Morgunblaðið - 12.01.1992, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 1992
O C'Q
C 23
Oryrkjabandalag
Islands mótmælir
Ib Wessman
í Naustinu á ný
HINN kunni matreiðslumeist-
ari Ib Wessman verður gesta-
kokkur í veitingahúsinu Nausti
við Vesturgötu dagana 15.-17.
janúar n.k.
Ib Wessman var um árabil yfir-
matreiðslumeistari Naustsins.
Hann hefur s.l. 10 ár verið yfimat-
reiðslumeistari á þekktum hótel-
um í Noregi. Þá þrjá daga sem
Ib.ræðuir ríkjum í eldhúsi Naust-
ins verður matseðillinn eins og
hann var á þeim árum sem Ib var
þar starfandi. Til dæmis má þar
fínna körfukjúkling, nautasteikur,
djúpsteiktan humar, lauksúpu og
fleiri rétti sem Ib kynnti fyrir ís-
lendingum.
„Ib Wessman er mjög eftirsótt-
ur og því ert það heiður fyrir
okkur að fá hann nokkra daga í
Naustið. Koma hans hingað er lið-
ur í því markmiði okkar að gera
Naustið að því 1. flokks veitinga-
húsi sem það var þekkt fyrir í
Ib Wessman.
gamladaga," segja veitingamenn-
irnir Hafsteinn Egilsson og Hörð-
ur Siguijónsson.
ÖRYRKJABANDALAG íslands
mótmælir harðlega þeim handa-
hófskenndu aðgerðum sem ríkis-
stjórnin beitir til þess að ná end-
um saman í ríkisfjármálum. Þess-
ar aðgerðir miðast við skerðingu
örorku- og ellilífeyris, þannig að
lífeyrisþegar eru sviptir grunn-
lífeyri að hluta til eða að fullu,
segir í frétt frá bandalaginu.
Hvað öryrkja varðar þá hefur það
verið grundvallarviðhorf viðurkennt
af samfélaginu, að greiða öryrkjum
lífeyri sem nokkra uppbót vegna
þeirra hömlunar og þess aukakostn-
aðar, sem örorkan veldur. Skerðing
grunnlífeyris án tengsla við heildar-
skoðun tryggingakerfisins er því
vægast sagt varahugaverð.
Myndband um
æxlunarheg’ð-
un bleikja
DR. HREFNA Sigurjónsdóttir,
dósent í líffræði við Kennarahá-
skóla íslands, og dr. Karl Gunn-
arsson, sérfræðingur á Hafrann-
sóknastofnun, hafa undanfarin
ár unnið að rannnsóknum á æxl-
unarhegðun Þingvallableikjunn-
ar. A grundvelli rannsóknanna
hefur verið gert myndband sem
Hrefna og Karl munu sýna og
skýra í Kennaraháskóla Islands
við Stakkahlíð (stofu B-301) á
þriðjudaginn kemur, 14. janúar,
kl. 17.00.
Þetta er upphafið að röð fyrir-
lestra sem haldnir verða í Kennara-
háskólanum nú á vormisserinu á
vegum Rannsóknastofnunar Kenn-
araháskóla íslands, en hún tók til
starfa á nýliðnu ári. Forstöðumaður
stofnunarinnar er dr. Hrafnhildur
Ragnarsdóttir prófessor.
Ámælisvert er að tekjur fólks sem
er langt innan við meðaltekjumörk
eru skertar verulega á meðan í
engu er hróflað við þeim sem eru
hátt yfir þessum meðaltekjum.
Öryrkjabandalag íslands lýsir sig
reiðubúið hvenær sem er til við-
ræðna um raunverulegan jöfnuð á
kjörum örorkulífeyrisþega, m.a.
tekjutengingu grunnlífeyris ef ann-
að kemur í móti s.s. viðbótarskatt-
þrep á hærri tekjur svo og því að
ijármagnstekjur séu teknar með
bæði í skattalegu tilliti og hvað
varðar lífeyrisgreiðslur.
Hækkun frítgkjumarks nú er
góðra gjalda verð fyrir þann hóp
öryrkja sem þar nýtur góðs af en
hins vegar er í engu komið til móts
við þá sem mesta hafa þörfina, þ.e.
þá sem einvörðungu verða að fram-
fleyta sér á tryggingabótum.
ÁS-TEIMGI
rfcH '| Ibfa
Allar geröir.
Tengið aldrei stál - í - stál,
hafið eitthvað mjúkt á milli,
ekki skekkju og titring
millitækja.
JmöL
SödDoHffleflgjiuDir cilte@ð®in) & ©@ M.
Vesturgötu 16 - Shnar 14680-13280
MALUN - MYNDLIST
Dag- og kvöldtímar fyrir byrjendur og lengra
komna. Undirstöðuatriói í meðferð vatns- og
olíulita. Myndbygging.
Upplýsingar og innritun í dag og næstu daga.
Kennari Rúna Gísladóttir, listmólari,
símiól 1525.
KJÖRBÓK
LANDSBANKANS
VAR BANKABÓK
ÁRSINS 1991:
RAUNÁVÖXTUN
4,06-6,03%
ENGINN ÓBUNDINN
SÉRKJARA-
REIKNINGUR
í BANKAKERFINU
GAFBETRI
ÁVÖXTUN
Um áramótin námu innstæöur yfir 80 þúsund Kjörbókareigenda
í Landsbankanum rúmum 27,5 milljörðum. Kjörbókin er því sem fyrr
langstærsta sparnaöarformiö í íslenska bankakerfinu. Ástæöan er
einföld: Kjörbókin er óbundin og örugg og tryggir eigendum sínum
háa ávöxtun eins og glöggt sést á samanburöi viö sambærilega
reikninga annarra banka og sparisjóða.
Ársávöxtun áriö 1991 var 12,01-14,14%. Raunávöxtun á
grunnþrepi var því 4,06%, á 16 mánaða þrepinu var 5,44%
raunávöxtun og á 24 mánaða þrepinu 6,03%
Kjörbókareigendur geta þess vegna nú sem fyrr horft björtum augum
fram á viö fullvissir um aö spariféö muni vaxa örugglega á nýju ári.
Kjörbók er einn margra góöra kosta sem bjóöast í RS,
Reglubundnum sparnaði Landsbankans. ítarlegar upplýsingar um
RS færö þú í næstu afgreiðslu bankans.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna