Morgunblaðið - 01.03.1992, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 01.03.1992, Blaðsíða 21
scfii síiam .r auaAouviMue ctkiaj8mudíiom MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. MARZ 1992 félög og klúbba. Svo virtist sem Marie gengist upp við þessu skrafi, og að lokum tók hún bónda sinn í sátt og fór að samrekkja honum. Þetta var þó allt gabb af hennar hálfu. Hún var staðráðin í því að losna úr hjónabandinu innan árs, en ekki endilega með venjulegum hjón- askilnaði ... Frænkum sínum í Norður-Frakk- landi skrifaði hún bréf, þar sem hún sagðist vera hamingjusam- lega gift og eiginmanni sínum afar þakklát fyrir allt, sem hann gerði fyrir hana. Um sama leyti kom hún sér í kynni við lyfsala í grenndinni. Hjá honum fékk hún arsenik- skammta, sem hún kvaðst þurfa að nota á rottur í húsinu. Svo kom að því, að Joseph þurfti að bregða sér til Parísar. Hún lést verða áhyggju- full hans vegna, því að allt gæti komið fyrir á löngu ferðalagi og dvöl í hinni varasömu borg. í varúð- arskyni ættu þau að gera gagn- kvæmar erfðaskrár, þar sem hvort um sig ánafnaði hinu allar eigur sín- ar. Joseph féllst á þetta fyrirkomu- lag, og Marie hélt nú, að hún væri einkaerfingi hans. Svo var þó ekki, því að Joseph sagði mömmu sinni frá öllu saman. Hún lét hann í snatri semja nýja erfðaskrá, staðfesta hjá lögbókara, þar sem hún sjálf var gerð að einkaerfingja. Joseph dvaldist í París við ýmiss konar málavafstur. Marie bað tengd- amóður sína um að baka eftirlæti- skökurnar hans „til þess að senda drengnum sínum í höfuðborginni". Gömlu frúnni þótti vænt um þessa óvæntu hugulsemi tengdadótturinn- ar í garð sonar síns og varð við þessari beiðni. Hún bakaði sex kök- ur, setti þær sjálf sjálf í kassa, inn- siglaði hann sendi af stað. Einhver hefur þó haft tækifæri til þess að ijála við kassann, áður en hann komst til Paríaar, því þegar Joseph opnaði hann, blasti við honum stóre- flis kaka, sannkölluð hnallþóra. Hon- um leist vel á kökuna stóru frá mömmu, skar sér þegar í stað stórt stykki úr henni og gerði sér gott af. Fljótlega fór honum að líða illa. Honum varð óglatt, og svo fór hann að kasta upp. Hann kúgaðist og kvaldist af óskaplegum iðraverkjum næstu klukkustundir. Þegar af hon- um bráði, var hann svo máttvana og elendugur, að hann lá í rúminu á hálfan mánuð, áður en hann treysti sér til þess að fara aftur heim til Le Glandier. Sama dag og hann kom þangað, keypti Marie stóran skammt af arseniki hjá lyfsalanum. Jeseph var enn mjög slappur og með innan- tökur, svo hann fór beint í rúmið. Marie lét sér svo annt um hann, að hann komst við, og fór svo, að hann bannaði öðrum en henni að hugsa um sig. Heilsu hans hnignaði dag frá degi. Móður hans grunaði, að fyrirmæli hans, um að enginn mætti koma nálægt honum nema Marie, væru frá henni komin, svo að hún gæti byrlað honum eitur í næði. Sömu grunsemdir höfðu kviknað hjá vinnufólkinu. Gamla frúin fór að njósna um Marie og reyna að standa hana að verki, en ekki tókst það. Joseph Lafarge andaðist hálfum mánuði eftir að hann kom heim frá París. Móðir hans lét sækja lögregluna. Moran fógetafulltrúi kom nokkrum dögum síðar, og eftir tíu daga rann- sókn og yfirheyrslur taldi hann sig hafa nægar ástæður til þess að ákæra Marie fyrir morð á eigin- manni sínum. Hún var handtekin og flutt í fangelsi í næsta smábæ. Frétt- in kom í Parísarblöðunum og vakti mikla athygli. Frænka hennar, de Garat, brást skjótt við og réð fræg- asta málaflutningsmann Frakklands til þess að taka að sér vörn Marie. Æskuvinkona hennar, Marie de Lé- autaud, kærði hana nú fyrir að hafa stolið demantahálskeðju frá sér. Keðjan hafði horfið, þegar Marie Lafarge heimsótti hana nokkru áður. Grunur hafði þá þegar fallið á hana, en vinkonan lét málið kyrrt liggja, uns morðákæran kom fram. Og mik- ið rétt: Hálskeðjan var meðal þess, sem Moran hafði fundið í herbergi henar í Le Glandier. Þjófnaðarmálið var þegar tekið fyrir rétt, þrátt fyr- ir mótmæli lögfræðinga hennar, og var hún dænd sek in absentia (að henni fjarverandi). Hún fékk tveggja ára fangelsisdóm. Flutningur í morð- málinu fór síðar fram og stóð í sautj- án daga. Frönsku blöðn skýrðu