Morgunblaðið - 28.02.1992, Qupperneq 10
í r
10
mi 5TAÚÍIHTJ 8R HUOAaUTPíft'3 0?<5A.WWIOKONÍ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1992
Fundnar myndir
Myndlist
Eiríkur Þoriáksson
Það er sterkur þáttur í mann-
legu eðli að staldra við og líta um
öxl til þess sem þegar hefur verið
gert, og reyna þannig að meta
hvort menn hafa staðið í stað, eða
borið nokkuð af leið. Slíkt endur-
mat er fáum jafn mikilvægt og
myndlistarmönnum, sem sífellt
eru að glíma við vanda forms og
framsetningar.
Það er ekki oft sem listamenn
fá betri tækifæri á þessu sviði en
blasti við Braga Ásgeirssyni list-
málara nýlega, en þá fundust
ýmsar teikningar og verk frá
námsárum hans, sem hann hafði
ekki séð áratugum saman. Þarna
er um að ræða módelteikningar
frá námsárum hans, einkum frá
tímanum í Osló og í Róm á árun-
um 1952-54, en einnig eldri verk
frá árunum í Handíðaskólanum,
og loks yngri myndir, gerðar í
Miinchen.
Þessi verk eru uppistaðan í sýn-
ingu listamannsins, sem nú stend-
ur yfir í FÍM-salnum við Garða-
stræti, og hann hefur gefíð nafnið
„Fundnar myndir“.
Nú er það svo, að skólaverk
eiga í fæstum tilvikum mikið er-
indi á listsýningar, nema í þeim
megi sjá ákveðið samhengi, annað
hvort við þróun viðkomandi lista-
manns eða stöðu myndlistar á
þeim tíma sem verkin eru sýnd.
Undir þeim formerkjum er áhuga-
vert að líta nánar á myndirnar í
FÍM-salnum.
Hér er í flestum tilvikum um
að ræða hefðbundnar, akademísk-
ar teikningar af fyrirsætum í vel
þekktum stellingum: Standandi,
sitjandi, séðar að framan eða aft-
an frá. Áhorfandinn tekur strax
eftir hinum sterku formum, þétt-
leika teikningarinnar, og á hvern
hátt Ijós og skuggar skapa jarð-
neska ímynd raunverulegrar
manneskju fremur en klassískan
léttleika goðs eða gyðju. Teikn-
ingarnar sýna þannig strax aðals-
merki listar Braga, og einnig á
hvem hátt myndsýn hans hefur
þróast; má þar einkum benda á
hlutverk litarins og aukið frelsi i
handbragðinu. Málverkin hafa
yfir sér sama svip, þar sem ann-
ars vegar er þétt og jarðbundin
málun í olíulitum til þess er léttir
og leikandi vatnslitir taka við. Það
er auðvelt að setja þessi verki í
samhengi við síðari þróun í mynd-
list Braga, sem þarna sýnir að
sterkur grunnur í akademískri
teikningu er mikils virði.
Samtímis má segja að þessi
sýning, á þessum tíma, falli nokk-
uð vel inn í þær vangaveltur sem
hafa verið áberandi hluti margra
listsýninga á þessum vetri, en það
er umfjöllunin um sjálft myndmál-
ið. Ýmsar sýningar ungra lista-
manna hafa fengist við að bijóta
myndmálið til mergjar, til að sjá
á hverju það byggist, hvernig það
breytist, o.s.frv.; hér bendir Bragi
til þess grunns sem akademísk,
markviss og jafnframt tímafrek
teikning er, og hefur alltaf verið,
fyrir myndlistina.
Ýmsir listamenn hafa í gegnum
tíðina legið undir grun um að ráða
ekki við teikninguna, og hafa
reynt að fela þessa vöntun með
flúri, grófleika eða vélrænum
lausnum; slíkt kemur þó oftar en
ekki aftan að mönnum, þegar list-
unnendur finna ákveðið tómahljóð
í verkum þeirra.
Á sýningunni að þessu sinni
voru það einkum myndir nr. 6,
17, og 24 sem drógu að sér athyg-
lina. í öllum tilvikum er um að
ræða sterka, vandaða teikningu,
sem hvaða listamaður sem er
væri full sæmdur af.
Sýning Braga Ásgeirssonar í
FÍM-salnum við Garðastræti
stendur til mánudagsins 2. mars.
Bragi Ásgeirsson listmálari við uppsetningu sýningarinnar.
