Morgunblaðið - 28.02.1992, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1992
25
Úr sýningu Leikfélags Dalvíkur, Rjúkandi ráð.
Mynd/Golli
Leikfélag Dalvíkur:
Rjúkandi ráð sýnt í Ungó
LEIKFÉLAG Dalvíkur frumsýnir söng- og gamanleikinn Rjúk-
andi ráð, eftir þá Jónas og Jón Múla Árnasyni og Stefán Jónsson,
í kvöld, föstudagskvöld, kl. 20.30. Tónlistin er eftir Jón Múla og
er fjöldi þekktra laga I verkinu, m.a. lagið Fröken Reykjavík.
Þessi sýning Leikfélags Dalvík- og þrír aukasöngvarar, þannig að
ur er viðamikil og hafa fjölmargir
tekið þátt í uppsetningu hennar.
í verkinu eru 14 leikarar, þriggja
manna hljómsveit, fjórir dansarar
um 25 manns eru á fullu á sviðinu
í þessari fjörugu sýningu.
Leikstjóri er Sigurgeir Schev-
ing og er þetta í þriðja sinn sem
hann setur þetta verk upp, en
hann hefur farið víða um land á
undanförnum árum og leikstýrt
áhugaleikfélögum.
Rjúkandi ráð er sýnt í Ungó
og er uppselt á frumsýningu, en
næstu sýningar á leikritinu verða
á sunnudag kl. 15 og á þriðjudag
kl. 20.30.
Ólafsfjörður:
Eðlilegt að umdæmi
bæjarfógeta stækki
- segir Bjarni Kr. Grímsson bæjarstjóri
„VIÐ ERUM enn við sama hey-
garðshornið og teljum eðlilegt
að umdæmi bæjarfógetans í
Ólafsfirði stækki,“ sagði Bjarni
Kr. Grímsson bæjarstjóri í Ól-
afsfirði, en ítrekuð hefur verið
sú ósk heimamanna að undir
umdæmi fógeta þar falli einnig
Svarfaðardalur, Hrísey og Ar-
skógshreppur, en þessi sveitar-
félög tilheyra nú embætti bæj-
arfógeta á Akureyri.
Bjarni sagði niðurstöðuna fara
mikið eftir viðbrögðum þeirra
sveitarfélaga sem hugsanlega
myndu flytja frá einum fógeta til
annars, þau yrðu ekki flutt nauðug
á milli. Dalvíkingar og Svarfdæl-
ingar hafa verið jákvæðir fyrir því
að flytja úr núverandi umdæmi
bæjarfógeta á Akureyri og yfir til
Ólafsijarðar, en að sögn bæjar-
stjóra hafa Hríseyingar og Ár-
skógsstrendingar lýst því yfir að
þeir vilji áfram tilheyra embættinu
á Akureyri.
„Þetta hefur eflaust orðið til
þess að dómsmálaráðuneytið hefur
ekki talið nægilega samstöðu
heima í héraði fyrir þessum breyt-
ingum. Þá fylgir þessu auðvitað
líka einhver kostnaður fyrir ríkið,“
sagði Bjarni. „Stærra embætti
væri auðvitað betra og menn
myndu sækja meira í það, þannig
að ég sé ekki annað en það væri
akkur fyrir Ólafsfjörð og þessar
byggðir við utanverðan Eyjafjörð
að efla þetta embætti.“
Góður hagnaður hjá Sæplasti:
Hluthöfum greiddur 15% arður
og jöfnunarhlutabréf gefin út
HAGNAÐUR af rekstri Sæ-
plasts hf. á Dalvík var um 34
milljónir króna eftir skatta á
síðasta ári, þrátt fyrir að um
19% samdráttur hefði orðið í
söiu á fiskikerum frá árinu á
undan. Ileildartekjur félagsins
voru um 302 milljónir króna.
