Morgunblaðið - 07.06.1992, Page 26

Morgunblaðið - 07.06.1992, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1992 t , Faðir okkar, VILHELM STEINSEN fyrrv. bankafulltrúi, lést á Hrafnistu í Reykjavík að morgni 4. júní. Garðar Steinsen, Örn Steinsen. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTJÁN ÁSGEIRSSON frá Bfldudal, Háengi 4, Selfossi, andaðist á heimili sínu föstudaginn 5. júní. Guðrún Kristjánsdóttir, Rikharður Kristjánsson, Björk Kristjánsdóttir, Vfðir Kristjánsson, Sigurleifur Kristjánsson, Guðmundur Þ. Ásgeirsson, Ida Sveinsdóttir, Diðrik Ólafsson, Aðalbjörg Helgadóttir, Þórunn Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. t Ástkær eiginmaöur minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, VILHJÁLMUR HJÁLMARSSON, Heiðargerði 80, andaðist í Borgarspítalanum föstudaginn 5. júní. Guðrún Fjóla Björgvinsdóttir, Ellý Vilhjálmsdóttir, Sigurður Þorgeirsson, Rósmarý Vilhjálmsdóttir, Þórir Sveinbjörnsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, ELNA GUÐJÓNSSON, Hátúni 4, sem lést 28. maí, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtudag- inn 11. júní kl. 15.00. Björg Bjarnadóttir, Kristján Þórðarson, Bjarni Kristjánsson, Elna Kristjánsdóttir, Guðmundur Möller og barnabarnabörn. t Útför föður okkar, tengdaföður og afa, KRISTJÓNS Þ. ÍSAKSSONAR prerrtara, Beykihlfð 21, Reykjavfk, fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 9.júní kl. 15.00. Þórunn Kristjónsdóttir, Bjarni Ingólfsson, Olgeir Kristjónsson, Rut Þorsteinsdóttir, og barnabörn. t Hjartkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRÐUR GUÐMUNDSSON, Vfðigrund 25, Kópavogi, sem andaðist í Borgarspftalanum hinn 30. maí sl., verður jarð- sunginn frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 10. júní nk. kl. 13.30. Dagmar Clausen, Guðmundur Þórðarson, Margrét Linda Þórisdóttir, Þórður Þórðarson, Unda Leifsdóttir, Anna María Þórðardóttir, Ragnar Jóhann Jónsson, barnabörn og barnabarnabarn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengafaðir, afi og langafi MARÍS KRISTINN ARASON, Einholti 9, Reykjavfk, sem lést í Landspítalanum hinn 31 maí sl. verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 10. júní kl. 13.30. Guðrún Guðbjartsdóttir, Elsa Marfsdóttir, Gunnar Tómasson, Magnús Marísson, Sfgrfður Sigurðardóttir, Björg Marísdóttir, Jónas Marteinsson, Hildur Marfsdóttir, Þorvarður Óskarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Fjóla Sigmjóns- dóttir - Minning Fædd 28. júlí 1917 Dáin 30. maí 1992 Mig langar til að minnast elsku vinkonu minar og fóstru, Fjólu Sig- uijónsdóttur, sem andaðist 30. maí sl. eftir langvarandi veikindi. Hinn 4. janúar sl. voru 49 ár síð- an Fjóla mín hélt á mér nýfæddri en hún bjó þá hjá foreldrum mínum og aðstoðaði lækninn og ljósmóður- ina þennan kalda vetrarmorgun. Síðan hefur hún verið vakin og sof- in í umhyggju sinni fyrir mér og minni fjölskyldu. Fjóla fæddist 28. júlí 1917 á Sig- ríðarstöðum í Haganeshreppi í Skagafirði. Foreldrar hennar voru sæmdarhjónin Sigurlaug Jóhanns- dóttir húsfreyja og Siguijón Bjöms- son skipstjóri. Ung fluttist hún með ijölskyldu sinni til Siglufjarðar. Þar ólst hún upp ásamt systkinum sín- um. Þau eru Herdís, búsett á Sauð- árkróki, Sævaidur, búsettur í ReykjaVÍkur, Hermína, búsett í Flórída, Eva, sem er látin, Ester, búsett í Reykjavík, Alfa búsett í Svíþjóð og Geir búsettur á Siglu- firði. Einnig átti hún bróður sem dó ungur. Foreldrar mínir voru svo lánsam- ir að fá Fjólu á heimilið og varð mikill vinskapur með þeim. Hinn 29. janúar 1946 giftist hún frænda mínum, Olafí Guðmundssyni, og fluttust þau ári síðar til Stykkis- hólms og bjuggu þar í 30 ár. Þeim leið einkar vel í Hólminum og eign- uðust þar trygga vini. Það atvikaðist þannig á heimili mínu að mamma veiktist eitt sumar og var ég send í Hólminn til Fjólu og Óla. Síðan átti ég þar vísa sum- ardvöl og hlakkaði alltaf til að fara vestur og dveljast hjá þeim. Við fórum mikið í útilegu en þau voru bæði áhugasöm að ganga á fjöll og kynnast landinu. Fjóla var alltaf tilbúin með viðlegubúnaðinn á há- deginu á