■ KENNARAR við Grandaskóla
í Reykjavík mótmæla ásökunum
sem fram hafa komið að undan-
fömu um vinnusvik og að hafa
notað kennslustundir til að kasta
rýrð á stjórnvöld og menntamála-
ráðherra. Einnig er í fréttatilkynn-
ingu, sem blaðinu hefir borist,
harmað að óspektir örfárra ein-
staklinga og ummæli menntamála-
ráðherra í garð kennara hafi yfir-
skyggt umfjöllun fjölmiðla um mót-
mæliunglinga.
■ EFNT er til hjólreiðamara-
þons dagana 28. til 29. febrúar í
tilefni útskriftarferðar Mennta-
skólans í Reykjavík. Hjólað verður
í kringum Tjörnina í Reykjavík á
ÁRNAÐ HEILLA
/?/\ára afmæli. Á morg-
OU un, laugardag, er
sextugur Stefán Stefánsson
bæjarverkfræðingur á Ak-
ureyri, Barðstúni 1. Kona
hans er Jóhanna Stefánsdótt-
ir. Þau taka á móti gestum á
heimili sínu á afmælisdaginn
kl. 16-19.
FRETTIR_______________
EKKI var á Veðurstofunni
að heyra í gærmorgun að
á næstu grösum væri breyt-
ing á veðurfarinu: áfram
umhleypingar. Það var
kaldast á landinu í fyrri-
nótt, mínus 8 stig, uppi á
hálendinu og norður á
Tannstaðabakka. í Reykja-
vík var frostið þrjú stig,
úrkoman 2 mm. Hún varð
mest um nóttina austur á
Fargurhólsmýri, 11 mm. í
höfuðstaðnum var sól í
fyrradag í nær hálfa aðra
klst.
ÞENNAN dag árið 1881
fæddist Sveinn Björnsson for-
seti íslands. Árið 1915 var
stofnað þennan dag Fél. ís-
lenskra símamanna. Þennan
dag árið 1928 fórst togarinn
Jón forseti. Aðalfrétt Morg-
unblaðsins þennan dag er-
lendis frá var sjóorrusta milli
bandarískra og japanskra
herskipa á Java-hafí. Aðal
innlenda fréttin var að Bjarni
Benediktsson borgarstjóri
sagði frá því að göturnar í
bænum fái gagngera endur-
bót á árinu, 500 þús. kr. færu
til viðhalds gatna og aðrar
500 þús. til nýrra gatna í
bænum.
VESTURGATA 7, þjón-
ustu/félagsmiðstöð aldraðra.
Áhugafólk um skák og frí-
merki hittast kl. 13.30 í dag.
Á sama tíma er stund við
píanóið. Dansað verður í
kaffitímanum.
FÉL. eldri borgara. Göngu-
Hrólfar fara úr Risinu kl. 10
laugardag.
HIÐ ísl. náttúrufræðifélag
heldur aðalfund sinn á morg-
un, Iaugardag, kl. 14 í stofu
101 í Odda, hugvísindahúsi
Háskólans.
BREIÐFIRÐINGAFÉL.efn-
ir til góugleði í Breiðfirðinga-
búð á morgun laugardag kl.
22.
__________________t______
KÓPAVOGUR. Eldri borg-
arar ætla að spila og dansa
í Auðbrekku 25 í kvöld kl.
20.30.__________________
KVENFÉL. Seljasóknar
heldur aðalfund 3. mars nk.
í kirkumiðstöðinni kl. 20.30.
Gestur verður Rósa Ingólfs-
dóttir sem ætlar að tala um
lífið og tilveruna.
HÚNVETNINGAFÉL. Spii-
uð verður félagsvist kl. 14 í
Húnabúð í Skeifunni.
Egilsstaðir:
Nýr Fokker „Sigdís“
kemur á hlaupársdag
þremur hjólum í einu, í 24 klukku-
stundur. í frétt frá MR segir að
áheitasöfnun hafi gengið vonum
framar en einstaklingum sé bent á
að hægt er að leggja áheitin inn á
reikning 851132 í Islandsbanka.
■ FIL tekur undir ályktun stjórn-
ar Læknafélags Reykjavíkur og
varar alvarlega og eindregið við
þeirri ákvörðun að loka lýtalækn-
ingadeild Landspítalans frá 1. apríl
nk. og út árið eða samfellt í átta
mánuði. Lokun deildarinnar myndi
þýða að sá samhæfði hópur fag-
fólks sem þar starfar við meðferð
brunasjúklinga og að fjöldi annarra
sérhæfðra verkefna myndi tvístrast.
Engin trygging er fyrir því að þetta
fólk fáist aftur til starfa við deildina
eftir að hafa horfið að öðru í þetta
langan tíma. Gæti þetta því haft
lamandi áhrif á deildina í mun lengri
tíma en umrædda átta mánuði. FIL
varpar allir ábyrgð af þessari
ákvörðun yfir á þá, sem hana hafa
tekið. (Fréttatilkynning)
^ Egilsstaðir.