Eiginfjárstaða fyrirtækisins
Heljudáð
Daníels
endursýnd
VEGNA fjölda áskorana ætlar
Kvikmyndaklúbbur Akureyrar
að endursýna bresku fjölskyldu-
myndina Hetjudáð Daníels á
sunnudag, 1. mars, kl. 17, en
myndin verður sýnd í Borgarbíói.
Aðalhlutverkið er í höndum eins
fremsta kvikmyndaleikara Bretá,
Jeremy Irons, og sonar hans, Samu-
els Irons. í myndinni segir frá feðg-
um sem vinna myrkranna á milli,
stóreignamaður ágirnist landareign
þeirra vegna fjölskrúðugs fuglalífs
og er sá tilbúinn að beita öllum
ráðum til að komast yfir landið.
Feðgarnir veija heimahagana. og í
þeirri vörn gegnir Daníel iykilhlut-
verki.
Myndin var sýnd á kvikmynda-
hátíð Listahátíðar í október sl.
(Úr frcttatilkynningu.)
hefur enn batnað og er nú 59%.
Eignir félagsins um áramót
voru 389 miiyónir króna og
skuldir rúmar 160 milljónir
þannig að eigið fé fyrirtækisins
er tæpar 229 milljónir. Þetta
kom fram á aðalfundi Sæplasts
sem haldinn var á miðvikudag.
Á fundinum var samþykkt að
greiða 15% arð af hlutafé félagsins
og þá var einnig samþykkt að full-
nýta heimild til útgáfu jöfnunar-
hlutabréfa 99% af útgefnu hlutafé
um síðustu áramót, en hlutafé fé-
lagsins verður þá um 83,3 milljón-
ir króna.
Hagnaður af reglulegum rekstri
fyrir afskriftir og íjármagnsliði
var á síðasta ári 66 milljónir króna,
afskriftir námu 31 milljón, þannig
að hagnaður varð tæpar 34 millj-
ónir króna, eða rúmlega 11% af
veltu.
í byijun síðasta árs var Pla-
steinangrun sameinuð Sæplasti og
kom fram í máli Matthíasar Jak-
obssonar stjórnarformanns á aðal-
fundinum að þær væntingar sem
gerðar voru við kaupin á því fyrir-
tæki hafi ræst að mestum hluta.
Trollkúluframleiðsla hefur gengið
mjög vel og sú hagkvæmni sem
felst í því að reka þá framleiðslu
samhliða trollkúluframleiðslunni
hefur skilað sér mjög vel. Hagnað-
ur af trollkúluframleiðslunni var á
síðasta ári um 15 milljónir króna
fyrir afskriftir og fjármagnskostn-
að, en velta af þessari framleiðslu
var um 22% af heildarveltu félags-
ins.
Á síðasta ári var settur upp
búnaður til að auka afköst og
hagræðingu í verksmiðju félagsins
og hefur hann nú skilað um 15%
framleiðsluaukningu á kerum.
Fram kom á aðalfundinum
bjartsýni á rekstur félagsins á
þessu ári, þrátt fyrir tvísýnar horf-
ur í sjávarútvegi hér á landi. Nýir
markaðir hafa opnast víða erlend-
is, s.s. í Frakklandi og Suðaustur-
Asíu.
Háskólinn
heldur nám-
skeið um
slysahjálp
FYRSTA slysahjálparkennara-
námskeiðið var haldið í heil-
brigðisdeild Háskólans á Akur-
eyri fyrir skömmu.
I vetur hefur verið þróað nýtt
námskeið á 4. ári í hjúkrunarfræði,
en það er námskeið í bráðahjúkrun.
Sérstök áhersla er lögð á viðbrögð
við meiðslum og slysum og hjúkrun
bráðveikra sjúklinga. Námið erbók-
legt nám í skóla og verkleg kynning
á slysadeild FSA.
Þetta slysahjálparkennaranám-
skeið var haldið í fyrsta sinn í jan-
úar og voru leiðbeinendur Margrét
Gunnarsdóttir og Elín Birna Hjör-
leifsdóttir, hjúkrunarfræðingar.
