið. Þær bandarísku stjörnur sem
hæst hefur borið síðasta ár hafa all-
ar leitað aftur í djasshefðina og aldr-
ei jafn langt aftur og nú. Margkosinn
djassmaður síðasta árs, Wynton
Marshalis, leitar á mið Ellingtons í
Cotton Club. Það má heyra Benny
Carter í hinum kornunga
Ant- hony Hart og
ungu töff tenórarnir eru á kafi í Ben
Webster og félögum, án þess að eiga
nokkuð af þeirri frumlegu glóð er
gerði websterisma Archie Shepps að
eftinninnilegum djassstíl. Flestir eru
þó í Davis, Coltrane og hörðu boppi
og ein harðasta Evrópuhljómsveitin
er hollensk, kvintett saxistans Bens
van den Dungen og trompetistans
Jarmo Hoogendijks. Einn af van-
metnari djasssnillingum síðustu ára-
tuga, klarinettuleikarinn John Cart-
er, var valinn í heiðursfylkingu djass-
ins um það leyti sem hann lést og
sömuleiðis hlaut Lee Morgan sæti í
þeirri fylkingu, en það eru nú brátt
tuttugu ár liðin frá því kona hans
skaut hann til bana.
Þriðja skífa Frelsissveitar Charlie
Hadens var af flestum talin skífa
ársins, en ekki voru þær síðri skífurn-
ar er David og Getz blésu á og út
komu undir áramót. You have to pay
the band, þar sem Stan blés með
söngkonunni Abbey Lincoln í síðustu
stúdíóupptöku sinni og tónlistin úr
kvikmyndinni Dingó, sem Miles
samdi í félagi við Michael Legrand.
Það er von á meira góðgæti frá þeim
félögum á þessu ári. Tveir diskar
með Getz og Kenny Baron úr Montm-
artre í Kaupmannahöfn — svana-
söngur hans. Wamer-bræður eru
með fjóra Miles Davis-diska í útgáfu-
áætlun sinni. Montreux-hljóðrit-
anirnar með stórsveit undir stjórn
Quincy Jones og Miles að blása út-
setningar Gils Evans, djamm frá
með Miles, Herbie Hancock,
ayne Shorter og fleirum, fönkskífa
sem Prince og Flavour Flav
og rappa með Miles og loks
sömbuskúfa þar sem Miles blæs
undir stjórn Quincy Jones og Johnny
Mandels.
Hér skal lokið að telja nokkra
djassviðburði síðasta árs en
einnar endurútgáfu verð-
'ió að geta. Mosaic
af út allt er Nat
King Cole-tríóið
hljóðritaði fyrir
Capitol, þar á
meðal nær
hundrað
óútgefna
ópusa.
Geggjað.
Miles Davis og
Stan Getz — Tveir
úr hópi höfuðsnilling-
anna sem gengnir eru á
fund feðra sinna.
Fenjatónar
LOUISIANA er líklega það fylki Bandaríkjanna hvar flestar sérstakar
gerðir tónlistar þrífast og dafna; hver í sínu lagi eða, það sem oftar
er, skarast á ótal vegu. I Louisiana er upprunuin cajuntónlist, zydeco,
fenjapopp, fenjablús og jass (að sumra sögn). Með skemmtilegustu
bastörðum úr þessari tónlistardeiglu er zydeco, tónlist frönskumælandi
blökkumanna í Louisiana.
Zydecokonungurinn Clifton Chenier.
jr ___
BLUS/Hvaðan komaþessar
harmonikkur?
og leysingjar, sem báru með sér af-
ríska og karíbska rytma. Cajunhljóð-
færin voru helst fiðla og harm-
onikka, en á meðan cajuntónlistar-
menn hölluðust að konsertínum tóku
zydecotónlistarmenn akkordeon
framyfir sem gaf þeim meira tón-
svið, og bættu við þvottabretti til að
gefa lifandi rytmagrunn. Frum-
zydeco svipaði mjög til cajuntónlist-
ar, en á árum seinni heimsstyijaldar-
innar varð töluverður flutningur
blökkumanna til stórborga í- Texas
að vinna við ýmis störf sem losnuðu
þegar bleikneíjar fóru í herinn. Þar
kynntust þeir blús og rytmablús,
tóku fegins hendi og bættu í pottinn.
Sá sem gerði zydecotónlist fræga
víða um lönd var Clifton Chenier.
