Morgunblaðið - 06.06.1992, Síða 2
«*
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1992
*
Eimskipafélag Islands hf.:
Hlutabréf skráð
á Yerðbréfaþingi
STJÓRN Eimskipafélags íslands hf. hefur ákyeðið að óska eftir skrán-
ingu hlutabréfa félagsins á Verðbréfaþingi íslands og hefst formleg
skráning bréfanna á Verðbréfaþinginu næstkomandi þriðjudag.
Hörður Sigurgestsson, forstjóri
Eimskips, segir að aukin viðskipti á
Verðbréfaþinginu styrki hlutabréfa-
markaðinn. Hörður sagði að búið
væri að gera margvíslegar breyting-
ar á reglum um Verðbréfaþingið og
laga þær að íslenskum aðstæðum og
raunveruleika. Ekki hefðu allir verið
sáttir við reglumar eins og þær voru
Kvótaúrskurður
ríkisskattanefndar:
Ríkisskatt-
stjóri vill að
leitað verði
til dómstóla
RÍKISSKATTSTJÓRI leggur til
að úrskurður ríkisskattanefndar i
fyrsta kvótamálinu verði borinn
undir dómstóla. Þetta kemur fram
en væru það núna eftir breytingam-
ar. Þær hafi m.a. miðast að því að
gera Verðbréfaþingið sjálfstæðara
og að skráð fyrirtæki fái fulltrúa í
stjóm þingsins. „Þetta breytir í sjálfu
sér ekki mjög miklu fyrir okkur.
Upplýsingastreymi frá félaginu
breytist ekki því við fullnægðum
þeim kröfum sem Verðbréfaþingið
hafði gert,“ sagði hann.
Eimskip er sjöunda hlutafélagið
sem skráð er hjá Verðbréfaþingi Is-
lands. Fyrir voru á skrá hlutabréf
Fjárfestingarfélags íslands hf., Olfu-
verslunar Islands hf., Auðlindar hf.,
Hlutabréfasjóðs VÍB hf., Hlutabréfa-
sjóðsins hf. og íslenska hlutabréfa-
sjóðsins hf.
í fréttatilkynningu frá stjóm
Verðbréfaþingsins segir að þetta
marki ákveðin tímamót í starfsemi
þingsins og sé afrakstur mikils starfs
sem unnið hafi verið á undanfömum
mánuðum til að endurbæta viðskipta-
hætti með hlutabréf.
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
Kristján Kristmannsson og Viktor Guðmundsson með nýheimta hafbeitarlaxa.
Hafbeitarlaxinn farinn að skila sér
Vogum.
FYRSTU laxarnir hafa skilað
sér til hafbeitarstöðvarinnar
Vogavikur í Vogum. Fyrsta
daginn komu 18 laxar á land.
Fyrstu laxamir sem heimtust
höfðu verið tvö ár í sjó en þeir
skila sér yfírleitt fyrr en lax sem
hefur verið eitt ár í sjó. Sesselja
Guðmundsdóttir stöðvarstjóri
Vogavíkur segir Hafrannsóknar-
stofnun hafa spáð góðu laxveiði-
sumri og segir allt benda til að
svo verði vegna góðra skilyrða í
sjónum. Aðspurð spáir Sesselja
að heimtur Vogavíkur í sumar
verði á milli 70 og 80 þúsund lax-
ar.
- E.G.
Atvinnuley sistryggingasj óður:
23 milljónír til atvinnuskap-
andi verkefna á Húsavík
Stjórn sjóðsins óskar nánari upplýsinga frá Akureyri og Hafnarfirði
STJÓRN Atvinnuleysistryggingasjóðs ákvað nú í vikunni að verða við
ósk Húsavíkurkaupstaðar um framlag úr sjóðnum til atvinnuskapandi
verkefna fyrir fólk, sem annars fengi atvinnuleysisbætur. Sjóðurinn
greiðir fullar bætur fyrir allt að 23 starfsmenn í tvo mánuði og greið-
ir bæjarsjóður. mismuninn á bótum og taxtalaunum. Akureyrarbær
sótti um svipaða fyrirgreiðslu, en sjóðurinn hefur óskað nánari upplýs-
inga, áður en afstaða verður tekin til þeirrar umsóknar. Sömu sögu er
að segja af umsókn, sem sjóðnum barst nýlega frá Hafnarfirði. Fleiri
sveitarfélög hafa ekki Ieitað til sjóðsins sömu erinda.
í áliti rikisskattstjóra til fjármála-
ráðherra sem ráðherra óskaði eft-
ir þegar úrskurður ríkisskatta-
nefndar Iá fyrir i síðasta mánuði.
