Morgunblaðið - 05.04.1992, Blaðsíða 40
MORGVNBLADID, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SIMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: IIAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 5. APRÍL 1992
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Breytt opinber skráning Fríkir kj usafnaðanna:
Safnaðarfólk skrá-
~ist ekki lengur í þjóð-
kirkjuna við flutninga
Hafa sömu stöðu og sértrúarhópar, segir biskup
I)ÓMS-*og kirkjumálaráðuneytið hefur breytt skráningu á þremur trú-
félögum, Fríkirkjusöfnuðunum í Reykjavík og Hafnarfirði og Óháða
söfnuðinum í Reykjavík, þannig að þeir eru ekki lengur bundnir við
ákveðin svæði. Áður skráðist fólk sjálfkrafa í þjóðkirkjuna ef það flutti
út af starfssvæðum þessara safnaða, en nú breytist skráningin ekki
nema fólk biðji sjálft um það.
Cecil Haraldsson, prestur Fríkirkj-
usafnaðarins í Reykjavík, sagði í
samtali við Morgunblaðið að skráð
starfssvæði safnaðarins hefði verið
'V^~’^eykjavík, Kópavogur og Seltjarn-
arnes. Fólk hefði sjálfkrafa hætt að
Isafjörður:
Niðursuðu-
verksmiðjan
jif. innsigluð
Niðursuðuverksmiðjan hf. á
ísafirði var innsigluð fyrir helgi
vegna vanskila á staðgreiðslu
skatta.
Verksmiðjan hefur átt í fjárhags-
örðugleikum að undanförnu og rann
5 mánaða greiðslustöðvun út í byijun
mars. Heimild hefur verið gefin fyrir
nauðasamningum.
Móðir, bam
og amma
slösuðust
UNGABARN, móðir þess og
amma slösuðust í árekstri á
Reykjanesbraut við Kaldár-
selsveg um hádegi í gær.
Meiðsli þeirra eru ekki talin
lífshættuleg en móðir og barn
voru á sjúkrahúsi i nótt. Öku-
maður sem slysinu olli er grun-
aður um ölvun. 50 metra heml-
aför voru eftir bíl hans, upp
brekku.
Bíll mæðgnanna var á leið að
Hafnarfírði og lenti þar á eftir
hægfara fullfermdum vörubíl.
Öðrum fólksbíl var ekið á eftir í
sömu átt og kvaðst ökumaður
þess bíis, sem var talinn ölvaður,
hafa litið sem snöggvast af veg-
inum en hafi þá ekki vitað fyrr
en hann var í þann veg að rekast
á bílinn sem á undan fór. Við
áreksturinn valt bíll kvennanna.
greiða kirkjugjöld til safnaðarins og
farið úr honum og í þjóðkirkjuna við
búferlaflutninga af svæðinu. Það
hefði ekki gengið til baka þó fólk
flytti aftur á starfssvæðið. Sagði
hann að óánægja hefði verið með
þetta. Fólk hefði í mörgum tilvikum
fallið út af skrá safnaðarins við flutn-
inga án. þess að hafa hugmynd um
það. Til sín hefði komið fólk sem
hefði talið sig safnaðarfólk en ekki
verið það vegna tímabundinna bú-
ferlaflutninga af starfssvæðinu. Þá
hefði komið fyrir að fóik hefði verið
fært af skrá Fríkirkjusafnaðarins og
inn á skrá þjóðkirkjunnar við flutn-
inga innan svæðisins. Söfnuðurinn
hefði tapað 100-150 manns á ári
vegna þessarar reglu og hinir söfnuð-
irnir tveir hlutfallslega jafn miklu.
Cecil tók það fram að þessir þrír
söfnuðir hefðu verið þeir einu utan
þjóðkirkjunnar sem ekki hefðu haft
landið allt að starfssvæði og þeir því
haft samvinnu um að breyta því.
Taldi hann að góð samskipti þeirra
við þjóðkirkjuna myndu ekki breytast
við þetta.
Tilkynnt var um breytta opinbera
skráningu safnaðanna þriggja með
auglýsingu í Lögbirtingablaðinu í
nóvember síðastliðnum. Samkvæmt
upplýsingum dóms- og kirkjumála-
ráðuneytisins þurfa trúfélög ekki að
skrá sig en með skráningu öðlast
forstöðumenn þeirra rétt til ýmissa
embættisverka. Lagalega hafa þessir
söfnuðir alveg sömu stöðu og önnur
trúfélög utan þjóðkirkjunnar og ráða
því sjálfir hvort þeir takmarka starfs-
svæði sitt við ákveðin bæjarfélög eða
landið allt.
