Morgunblaðið - 02.04.1992, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRIL 1992
29
Li Peng
Li Peng rit-
skoðaður
Heimildarmenn í Kína sögðu
í gær að forsætisráð kínverska
þingsins myndi breyta stefnu-
ræðu Li Pengs forsætisráð-
herra sem hann á að flytja á
þinginu bráðlega. Þetta á sér
ekki fordæmi og litið er á það
sem mikið áfall fyrir forsætis-
ráðherrann. Forsætisráðið hef-
ur ákveðið að bæta við stefnu-
ræðuna áskorun um baráttu
gegn „vinstristefnu“, eða harðl-
ínumarxisma. Li er sjálfur í
nánum tengslum við harðlínuöfl
innan kínverska kommúnista-
flokksins og margir kenna hon-
um um fjöldamorð hersins á
Torgi hins himneska friðar í
Peking 1989.
EB-aðild Finna
rædd í janúar
ESKO Aho, forsætisráðherra
Finnlands, kvaðst í gær telja
að samningaviðræður um aðild
Finna að Evrópubandalaginu
hæfust í byijun næsta árs.
Hann sagði að Jacques Delors,
forseti framkvæmdastjórnar
bandalagsins, hefði á fundi
þeirra í gær fullvissað sig um
að umsókn Finna yrði tekin til
athugunar um leið og utanríkis-
ráðherrar EB-ríkjanna gæfu
grænt ljós á það á fundi þeirra
6. apríl.
Holst vill taka
við af Wörner
JOHAN Jörg-
en Holst,
varnarmála-
ráðheira Nor-
egs, kvaðst í
gær sækjast
eftir embætti
framkvæmd-
astjóra
Atlantshafs-
bandalagsins og sagði að
norska stjórnin hefði þegar til-
kynnt aðildarríkjum bandalags-
ins um framboðið. Holst er enn
sá eini sem hefur gefið kost á
sér. Manfred Wörner lætur af
embættinu um mitt næsta ár
og er búist við að ákvörðun
verði tekin um eftirmann hans
í desember.
Deilan um
Airbus leyst
Embættismenn Evrópuband-
alagsins og Bandaríkjastjórnar
sögðust í gær hafa náð sam-
komulagi sem byndi enda á
fimm ára deilu þeirra um styrki
bandalagsins til flugvéiafyrir-
tækisins Airbus. Leggi band-
alagið- og bandarísk stjórnvöld
blessun sína yfir samkomulagið
dregur Bandaríkjastjórn til
baka hótun sína um að leggja
fram kvörtun vegna styrkjanna
hjá GATT, Almennu samkom-
ulagi um tolla og viðskipti.
Holst
Moldova:
Stj órnarhermenn
ráðast á bæ í Dnéstr
Moskvu. Reuter.
VOPNAÐAR sveitir innanríkisráðuneytis Moldovu gerðu árás á
bæinn Benderíj í Dnéstr-héraði í gær. Rússneskumælandi íbúar hér-
aðsins hafa myndað eigin ríkisstjórn. Árásin stofnar í hættu viðræð-
um sem hófust á þriðjudag í Kishinjov, höfuðborg Moldovu, utn frið
í landinu.
Dumitru Corlateanu, talsmaður
innanríkisráðuneytis Moldovu,
sagði í gær að árásin hefði verið
gerð til að uppræta vopnaða stiga-
menn og koma á röð og reglu í
héraðinu. Aðstoðarborgarstjóri
Benderíj segir að fimm hafi fallið
í árásinni. Er þetta viðamesta árás
stjórnvalda í Moldovu á uppreisnar-
menn svo mánuðum skiptir,
Rússar í Dnéstr lýstu yfir sjálf-
stæði fyrir tveimur árum en stjórn-
völd í Moldovu sættu sig ekki við
það. Mircea Snegur, forseti
Moldovu, lýsti yfir neyðarástandi í
landinu síðastliðinn laugardag og.
boðaði þá að uppreisnarmenn í
Dnéstr yrðu afvopnaðir. Á þriðju-
dag hófust friðai’viðræður milli
Rússa, Moldova, Úkraínumanna og
Rúmena til að stöðva blóðbaðið í
Dnéstr. Tugir hafa fallið að undan-
förnu, hundruð særst og fimm þús-
und manns flúið héraðið.
Reuter
Faðir Díönu jarðsettur
Faðir Díönu Bretaprinsessu var borinn til grafar í kirkju heilagrar
Maríu í Great Brington í gær. Myndin var tekin er prinsessan og eigin-
maður hennar, Karl prins, gengu til kirkjdnnar.
Á 500g smjörstykkjunun
ÁJjuu2W1(f. ►Nú 199 k
Notaðu tækifærið
og njóttu^mÍArbragðsins
lenskt srnfor