Morgunblaðið - 07.02.1992, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 7. FEBRUAR 1992
25
Þjófurinn gripinn við
morgunverðarborðið
TVEIR menn um tvítugt voru handteknir í gærmorgun grunaðir um
að hafa stolið 80-90 þúsund krónum á endurhæfingarstöðinni Bjargi
við Bugðusiðu. Annar þeirra hefur viðurkennt verknaðinn.
Daníel Snorrason lögreglufulltrúi
hjá rannsóknarlögreglunni á Akur-
eyri sagði að tilkynning hefði borist
um að 80-90 þúsund krónum hefði
verið stolið úr afgreiðslu Bjargs í
gærmorgun. Á Bjargi er rekin endur-
hæfingar- og líkamsræktarstöð og
er afgreiðslan þar opin, þannig að
ekki var um innbrot að ræða, heldur
fór sá er að verki var inn í afgreiðsl-
una og hirti féð úr peningakassa sem
þar er.
Lögreglan fékk vísbendingu sem
leiddi til þess handtöku tveggja
manna, er sátu og gæddu sér á
morgunverði á Hótel KEA í góðu'
yfirlæti. Ekki var unnt að yfirheyra
mennina strax sökum ölvunar, en
annar hafði síðdegis í gær viður-
kennt að hafa stolið peningunum.
Voru félagarnir með um 30 þúsund
krónur á sér, en þeir höfðu eytt hluta
af ránsfengnum.
Kristján Krisljánsson:
Greinar um frelsi í
erlendum tímarítum
DR. KRISTJAN Kristjánsson kennari við Háskólann á Akureyri hef-
ur nýlega fengið samþykktar til birtingar í þekktum erlendum heim-
spekitímaritum þrjár greinar er varða frelsishugtakið. Eitt þessara
tímarita er hið virtasta á sínu sviði í heiminum og birtir innan við
5% af aðsendu efni.
Kristján fékk á síðastliðnu ári
300 þúsund króna styrk frá
Vísindaráði íslands til að halda
áfram rannsókn-
um á frelsishug-
takinu og skyldum
efnum sem hófust
með doktorsrit-
gerð hans, „Frels-
ið sem siðferðjs-
hugtak," er hann
varði við háskól-
ann í St. Andrews
árið 1990. í kjölfar
þessarar styrk-
Kristján
Kristjánsson
veitingar skrifaði Kristján nokkrar
greinar og hafa þijár þeirra nú
verið samþykktar til birtingar í virt-
um heimspekitímaritum í Banda-
ríkjunum og Bretlandi.
Hin fyrsta, sem birtist í janúar-
hefti American Philosophical Quart-
erly, fjallar um muninn á tilboðum
og hótunum og rökstyður þá kenn-
ingu að tilboð geti sem slík aldrei
skert frelsi manna; hótanir gera það
hins vegar oftast, en þó ekki alltaf.
Önnur greinin, sem væntanleg er í
hausthefti Journal of Applied Phil-
osophy rennir stoðum undir þá skil-
greiningu frelsishugtaksins að
hindrun skerði frelsi manns þá og
því aðeins að annar aðili sé siðferði-
lega ábyrgur fyrir henni. Ekki þurfi
að vera um ásetningssynd að ræða,
eins og margir halda fram, heldur
geti frelsisskerðing stafað _af van-
rækslu eða aðgerðaleysi. í þriðju
greininni, sem birtast mun í októ-
berhefti Ethics, er leitast við að
svara* spurningunni nákvæmlega
hvenær við séum siðferðilega ábyrg
fyrir þeim hindrunum sem varna
öðrum vegar í lífinu.
Kristján sagði það hafa komið
þægilega á óvart hversu góðar und-
irtektir þessar greinar hefðu fengið
þar sem fyrrnefnd tímarit væru öll
mjög vandfýsin á efni, einkum Eth-
ics sem birti innan við 5% af aðsend-
um ritgerðum og sjaldnast eftir
höfunda utan Bandaríkjanna og
Bretlands. Þá má geta þess að á
árinu er væntanleg á íslensku bókin
Þroskakostir eftir Kristján, en í
henni er safn ritgerða um siðferði
og menntun sem Rannsóknarstofn-
un í siðfræði við Háskólann íslands
gefur út.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Krakkarnir á gæsluvellinum við Eiðsvöll léku sér áhyggjulaus í snjónum í fyrradag.
Dagvistardeild:
Sparað í rekstri gæsluvalla
FÉLAGSMÁLARÁÐ mun taka afstöðu til tillagna dagvistardeildar
Akureyrarbæjar um sparnað í rekstri gæsluvalla á fundi í næstu
viku. Samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir að kostnaður
við rekstur gæsluvalla yrði 16,3 milljónir, en fram hafa komið
tilmæli um að skera hann niður í um 13 milljónir króna. Tillögurn-
ar gera ráð fyrir rúmlega einnar milljón króna sparnaði í rekstri.
Starfsfólki gæsluvallanna var sagt upp störfum um siðustu mán-
aðamót.
Ingibjörg Eyfells dagvistarfull-
trúi Akureyrarbæjar sagði að fyrir
félagsmálaráði lægu tillögur dag-
vistardeildar um sparnað í rekstri
og yrði tekin afstaða til þeirra á
fundi á miðvikudag í næstu viku.
