Morgunblaðið - 12.01.1992, Side 24
24 C
MORGUNBLAÐIÐ MYNDASOGUR SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 1992
STJORNUSPA
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) W*
Óvænt atvik kunna að koma
upp í vinnunni hjá þér næstu
daga. Það verður einhver óró-
leiki í þér í kvöld. Taktu þér
eitthvað róandi fyrir hendur.
Naut
(20. apríl - 20. maí) /fífí
Þú hittir óvenjuiegt fólk í dag.
Það verður uppistand út af
peningum. Láttu heimili þitt
ganga fyrir öllu öðru í dag.
Tviburar
(21. maí - 20. júní)
Þú sýnir mikla hugmynda-
auðgi þegar þú vinnur að því
að tryggja fjárhagslegt öryggi
þitt til langs tíma. Þér mun
ganga flest í haginn ef þú ýtir
ekki of fast á eftir hlutunum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Ef það er eitthvað sem þig
blóðlangar í þá kauptu það.
Einhver í fjölskyldunni kemur
fram með kostulega og snið-
uga tillögu. Forðastu deilur í
kvöld.
Ljón
(23. júlí — 22. ágúst)
Hafðu langtímahagsmuni þína
í huga þegar þú gerir áætlanir
þínar. Taktu ákvarðanir þínar
á eigin spýtur og bíddu ekki
eftir samþykki annarra. Lán-
aðu ekki peninga.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Þú skipuleggur ferðalag ásamt
maka þínum. Sýndu sveigjan-
leika og hlustaðu á röksemdir
annarra. Þú byrgir ef til vill
inhra með þér sektarkennd
sem á við engin rök að styðjast.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Nú er lag að gera ýmiss konar
breytingar heima fyrir. Huns-
aðu ekki vini þína á þeim for-
sendum að þú hafir ekki tíma
fyrir þá. Sýndu árvekni í starfi.
Sporddreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Hugkvæmni þinni og sköpun-
argleði er við brugðið í dag.
Þú ferð ef til vill í ferðalag
með stuttum fyrirvara. Settu
markið hátt og leggðu þig
fram um að ná því.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember) &
Þú kaupir eitthvað óvenjulegt
til heimilisins í dag. Forðastu
skoðanaágreining við einhvem
innan fjölskyldunnar í kvöld.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) m
Hugmyndir þínar fela í sér
nýsköpun. Þú blómstrar í hóp-
starfi sem þú tekur þátt í.
Láttu ekki þá sem minni hæfi-
leika hafa en þú taka frum-
kvæðið af þér.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Leitaðu vandlega og þú munt
gera reyfarakaup. Þú lýkur
farsællega við verkefni sem
þú hefur unnið að lengi. Mættu
maka þínum á miðri ieið.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) ÍZZZ
Það gleður þig að eignast nýja
vini í dag. Vanræktu ekki
skylduverkefni sem bíða úr-
lausnar. Það kann að verða
uppistand út af peningamálum
í kvöld.
Stjörnusþána á að lesa sem
dœgradvót. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staðreynda.
GRETTIR
TOMMI OG JENNI
LJOSKA
FERDINAND
SMAFOLK
REALLV sawta
CLAU5. LUHV
I5N'T ME
FLYIN6
AKOUNP
REINPEER?
© 1990 Unlted Featme Syndlcate, Inc.
DON'T VOU KNOU) \ / I CAN'T MEAR A THING..
IT'5 CHRI5TMA5 EVE?)( 50MEB0PV AR0UND MERE
KEEP5 RINGIN6 A 0ELL...
d>
Ef hann er ekta jólasveinn, af hverju flýgur hann ekki um með hreindýrin sín? - Hæ, Jóli, haltu áfram' -
Veistu ekki að það er aðfangadagskvöld? - Eg heyri ekki orð ... einhver hér í nágrenninu er alltaf að hringia
bjöllu ...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
„Hver á laufkónginn?" er
spurningin sem suður verður að
finna rétt svar við á úrslita-
stundu.
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♦ ÁK87
V 754
♦ 3
♦ 98632
Suður
♦ 42
▼ ÁK6
♦ ÁKDG109
♦ Á10
Vestur Norður Austur Suður
— — — 2 tíglar
Pass 2 spaðar Pass 4 grönd
Pass 5 tíglar Pass 5 grönd
Pass 6 tíglar Allir pass
Útspil: hjartaþristur.
Suður drepur hjartadrottn-
ingu austurs með ás og tekur
þrisvar tromp, en hendir spaða
og hjarta úr blindum. Trompið
liggur 3-3, svo nú er tímabært
að snúa sér að laufinu, spila ás
og tíu. Þar eð sagnhafi á aðeins
tvær innkomur í borðið lítur út
fyrir að laufið þurfi að falla 3-3
til að slemman vinnist. En annar
möguleiki sýnir sig þegar vestur
fylgir í Á10 í laufi með gosa og
drottningu. Þá er hugsanlegt að
trompsvína fyrir laufkónginn í
austur. Vestur skilar spaða og
staðan er þessi þegar sagnhafi
þarf að gera upp hug sinn:
Norður
♦ Á8
V7
♦ 986
Suður
♦ 4
▼ K6
♦ G109
♦ -
Hann spilar laufníunni og
austur lætur sjöuna. Á að
trompa og treysta á að laufið
falli, eða hleypa níunni?
Svarið við spurningunni er að
finna í fýrsta slag. Vestur valdi
að koma út frá gosanum óvöld-
uðum í hjarta, sem telst varla
rakið útspil. Með KDG í laufi
hefði hann víst örugglega komið
frekar þar út. Trompsvíningin
ætti því að heppnast.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á Haustmóti Skákfélags Akur-
eyrar um daginn kom þessi staða
upp í viðureign þeirra Smára R.
Teitssonar (1.745) og Rúnars
Sigurpálssonar (2.060), sem
hafði svart og átti leik. Hvítur var
að enda við að hirða baneitrað
peð, lék 17. Be3xh6?
17. - Rfxg4l, 18. fxg4 - Rxg4,
19. Dg3 — Be5! (Þegar hvítur
hirti peðið hefur hann e.t.v. aðeins
reiknað með 19. — Rxh6 sem
hann getur svarað með 20. Dxg6)
20. Dh3 - Rxh6, 21. Dxd7 (Alls
ekki 21. Dxh6 - Bf4+) (21. -
Bxc3 - 22. De6+ - Kg7, 23.
Hh2 — Dxa2, 24. bxc3 — Hbl
mát.