Verði ákvörðun tekin um máls-
höfðun kann það að fresta gildi
úrskurðar ríkisskattanefndar þar
til dómur fellur, samkvæmt upp-
lýsingum Indriða Þorlákssonar,
skrifstofustjóra tekju- og laga-
skrifstofu fjármálaráðuneytisins.
„Niðurstaða rikisskattstjóra er sú
að eðlilegt sé að leitað verði til dóm-
stóla með málið og ég mun taka
málið upp á þeim grundvelli á ríkis-
stjómarfundi næstkomandi þriðju-
dag,“ segir Friðrik Sophusson íjár-
málaráðherra í samtali við Morgun-
blaðið.
í áliti rfkisskattstjóra kemur fram
að um mikla hagsmuni sé að tefla
fyrir marga aðila og því verði ekki
undir neinum kringumstæðum hægt
að búa við að málið verði látið liggja
í óvissu. Vitnar ríkisskattstjóri m.a.
til þess að álit Lagastofnunar Há-
skóla íslands og álit nefndar lög-
giltra endurskoðenda hafí á sínum
tíma staðfest skilning ríkisskatt-
stjóra á þessu umdeilda atriði skatta-
laganna.
Að sögn Indriða er hugsanlegt að
ef ákvörðun verður tekin um að bera
úrskurðinn undir dómstóla frestist
áhrif hans á meðan á dómsmeðferð
.stendur.
„Við erum mjög ánægðir og það
hlýtur að vera öllum til góða að sköp-
uð sé atvinna fyrir fólk, sem annars
væri á bótum," sagði Guðmundur
Níelsson, bæjarritari á Húsavík. „Það
er ekki farið að skipuleggja þessa
vinnu, en við sóttum um þetta fram-
lag vegna verkefna við gróðursetn-
ingu og þrif við höfnina. Bæjarráð
tekur nánari ákvörðun um tilhögun
starfsins á fundi sínum í næstu viku.“
Fullar atvinnuleysisbætur nema
nú um 46 þúsund krónum á mán-
uði. Guðmundur sagði að Húsavíkur-
kaupstaður þyrfti að greiða hátt í
30 þúsund krónur til viðbótar til
hvers starfsmanns, eða alls um 1,4
milljónir fyrir tveggja mánaða tíma-
bil. „Að meðtöldum ýmsum kostnaði
við verkefnin hér þarf bærinn liklega
að greiða alls um 2,5 til 3 milljónir,
en bæturnarnemaum2,2 milljónum.
Við hefðum ekki getað ráðist í þessi
verkefni án framlags sjóðsins."
Guðrún Magnúsdóttir hjá Vinnu-
miðlun Húsavíkur sagði að 71 hefði
verið á atvinnuleysisskrá í bænum
um síðustu mánaðamót. Hluti þess
hóps væri skólafólk og um 10-12
manns hefðu verið á skrá hluta mán-
aðarins vegna tímabundinnar lokun-
ar saumastofu. „Það er að rætast
úr þessu núna og við bindum miklar
vonir við þetta framlag," sagði Guð-
rún. „Það fólk, sem hefur verið lengst
á skrá hjá okkur, er nú að missa
bætumar og hefur ekkert að hverfa
að.“
Gunnar Rafn Sigurbjömsson, bæj-
arritari í Hafnarfírði, sagði að At-
vinnuleysistryggingasjóður hefði
óskað eftir nánari upplýsingum frá
bænum, til dæmis um hversu mörg-
um yrði hugsanlega útveguð vinna,
hvemig þeir yrðu valdir og úr hvaða
aldursflokkum þeir kæmu. „Við mun-
um bregðast skjótt við og senda
sjóðnum nánari útfærslu á hugmynd-
um okkar," sagði hann.
Um síðustu mánaðamót vom 247
manns á atvinnuleysisskrá í Hafnar-
firði, sem var nokkur fjölgun frá því
mánuði fyrr, þegar 220 voru á skrá.
Gunnar Rafn sagði fjölgunina meðal
annars skýrast af því, að nemar, sem
hefðu bótarétt, hefðu bæst við og
atvinnuleysi aukist nokkuð hjá
verkakonum.
------» ♦ «-----
Ræða umhverfis-
ráðherra í Ríó:
Vill aðg'erðir
gegn meng-
un í höfunum
EIÐUR Guðnason umhverfisráð-
herra flutti í gær ræðu á um-
hverfisráðstefnunni í Rió de Jan-
eiro og Iagði þar áherslu á að
gripið yrði sem fyrst til aðgerða
til að stemma stigu við mengun
í úthöfunum.