laugardögum og síðan var lagt af stað upp í sveitina og tjald- að og gengið á fjöllin í nágrenni tjaldstæðisins. Fjóla var létt á fæti, eins og_ hind upp um fjöll, en oft þurfti Óli að taka borgarbarnið á háhest. Þetta voru ævintýraferðir fyrir mig. Margar veiðiferðir fór ég með þeim upp í vötnin á Snæfellsnesi, í Blankinn, vestur í Djúpadalsá og í Miðfjarðará. Mig minnir að Fjóla hafí alltaf veitt mest og þökkuðum við rauðu húfunni fengsæld hennar. Eftir að ég gekk í hjónaband tókst mikill vinskapur með okkur hjónunum og ófáar ferðir fórum við í Hóiminn og nutum þess að vera með þeim Fjólu og Óla. Þegar við hjónin eignuðumst okkar böm og þau uxu úr grasi áttu þau alltaf athvarf hjá Fjólu og með þeim og henni var mikil væntumþykja. Fjóla var mikil húsmóðir og hafði gaman af að búa til góðan mat og nutum við þess að vera boðin til hennar. Það var mikil gleði hjá okkur þegar Fjóla og Óli fluttust til Reykjavíkur og síðan á Seltjamarnes í næsta nágrenni við okkur. Fjólu leið vel hér á Nesinu og fóru þau hjónin á hveijum degi í gönguferðir og komu alltaf við hjá okkur til að vita hvemig við hefðum það. Kveðjuorð: Anton S, Fæddur 3. maí 1931 Dáinn 21. maí 1992 Að kvöldi 21. maí lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á ísafírði hann Toni afí minn, sem mig langar að minnast með nokkrum orðum. Afi ólst upp á Hauganesi á Ár- skógsströnd, sonur hjónanna Óla Traustasonar og Önnu Ámadóttur sem nú eru látin. Þau eignuðust fimm börn og var afí annar í röðinni. Mjög ungur hóf hann ýmis störf sem tengdust sjónum, fyrst að beita línu en síðan við útgerð föður síns eða þar til hann fluttist vestur í Hnífsdal þar sem hann bjó lengst. Frá Hnífsdal gerði hann út sinn eigin bát. Síðan starfaði hann við ýmis verkamannastörf en alltaf tog- aði sjómennskan í hann aftur. 2ð. maí 1953 gekk hann að eiga ömmu mína, Þórunni Vernharðs- dóttur, f. 25. janúar 1931, en þau slitu samvistir 1978. Eignuðust þau §ögur böm; Selmu, f. 10. janúar 1953, Halldór, f. 26. júní 1954, t Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar föður, fósturföður okkar, tengdaföður, afa og langafa, PÁLS ÞÓRÐARSONAR, áður til heimils í Munkaþverárstræti 8, Akureyri, dvalarheimilinu Hlíð, Guðjón Pálsson, Sígríður Jónsdóttir, Margret Sturlaugsdóttir, Geir Guðgeirsson, Guðný Jónsdóttir, Páll Kristjánsson, Kristín Hannesdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Fjóla mín veiktist fyrir tæpum þremur ámm. Hún kvartaði aldrei og var alltaf bjartsýn. Óli annaðist hana heima af einstakri natni og umhyggju og síðustu mánuði kom dásamlegt hjúkmnarfólk kvölds og morgna honum til aðstoðar. Óli vildi hafa hana heima eins lengi og tök vom á. Nú þegar góður Guð hefur kallað Fjólu mína til sín þakka ég henni samveruna og veit að ég mæli fyrir munn eiginmanns míns og bama okkar, sem öli elskuðu og virtu þessa dásamlegu konu. Fari hún í friði og blessuð sé minning hennar. Kristín Bernhöft. * Olason Önnu Maríu, f. 14. mars 1959, og Óla Vernharð, f. 21. janúar 1962, og eru bamabörnin orðin ellefu og eitt barnabamabam. Þegar heilsan fór að bila flutti afí á Elliheimilið á ísafírði, þar sem ég Starfaði. Þar bjó hann síðustu átta mánuðina. Þá kynntist ég afa betur, sem mér fannst einkar hæg- látur og hlédrægur maður sem ekki bar tilfínningar sínar á torg. Þá sat hann með mér frameftir á nætur- vöktum og horfði með mér á sjón- varpið, þá var eins og samveran skipti miklu meira máli en orð og þá sýndi það mér að alltaf þegar ég kom í heimsókn eða hann að samveran var aðalatriðið. Nú að leiðarlokum vil ég þakka afa fyrir samveruna og bjart er yfir minningu hans í huga mínum. Þó ég sé látinn, harmið mig ekki með tár- um. Hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta; ég er svo nærri að hvert eitt tár snertir mig og kvelur þótt látinn mig hald- ið. En þegar þið hlæið og syngið með glöð- um hug, sál mín lyftist upp í mót til ljóss- ins: Verið glöð og þakklát fyrir allt sem líf- ið gefur, og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu. (Óþekktur höf.) Sara Halldórsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.