Auk hjúkrunarfræðinema sóttu
námskeiðið ijórir hjúkrunarfræð-
ingar frá Heilsugæslustöðinni á
Akureyri, Auður Sigurðardóttir,
skólahjúkrunarfræðingur í Glerár-
skóla, Margrét Bjamadóttir, Greni-
vík, Guðný Bergvinsdóttir, skóla-
hjúkrunarfræðingur í Oddeyr-
arskóla og Katrín Friðriksdóttir,
skólahjúkrunarfræðingur í Gagn-
fræðaskóla Akureyrar. Jafnframt
sótti námskeiðið Elsa B. Friðfinns-
dóttir, lektor í HA og verkefna-
stjóri í sjúkrahjúkrun.
Hjúkrunarfræðinemamir sem út-
skrifast í vor eru Hildigunnur
Svavarsdóttir, Hugrún Hjörleifs-
dóttir, Arnbjörn Jóhannsdóttir,
Kerstin H. Roloff, Pia Maud Peters-
en, Hulda Ringsted, Steinborg H.
Gísladóttir, Inga M. Skúladóttir og
Lilja Guðnadóttir.
Eftir að þessi hópur er útskrifað-
ur mun skyndihjálparkennurum á
Akureyri fjölga um 100%.
Tónlistarskóli Eyjafjarðar:
Tónleikar á Grenivík
Tónlistarskóli Eyjafjarðar
efnir til tónleika í Gamla skóla-
húsinu á Grenivík, sunnudaginn
1. mars næstkomandi kl. 17.
Á dagskrá tónleikanna verða
verk frá ýmsum tímum, m.a. fyrir
söngrödd, gítar, blokkflautu,
Hraðfrystihús Ólafsfjarðar:
túbudúett auk marg annars.
Flytjendur úr hópi kennara skól-
ans verða Þuríður Baldursdóttir,
Gunnar H. Jónsson, Ingvi Vaclav
Alfreðsson, Guðjón Pálsson,
Michael Jacques auk Atla Guð-
laugssonar skólastjóra.
Fólk er hvatt til að fjölmenna,
sérstaklega nemendur skólans og
þeirra aðstandendur.
(Fréttatilkynning:)
..♦
Vonast til að fá 3.0001 af loðnu Tónleik-
LOÐNUSKIPIÐ Guðmundur Ólafur ÓF kom með fullfermi til Ólafs-
fjarðar í gærmorgun, eða um 600 tonn. Um tvær vikur eru síðan
fyrsti loðnufarmurinn kom til vinnslu í verksmiðju Hraðfrystihúss
Ólafsfjarðar.
Jóhann Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihúss
Ólafsfjarðar sagði að tekið hefði
verið á móti rúmum 1.800 tonnum
af loðnu, en einungis væri liðinn
hálfur mánuður frá því að byijað
var að bræða í verksmiðjunni. Ekk-
ert var brætt í versmiðjunni á síð-
ustu vertíð og var síðast unnið þar
á vertíðinni 1989-1990, en þá voru
um 6.000 tonn unnin í verksmiðj-
unni. Vonast er til að um 3.000
tonn berist að landi til verksmiðj-
unnar á þessari vertið.
„Það dugar ekki annað en vera
með, við hefðum gjarnan viljað fá
meira hráefni, en fórum seint af
stað, bæði vegna fjarlægðar frá
miðunum og eins var verðið nokkuð
hátt,“ sagði Jóhann.
um frestað
Fresta verður áður auglýstum tón-
leikum píanótríós, sem halda átti á
morgun, laugardag, í safnaðarheim-
ili Akureyrarkirkju vegna meiðsla er
sellóleikarinn Richard Talkowsky
hlaut á hendi. Tónleikarnir verða að
líkindum haldnir 12. mars næstkom-
andi.