Morgunblaðið - 07.02.1992, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1992
t
Ástkær eiginmaður minn,
HALLDÓR H. JÓNSSON,
er látinn.
Margrét Garðarsdóttir.
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
SVEINSÍNA G. JÓRAMS,
Nönnugötu 8,
Reykjavík,
lést í Landspítalanum miðvikudaginn 5. febrúar.
Valgerður Magnúsdóttir,
Bragi Lárusson, Sólveig Matthíasdóttir.
+
Móðir okkar,
PETRÍNA FRIÐBJÖRNSDÓTTIR,
Hnífsdal,
andaðist í Sjúkrahúsi ísafjarðar miðvikudaginn 5. febrúar.
Gunnar og Héðinn Kristinssynir.
+
Systir min,
UNNUR FINNBOGADÓTTIR,
Grettisgötu 76,
lést í Landakotsspítala miðvikudaginn 5. febrúar.
Fyrir hönd systkina,
Herdís Finnbogadóttir.
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SESSELJA EINARSDÓTTIR,
Hrafnistu,
áður til heimilis á Brekkustíg 4A,
andaðist á Hrafnistu 5. þ.m.
Jarðarförin auglýst síðar.
Jónina Halldórsdóttir, Hannes Ingibergsson,
Guðrún Halldórsdóttir,
Magnea Halldórsdóttir, Grfmur H. Lárusson,
Hafsteinn B. Halldórsson, Helga Kristín Friðriksdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir, amma
og langamma,
GUÐMUNDA GUÐRÚN
SIGURÐARDÓTTIR
frá Litlalandi,
Vestmannaeyjum,
Njálsgötu 17,
andaðist í Borgarspítalanum 5. febrúar.
Ólafur B. Þorsteinsson
börn, barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR,
Hofsvallagötu 21,
Reykjavik,
lést á elli- og hjúkrunarheimiliu Grund laugardaginn 1. febrúar.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskapellu í dag, föstudaginn
7. febrúar, kl. 15.00.
Jóhanna Sigþórsdóttir, Óskar Guðmundsson,
Steinunn Sigþórsdóttir, Einar Kristinsson,
Jónina Sigþórsdóttir, Skafti Skúlason,
Dýrunn Jónsdóttir Thulstrup,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum öllum þeim, er sýndu okkur hlýhug og samúð við fráfall
elskulegs sonar míns, bróður okkar og mágs,
MAGNÚSAR AXELS MAGNÚSSONAR.
Kristin Þórðardóttir,
Þórður K. Magnússon, Guðný Húnbogadóttir,
Margrét Magnúsdóttir, Ólafur Jón Briem,
AuðurG. Magnúsdóttir.
Jónína H. Jóns-
dóttir - Minning
Fædd 29. desember 1910
Dáin 31. janúar 1992
Minn Jesú, aridlátsorðið þitt
í mínu hjarta eg geymi,
Sé það og líka síðast mitt, j
þá sofna eg burt úr heimi.
(HP (ps. 44))
Hinn 31. janúar si. lést tengda-
móðir mín, Jónína Helga Jónsdóttir,
fædd á Gamla-Hrauni, Eyrarbakka,
síðast húsfrú á Álfaskeiði 64 í Hafn-
arfirði. Eiginmaður hennar var Logi
Eldon Sveinsson múrarameistari
sem andaðist 10. maí 1986. Börn
þeirra eru fjögur: Sigurbjörn, Har-
aldur, Jón og Ingibjörg.
Minningarnar vakna hver af ann-
arri þegar maður hugsar til baka
og þá fyrst í kringum 1970, þegar
ég, kynntist dóttur þeirra hjóna og
núverandi eiginkonu minni, Ingi-
björgu. Fyrstu kynnin af tengda-
móður minni eru ógleymanleg hvað
varðar hlýhug, skilning og jafri-
lyndi. Hún vildi allt fyrir alla gera,
og sat ekki auðuín höndum, heldur
vann lengi úti við alls konar konar
störf sem gáfust og var einstaklega
natin við saumaskap heima fyrir.
Gaf og seldi eftir því hvað átti við.
Þannig hjálpaði hún við að fram-
fleyta heimilinu. Ég minnist fyrstu
samverustundanna á Freyjugötunni
í Reykjavík með þakklæti. Það var
mikill gestagangur og allir vel-
komnir og nóg að bíta og brenna.
Þetta góða andrúmsloft minnti mig
á það sem ég ólst upp við í foreldra-
húsum, þar sem engu var hent
hvorki matarleifum né gömlum not-
uðum fötum. Hún minnti okkur
unga fölkið á það að margir ættu
um sárt að binda og það færi betur
að geta rétt þessu fólki hjálparhönd.
Þannig hugsaði hún og fram-
kvæmdi það reglulega með því að
senda föt og annað góðgæti til
þeirra sem þurftu á því að halda.
Hún tengdamóðir mín skildi hve
samheldnin er mikilvæg, því hún
var næstyngst af 17 systkinum.
