Morgunblaðið - 22.03.1992, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 22.03.1992, Blaðsíða 18
13 C MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 22. MARZ 1992 Tónleikar Todmobile hljóð- og myndritaðir fyrir útgáfu í sumar Tyrkneskur töframaður Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir MÚSÍKTILRAUNiR MÚSÍKTILRAUNIR Tónabæjar og Rásar 2 hefjast nk. fimmtu- dag, en áhugi fyrir keppninni hefur ekki verið meiri. Alls sótti á fjórða tug sveita eftir því að komast að og fengu færri pláss en vildu. Dauðarokk verður áberandi á þessum Músíktilraunum, enda sú tónlistarstefna sem önn- ur hver bílskúrssveit fæst við um þessar mundir. Flestar sveit- anna sem skráðu sig leika dauðarokk, en í]öl- margar sveitir annarrar gerðar verða með. Sveitirnar sem þátt taka eru eftirfarandi: Dystophia, Exit, Auschwitz, Condemned, Cranium, In Memoriam, Inflammatory, Not Corr- ect, Clockwork Diabolus, Carpe Diem, Bar 8, Blimp, Goblin, ICeldu- svín, Hydra, Sjúðann, B.R.A., Exorcismos, Niturbasamir, Baphom- et, Skitamórall, Phi- mosis, Kolrassa krókríð- andi og Dyslexia. njpnrDVAiiT vcip UiLUUil A UNAjAmV A Hvað skalgera viðgamia dóiiðf Hadji ITebiloEc Tyrkneskur tónlistarmaður. TODMOBILE hefur gert víðreist síðustu vikur, en sveitin heldur tónleika í Islensku óperunni nk. fimmtudagskvöld, og er ætlunin að hljóðrita þá tónleika. Todmobile hefur haft í nógu að snúast í kynningu ytra á plötu sveitarinnar sem kom út í Skandinavíu fyrir skemmstu, en sveitin hefur einnig verið iðin við spilirí hér heima. Næstkomandi fimmtudag heldur sveitin mikla tónleika í íslensku óperunni, en þeir tón- leikar verða hljóðritaðir með full- komnustu græjum til útgáfu í sumar. Allt bendir og til þess að tónleikarnir verði kvikmyndaðir. Að sögn Eyþórs Arnalds er ætlunin að gefa út tónleikaskífu í sumar, en á þeirri skífu verða væntanlega einhver ný lög. Tomobilemeðlimir eru hag- vanir í Óperunni, því þar hefur hljómsveitin haldið árlega des- embertónleika undanfarin ár og jafnan færri komist að en vildu. Todmobile Óperutónleikar framundan. Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir EINS og áður er getið er staddur hér á landi tyrkneski tónlistarmaðurinn Hadji Tebilek. Hacyi heldur þrenna tónleika í Púlsinum með hljómsveitinni Súld. Sigurveg- arar Inf- usoria fagnar sigri í Mús- íktilraunum 1991. Hadji er í fremstu röð tyrkneskra tónlistar- manna og hefur leikið með flestum bestu tónlistar- mönnum Tyrklands. Ilann hefur leikið inn á hundruðir hljómplatna með tyrkneskri dægurtónlist og einnig verið umsvifamikill í tyrknesk- skotnum jass. Hér á landi leikur Hadji á þrennum tónleikum í Púls- inum, 25., 26. og 29. mars. Steingrímur Guðmundsson og Samspil gangast fyrir komu Hadji hingað og leikur Súldin með Hadji á öllum tónleikunum. EFTIRSOTTUR TÓNUSTARARFUR ENDURÚTGÁPA á íslenskuiri rokkplötum hefur farið ágætlega af stað, þó enn eigi fjölmargar merkisskifur eftir að sjá dagsins Ijós. Áðui1 hafa borist fregnir af því að ólögleg endurútgála af plötu Icecross er fáan- leg víða ytra á háu verði á meðan upprunaleg útgáfa selst geypiverði. Á síðasta árí komu út á geisiadisk tvær af merkustu breiðskífum. íslenskrar rokksögu, Lifun og tvöföld plata Óðmanna, sem hafa selst þokka- lega hér á landi, ogþað hefur komið mönnum þægi - lega á óvarí hvað safnarar ytra hafa sýnt útgáfunni mikinn áhuga. að var G. Rúnar Júlíus- son sem gaf meistara- verk íslensks hippisma, Lif- un, út á geisladisk, en hann segir að fyrsta upplag' geisla- disksins, 1.000 eín- tök, sé uppselt og hánn hafi látið eftir Ámo framleiða Matfhíosso.n meira í snarhasti, til að uppfyila pantanir að utan. Fyrir stuttu hafi hon- . um borist pöntun á 100 eintökum frá póstverslun í Bandaríkjunum, sem ósk- aði einnig eftir plötum með Þursunum, Svanfríði, Óð- mönnum og fleiri Trúbrot- plötum. Rúnar segist hafa í hyggju að endurútgefa nokkrar skífur á árinu, en það skjóti stoðum undir slíka útgáfu að hægt sé að selja plötur út, þó það sé ekki í neinu gríðarupplagi. Hjá Skífunni fengust þær upplýsingar að fyrir- tækinu hefðu borist fyrir- spumir vegna Óðmanna- disksins, sem kom út stuttu fyrir jói, frá Skandinavíu og hefði siatti af diskum veríð sendur út, en verið væri að vinna úr fyrir- spumum og undirbúa dreifíngarsamninga ytra. Skífan hyggur á umsvifa- mikla endurútgáfu í sumar, en ekki treystu menn sér til að segja tíl um hvort í vændum væri útgáfa sem vekti aðra eins athygli. Þó væri væntanleg á geisia- disk löngu ófáanleg sóló- skífa Jóhanns G. Jóhanns- sonar, Langspil, og mætti búast við áhuga ytra, ekki síður en hér heima. Safnarar víða um heim hafa löngum sýnt áhuga á íslenskri rokktónlist og minnist ég þess að í Bras- ♦ ilíu fyrir rúmu ári varð starfsmaður bandarísks fjölmiðlafýrirtækis óður og uppvægur þegar hann heyrði að ég væri frá Is- landi og bað mig í guðanna bænum að liðsinna sér við að hafa upp á fyrstu breið- skífu Grafíkur, sem hann sagðist hafa leitað að í fjölda ára. Áhuginn er þó líkiega mestur í Skandinavíu, en í pöntunarlista norsks safn- ara er óskað eftir tilboðum í lítið spilað eintak af Trú- brotplötunni Undir áhrif- um, sem kom út 1970, og að ekki verðir tekið við nema háum tilboðum í plöt- una, enda sé Trúbrot ein eftirsóttasta hljómsveit skandinavískrat- rokksögu. Það sé því vænlegt fyrir ♦ menn að fara með eintak af listanum.og leggja fyrir bankastjóra og þá muni ekki standa á láni til að geta boðið það sem þarf. í lokin má svo tilfæra litla sögu af íslenskum plötuáhugamanni, sem komst heldur en ekki í feitt á útsölu Steina hf. í Skeif- unni fyrir stuttu. Hann keypti þar smáskífur m.a. með Thor’s Hammer, Trú- broti, Hljómum, Engiibert Jensen og Axel Einarssyni fyrir 4.000 krónur, á 25 kr. stykkið, og seldi þegai' tii útlanda megnið af skíf- unum fyrir 50.000 kr. Óðmenn Áhugi víða í Skandinavíu. Óperutónleikar Todmobile

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.