Morgunblaðið - 22.03.1992, Qupperneq 22
22 C
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM 3UNNUDAGUR 22. MARZ 1992
MYNDLIST
Myndlistamaður
auglýsir eftir
partímyndum
Birg'ir Andrésson myndlistarmaður fer ekki áður troðnar slóðir í
sinni listsköpun. Nýlega sagði hann opinberlega að hann væri að
safna „partímyndum". Reyndar var hann að auglýsa eftir slíkum
myndum, því þær eiga að vera uppistaðan í einu allsherjar mynd-
verki sem ætlunin er að þekji „einn heljarstóran vegg“, þegar
henni er lokið. Morgunblaðið sló á þráðinn og spurði Birgi hvern-
ig gengi að safna partímyndum.
Ja, það gengur fremur rólega.
Reyndar er fólk mikið að
spyija mig um þetta. Það spyr
mig alveg í þaula. Þetta hefur
vakið at-
hygli, en ég
hef samt lít-
ið haft upp
úr krafsinu
enn sem
komið er,“
sagði Birgir.
En hvað
stendur til
og hvers
vegna? „Það
sem vakir
fyrir mér er
að ná í 30
til 40 mynd=-
ir sem ég
ætla að
stækka upp
í svona 65
sinnum 55,
kannski
stærri,
hveija um
sig. Steypa
þessu saman
í eina
ákveðna
grúppu.
Þetta verður einn heljarstór vegg-
ur. Ég veit að fólk á þessar mynd-
ir til og þeim fylgir ákveðin feimni.
Samt vil ég ekki trúa öðru en að
úti í bæ leynist nokkrir einstakl-
ingar sem þora að láta nokkrar
Birgir Andrésson.
myndir. Hvers vegna spyrð þú. Jú,
ég hef áhuga á því að vinna við
íslenska arfleifð og partímyndir
gefa mynd af ákveðnu fyrirbæri.
Það er alltaf
eitthvað sem
auðkennir
eina þjóð frá
annarri og
þá á ég ekki
við það aug-
ljósa eins og
húðlit eða
tungumál.
Eitt sem er
breytilegt'
frá einni
þjóð til ann-
arrar eru
skemmtana-
venjur, en
þó eiga allar
þjóðir það
sameigin-
legt að vilja
skemmta
sér. Með því
að fókusa á
þetta kemst
maður nær
ákveðinni
kviku.“
Er ein-
hver veggur í sigtinu? „Nei, nei,
ekki enn. Maður pælir ekkert í
slíku á þessu stigi: Það er ein-
hvers staðar veggur, á endanum
finn ég vegg fyrir verkið," sagði
Birgir Andrésson.
ROKK
Fjögnr prósent Skaga-
manna snúast meira og
minna um rokktónleikana
Mikið hefur verið um rætt rokktónleika þá sem haldnir verða á
Akranesi í september næst komandi, en þeir eru liður í afmælishá-
tíðahöldum bæjarins, en það eru nokkrir einstaklingar og félög
sem standa fyrir herlegheitunum. Það eru tvær gamalþekktar
hljómsveitir sem mæta til leiks, gömlu þungarokksbrýnin Black
Sabbath og Jethro Tull, sem eru í þyngri kantinum, en hafa alla
sína tíð flutt persónulegan rokkstíl höfuðpaursins Ian Anderson.
Sigurður Sverrisson ritstjóri og útgefandi Skagablaðsins á Akra-
nesi er hvatamaður að tónleikahaldinu og má heita að hann sé
framkvæmdastjóri uppákomunnar.
Nú, þegar ljóst er hvaða sveitir
koma og hvernær, fýsti
Morgunblaðið að vita hver staða
mála væri.
