Morgunblaðið - 06.06.1992, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1992
Fáein orð um
Fiskveiðasjóð
eftirHrein Loftsson
í umræðu þeirri serm staðið hef-
ur yfir á síðum Morgunblaðsins
undanfarna daga um eignarhald og
ráðstöfunarrétt rikisins á Fiskveiða-
sjóði hafa talsmenn sérhagsmun-
anna reynt að drepa henni á dreif
með undanbrögðum. Því er nauð-
synlegt að draga saman helstu efn-
isatriðin og mun ég leitast við að
gera það í þessari grein.
Upphaf málsins er að í viðtali
við viðskiptasíðu Morgunblaðsins
28. maí sl. gerði ég grein fyrir því
að útlit væri fyrir að ekki tækist
að ná þeim tekjum af sölu ríkis-
eigna sem að væri stefnt í fjárlög-
um. Upphaflega hefðu menn vonast
til að sala hlutabréfa í stærri ríkis-
fyrirtækjum gæti hafist undir lok
þessa árs en lagafrumvörp um
breytingu þeirra í hlutafélög hefðu
ekki náð fram að ganga. Ljóst
væri því að leita yrði annarra leiða.
Þær leiðir eru augljóslega ekki mjög
margar ef til vill ekki eins heppileg-
ar eins og upphaflegu hugmyndirn-
ar eins og t.d. hugmyndin um einka-
væðingu Búnaðarbankans.
í viðtalinu við Morgunblaðið kom
fram að viðraðar hefðu verið ýmsar
hugmyndir og þar á meðal sú að
ríkið nýtti sér eign sína á Fiskveiða-
sjóði með tilteknum hætti. Sjóður-
inn seldi eignarhlut sinn í íslands-
banka en andvirðið rynni í ríkissjóð.
Hér væri um að ræða sjóð með
sterka eiginfjárstöðu og enginn
vafi væri á eignarhaldi ríkissjóðs á
honum. Rökin eru m.a. þau að ekki
sé um að ræða afgerandi stóran
hluta af eiginfé sjóðsins (nafnverð
hlutabréfanna mun vera 276 millj-
ónir króna en eiginfé sjóðsins er
um 4 milljarðar króna) og líta megi
á sölu bréfanna sem síðasta lið í
einkavæðingu Útvegsbankans
gamla.
í allri þeirri umræðu sem síðan
hefur orðið í fjölmiðlum hef ég und-
irstrikað að hér sé einvörðungu um
hugmynd að ræða, engin ákvörðun
hafi verið tekin og að ríkisstjórnin
og Alþingi hafi síðasta orðið í þessu
efni. Viðbrögðin við þessari hug-
mynd hafa verið athyglisverð og
margt komið fram sem ég tel að
gott hafi verið að fá upp á yfírborð-
ið.
Þannig hefur Kristján Ragnars-
son, framkvæmdastjóri LÍÚ, haldið
því fram að „sjávarútvegurinn" eigi
sjóðinn, en ekki ríkið þótt annað
segi í lögum. Hefur hann sagt að
eignarhald sjávarútvegsins stafi af
því að hann hafi myndað sjóðinn
með skattgreiðslum. Raunar hefur
hann sagt að hugmyndin sé „fleip-
ur“ sem Alþingi muni aldrei sam-
þykkja. Þá hefur Kristján haldið því
fram að framkvæmd hugmyndar-
innar muni hleypa erlendum lánum
sjóðsins í uppnám. Sjóðurinn njóti
ekki ríkisábyrgðar og lánakjör er-
lendis hvíli á sterkri eiginfjárstöðu
sjóðsins. Hann hefur gengið svo
langt að tala um eignarnám í þessu
sambandi, þ.e. ef ríkið gerði upp-
tækar eigur sjóðsins.
Þessum röksemdum hefí ég svar-
að með eftirgreindum hætti. Ríkis-
stjóm og Alþingi hafa ákvörðunar-
valdið í málinu en ekki hagsmuna-
aðildar á borð við Kristján Ragnars-
son. Hann getur því ekki tekið að
sér að segja fyrir um afgreiðslu
Alþingis át málinu. Ég hef bent á
að enginn vafi geti leikið á um eign-
arhald ríkissjóðs á Fiskveiðasjóði
þar sem í lögunum um sjóðinn er
kveðið skýrt á um það. Ég hef vís-
að í lögfræðilega greinargerð þar
sem þessi niðurstaða var staðfest.
Ég hef og vísað til þess að sjóður-
inn njóti skattleysis vegna þess að
hann er ríkiseign og að hann hefur
verið byggður upp bæði af skatt-
greiðslum af atvinnugreininni og
af beinum fjárgreiðslum úr ríkis-
sjóði. Skattpeningar geti ekki runn-
ið til annarra en ríkisins eða stofn-
ana þess. Eini aðilinn sem hefur
ráðstöfunarrétt á sjóðnum er Al-
þingi vegna þess að það hefur sett
lög um sjóðinn. Menn í þjónustu
ríkisins, hvort sem þeir eru yfir-
menn eða undirmenn, verða auðvit-
að að hafa styrk til þess að standa
vörð um eignir ríkisins gagnvart
talsmönnum sérhagsmunanna. I
þessu viðfangi er það auðvelt vegna
þess að rétturinn er augsýnilega
ekki þeirra megn. Loks hef ég bent
á að á erlendum lánamörkuðum
njóti Fiskveiðasjóður góðs af því
að vera talinn eigin ríkissjóðs þótt
hann hafi ekki beina ríkisábyrgð á
skuldbindingum sínum. Þetta stafar
af því að erlendis er að talið nægi-
legt fyrir markaðinn hver sé eigand-
inn þegar í harðbakkann slær (á
ensku „owner in the last resort“).