Umhverfisráðherra sagði að 70%
allrar mengunar í höfunum bærist
af landi og því þyrfti að hefjast
tafarlaust handa við alþjóðlegan
samning um að draga úr slíkri
mengun. Ennfremur bæri að stefna
að því að stöðva losun hættulegra
lífrænna efna í höfín fyrir aldamót
því sjávarlífríkinu stafaði mikil
hætta af slíkri mengun. Þá þyrfti
að leggja bann við losun geislavirks
úrgangs í höfín eigi síðar en árið
1998.
Ráðherrann kvaðst ennfremur
hlynntur því að efnt yrði til sér-
stakrar ráðstefnu á vegum Samein-
uðu þjóðanna um hvemig fram-
fylgja skyldi ákvæðum Hafréttar-
sáttmálans um flökkustofna.
Sjá fréttir á bls. 21.
Hálendisvegir víðast lokaðir:
Þyrlusveit í vegaeftirliti
HÁLENDISVEGIR eru víðast hvar lokaðir enn, og verða það um
hvítasunnuhelgina. Lögreglan beinir þeim tilmælum til fólks að
virða ákvarðanir Vegagerðar og Náttúruverndarráðs um lokanir,
en þyrla Landhelgisgæslunnar verður notuð við vegaeftirlit í
samvinnu við lögreglu. Jeppamenn í Ferðaklúbbnum 4x4 hafa
skoríð upp herör gegn ólöglegum akstrí jeppamanna um lokuð
svæði, og hafa þeir lýst yfír áhyggjum af umferð ferðamanna
sem komu hingað til lands á fimmtudag, í fyrstu ferð Norrænu
í sumar.
Magnús Einarsson, yfirlög-
regluþjónn hjá lögreglunni í
Reykjavík, sagði að fylgst yrði
með umferð ökutækja úr þyrl-
unni. Læknir verður um borð, og
ætlunin að gefa sérstakar gætur
þeim ökumönnum sem grunaðir
eru um ölvun, svo og þeim sem
aka innan- lokaðra svæða. Skorar
Magnús á ökumenn að virða við-
kvæma náttúru iandsins og fara
að öllu með gát.
„Ég hef áhyggjur af helginni
framundan. Við viljum vekja at-
hygli á því að hálendið er lokað
og ferðamenn eiga að virða það,“
sagði Ásgeir Þorvaldsson, stjóm-
armaður í Ferðaklúbbnum 4x4.
Hann kvað klúbbfélaga munu
ganga á undan með gott for-
dæmi, og fara ekki inn á lokuð
svæði.
Ásgeir kvaðst auk þess vera
órólegur gagnvart þeim mikla
Qölda bíla sem kæmi með Nor-
rænu til Seyðisfjarðar um helgina,
en að sögn Jónasar Hallgrímsson-
ar, framkvæmdastjóra Austfars,
umboðsaðila Norrænu á Seyðis-
firði, fá allir farþegar upplýsingar
um akstur og umferð. „I hvert
ökutækí sem kemur í land eru
afhentar upplýsingar um lokuð
svæði og varúðarreglur í akstri
um óbyggðir, og fyrirtækið ber
sjálft af því allan kostnað,“ sagði
Jónas. Um 350 farþegar og 140
ökutæki komu til landsins á
fimmtudag með Norrænu.
„Það er rétt að það hefur verið
afskaplega lítil kynning á um-
gengnisreglum fyrr en ferðafólk
kemur til landvarða," sagði Guð-
ríður Þorvarðardóttir, starfsmað-
ur Náttúruverndarráðs. „Kortið
sem sýnir lokuð svæði á hálendinu
hefur þó til dæmis verið sent með
símbréfi um borð í Norrænu og
sett þar upp.“ Hún kvað vissulega
vera misjafnan sauð í mörgu fé,
en útlendingar væru ekki endilega
verri í umgengni en Islendingar.
Þó bæri meira á skilningsleysi á
sérstöðu íslenskrar náttúru meðal
útlendinga, og því væri fræðsla
og kynning mikilvæg. „Þeir koma
sumir með allavega tól og tæki
hangandi utan á bílunum og halda
að þeir séu að fara í einhvern
torfæruakstur, en þetta bendir
auðvitað aðeins til skorts á
fræðslu," sagði Guðríður.
Sigurður Hauksson, vegaeftir-
litsmaður hjá Vegagerð ríkisins,
sagði að í næstu viku hillti undir
opnun austurhálendisins þótt enn
séu flestir vegir Iokaðir. Þó sé
opið inn í Vesturdal og Hólma-
tungur og um Hólssand niður að
Dettifossi.