Morgunblaðið - 23.04.1992, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1992
Vélstjóri
Vélstjóri með fyllstu réttindi og mikla starfs-
reynslu óskar eftir atvinnu.
Upplýsingar í síma 671499.
Sölumanneskja
óskast til starfa hjá heildsölufyrirtæki nú
þegar. Enskukunnátta og reynsla af sölu-
mennsku áskilin. Starfið felst í kvöld- og
dagsölu.
Upplýsingar um aldur og fyrri störf sendist
auglýsingadeild Mbl. fyrir 27. apríl merktar:
„HÞÓ - 9673".
Atvinna í sumar
Okkur vantar starfsfólk vant snyrtingu og
pökkun í sumar.
Upplýsingar í síma 81200.
Fiskiðjuver
Höfn Hornafirði.
Sölumaður
Óskum eftir að ráða líflegan og metnaðarfull-
an sölumann á aldrinum 25-40 ára til starfa
í húsgagnaverslun í Reykjavík. Reynsla æski-
leg en þó ekki skilyrði.
Vinsamlega leggið umsóknir inn á auglýs-
ingadeild Mbl. merkt: „Sölustarf - 9841."
Kjötiðnaðarmenn
Óskum eftir að ráða kjötiðnaðarmann.
Sími 91-78866.
Atvinna - Vesturbær
Starfskraftur óskast hálfan eða allan daginn.
Lágmarksaldur 25 ára.
ífr
HRAÐI"
Fatahœinsun og pressun
Ægis/ðu 115
Matreiðslumaður
Nýlegt veitingahús á Snæfellsnesi óskar eft-
ir að ráða matreiðslumann til sumarstarfa.
Mikil vinna.
Svör, með upplýsingum um námsstað, sendist
auglýsingadeild Mbl. merkt: „M - 3456“.
Vélstjóra
Barngóð kona
óskast á heimili í Hlíðunum fyrir hádegi til
að gæta ungbarns og sinna léttum heimilis-
störfum.
Þær, sem áhuga hafa, vinsamlegast hafi
samband í síma 22940.
Olíubílstjóri
Olíufélag óskar að ráða meiraprófsbílstjóra
til starfa. Aðeins koma til greina reglusamir
og snyrtilegir einstaklingar með reynslu í
akstri stórra bifreiða. Aldursskilyrði 30-40
ára. Æskilegt að viðkomandi reyki ekki.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu okkar
til 30. apríl nk.
ft TDNT TÚNSSON
RÁÐCJÖF &RÁÐN1NCARÞJÓNUSTA
TIARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI 62 13 22
Hafnarsjóður
Þorlákshafnar
óskar að ráða hafnarstarfsmann. Starfið er
aðallega fólgið í almennri hafnarvörslu, vigt-
un og skráningu afla. Laun skv. launakerfi
opinberra starfsmanna.
Nánari upplýsingar gefur hafnarstjóri í síma
98-33769. Umsóknir berist fyrir 30. apríl.
Hafnarstjóri Þorlákshafnar,
Óseyrarbraut 2,
815 Þorlákshöfn.
Röntgentæknir
Röntgentækni vantar til starfa við Sjúkrahús
Keflavíkurlæknishéraðs frá 1. sept. nk. Um
er að ræða 80-100% vinnu með bakvöktum.
Á deildinni eru ný röntgentæki og ágæt
vinnuaðstaða og framkvæmdar eru um 4.000
skoðanir á ári.
Allar upplýsingar veita deildarröntgentæknir
eða undirritaður í síma 92-14000.
Framkvæmdastjóri.
með full réttindi vantar á skuttogara af minni
gerð. Umsóknir sendist auglýsingadeild
Mbl. merktar: „Vélstjóri - 9842".
Prentsmiður
Hefur þú áhuga á að vinna hjá traustu og
góðu fyrirtæki, sem sérhæft hefur sig í um-
búðagerð og hágæðaprentun?
Við hjá Kassagerð Reykjavíkur erum að leita
eftir samstarfsmanni í filmudeild.
Þú þarft að vera:
- Vandvirkur fagmaður
- Geta unnið í beinu sambandi við viðskipta-
vini Kassagerðarinnar
- Geta unnið undir álagi
- Geta unnið fjölbreytt verkefni
- Geta tileinkað þér nýja tækni
- Samstarfsgóður
Kassagerðin býður upp á góða vinnuað-
stöðu, gott samstarfsfólk og möguleika á
því að fylgjast með nýrri tækni.
Þeir, sem hafa áhuga á þessu starfi, sendi
skriflega umsókn til Óðins Rögnvaldssonar,
sem jafnframt veitir nánari upplýsingar í síma
38383 milli kl. 2 og 3 e.h. næstu daga.
KASSAGERÐ REYKJAVÍKUR HE
KLEPPSVEGI 33-105 REYKJAVlK - SlMI 38383
Áhugavert starf
Raftækja- og gjafavöruverslun í Reykjavík
óskar að ráða karl eða konu til starfa strax.
Um er að ræða hlutastarf. Viðkomandi þarf
að geta unnið sjálfstætt. Tölvu- og tungu-
málakunnátta æskileg.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um
menntun, aldur og fyrri störf, leggist inn á
auglýsingadeild Mbl. fyrir 27. apríl nk. merkt-
ar: „Ábyrgur - 7947".
Hálfsdags-
skrifstofustarf
Óskum eftir að ráða í tvö hálfsdagsstörf frá
kl. 9.00-13.00 og frá kl. 13.00-17.00.
Um er að ræða símavörslu og almenn skrif-
stofustörf miðsvæðis í Reykjavík. Verslunar-
menntun eða reynsla æskileg. Ekki sumar-
starf. Stundvísi og reglusemi áskilin.
Umsóknir skilist til auglýsingadeildar Mbl.
merktar: „M - 12950“ í síðasta lagi mánu-
daginn 27. apríl.
Öllum umsóknum svarað.
Aðalfundur
Aðalfundur UMF. Fjölnis verður haldinn í
Sjálfstæðissalnum í Hverafold 1-3 kl. 20.30
þriðjudaginn 28. apríl 1992.
Allir eru velkomnir.
Dagskrá venjuleg aðalfundarstörf.
Iðjufélagar
Umsóknarfrestur um orlofsaðstöðu félagsins
fyrir sumarið 1992 rennur út fimmtudaginn
30. apríl. Tekið er við umsóknum í síma
626620. í boði eru orlofshús að Svignask-
arði (tvær gerðir) og Flúðum. Einnig orlofs-
íbúðir á Akureyri.
Sjá nánar auglýsingu á vinnustöðunum.
Stjórn Iðju.
Aðalfundur
Sláturfélags Suðurlands
verður haldinn í starfsstöð félagsins á Hvols-
velli á morgun, föstudaginn 24. apríl, og
hefst kl. 14.00.
Stjórnin.