Morgunblaðið - 28.02.1992, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1992
19
Andófs-
menn dæmd-
ir í Kína
Dómstóll í Peking úrskurðaði í
gær í máli ellefu kínverskra
andófsmanna, sem voru hand-
teknir eftir að herinn kvað nið-
ur mótmæli lýðræðissinna á
Torgi hins himneska friðar í
júní 1989. Nokkrir voru sýkn-
aðir, þar á meðal andófsmaður-
inn Bai Chunxiang, en Wang
Lidong og námsmannaleiðtog-
arnir Peng Rong og Li Mingqi
voru dæmdir í tveggja ára
fangelsi. Þeir verða þó allir
látnir lausir síðar á árinu þar
sem tekið verður tillit til þess
tíma sem þeir hafa þegar af-
plánað. Dómstóllinn hafði áður
dæmt sjö andófsmenn, þar á
meðal fyrrverandi ritstjóra
Dagblaðs alþýðunnar, mál-
gagns kommúnistaflokksins, í
þriggja til fimm ára fangelsis-
vist.
Lýst eftir fé-
lögum Nidals
Franskur dómari hefur gefið
út alþjóðlega handtökuskipun á
hendur fjórum liðsmönnum pal-
estínskra hermdarverkasam-
taka undir stjórn Abus Nidals
vegna árásar á feiju á Eyja-
hafi 11. júlí árið 1988. Níu ferð-
amenn biðu bana í árásinni, þar
á meðal nokkrir Frakkar. Arás-
armennirnir köstuðu hand-
sprengjum og beittu vélbyssum
í árásinni, sem varð til þess að
eldur kom upp í feijunni.
Viðræðum
BA og KLM
slitið
Hollenska flugfélagið KLM og
breska flugfélagið British Air-
ways skýrðu frá því í gær að
þau hefðu slitið viðræðum sín-
um um sameiningu, sem hefðu
getað endað með stofnun fjórða
stærsta flugfélags heims. Við-
ræðurnar tóku hálft ár og flug-
félögunum tókst ekki að jafna
ágreining sinn um hversu mik-
ils virði þau væru.
Fangabúðir
til sölu
Embættismenn í' austurhluta
Þýskalands hafa sett Colditz-
kastalann fræga á söluskrá.
Kastalinn var reistur á miðöld-
um og er á klettavegg fyrir
ofan smábæ í grennd við Leipz-
ig. Þjóðveijar notuðu hann sem
fangabúðir í seinni heimsstyij-
öldinni fyrir breska, franska,
hollenska og pólska stríðs-
fanga, sem höfðu margir hveij-
ir flúið úr öðrum fangabúðum.
Kastalinn er nú notaður sem
geðsjúkrahús en yfirvöld von-
ast til að einhver vilji breyta
honum í hótel, en talið er að
það tæki að minnsta kosti tvö
ár.
írar og Bret-
ar heita
samvinnu
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, og Albert Reynolds,
forsætisráðherra írlands, sam-
þykktu á fundi sínum í Lundún-
um í gær að beita sér í samein-
ingu fyrir friði á Norður-írlandi
og sóru að gera allt sem þeir
gætu til að binda enda á blóðs-
úthellingarnar þar.
pTrm
^CbKOrO K03AUJ5J
x vKpaíHuiB y Kanajai J
Úkraínsk frímerki
Reuter
Fyrstu úkraínsku frímerkin verða gefin á sunnudag, 1. mars. Er
annað þeirra, til vinstri á myndinni, til minningar um 500 ára sögu
úkraínskra kósakka en með hinu er þess minnst, að 100 ár eru liðin
síðan fyrstu úkraínsku landnemarnir settust að í Kanada.
Rússland:
15 kjarnakljúf-
um sökkt í sjóinn
Einnig geislavirkum úrgangi í gámum
N áttúru verndarsamtökin
Grænfriðungar skýrðu frá því
í gær að tólf kjarnakljúfum úr
kafbátum og þremur úr ísbijót-
um hefði verið sökkt í sjóinn
við strönd eyjanna Novaja
Zemlja í Rússlandi.
Grænfriðungar segja að heilum
kafbáti, K-27, hefði verið sökkt í
Stepovov-flóa í suðurhluta Novaja
Bretar hneykslast á
ummælum Keatings
Ástralíuheimsókn Englandsdrottningar dregur dilk á eftir sér
Zemlja eftir slys í maí 1968.
Tveimur kjarnakljúfum bátsins
var sökkt á sama stað árið 1982.
Átta kjarnakljúfum til viðbótar
var sökkt sunnan við kafbátinn
og þar af voru þrír enn með kjarn-
orkueldsneyti. Hlutum úr fjórum
kafbátum, sem höfðu orðið fyrir
skemmdum, var einnig sökkt á
sama stað.
Fimm kjarnakljúfar til viðbótar
liggja á sjávarbotninum, þar af
þrír skemmdir kljúfar úr ísbijótn-
um „Lenín“. Ennfremur var
17.000 gámum með geislavirkum
úrgangi sökkt við eyjarnar.