jafn- harðan frá gangi málsins. Það vakti sérstaka athygli vegna þess, að í fyrsta skipti réð vitnisburður eitur- efnafræðigns í eiturefnum úrslitum. Fyrst voru kvaddir fyrir réttinn nokkrir sérfræðingar í eiturefnum. Þeir báru, að engin merki um eitur- byrlun væri að finna í líkamsleifum hins látna. Þetta vakti mikið upp- nám. Að kröfu saksóknara var nú frægasti eiturefnafræðingur þeirra tíma, dr. Mathieu Orfila, kvaddur til réttarhaldsins. Eftir ýtarlega rannsókn kvað hann upp þann úr- skurð, sem enginn treysti sér til að vefengja, að nægilegt magn eiturs fyndist í líkinu til þess, að það hefði orðið Joseph Lafarge að bana. Marie var nú fundin sek um morð að yfirlögðu ráði. Dómarinn, de Barny, dæmdi hana í fyrsta lagi til þess að standa í gapastokki á al- mannafæri um nokkurn tíma, og í öðru lagi til þess að vinna erfiðis- vinnu ævilangt í hegningarhúsi og fá aðeins vatn og brauð. En nú fékk lífsbarátta móður hennar að lokum nokkra viðurkenningu, þótt með öðr- um hætti væri, en hún hafði hugsað sér. Konungur, Louis-Philippe I., ákvað að taka tillit til hugsanlegra fjölskyldutengsla og notaði rétt sinn til þess að milda dóminn. Refsingin var því endanlega ákveðin venjulegt fangelsi ævilangt. Hún hraktist milli fangelsa í Brive-la-Gaillarde, Tulle og París, en að lokum fékk hún fast aðsetur í fangelsinu í Montpellier. Þar las hún mikið og skrifaði, og hefur sumt af því varðveist. Hún hafði lengi skrifast á við Alexandre Davy de La Pailleterie (þ.e. rithöf- undinn Alexandre Dumas) og hélt því áfram, eftir að hún var lokuð inni. Hún fékkst við að skrifa endur- minningar sínar, en gekk að venju illa að gera skýran greinarmun á veruleika og ímyndunum. Einnig vann hún að því að semja harmleik, sem hét „Glataða konan“. Heilsa hennar var ekki góð, því hún var komin með berkla. Hin hugsanlega amma hennar, Madame de Genlis, hafði notið velvildar Napóleons I. Frakka- keisara. Hún hafði hrakist úr landi í byltingarumrótinu, þótt hún væri hlynnt mörgum hugsjónum bylting- armanna, og eiginmaður hennar var hálshöggvinn (settur undir fallöx- ina). Napóleon fyrsti bauð henni heim úr útlegð í Hamborg, gaf henni íbúð, rífleg eftirlaun og sýndi henni í hvívetna hinn mesta sóma. Hann hafði ungur hrifist að ritum hennar um kennslu- og uppeldismál og lét hana njóta þess. 1852 varð bróður- sonur hans keisari undir nafninu Napóleon III. Marie Lafarge skrifaði honum nú bréf. Hún sagðist vera veik af alvarlegri tæringu og bað um að fá að fara úr fangelsinu. Hann varð við þeirri bón og fyrir- skipaði, að henni skyldi sleppt. Eng- inn beið hennar fyrir utan fangelsis- dyrnar. Hún lagði leið sína að heilsu- hæli við heitar laugar syðst í Frakk- landi, þar sem heitir Ussat-les-Bains í Pýreneafjöllum, nálægt Andorra- ríki. Þar elnaði henni sóttin skjótt. Hún veslaðist upp og lést að hálfu ári liðnu. Þrátt fyrir tilraunir presta, neitaði hún jafnan staðfastlega að hafa orðið bónda sínum að bana. „Dó án kristilegrar játningar," var skrif- að. Málið rifjaðist aftur upp árið 1904. Þá gat G. Maugras út bók með nokkrum bréfum, sem hann hafði komist yfir. Þetta voru bréf frá Madame de Genlis til hertogans af Chartres. Mörgum fannst mega ráða af bréfunum, að frú Capelle hefði í raun og sannleika verið laun- dóttir þeirra. D 02 C 21 Opnum á morffun ’ dæsilefft fisklborð - fullt af nýjum fiski og fiskréttum! f- TILBOÐ á Bolludegi! Nýtt - Kjötfars: Léttfars (fituminna) Fiskfars í bollurnar - Saltkjötsfars 389” 389 .00 pr.kg. Fyrir Sprengidag - Úrvals saltkjöt á TILBOÐSVERÐI: Feitt kjöt, '' magurt kjöt, kjöt eins og þú vilt hafa þaö - þú velur Laukur Hvítlaukur Rauðlaukur Perlulaukur Gular baunir Gulrætur Gulrófur Hvítkál • Saltað spekk • Nýtt spekk • Reyktspekk © Framhryggur Vakumpakkað Biandaö saltkjöt: Hálsbitar Síöur Cola 1 uneh*nur 1,1/21. 98r TiUBORG 0,51 dós, pilsner Marino feaffi * 65,- 1 ltr.Sun-C Appelsínusafi Eplasafi .00 0^-°° Borgarnes Pizza 379,- MATVORUVERSLUNIN ttnsjwtmm Veríð vandlát - það erum við! HÁAI FITIQRRAI IT RR VIRKA DAGA KL. 9-18.30 FÖSTUDAGA kL. 9-19 MAALtl I IÖÖHAU I bö laugardaga FrA KL. 10-16

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.