Morgunblaðið - 06.06.1992, Side 26

Morgunblaðið - 06.06.1992, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1992 Ráðstefna um atvinnusköp- un kvenna „AÐ TAKA málin í eigin hendur,“ er yfirskrift ráðstefnu um at- vinnusköpun kvenna, sem haldin verður í Alþýðuhúsinu á Akureyri 19. og 20. júní næstkomandi. Ráð- stefnan er öllum opin og er mark- mið hennar að skapa tengsl milli kvenna í atvinnusköpun og vera vettvangur til að virkja þá vakn- ingu sem um þessar mundir er meðal kvenna hvað varðar atvinn- usköpun. Á ráðstefnunni verður aðaláhersl- an lögð á atvinnuskpöpun í víðri merkingu, þ.e. þátt kvenna í atvinnu- sköpun fyrir sig og aðra, en þetta er þriðja ráðstefnan sem haldin er um þetta efni, sú fyrsta var á ísafirði í oktober sl. og á Norðurlandi vestra í mars, en næsta skref verður Vest- norræn ráðstefna um atvinnumál kvenna sem haldin verður á Egils- stöðum í ágúst, með þáttöku græn- lenskra, færeyskra og íslenskra kvenna. Tvö aðalerindi ráðstefnunnar flytja þær Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir og Stefanía Traustadóttir, en auk þess flytja gestir fréttir frá öðrum landshlutum hvað þessi málefni varð- ar. Unnið verður að mótun stefnu ýmissa þátta er lúta að atvinnusköp- un kvenna og þá verður haldið mark- aðstorg þar sem konur kynna vörur sínar.þjónustu og aðgerðir sem unnið er að. (f'r fréttatilkynningu) ----♦ ■■♦.♦-- Fjölnismenn: Óskað eftir gjaldþrota- skiptum LÖGÐ hefur verið fram beiðni hjá bæjarfógetaembættinu á Akur- eyri um að byggingarfyrirtækið Fjölnismenn hf. verði tekið til gjaldþrotaskipta. Fyrirtækið er með nokkur stór verkefni m.a. fyrir Akureyrarbæ, raðhúsíbúðir við Huldugil og fjölbýl- ishús við Vestursíðu auk þess sem Fjölnismenn eru a_ð byggja þriðja áfanga Síðuskóla. Á milli 20 og 25 manns starfa hjá fyrirtækinu. Mikið tjón varð er eldur kom upp í húsnæði Verkvals í Hafnarstræti 19 um miðjan dag í gær. Mikið tjón í eldsvoða - margir töldu að hálfur bærinn væri að brenna Morgunblaðið/Rúnar Þór ELDUR kom upp er verið var að vinna með logsuðutæki í húsinu númer 19 við Hafnar- stræti um þijúleytið í gær. Mikinn reyk lagði frá húsinu og allt inn í miðbæ Akureyrar. Gísli Kristinn Lórenzson slökkviliðsstjóri sagði að aðkom- an hefði verið ljót, reykurinn hefði verið slíkur að margur hefði haldið að hálfur bærinn væri að brenna. Við Hafnarstræti 19 eru tvö sambyggð hús, í framhúsinu er starfrækt heildsala Þ. Björgúlfs- sonar, en eldurinn kom upp í húsinu sem snýr að Aðalstræti. Þar hefur verktakafyrirtækið Verkval aðstöðu og var verið að vinna með logsuðutæki þar inni er eldurinn kom upp. Starfsmenn beggja fyrirtæka voru fljótir að koma sér út úr húsinu og varð engum meint af. Slökkvistarf gekk vel, að sögn Gísla Kristins, en mikinn reyk má rekja til þess að innan dyra var mikið gúmmí, olía og gamall reiðingur sem gefur frá sér mik- inn reyk. Vakt var á brunastað til 21 í gærkvöldi, en að henni lokinni lifnaði glóð í einangrun og var fljótlega slökkt í henni. Ekki er ljóst hversu mikið tjón hefúr orðið í eldinum, en Gísli Kristinn sagði að það væri mikið, innandyra hefðu verið vinnuvélar og bifreiðar auk ýmissa tækja. Messuhald um helgina HátíðarguðsþjónusLa verður í Fjórðungssjúkrahúsinu á hvíta- sunnudag kl. 10 f.h. Prestur verð- ur sr. Þórhallur Höskuldsson. Þá verður hátíðarguðsþjónusta í Akureyrarkirkju kl. 11 f.h. sem sr. Birgir Snæbjörnsson og sr. Þórhallur Höskuldsson annast. Kór Glerárkirkju syngur, og organisti verður Jóhann Baldvins- son. Eru