Morgunblaðið - 22.03.1992, Síða 16

Morgunblaðið - 22.03.1992, Síða 16
16 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. MARZ 1992 KAUPMANNAHAFNARBRÉF Skráargataárátta Einu get ég aldrei vanist í Danmörku og það er að þurfa að horfa daglega upp á forsíður síðdegisblaðanna BT og Ekstra- blaðsins út um allar landsins koppagrund- ir. Eg reikna heldur ekki með að ég eigi nokkurn tímann eftir að venjast þeim. Þannig er að þessi tvö blöð keppa um síðdegismarkaðinn og dreifingin er mest í lausasölu. Ein leiðin til að ná athygli lesenda er að stilla forsíðunum út á gang- stétt og af því að blaðsölustaðirnir eru margir, þá blasa þær alls staðar við. Af forsíðunum má marka að forráðamenn blaðanna (og annarra ámóta blaða víðs vegar um heimsins breiðu byggð) vita að flestir þjást af því sem ég kalla skráar- gataáráttu. Vísasti vegurinn að pyngju væntanlegs lesenda er að kitla hana. Eins og nafnið bendir til beinist áráttan að því að liggja á skráargatinu hjá öðrum. í frumbernsku er börnum kennt að slíkt geri maður nú ekki, en löngunin eldist ekki að fólki. Þessu gera blöðin sér ræki- lega grein fyrir og birta því dyggilega efni af því tagi sem við gætum séð, ef við hittum óséð á rétta skráargatið. Hér gengur allt upp. Lesandinn getur lesið með bestu samvisku, hann er ekki að gera neitt óleyfilegt og fjölmiðlarnir fitna eins og púkinn á fjósbitanum hans Sæmundar fróða, nema hvað þeir fitna á ýmsu fleiru misjöfnu en blótsyrðum. Síð- ast þegar ég vissi til fullnægðu landar mínir skráargataáráttu sinni á persónuleg- an hátt með því að skiptast á slúðursög- um. Hér í fjölmenninu hefur þetta fyrir- bæri sumsé verið hafið á æðra og skipul- agðara stig blaðaúgáfu. Af forsíðum blaðanna má ráða að blóðugur óhugnaður er vel til þess fallinn að kitla skrárgataáráttuna. í vikunni var ein forsíðan um mann, sem dó af því að sjá hundi fleygt niður úr 30 metra hæð. Merkilegt nokk hafði ekki náðst mynd af hundinum, heldur aðeins af húsinu með rauðri punktalínu fyrir fall hundsins og svo andlitsmynd af hinum látna. Hátíðir blaðanna eru þegar framin eru morð og þá helst þegar fómarlömbin eru gamalt fólk eða verknaðurinn er með kynferðis- legu ívafi. Þá er hvergi til sparað að ýta undir sjúklegt ímyndunarafl, hræðslu og óhugnað. Enn eitt vinsælt efni em ófarasögur, einkanlega um ófarir í ásta- og peninga- málum. Þegar einhver þekkt persóna er yfirgefin af ektamaka eða sambýlis- manni, er það auðvitað kitlandi. Þó em gjaldþrot og eignamissir enn betri. í landi þar sem hefur verið komið upp viðamiklu kerfi til að færa peninga úr fullum vösum í hálffulla og tóma, þykir afar grunsam- legt ef einhver er áberandi vel stæður. Þegar eigandi lúxusbíls, glæsihúss, auk sumarbústaðar og fínna fata, missir aleig- una fara blöðin á kostum og „sko, sagði ég ekki...“ hljómar um sund og stræti. Annað blaðanna tveggja hefur fundið kerfisbundna leið til að gera út á kynhvöt- ina. í þeim fróma tilgangi að bæta kynlíf fólks hefur föstudagur fengið auknefnið „djarfur" og þann dag er síða í blaðinu með hagnýtum ábendingum, með tilheyr- andi örvandi forsíðumynd. Nú hef ég ekk- ert á móti að þeir sem áhuga hafa á kyn- legu efni geti nálgast það hvort sem er í máli, myndum eða áþreifanlega. Hins veg- ar kann ég ógn og skelfíng illa við að láta klína slíku framan í mig hvar sem er og finnst hvimleitt að hafa þetta í sjón- máli barna og unglinga. Einu sinni heyrði ég haft eftir sálkönn- uði hér að hann gerði ekki mannamun, tæki þá í meðferð, sem þyrftu, en bætti svo hikandi við að hann myndi kannski eiga erfítt um vik að hafa með blaðamann af BT eða Ekstra-blaðinu að gera. Nú má auðvitað segja sem svo að hægt sé að leiða forsíðurnar hjá sér, láta vera.að lesa þær. En því er til að svara að það er erfítt að kunna augum sínum forráð. Þau hafa tilhneigingu til að fara sinna eigin ferða og nema ósómann með leiftur- hraða. Og svo er það auðvitað þetta með skráargataáráttuna. .. Sigrún Davíðsdóttir HÓTEL HOLT í HÁDEGINU Þríréttaður hádegisverður alla daga. Verð kr. 1.195.- CHATEAUX. Bergstaðastræti 37, sími 91-25700 Umhverfisvænar bleiur Vegna þess að Libero bleiur eru T laga og þær einu með teygju að aftan og réttu buxnalagi Cbleiur eru óbleiktar og ofnæmisprófaðar NÝTT Þær fóst nú einnig i stærðinni Maxi Plus 10-20 kg. Góð sem næturbleia passa best Kaupsel hf. Heildverslun, sími 27770. Patreksfjörður: Kvöldskemmtun í félagsheimilinu Patreksflrði. NÝSTOFNUÐ Lista- og menn- ingarnefnd Patreksfjarðar gekkst fyrir kvöldskemmtun í félagsheimilinu á degi Heilags Patreks. Setið var við kertaljós og hlýtt á upplestur úr kvæðum Jóns úr Vör en hann er eins og kunnugt er Patreksfirðingur. Sagt var frá Heilögum Patreki og tilkomu nafnsins á íjörðinn. Kennarar og söngnemendur tónskólans léku og sungu. Þótti skemmtunin takast hið besta og var rætt um að gera það að föstum sið að minnast dagsins með einhveijum hætti. Patreksfirðingar hafa fram til þessa látið Heilagan Patrek sig litlu varða enda kann ástæðan að vera sú að Örlygur sá er firðinum gaf nafnið flutti suður og hefur sá siður löngum hijáð menn hér vestra. - Ingveldur Rafmagnstruflanir geta skaðað tölvuna þína Rafmagnstruflanir geta ekki aðeins eyðilagt tölvugögn, heldur líka skemmt tölvuna sjólfa. VICTRON VARAAFLGJAFAR eru örugg vernd gegn rafmagnstruflunum Hafðu samband og leytaðu frekari upplýsinga. Si Tæknival IÐNSTÝRIDEILD SKEIFAN 17 ■ * (91) 681665, FAX: (91) 680664

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.