í tillögunum er m.a. gert ráð
fyrir að sumaropnunartími verði
styttur um mánuð og taki gildi
1. júní í stað 1. maí, en að sumr-
inu hafa gæsluvellir verið opnir
lengur en að vetrinum. Þá er lagt
til að opnað verði kl. 10 að morgni
í stað 9 áður og eftir hádegi verði
opið frá kl. 13 til 18 í stað 14 til 17.
Gæsluvöllum hefur verið fækk-
að um tvo og eru nú sjö. Holtavöll-
ur var lagður niður síðasta sumar
og Félagi dagmæðra á Akureyri
hefur verið heimilt að nota Gerða-
völl, en þar hefur aðsókn verið
sáralítil. Vellinum verður ekki lok-
að, en þar verður engin gæsla.
Þá má nefna hugmyndir um að
loka einstaka gæsluvelli fyrir há-
degi, þar sem aðsóknin er minnst
og einnig liggur fyrir tillaga um
að loka Hlíðarvelli við Lönguhlíð
í fjóra mánuði yfir háveturinn.
Hafrannsóknastofnun og Háskólinn á Akureyri:
Tilraunaframleiðsla á þorsk-
seiðum í Evjafirði undirbúin
Vonast er til að eldi geti hafist vorið 1993
Hafrannsóknarstofnun í samvinnu við Háskólann á Akureyri er
að hefja undirbúning á tilraunaframleiðslu á þorskseiðum í Eyja-
firði. Heimild hefur fengist til að ráða starfsmann til að sinna
undirbúningi þessa verkefnis. Verði niðurstöður jákvæðar er reikn-
að með að eldi geti hafist vorið 1993. Þá mun væntanlega í þessum
mánuði hefjast rannsókn á vistfræði Eyjafjarðar.
Steingrímur Jónsson forstöðu-
maður Hafrannsóknarstofnunar á
Akureyri sagði að rætt hefði verið
um hafbeit á þo'rski í Eyjafirði um
nokkurn tíma, en nú stæði til að
hrinda verkefninu í framkvæmd.
Ein af tillögum starfshóps sem
kannaði möguleika á eldi sjávar-
dýra var að hefja rannsóknir og
framleiðslu þorskseiða og hafbeit
á þorski.
Heimild hefur fengist til að ráða
starfsmann tímabundið í ár til að
sinna nauðsynlegum rannsóknum
og hvernig best verði að málum
staðið.
Steingrímur sagði að Eyjafjörð-
ur hefði ýmsa kosti varðandi haf-
beit á þorski. Þorskgengd væri
ekki mikil í firðinum og ef menn
ætluðu að sjá árangur væri ákjós-
anlegt að stunda tilraunaverkefni
sem þetta í slíkum firði, fremur
en þar sem mikið væri af fiski.
Samhliða þessu verkefni munu
Tónleikar Margrétar
og Tríó Reykjavíkur
TRÍÓ Reykjavíkur og Margrét Bóasdóttir sópransöngkona halda
tvenna tónleika um helgina. Fyrri tónleikarnir verða á Húsavík
á morgun, laugardaginn 8. febrúar kl. 16 og hinir síðari í Safnað-
arheimili Akureyrarkirkju á sunnudag kl. 17.
Tríó Reykjavíkur var stofnað
árið 1988, en það skipa þau
Guðný Guðmundsdóttir, fiðlu-
leikari, Gunnar Kvaran, sellóleik-
ari, og Halldór Haraldsson, pían-
óleikari. Tríóið hefur haldið fjölda
tónleika og á síðastliðnu vori var
Margrét Bóasdóttir gestur þess
á tónleikum í Hafnarborg I Hafn-
arfirði, þar sem fluttar voru 7
rómönsur eftir rússneska tón-
skáldið Dimitri Sjostakovitsj, sem
var frumflutningur verksins á
íslandi.
Þetta verk er einnig á efnis-
skrá nú, ásamt tríói eftir Þorkel
Sigurbjörnsson, sem ber heitið
„þtjú andlit í látbragðsleik“, og
tríói eftir Franz Schubert.
Fréttatilkynning)
starfmenn Hafrannsóknarstofnun-
ar stunda rannsóknir á klaki og
hrygningu þorsks í fiskeldistöð
stofnunarinnar í Grindavík og þá
hefst væntanlega síðar í þessum
mánuði rannsóknarverkefni á vist-
fræði Eyjaljarðar, en slík rannsókn
hefur ekki áður verið gerð. Að
þeirri rannsókn standa Hafrann-
sóknarstofnun, Rannsóknarstofn-
un fískiðnaðarins og Háskólinn á
Akureyri.
Verði niðurstaða undirbúnings
vegna þessa verkefnis. jákvæð,
sagði Steingrímur að vænta mætti
þess að sjálft eldið gæti hafíst
vorið 1993.
-------» ♦ 4-------
Íshokkí:
SA og Björn-
inn leika
SKAUTAFÉLAG Akureyrar Ieik-
ur við Björninn á morgun, laugar-
daginn 8. febrúar kl. 14.
Þetta er leikur. í 3. umferð íslands-
mótsins. Staðan er þannig að Skaut-
afélag Akureyrar og Skautafélag
Reykavíkur ein efst og jöfn með 6
stig hvort lið, en Björninn hefur enn
ekki fengið stig í mótinu.
K1 10.30 á laugardags- og sunnu-
dagsmorgun reyna yngri íshokkí-
menn með sér, en þeir Bjarnarmenn
taka með sér lið leikmanna 10 til
13 ára.