Morgunblaðið - 01.03.1992, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.03.1992, Blaðsíða 14
ar i 14 c SGér SXAW. A fFJMOlWWJ? Gf&A ISWJPFOW MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. MARZ 1992 eftir Önnu G. Ólafsdóttur ENDURBYGGING þriggja húsa frá landnámsöld í Suðurgötu og Aðalstræti, tveggja húsa frá tím- um Innréttinganna á 18. öld I Aðalstræti og lagfæring fleiri húsa við sömu götu eru meðal tillagna Árbæjarsafns og Borg- arskipulags að fyrirhuguðum framkvæmdum í Aðalstræti. Til- lögurnar eru unnar að frum- kvæði Markúsar A. Antonssonar borgarstjóra í Reykjavík. Sam- kvæmt þeim myndar yfirlitssýn- ing um sögu Reykjavíkur í Geys- ishúsi ramma um sýningar í end- urgerðu húsunum. Borgarstjóri kynnti tillögurnar við opnun Reykjavíkursýningar undir yfir- skriftinni „Aðalstræti, saga byggðar" í Gallerí Borg og á útifundi í gær. Þann dag fögnuðu borgarbúar því að þeir eru nú 100.000. Aðalstræti er elsta gata Reykjavíkur. Endurbyggingar Lögð verður áhersla á að reisa húsin á sínunn fyrri lóðum og byggja á niðurstöðum fomleifarannsókna. Langhús og smiðja verði byggð upp á lóð Suðurgötu 3 og langhús í Aðal- stræti 18. Langhúsið og smiðjan á Suðurgötu 3 yrðu því í sjónlínu frá uppgrefti á samliggjandi lóð Tjam- argötu 8 þar sem ókannaðar eru rústir í framhaldi af könnuðum rústum í Suðurgötu 3-5. Gefst þá tækifæri til að fylgjast með fom- leifauppgrefti um leið og virtar em fyrir sér eftirlíkingar landnámshús- anna. Gert er ráð fyrir að spunastofa frá 1764 verði endurbyggð á lóðinni Aðalstræti 14. Varðveist hafa ítar- legar lýsingar á húsinu í samtíma- skjölum og útttektum en uppgröftur hefur leitt í ljós hvar húsið stóð og hvemig hleðslur vom utanhúss. Ýmsir forngripir úr rústunum em geymdir á Árbæjarsafni. í húsinu verður öðmm þáttum Innrétting- anna en ullarvinnslu gerð skil s.s. kaðlagerð, sútun, jarðræktartilraun- um, útgerð og brennisteinsnámi. Ennfremur er lagt til að aðalvefn- aðarhús Innréttinganna frá 1754 verði endurreist á lóðinni Aðalstræti 12. Ætlunin er að helga þetta hús ullarvinnslu, spuna, vefnaði og öðra sem lýtur að dúkagerð. Húsið stóð á lóðinni til 1810 en lóðin stóð auð til 1889 þegar þar var byggt stórt timburhús. Það brann 1977. Lagt er til að Aðalstræti 10, eina uppmna- lega hús Innréttinganna, verði gert upp í upprunalega mynd. Um Geysishúsið, Aðalstræti 2, segir að ástæða sé til að gera það Aðalstræti og Gijótaþorp. upp samkvæmt uppmnalegu útliti en því hefur mikið verið breytt á seinni áratugum. Meðal annars þarf að breyta gluggum og klæðningu í fyrra horf. Ennfremur segir að hug- myndin muni vera að nýta húsið undir upplýsingamiðstöð fyrir ferða- menn og hugsanlegt sé að setja þar upp yfirlitssýningu á sögu Reykja- víkur frá upphafi til dagsins í dag þ. á m. sýningu á verslunarsögu Reykjavíkur og á gripum úr fomleif- auppgrefti í miðbæ Reykjavíkur. Einnig mætti setja þar upp breyti- legar sýningar á skipulags- og fram- kvæmdamálpm í borginni. Hugmyndasamkeppni um Ingólfstorg Fjallað er um aðrar fyrirhugaðar framkvæmdir í kynningarbæklingi um sýninguna í Gallerí Borg. Má þar nefna að fyrirhugað er að koma fyrir litlum torgum og útivistarsvæð- um í Gtjótaþorpi og hleypt verði af stokkunum hugmyndasamkeppni um hönnun Ingólfstorgs, á Hallæris- og Steindórsplani, í tengslum við umhverfi sitt. Nýtt skipulag Austur- vallar er í vinnslu og verður aðstaða til útivistar og fundarhalda bætt samkvæmt því. Gert er ráð fyrir að Hótel Borg verði seld með kvöð um að þar verði áfram rekið hótel- og veitingahús. Miðbærinn Um miðbæinn segir að áfram verði haldið við hitalagningu í götum o g gangstéttum, steinlagningu, gróðursetningu og bætta lýsingu. Gönguleið opnist inn á Ingólfstorg frá gamla kirkjugarðinum á homi Aðalstrætis og Túngötu. Ýmsar hugmyndir hafa verið sett- ar fram um notkun Morgunblaðs- hússins fyrir starfsemi sem laði að sér almenning, t.d. aðalsafn Borgar- bókasafnsins og fleira. Bakkar Tjarnarinnar hafa verið endurhlaðnir og stefnt er að því að ljúka þeim framkvæmdum með endurgerð vesturbakka og fegmn Tjarnargötu á næsta ári. Ráðhús Reykjavíkur verður opnað í apríl nk. Tilgangurinn með sýningunni í Gallerí Borg er að sögn Nikulásar Úlfars Mássonar, arkitekts Árbæj- arsafns, að kynna framkomnar til- lögur um skipulag Aðalstrætis og sýna sögu götunnar. í Galleríinu verða fmmkort frá 18.og 19. öld og líkön sem sýna Innréttingamar 1786. Nikulás hvetur fólk til að koma á sýninguna og kynna sér til- lögurnar. Hann segist vona að fólk geri sér grein fyrir hversu mikla þýðinug fyrirhugaðar breytingar hafi fyrir Reykjavík. Sýningin stend- ur til 5. mars.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.