„Þetta lítur vel út núna: Ég
óttaðist að það kæmi bakslag í
seglin er Ozzi Osbourne fór að
gera stórum meiri ijárkröfur og
við ákváðum að semja ekki við
hann. Ég hafði álitið að hann yrði
aðalnúmerið og Jethro Tull svona
aukanúmer þótt þekktir séu. Ég
sé að þetta var misreikningur. Við
fengum Black Sabbath í staðinn,
gömlu sveitina hans Ozzy með
stórsöngvaranum Ronnie James
Dio fremstan í flokki, og í staðinn
fyrir að áhugi minnki á hátíðinni
þá verð ég var við að margir sem
höfðu sagst ætla að velja aðra
tónleikana, ætla nú alveg harðir
að missa af hvorugum. Þá hefur
komið verulega og skemmtilega á
óvart hversu mikill áhugi er fyrir
FOLLT
TILBOÐ
Teg: 1025
Stærðir: 38-46
Svartleður
Verð kr. 2.990.
Teg: 4468
Stærðir: 36-41
Svart leður
I/erð kr. 4.990,-
Teg: 7205
Stærðir: 36-45
Svart og brúnt
leður og rúskinn
Verð kr. 5.890,-
Teg: 4228
Stærðir: 40-46
Svart og brúnt leður
'erð kr. 5.990,-
Teg: 3344
Stærðir: 36-41
Svartieður
Verð kr. 5.990,-
Væntanlegir 1. apríl
Tökum pantanir.
Teg : 2513
Stærðir: 35-41
Svartieður
Verð kr. 4.490,-
Teg: 3051
Stærðir: 36-41
Svart og rautt
leður og rúskinn
Verð kr. 3.990,-
Lciugctvegi 11 - Simi:21675
SENDUM í PÓSTKRÖFU
Jethtro Tull. Þeir hafa alltaf átt
sitt fylgi þótt oft hafi lítið borið á
þeim seinni árin, en við liggur að
meira sé spurt um þá heldur en
Sabbath og Ozzy þar áður,“ sagði
Sigurður. En verður Skaginn
undirlagður þessa daga?
„Það sýnist mér. Það er ekki
ofsögum sagt að starfsmenn sem
munu koma meira eða minna við
sögu verða ekki færri en hundrað
talsins, en það eru 4 prósent
Skagamanna. 40 til 50 manns
ver^a bara við gæslu, aðrir 20 í
sölu á miðum og alls kyns vam-
ingi tengdum tónleikunum. Talan
er fljót að koma, ekki síst er iðnað-
armennimir koma inn í þetta. Það
eru auk þess allar líkur á því að
sjálfur verði maður undirlagður
ekki síður en Skaginn.í heild, því
ég var að fá í hendurnar samning-
inn við Jethro Tull. Hann er upp
á 17 síður þéttvélritaðar. Þar er í
öllum smáatriðum frá því greint
hvað eigi að vera til staðar fyrir
herrana, hvemig aðbúnaður þeirra
eigi að vera og framkoma öll. Það
er farið svo grannt ofan í allt sam-
an að tíundað er hversu margar
fötur með ísmolum eigi að vera í
búningsklefanum. Og ef hand-
klæðin 50 sem eiga að vera til
taks em ný verðum við að setja
þau í þvott áður til þess að þau
drekki í sig meiri svita en ella!
Þetta er allt eftir þessu og það er
eins gott að allt sé bókstafnum
samkvæmt, því þess eru dæmi að
heimsfrægir rokkarar séu dyntótt-
ir í meira lagi og geti brugðist illa
við ef ekki er farið að óskum þeirra
i einu og öllu,“ svarar Sigurður.
En hvers vegna em menn að
standa í þessu þegar fátt heyrist
af fyrri ævintýrum annað en að
um hrakfarir hafi verið að ræða,
ekki síst frá fjármálasjónarhóln- -
um.
Sigurður svarar þessu á þá leið
að bæði vilji þeir á Skaganum
sýna fram á að hægt er að halda
svona uppákomur annars staðar
heldur en á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu og svo sé dæmið útreikn-
að á þá lund að þetta eigi að geta
gengið upp. „Við sem að þessu
stöndum hefðum ekkert á móti
smáhagnaði, en aðalatriðið er að
gera þetta með mannsæmandi
hætti þótt dæmið komi út á sléttu
þegar upp er staðið. Svo er maður
í þessu áhugans vegna, þungt rokk
er mitt áhugamál og fátt jafnast
á við að vinna við áhugamál sitt,“
sagði Sigurður Sverrisson.