Biskup íslands, herra Ólafur Skúl-
ason, sagði í samtali við Morgunblað-
ið þegar málið var rætt við hann á
föstudag: „Fram að þessu voru Frí-
kirkjusöfnuðirnir háðir sömu ákvæð-
um og söfnuðir þjóðkirkjunnar um
búsetu safnaðarfólks. Þeir voru
óhressir með það, töldu sig ekki þurfa
að lúta þessum reglum." Sagði Ólaf-
ur að þessir söfnuðir hefðu nú sömu
stöðu og sértrúarsöfnuðir. Hann
sagðist ekki sjá ástæðu til að sam-
skipti þeirra við þjóðkirkjuna breytt-
ust. Þau hafa meðal annars verið í
því fólgin að biskup Islands hefur
yfirleitt vígt þá presta sem vígjast
til Fríkirkjusöfnuðanna og Óháða
safnaðarins.
Morgunblaðið/Þorkell
HUSBYGGINGAR I VORVEÐRI
Loðnuvertíðin búhnykkur fyrir Eskfirðinga:
Hólmaborg ekki seld,
rækjuvinnsla endurbætt
LOÐNUVERTÍÐIN, sem lauk í
gær, var Eskfirðingum góður bú-
hnykkur og hafa mál varðandi
sölu á nótaskipinu Hólmaborg,
Tilkoma ratsjárstöðvanna:
Fækkar um 100 í Vamarliði
VARNARLIÐSMÖNNUM á KeflavíkurHugvelIi fækkar um 100 þegar
AWACS-ratsjárvél varnarliðsins fer frá íslandi í sumar. Fjórar ratsjár-
stöðvar á Bolafjalli við ísafjarðardjúp og Gunnólfsvíkurfjalli við Þistil-
fjörð, Stokksnesi og Miðnesheiði gegna því hernaðarlega hlutverki sem
AWACS-vélarnar höfðu auk þess að sinna flugumferð um landið.
60 Islendingar verða við störf í
ratsjárstöðvunum. Ratsjárstofnun
sér um rekstur ratsjárstöðvanna fyr-
varnarliðið. Friðþór Eydal, upplýs-
ingafulltrúi varnarliðsins, sagði að
tæplega eitt hundrað Bandaríkja-
menn hyrfu frá störfum hér á landi
við þessar breytingar. Ilann sagði
að verið væri að prófa ratsjárstöðv-
arnar á Norðurlandi og ráðgert væri
að þær yrðu komnar í notkun að
öllu leyti seint næsta sumar. Búið
væri að reisa nýjar ratsjárstöðvar á
sama stað og eldri stöðvar voru á
Stokksnesi og á Miðnesheiði. Þær
stöðvar kæmust ekki í gagnið fyrr
en í lok næsta árs.
Að sögn Friðþórs verða merki frá
ratsjárstöðvunum send til ratsjármið-
stöðvar varnarliðsins, sem nú er á
Miðnesheiði en verður væntanlega
flutt eftir 2-3 ár í nýtt húsnæði sem
nú er verið að byggja á Keflavíkur-
flugvelli.
sem auglýst hafði verði til sölu,
verið sctt í biðstöðu. Verið er að
Ijúka 8-10 milljóna króna endur-
bótum á rækjuverksmiðju fyrir-
tækisins. I þær er ráðist til að
uppfylla kröfur verslanakeðja í
Bretlandi, sem greiða allt að
8-10% hærra verð fyrir hráefni
en aðrir kaupendur, og munu
kaupa meginhluta framleiðslunn-
ar ef vel tekst til. Þetta kom fram
í samtali Morgunblaðsins við
Magnús Bjarnason framkvæmda-
stjóra þjá Hraðfrystihúsi Eski-
fjarðar.
Er loðnuvertíð lýkur er enn eftir
að vinna úr 6-7 þúsund tonnum í
loðnuverksmiðju Hraðfrystihúss
Eskifjarðar, sem búin er að taka við
um 64 þúsund tonnum aá vertíðinni,
samanborið við 29 þúsund tonn á
síðustu vertíð. Stefnir í að nú verði
framleidd um 12 þúsund tonn af
loðnumjöli og er stór hluti þess seld-
ur til Englands og Danmerkur.
Magnús sagði að í kringum pásk-
ana ætti að ljúk'a 8-10 milljóna end-
urbótum á rækjuverksmiðjunni sem
að því loknu yrði tekin út af fulltrú-
um hinna væntanlegu kaupenda.
Eftir breytingamar hefði afkastaget-
an aukist um 20-30%. Hann sagði
að eftir endurbætumar og samninga
sem þeim gætu fylgt gæti útflutn-
ingsverðmæti rækjuafurða fyrirtæk-
isins numið um 150 milljónum á ár-
inu, miðað við að unnið yrði úr um
það bil 1.000 tonnum af hráefni.
í sumar verður Hraðfrystihús
Eskifjarðar með nótaveiðiskipin Guð-
rúnu Þorkelsdóttur og sennilega
einnig Hólmaborg á rækjuveiðum,
ásamt Sæljóni og tveimur bátum frá
Hornafirði. Á rækjuvertíð í fyrra
lögðu þrír bátar upp hjá fyrirtækinu
og afkoman á þeirri vertíð var viðun-
andi að sögn Magnúsar Bjarnasonar,
þrátt fyrir heldur minni framleiðslu
en árin á undan.