eldri sem yngri ferming- arbörn hvött til þátttöku. Hátíðarguðsþjónusta verður á hjúkrunardeild aldraðra, Seli 1, á hvítasunnudag kl. 2 e.h. Hátíðar- guðsþjónusta verður á Dvalarheim- ilinu Hlíð á hvítasunnudag kl. 4 e.h. Kór Glerárkirkju syngur. Organisti Jóhann Baldvinsson. Sr. Birgir Snæ- björnsson. Fermingarguðsþjónusta verður í Miðgarðakirkju í Grímsey á annan hvítasunnudag kl. 11. f.h. Fermd verða: Anna Dóra Heiðarsdóttir, Nýja Sjálandi, Hólmfríður Selma Haraldsdóttir, Borgum, Ólafur Ólafs- son, Ártúni. Sr. Þórhallur Höskulds- son. ♦ ♦ ♦ Innritun er hafin í Sum- arskólann INNRITUN í Sumarskólann, sem Örn Ingi Gíslason stendur fyrir á Akureyri í sumar, stendur nú yfir og eru enn nokkur pláss laus. Skólinn ber yfiskriftina, Listir, líf og leikir og er ætlaður börnum á aldrinum 10 til 14 ára. Kennarar verða Ásta Arnardóttir, leikari og leiðbeinandi hjá Kramhús- inu, sem sér um leiklistina, Öm Ingi sér um myndlist og Anna Richards um dans, en matargerðarmeistarar sjá um matargerðarlist. Þegar hafa skráð sig í skólann nemendur víða af landinu og sagði Örn Ingi að mikilvægt væri að vel tækist til í fyrsta sinn. Aðkomunem- endur munu gista í Glerárskóla og þar verður kennd myndlist og mat- argerðarlist og í íþróttaskemmunni verður leiklistin og dansinn en þar verður einnig efnt til lokahófs og sýningar. Útvegsmenn Norðurlandi Útvegsmannafélag Norðurlands boðar til áríðandi fundar miðvikudaginn 10. júní kl. 14.00 á Hótel KEA. Stjórnin. Endurvinnsla Úrbótamenn hf. auglýsa eftir framkvæmda- stjóra fyrir endurvinnslufyrirtæki, sem er að fara af stað á Akureyri. Leitað er að manni með góða þekkingu á rekstri og markaðsmálum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir, er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf, sendist til Úrbótamanna hf., Bæjarsíðu 5, 603 Akureyri, fyrir 15. júní. Upplýsingar í síma 96-26776. Öxnadalur: Morgunblaðið/Rúnar Þór Hjónin Þórunn Aðalsteinsdóttir og Harald Jespersen hafa opnað gistiheimili að Engimýri í Öxnadal. Gistiheimilið Engimýri í Öxnadal verður formlega opnað í dag, laug- ardag. Hjónin Þórunn Aðalsteinsdóttir og Harald Jespersen reka gisti- heimilið, en þau hófu á síðasta ári að byggja hús yfir starfsemina. Þórunn og Harald hættu kúabúskap og hafa nú snúið sér að ferðaþjón- ustu og hrossabuskap. Á gistiheimilinu eru fjögur tveggja manna herbergi, tvö eins manns her- bergi og eitt stórt herbergi sem hent- að gæti fjölskyldu. Dvalargestir geta keypt fullt fæði á gistiheimilinu og eins geta þeir sem leið eiga um og vilja drekka kaffi upp á gamla mát- ann eða snæða heimilismat með fjöl- skyldunni komið við í Engimýri, sem er fremsti bær í Öxnadal. Þórunn og Harald eiga 60 til 70- hross og verða þau með hestaleigu á staðnum, þar getur fólk valið um klukkutímaferðir, dagsferðir eða enn lengri ferðir ef um hóp er að ræða, eða allt eftir því hvað menn kjósa. Fjölmargar góðar leiðir eru í ná- grenni bæjarins, að sögn Þórunnar, sem fólk getur einnig nýtt sér til gönguferða. Skammt er að fara að Hraunsvatni þar sem hægt er að renna fyrir silung. Þó svo gistiheimilið verði formlega opnað í dag hafa tveir gestjr dvalið þar síðustu daga, þýskar konur sem þó eru ekki í samfloti. Önnur er eldri kennslukona sem langaði að læra að sitja hest og hin hreyfst svo af mynd- aflokknum um Nonna og Manna og íslensku hestunum sem þar komu fram, að hún brá sér á heimaslóðir þeirra og fer daglega á hestbak.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.