Grænfriðungar fengu þessar
upplýsingar frá heimildarmönnum
í Rússlandi og rannsóknina önnuð-
ust Alexander Jemelanenkov, for-
maður rússneskra samtaka sem
beijast gegn kjarnorkutilraunum
á Novaja Zemlja, og rússneski
kjarnorkufræðingurinn Andrej
London. Reuter.
NOKKRIR þingmenn breska
íhaldsflokksins hafa krafist þess,
að Paul Keating, forsætisráð-
herra Ástralíu, biðji Breta afsök-
unar á þeim ummælum sínum,
að Bretar hafi brugðist Áströlum
í síðari heimsstyrjöld og skilið
þá eftir eina og ofurselda hugs-
anlegri árás Japana. Kemur
þetta mál upp í kjölfar hneyksl-
unar breskra konungssinna á
ræðu, sem Keating flutti á dög-
unum þegar Elísabet Englands-
drottning var í opinberri heim-
að áströlsku hersveitimar væru í
Ástralíu til varnar landi og þjóð.
Kemur þessi yfírlýsing ofan í uppá-
komuna í heimsókn drottningar en
í ræðu, sem Keating flutti þá, lagði
hann megináhersluna á sjálfstæði
Ástrala. Hann þverbraut síðan allar
siðareglur með því að leggja arminn
um mitti drottningar og kona hans
kórónaði „skömmina“ með því að
neita að hneigja sig fyrir henni.
John Stokes, einn þingmanna
breska íhaldsflokksins, sagði í gær,
að hann væri „furðulostinn og
hneykslaður" á ummælum Keat-
ings, sem ætti að biðja Breta og
drottninguna afsökunar. Sagði
hann það ósatt, að Bretar hefðu
brugðist Áströlum í stríðinu. Þeir
hefðu barist í Malaja og í Singap-
ore og Japanir hefðu ekki ráðist á
Ástralíu. Kom það fram hjá öðmm,
að Keating hefði verið að nota sér
heimsókn drottningar í pólitísku
skyni, hann hefði sagt það, sem
margir Ástralir teldu vera satt og
rétt hvað sem staðreyndunum liði.
Zolotkov.
„Urgangsefnin frá kjamorkuís-
bijótunum em smámunir miðað
við alla úrgangshaugana frá rúss-
neska kjarnorkuflotanum," sagði
John Sprange, sem stjórnar bar-
áttu Grænfriðunga fyrir afvopnun.
Grænfriðungar hafa beitt sér
fyrir banni við kjarnorkuknúnum
skipum og bátum og kjarnorku-
vopnum í höfunum. Flaggskip
Grænfriðunga sigldi til Novaja
Zemlja í október 1990 til að mót-
mæla kjarnorkutilraunum á eyjun-
um.
sókn í Astralíu.
Keating lét ummælin falla þegar
hann var að svara gagnrýni þing-
manna á framkomu hans við drottn-
ingu og sagði þá, að hann hefði
dmkkið það í sig með móðurmjólk-
inni að sýna fóstuijörðinni, Ástral-
íu, virðingu en ekki að skríða fyrir
ríki, sem hefði ákveðið að veija
ekki Malakkaskaga, láta Singapore
lönd og leið og komið í veg fyrir,
Eistland:
Gagnrýni
Tsjúrkíns
byggð á mis-
skilningi
URMAS Reitelman, talsmaður
eistneska utanríkisráðuneytisins,
sagði í samtali við Morgunblaðið
í gær að mótmæli Vítalíjs Tsjúrk-
íns, talsmanns rússneska utan-
ríkisráðuneytisins, við því að
Eistlendingar hefðu gefið sam-
verkamönnum nasista upp sakir
væru á misskilningi byggð. Sagði
Reitelman að fyrir nokkrum
mánuðum hefði eistneska þingið
veitt Eistlendingum sem þjónuðu
í þýska hernum uppreisn æru.
Reitelman sagði að Eistlendingar
sem þjónuðu í þýska hernum á
stríðsárunum þegar landið var her-
numið af Þjóðveijum hefðu ekki
notið sömu réttinda og þeir sem
voru í Rauða hernum. Eistneska
þingið hefði ákveðið að bæta úr
þessu.
í yfírlýsingu frá eistneska þing-
inu sem Reuíers-fréttastofan sagði
frá í gær kemur fram að samverka-
mönnum nasista hafí þar með ekki
verið gefnar upp sakir eins og
Tsjúrkín hélt fram fyrr í vikunni.
„Eistlendingar ætla sér ekki undir
neinum kringumstæðum að veita
þeim uppreisn æru sem gerðust
sekir um þjóðarmorð eða aðra glæpi
gegn þjóðinni," segir í yfirlýsing-
unni.
BSRB
fimmtíu ára
Um þessar mundir eru liöin 50 ár
frá stofnun BSRB.
í tilefni afmœlisins verður samkoma
í Borgarleikhúsinu á morgun,
laugardaginn 29. febrúar.
Samkoman hefst með dagskrá
kl. 15.00 stundvíslega,
og að henni lokinni er móttaka
í anddyri leikhússins til kl. 17.30.
Félagsmenn og aðrir velunnarar velkomnir.