Hún var send í vist til bróður síns
í Vestmannaeyjum aðeins 14 ára
gömul og lífsbaráttan hefur því
byijað snemma. Þar kynntist hún
síðar lífsförunauti sínum, Loga Eld-
on Sveinssyni, sem ólst upp í Vest-
mannaeyjum. Síðan lá leið þeirra
til Reykjavíkur þar sem þau hefja
búskap.
Ég minnist'þess í kringum 1978,
að tengdamóðir mín kemur að máli
við mig hvort ekki væri mögulegt
að fá leiguhúsnæði í Hafnarfirði,
því þau langaði að búa í hrauninu.
Það gekk allt heim og saman og
fengtí þau neðstu hæðina á Álfa-
skeiði 40 hjá þeim öðlingshjónum
Kristjáni og Sigrúnu konu hans.
Ég fullyrði að næsti áratugur í lífi
tengdaforeldra minna hafi verið sá
besti sem þau upplifðu. Þau notuðu
hveija stund til að ferðast og skoða
landið sitt og voru sérstaklega
frændrækin.
+
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
HJALTI GUÐMUNDSSON
bóndi,
Vesturhópshólum,
verður jarðsunginn frá Vesturhópshólakirkju laugardaginn
8. febrúar kl. 14.00.
Margrét Guðmundsson,
Lára Hjaltadóttir Cooke, Kewin Cooke,
Guðmundur Hjaltason, Elísabet Kristbergsdóttir,
Bára Hjaltadóttir, Sigurgeir Tómasson,
Ásta Hjaltadóttir, Halldór Teitsson,
Úlfar Hjaltason
og barnabörn.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
SVEINLAUG H. SVEINSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Hvalsneskirkju
laugardaginn 8. febrúar kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er
bent á Minningarsjóð Finnbjargar Sig-
urðardóttur.
Birna Pétursdóttir,
Sveindís Pétursdóttir,
Sigurður R. Pétursson,
Jóhanna Pétursdóttir,
Anna Marý Pétursdóttir,
Pétur Björnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Björn Kristjánsson,
Ágúst Einarsson,
Guðný Edda Magnúsdóttir,
Níels Karlsson,
Guðmundur Knútsson,
+
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
við andlát og útför eiginmanns míns,
föður, tengdaföður og afa,
BIRGIS ÓLAFS HELGASONAR,
Ásgarði 10,
Reykjavik.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki
lungnadeildar Vífilsstaðaspítala fyrir
einstaka umönnun í veikindum hans.
Elsa Kristín Guðiaugsdóttir,
Hilmar Birgisson,
Viðar Birgisson,
Guðlaugur Kristinn Birgisson,
Helgi Birgisson,
tengdadætur og barnabörn.
Ég vil að lokum þakka tengda-
móður minni fyrir sérstaka alúð við
börnin mín fjögur og umhyggju
hennar um velferð okkar Ingibjarg-
ar. Einnig sendi ég þakklæti til
starfsfólks Sólvangs í Hafnarfirði
fyrir frábæra hjúkrun henni til
handa.
Ég kveð tengdamóður mína með
söknuði og þakklæti fyrir lærdóms-
rík kynni og votta öðrum aðstand-
endum innilega samúð mína.
Geir Hallsteinsson.
Okkur langar að minnast elsku
Jónu ömmu. Hún lést í Sólvangi
31. janúar 81 árs að aldri. Allar
minningar okkar um hana eru full-
ar af kærleika og hlýju.
Hún vildi alltaf að okkur liði vel
og að við værum glöð í sálinni eins
og hún orðaði það stundum. Alltaf
var hún glaðleg, gefandi og kvik í
hreyfingum og þannig viljum við
muna hana.
Hugsandi um blómin sín, gefandi
smáfuglunum sínum og hlúandi að
öllu sem lifði. Enginn bjó til betri
rauðgraut og betri brún-hvíta köku,
alltaf nóg til af einhveiju góðu.
Hún vildi öllum vel, sjálf hafði
hún lifað tímana tvenna.
Láttu Guðs hönd þig leiða hér,
lífsreglu halt þá bestu.
Blessuð hans orð, sem boðast þér,
í bijósti- og hjarta festu.
(HP)
Þetta skrifaði amma á fremstu
síðu í Biblíuna hennar mömmu,
þetta er veganestið okkar frá henni.
Eftir að afi dó hrakaði heilsu
ömmu mjög. Síðustu tvö árin gat
amma ekkert talað og var það erf-
itt fyrir hana að skilja.allt en geta
ekki tjáð sig, en þrátt fyrir það var
hlýja brosið hennar alltaf til staðar.
Við kveðjum ömmuna okkar með
bæninni, sem hún kenndi okkur öll-
um:
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni.
Sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
Við biðjum góðan Guð að geyma
hana, við trúum því að nú líði henni
vel og að hún sé komin til Loga afa.
Arnar, Brynjar, Logi og Nína.
BLbm^LFíiRjnn
Vesturgötu 4,
sími 622707
Vandaðar skreytingar
við öll tækifæri.
Sendum um allt land
Opið mán.-lau. kl. 9-22.
Sunnudag kl. 11-19. .