Morgunblaðið - 22.03.1992, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
VELVAKANDI
SUNNUDAGUR 22. MARZ 1992
C 29
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Á FERÐ í MIÐBÆNUM
Trúarhópar
Frá Guðna Thorarensen:
í grein sem birtist í Morgunblað-
inu fyrir nokkru var ég að fjalla
um hugrenningar fólksins á göt-
unni og mínar eigin. Einnig talaði
ég um að segja mætti fólki frá
ýmsum hópum. í þessari yfirferð
minni skulum við athuga hvað
þessir hópar segja og hvað Biblían
segir um sama efni.
Fyrsti hópurinn að þessu sinni
er þjóðkirkjan. Hvað boðar hún?
Við vitum jú öll, ef við höfum farið
í messu, að prestur safnaðarins
tekur upp bók sem nefnist Biblían,
les síðan upp úr henni, talar svo
út frá texta dagsins. í fljótu bragði
virðist sem svo að ekkert sé at-
hugavert við það, enda er heldur
ekkert athugavert við það.
En hvað boðar kirkjan? Er hún
með réttan boðskap eða ekki? Þetta
ættir þú, lesandi góður, að geta
dæmt um eftir lestur þessa pistils.
Fyrst skulum við líta á hvað kirkj-
an segir um skirn. Hún boðar að
það eigi að skíra böm og vitnar í
því sambandi í tvo góða texta sem
við skulum skoða nánar. Þetta eru
þeir tveir textar sem er oftast vitnað
í og fyi-ri textinn er þessi „Leyfíð
bömunum að koma til mín og vam-
ið þeim eigi því slíkra er Guðs ríki“.
Þetta er mjög góður texti til að
vitna til á slíkri stund en segir því
miður ekki allt vegna þess að þessi
texti segir ekkert til um skírn eða
að það eigi að skíra börnin,' heldur
segir hann okkur eins og biblían
talar um í Matt. 19. 13-15, Mark.
10. 13-16 og Lúk. 18. 15-17 ein-
göngu að Kristur hafi tekið við
börnunum, lagt hendur yfir þau
og blessað en ekki skírt. Hinn text-
inn er þessi „Farið því og gjörið
allar þjóðir að lærisveinum mínum
og skírið þá í nafni föður, sonar
og heilags anda, og kennið þeim
að halda allt það sem ég hef boðið
yður“. Matt. 28. 19-20a. Þessi
texti segir okkur ekki heldur að
við eigum að skíra börnin því að
í hönum stendur að við eigum fyrst
að boða öðrum trú og síðan skíra
þá. Kirkjan boðar einnig himna-
vist. En hvenær byijar það? Prest-
arnir segja okkur sem höfum farið
í jarðarför einhvers sem við þekkj-
um í sinni ræðu að viðkomandi sé
kominn til Guðs. En athugum nú
hvað ritningin segir um þetta. í
Job. 14. 12 og 21, pred. 9. 5-6
segir að við munum aðeins sofa
þangað til Jesús kemur aftur I.
Þess. 4. 13-17. Svona gæti ég
haldið áfram en læt hér staðar
numið í þessari yfirferð minni um
þjóðkirkjuna. En mest af öllu er
þó að við höldum leitinni áfram
hver sem hún er.