Clifton, sem fæddist í Opelousas
1925, hóf snemma að leika á harm-
onikku og bróðir hans, Cleveland, lék
með á þvottabretti. Tónlistin var þó
aukageta framan af, enda vinsældir
zydecotónlistar mjög svæðisbundnar.
A sjötta áratugnum vék zydecotón-
listin fyrir rytmablús hjá Clifton,
enda auðveldara að framfleyta sér í
þeirri gerð tónlistar. í upphafi sjö-
unda áratugarins stofnaði mikill
áhugamaður um zydecotónlist, Chris
Stachwitz, útgáfu til að gefa út þjóð-
lega tónlist frásuðurhluta Bandaríkj-
anna og Norður-Mexíkó. Eitt af því
fyrsta sem Strachwitz gerði var að
leita uppi Clifton Chenier og telja
hann á að taka til við zydeco aftur.
Skemmst er frá því að segja að alls
gaf fyrirtæki Strachwitz, Arhoolie,
út tólf breiðskífur með Clifton Cheni-
er og högnuðust báðir mjög á því
samstarfi, sem gerði Clifton meðal
annars að stórstjörnu víða um
Bandaríkin, aukinheldur sem hann
fór margar ferðir til Evrópu til tón-
leikahalds. Líklega væri hann enn
að ef sykursýki hefði ekki lagt hann
í gröfina fyrir fjórum árum. En
ógleymanleg tónlist Cliftons lifir og
er nú til á geisladiskum. Það er Arho-
olie sem gefur út líkt og forðum og
rétt er að beina áhugasömum beint
að safndisknum 60 Minutes with the
King of Zydeco, sem er safn af því
besta af plötunum tólf, en einnig er
vert að vekja athygli á fyrstu plötu
Cliftons fyrir Arhoolie, Louisiana
Blues and Zydeco, en þar er meðal
annars að finna útgáfu hans af lag-
inu Les Haricots sont pas salé, sem
zydeco dregur nafn sitt af og heitir
hjá Clifton heitir það einmitt Zydeco
sont pas salé. Besta hljóðversskífa
Cliftons er þó líklega Bogalusa Bo-
ogie, sem er mjög blússkotin. Með
Clifton á þessum plötum öllum er
bróðir hans Cleveland á þvottabretti,
og frábær sveit Cliftons, The Red
Hot Louisiana Band, þar sem valinn
maður er í hverju rúmi.
Einna mestu um tónlistarlega sér-
stöðu Louisiana ráða líklega
frönsku áhrifin, en frönskumælandi
íbúar fylkisins, sem kallast cajun,
flúðu frá Kanada undan ofríki Breta
í lok átjándu aldar.
Þeir settust að í
Louisiana og
mynduðu þar sjálf-
stæðan menning-
arkima sem vara
nánast einangraði í
eftir Árna 200 ár. lónlist
Wlatthíasson Þeirra bar sterkan
franskan svip, en
tók líka breytingum vegna engilsax-
neskra áhrifa og úr varð það sem
við þekkjum í dag sem cajuntónlist.
Slíkri tónlist kynntust svartir þrælar
Þar með fær SkyPix talsvert for-
skot á kapalstöðvarnar vestra og
kvikmyndarásina og framleiðand-
ann HBO.
Allt hljómar þetta ósköp fal-
lega, en einn er galli á gjöf Njarð-
ar. Til að geta notað kerfi SkyPix
verða áskrifendur að fjárfesta í
tækjabúnaði sem með uppsetn-
ingu kostar hátt í 1.000 dali. Og
þó svo að Selvage fullyrði að þeg-
ar hafi safnast 2,5 milljónir áskrif-
enda er ekki víst hve margir eru
tilbúnir að reiða fram á sjötta tug
þúsunda króna fyrir óreyndan
búnaðinn þegar á hólminn er kom-
ið.
En hver veit hvað gerist? Þrátt
fyrir alla þessa hvetjandi heima-
veru er aldrei að vita nema að
örgustu letiblóð uppgötvi að það
sé nú í rauninni ágætt að bregða
sér í smábíltúr af og til, þó ekki
sé til annars en að sækja sér
myndbandsspólu!
íslenskir leigusalar þurfa ekki
að óttast þessa byltingu að sinni.
Bjartsýnir kunnáttumenn í fijálsri
fjölmiðlun og sölumenn gervi-
hnattabúnaðar telja að allt upp í
fimm ár munu líða áður en áhrifa
SkyPix og svipaðra fyrirtækja fer
að gæta hérlendis að einhveiju
marki. En DBS á örugglega eftir
að koma til að vera.
Heimild; Premier nmgazine.