í þessu efni skiptir því sterk eiginfj-
árstaða Fiskveiðasjóðs ekki eins
miklu máli og sú staðreynd að sjóð-
urinn er talinn eign ríkisins. Vita-
skuld er þá ekki verið að segja að
sterk eiginfjárstaða skipti engu
máli enda hefur því ekki verið hald-
ið fram.
Talsmenn sérhagsmunanna hafa
snúið út úr þeim ummælum mínum
að sú aðgerð sem ég lagði til stað-
festi eignarhald ríkisins á sjóðnum
og geti því ekki valdið uppnámi hjá
erlendum lánardrottnum. Segja þeir
fráleitt að halda því fram að sjóður-
inn styrkist við það að eignir hans
séu teknar eingarnámi. En ég hef
aftur bent á að það sé fráleitt að
halda því fram að ríkið taki eign-
arnámi verðmæti sem það þegar
á. Hér sé aðeins um það að ræða
að þar til yfírvöld taki ákvörðun
um að nýta eign ríkisins með til-
teknum hætti. Ekki sé um að ræða
það stóran hluta af eignum sjóðsins
LISTAHÁTÍÐ í REYKJAVÍK:
Dagskráin í dag
Háskólabíó: Tónleikar píanó-
leikarans Shura Cherkassky kl.
14.30.
fþróttasalur Kennaraháskól-
ans: Leikhúsið Artibus frá Dan-
mörku sýnir Apann, kl. 15.
Norræna húsið: Frumsýning á
Bandamannasögu, kl. 17. Auk
þess stendur þar yfir sýning á
dönskum skartgripum og leirlist
og sýning á myndverkum Hjör-
leifs Sigurðssonar.
Ásmundarsalur: Arkitektar sem
hönnuðir, sýning.
Listasafn ASÍ: Sýning á grafík-
verkum Björns Brusewitz.
Nýhöfn: Sýning á verkum Krist-
jáns Davíðssonar.
Hótel Borg: Fritjof Fomlesen
kl. 18.
Þjóðleikhúsið: Draumleikur kl.
20.
Þjóðleikhúsið, litla sviðið:
Kæra Jelena, kl. 20.30.
Þjóðleikhúsið, Smíðaverk-
stæðið: Ég heiti ísbjörg Ég er
ljón, kl. 20.30.
Borgarleikhús, stóra sviðið:
Þrúgur reiðinnar kl. 20.
Borgarleikhús, litla sviðið:
Harnlet kl. 20.
Klúbbur Listahátíðar, Hressó,
klukkan 22: Björn Thoroddsen
leikur á gítar, Þórður Högnason
á bassa og Pétur Grétarsson á
trommur.
Hreinn Loftsson
„En ég hef aftur bent á
að það sé fráleitt að
halda því fram að ríkið
taki eignarnámi verð-
mæti sem það þegar á.
Hér sé aðeins um það
að ræða að þar til yfir-
völd taki ákvörðun um
að nýta eign ríkisins
með tilteknum hætti.
Ekki sé um að ræða það
stóran hluta af eignum
sjóðsins að það skipti
sköpum fyrir stöðu
hans.“
Sundahöfn
Sæbraut
FLUTT
að það skipti sköpum fyrir stöðu
hans.
Auk framangreinds hefur komið
fram í umræðunni að Fiskveiðasjóð-
ur sem eigandi tiltölulega stórs
hluta í íslandsbanka hafi haft
stjórnarmann í bankanum. Fisk-
veiðasjóður virðist hafa liðkað til
fyrir hlutaljárkaupum LÍÚ á þeim
aukningarhlutum sem sjóðurinn átti
rétt á í hlutafjáraukningu í bankan-
um á liðnum vetri eftir að í ljós kom
að Fiskveiðasjóð skorti lagaheimild
til að kaupa þau bréf sjálfur. Við
skulum láta réttmæti þeirrar til-
hliðrunarsemi liggja á milli hluta.
Ég hef hins vegar bent á að óeðli-
legt sé að Fiskveiðasjóður eigi svo
stóran hluta í bankanum því það
geti skapað hættu á hagsmunaá-
rekstrum þegar hagsmunir banka
í einkaeigu og sjóðs í ríkiseign fara
ekki saman.
Höfundur er aðstoðarmaður
forsætisráðherra.
ISUMARBÚSTAÐAÍ
EIGENDUR H
G0TTÚRVAL
Efna til vatns og
hitalagna, úr járni
eir eða plasti.
Einnig rotþrœr o.m.fl.
Hreinlœtistœki, stálvaskar
og sturtuklefar.
Vðflduð vara sem endist
SM VATNSVIRKINN HF.
Tr. ARMULA 21 SIMAR 6S645S - 685966
FAX 91-687748
IOJJUU
X=J
BESTU KAUPIN
í STEIKUM
LAMBAGRILLSTEIK
m/bakaðri kartöflu, kryddsmjöri og hrásalati
ki1* 790 **
NAUTAGRILLSTEIK m/sama
kr.790,-
SVÍNAGRILLSTEIK m/sama
kr. 760,-
Fyrir krakkana:
BARNABOXIN
vinsælu m/hamborgara, frönskum og kók, auk
blöóru og sælgætis
kr. 480,-