ÖNNUR Fokker 50 vélin af fjór-
um, sem Flugleiðir hafa keypt
til að þjóna á innanlandsleiðum
félagsins kemur til Egilsstaða
frá Hollandi á hlaupársdag, 29.
febrúar. Áformað er að vélin
lendi klukkan 13,35 og verður
tekið á móti henni með viðhöfn.
Ákveðið hefur vrið að vélin
hljóti nafnið Sigdís og mun Sigr-
ún Yija frá Fáskrúðsfirði gefa
vélinni nafn, en Sigrún var valin
Austfirðingur ársins.
í tilefni komu Sigdísar til Egils-
staða, bjóða Flugleiðir öllum Aust-
firðingum til flughátíðar á Egils-
staðaflugvelli, þar sem veitingar
og ýmsar uppákomur verða í boði.
Sigurður Helgason forstjóri Flug-
leiða afhendir verðlaun í verðlaun-
asamkeppni Flugleiða, sem efnt
var til í öllum skólum á Austurl-
andi. Eins og áður sagði verður
það Sigrún Yija„ ung stúlka frá
Fáskrúðsfirði, sem gefa mun vél-
inni nafn. Sigrún Yrja var kjörinn
Austfírðingur ársins af hlustend-
um svæðisútvarps Austurlands
fyrir frækna frammistöðu við
björgun systkina sinna, er þau
lentu í bílslysi með móður sinni í
haust.
Björn.
Bók um íslenskt málfar
KOMIN er út hjá Almenna bóka-
félaginu bókin íslenskt málfar
eftir Árna Böðvarsson málfars-
ráðunaut Ríkisútvarpsins. Bók-
in er í ritröðinni Islensk þjóð-
fræði.
Bókin íslenskt málfar er m.a.
kynnt þannig á kápu: „Efni bókar-
innar Islenskt málfar er engum
íslendingi óviðkomandi. Móður-
málið er svo náið hverjum manni
að verður nánast hluti af persónu
hans, meðferð þess, séu taifæri
heilbrigð, spegilmynd af hans innri
manni. Góð meðferð móðurmálsins
laðar að, vitnar um skýrleik, alúð
og menningu, en klaufaleg og
hirðulaus meðferð er vitni hins
gagnstæða.
íslenskt málfar er umfram allt
Ieiðbeiningabók, kennsla um eðli
málsins og einkenni, leiðsögn um
meðferð þess, orðanotkun, blæ-
brigði orða, orðasambönd, beyg-
ingar, hljómfall og hrynjandi,
framburð o.s.frv. Efnið er þannig
fram sett að bókin ætti að geta
komið að fullu gagni hveijum þeim
sem læs er og hefur íslensku að
móðurmáli, það er hverjum einasta
Islendingi.“
Bókin er 415 bls. í sama broti
og eins útliti og önnur rit íslenskr-
ar þjóðfræði. Umbrot hefur annast
Útgáfuþjónustan Rita og Prent-
stofa G.Ben.
Árni Böðvarsson
Verslunarráð íslands:
Oeðlileg álagning á eyðublöð
VERSLUNARRÁÐ íslands lýsir undrun sinni á mikilli gjaldtöku
fyrir eyðublöð vegna tollafgreiðslu. Greiddar eru 50 kr. vegna
eyðublaðs í tvíriti og 70 kr. fyrir eyðublað í fjórriti. Kostnaðar-
verð þessara eyðublaða er innan við 5 kr. fyrir tvíritið og innan
við 8 kr. fyrir fjórritið, segir í frétt frá Verslunarráðinu.
Þar segir ennfremur að þau rök
hafi verið færð fyrir gjaldtökunni
að viðskiptavinir tollsins taki mun
fleiri eyðublöð en þeir þurfi. „Slíkt
réttlætir þó hvergi þessa miklu
álagningu. Þegar eyðublöðin eru
seld svona hátt yfir kostnaðarverði
er þetta ekkert annað en ný gjald-
taka. Eðlilegast er að vipskiptavin-
ir tollsins bregðist við gjaldtökunni
með þeim hætti að láta prenta sín
eigin eyðublöð og losa stofnunina
við þennan kostnaðarlið eftir því
sem kostur er. Ennfremur er ekki
óeðlilegt að þessi eyðublöð séu
seld í verslunum á eðlilegu verði.
Því verður tæpast trúað að tollyfir-
völd hafi nokkuð við slík viðbrögð
að athuga enda er það hlutverk
tollsins að innheimta aðflutnings-
gjöld en ékki að hagnast á sölu
eyðublaða," segir í frétt Verslun-
arráðs.
(Fréttatilkynnmg)