GUÐNI THORARENSEN
Melsíðu 6D Akureyri
Um framsýni
og skammsýni
Frá Andra Má Þórarinssyni:
Heimur dagsins í dag er heimur
þekkingar. Þar skipta öllu máli
hæfni og hæfileikar mannsins til
að takast á við hin fjölmörgu verk-
efni sem bíða hans. A undanförnum
árum hefur af hálfu íslenskra
stjórnmálamanna hins vegar tíðkast
skilningsleysi í garð skóla og
menntamála. Það er í raun undar-
legt, því margir sem stjórna þessu
landi eru vel menntaðir og þeir eiga
menntun sína að þakka góðu skóla-
kerfi. Nú er mælirinn fullur. Stjórn-
málamenn okkar sýna jafnvel enn
meira skilnings- og virðingaleysi en
áður. Núverandi ríkisstjórn hefur
boðað meiri niðurskurð á fjárveit-
ingum til skólakerfisins en nokkru
sinni fyrr. Þessi niðurskurður á, ef
hann kemur til framkvæmda, eftir
að hafa mjög afdrifaríkar afleiðing-
ar fyrir þá sem nú stunda nám í
framhaldsskólum og háskóíum eða
ætla sér í slíkt nám á næstu árum
Enda þótt menn séu að vakna
upp við að velferðarkerfið beri sig
ekki í núverandi mynd, þá verður
að hafa sérstöðu menntakerfisins í
huga. Þegar illa hefur árað í ríkjum
í kringum okkur, ríkjum sem við
viljum gjarnan miða okkur við, þá
hefur oftar en ekki verið brugðið á
það ráð að veita meiri ijármunum
til menntamála. Stjórnmálamenn
þar hafa verið svo hagsýnir að þeir
hafa reynt að styrkja gnmninn, í
stað þess að veikja hann. Menntun
er grundvöllur allrar starfsemi í
nútímasamfélagi. Ríkisstjórn okkar
hegðar sér þvi líkt og maður sem
tilfinnanlega vantar múrsteina og
bregður á það ráð að rífa þá úr
undirstöðum húss síns. Augljóslega
fer svo á endanum að öll byggingin
hrynur. Óneitanlega er það þekk-
ingin og menntunin sem.hefur fleytt
mannskepnunni þangað sem hún
stendur nú á dögum. Því verðum
við að standa vörð um þennan
grunn að íslensku þjóðlífi og ís-
lenskri menningu.
Með óskynsamlegum niðurskurði
stjórnvalds er framtíð okkar, sem
sitjum í framhaldsskólunum og
skólum á háskólastigi, stefnt í voða.
Við, sem nú erum námsmenn, eig-
um áður en langt um líður að
stjórna þessu landi og til að geta
gert það á sómasamlegan hátt verð-
um við að hafa sómasamlega
menntun. Til þess að hæfir einstak-
lingar fáist verðui' að gefa öllum
Sundurleit-
ur hópur
gestgjafa
Frá Birni S. Stefánssyni:
Þrír bændur í Ölfusi hafa
kynnt eins konar hernaðaráætl-
un um lambakjötslausa viku tii
þess að knýja fram bann við
lausagöngu sauðíjár. Talað var
við einn þeirra, Jón Hannesson
á Hjarðarbóli, í útvarpsfréttum
um daginn. Fréttamaðurinn
hefði mátt iáta það koma fram,
að hreppsnefndin í Ölfusi hefur
hafnað kröfu þeirra um slíkt
bann þar í sveit. Langflestir
hreppsbúar og hreppsnefndar-
menn eiga heima í Þorlákshöfn
og hafa ekki hagsmuni af bú-
skap. Fréttamaður spurði Jón,
hvað honum fyndist um það, að
bændur væru þannig að efna til
stríðs gegn öðrum bændum.
Hann svaraði því til, að bændur
væru æði sundurleitur hópur.
Þetta reynast orð að sönnu
um þá þijá. Þeir eru allir aðflutt-
ir. Einn þeirra framleiðir nauta-
kjöt í stórum stíl. Annar hefur
auk barnakennsiu utansveitar
framleitt kjúklingakjöt og Jón
er líka kennari og býður svo
gistingu á Hjarðarbóli, eins og
kynnt er í bæklingi Ferðaþjón-
ustu bænda. Þeir reynast vera
fleiri slíkir í bæklingnum og eru
réttnefndir gestgjafar (sbr. Fúsa
vert). Þótt þeir hýsi fólk í gripa-
iiúsum og beri á borð fyrir það
í gamalli hlöðu, sem vel getur
farið á, eru þeir ekki bændur.
Ég hef dálítið sinnt því að
velja gestgjafa fyrir ferðahópa.
Mér sýnist gestgjafar vera orðn-
ir æði sundurleitir, þegar í röðum
þeirra reynist vera maður, sem
vill stofna til samtaka um land
allt til fjárkúgunar á fólki, sem
er flest búsett víðs fjarri Hjarð-
arbóli. Einhvern veginn finnst
mér það ekki lýsa því hugarfari,
sem ég geri mér vonir um þegar
ég vel gestgjafa. Samkvæmt
hernaðaráætluninni á að fá til
liðs m.a. trúarsamtök, „nýaldar-
hreyfingu“ og hliðstæð félög.
Trúarsamtök reynast þá æði
sundurleit, ef þar leynast samtök
sem vilja koma þannig fram við
„náunga sinn“, svo að notað sé
biblíulegt orðalag.
BJÖRN S. STEFÁNSSON
Vesturvallagötu 5 Reykjavík
tækifæri til að afla sér menntunar,
ekki bara þeim sem hafa yfir nógum
fjármunum að ráða. Fyrir löngu er
búið að ganga nógu nærri mennta-
kerfinu fjárhagslega séð. Flestir
skólar hafa verið á ystu nöf hvað
varðar fjárhag. Bruðl hefur ekki
tíðkast þar ólíkt því sem annars
staðar hefur sést. Því kemur þessi
niðurskurður eins og reiðarslag fyr-
ir nemendur sem nú líta með ugg
í bijósti til framtíðar.
Eins og heimsmálin standa um
þessar mundir standa þær þjóðir
best að vígi sem búa yfír mestri
tæknilegri þekkingu og eiga flesta
menntaða og hæfa einstaklinga til
ýmissa st.arfa. Hingað til hafa ís-
lendingar staðið sig með ágætum í
samfélagi þjóðanna. Okkar rödd
heyrist æ oftar og meira tillit er
tekið til skoðana okkar en áður
var. Þessu má alls ekki kasta á
glæ. Við verðum að halda áfram
að mennta fólk sem getur tekið við
af þeim sem nú standa í framvarða-
sveit íslands á erlendum vettvangi.
Við verðum einnig að halda áfram
að skapa hæfa og dugandi einstak-
linga sem geta tekið við stjórnar-
taumunum hér heima, sakir verð-
leika sinna en ekki sakir ríkidæmis.
Við verðum að veija skólana,
vernda menntun á íslandi. Við verð-
um að koma viti fyrir ráðamenn
áður en undirstaðan brestur. Fórn-
um ekki langtímahagsmunum fyrir
skammtímahagsmuni!
ANDRI MÁR ÞÓRARINSSON
formaður skólafélagsins Hugins,
Menntaskólanum á Akureyri.
HÖTELCÖNSULT
SHCC COLLEGES SWITZERLAND
SVISSNESKT HÓTEISTJÓRNUNARNÁM SEM LYKUR MED PROFSKIRTEINI
INSTITUT HOTELIER „CESAR RITZ“ (Lake Genevo)
SWISS HOSPITALITYINSTITUTE, Washington Ct. USA
B.Sc GRAÐUPROF
ALÞJÓÐLEGUR HÁSKÓLI í HÓTELSTJÓRNUN
Brig, Sviss
(sameiginlegt prógram meó hóskólanum í Mossachusetts, USA)
VID ÚTSKRIFT Á OFANGREINDU NÁMSKEIÐIER HÆGT AÐ HALDA AFRAM 0G NA
MASTERGRÁÐU.
Til að fó frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við:
HOTELCONSULT SHCC COLLEGES, ADMISSIONS OFFICE
CH -1897 LE BOUVERET - SWITZERLAND
Tel.: 41+25-81 30 51, Fax: 41+25-81 36 50
STÆRSTA BÍÓIÐ,
PAR SEM BEST FER UM PIG,
BREYTIR UM ÁSÝND!
HÁSKOLABÍO
Nýtt fyrirtækismerki - minnir þig á gæðabíóið
Góö stund verður betri!
Nýtt kaffihús - staðurinn fyrir stefnumót
Fyrir auga og eyra!
• Hljóðkerfi í hæsta gæðaflokki!
• Stærstu bíótjöld landsins!
• Hvergi þægilegri og rýmri sæti!
• Næg bílastæði!
PAÐ ER SAMA íHVAÐA SAL PÚ SITUR
- SÆTl, TJALD OG HLJÓÐ ER ALLS STAÐAR
FYRSTA FLOKKS, OG EYKUR PANNIG Á
GÓÐA UPPLIFUN!
HASKÓIABIÓ
SÍMI22140