Morgunblaðið - 23.06.1992, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1992
21
Ólympíuskákmótið í Manila:
*
Islendingar í 7.-10. sæti fyr-
ir síðustu umferð mótsins
Fengu 3 vinninga í viðureigninni við Rúmena í 13. umferð í gær
MIKILL fögnuður ríkti í herbúðum íslensku skáksveitarinnar eftir
viðureig-nina við Rúmena í 13. umferð skákmótsins í Manila í gær
en íslensku skákmennirnir bættu við sig 3 vinningum í gær og eru
í 7.-10. sæti á mótinu þegar lokaumferðin hefst á morgun. Hannes
Hlífar Stefánsson og Jón L. Arnason unnu sínar skákir gegn Istrat-
escu og Ionescu en skákir Jóhanns Hjartarsonar og Margeirs Péturs-
sonar enduðu með jafntefli.
íslenska sveitin tefldi gegn Rúss-
um í 11. umferð á laugardag og
náðu 1 1/2- vinningi gegn 2 1/2
vinningi Rússa. Jóhann Hjartarson
sá aldrei til sólar í viðureigninni
gegn heimsmeistaranum Kasparov
og tapaði en skákum Margeirs og
Khalifmans, Helga og Kramniks og
Jóns L. og Vyzmanavin lauk öllum
með jafntefli. Er árangur Helga
talsvert afrek þar sem Kramnik,
sem virðist vera nýjasta stjarnan á
skákhimninum, hefur þegar fengið
8 1/2 vinning úr 9 skákum á mót-
inu. Helgi hafði lengst af heldur
lakara tafl, en var aldrei í verulegri
taphættu.
íslenska sveitin náði 11/2 vinn-
ingi gegn 2 1/2 vinningi Þjóðveija
í 12. umferð skákmótsins og ollu
þau úrslit Islendingunum nokkrum
vonbrigðum en þeir ætluðu sér sig-
ur gegn Þjóðverjum enda þótt Þjóð-
veijarnir séu með sterkara lið á
pappírnum. Úrslitin urðu þau að
Jóhann og Lobron gerðu jafntefli,
Hertneck vann Helga og Jón L. og
Hort og Hannes og Lutz gerðu jafn-
tefli. íslenska sveitin lagði upp með
þá hernaðaráætlun í viðureigninni
við Þjóðveija að reyna fyrst og
fremst að ná fram sigri með hvítu
LISTAHATIÐIN
LOFTÁRÁSÁ
SEYÐISFJÖRÐ:
Dagskráin í dag
Gallerí Ingólfsstræti
Gunnar Kvaran flytur Sellós-
vítu nr. 1 í G-dúr eftir J.S.
Bach. Sigríður Elliðadóttir
söngkona og Vilhelmína Ólafs-
dóttir píanóleikari flytja lög
eftir Óskar Guðmundsson,
blökkumannasálma og aríu eft-
ir Rossini, Bizet og Bellini.
Guðrún S. Birgisdóttir,
Martial Nardeau og Anna
Guðný Guðmundsdóttir leika
kammertónlist. Tónleikarnir
hefjast kl. 20.30.
Jón Stefánsson, Þórarinn
Torfason, Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson og Torfi Ólafsson
flytja ljóð.
mönnunum en tefla gætilega með
svörtu. Þetta gekk vel framanaf og
drógu Jóhann og Jón L. vígtennurn-
ar úr sínum andstæðingum og náðu
hálfum vinningi fyrirhafnarlítið. Á
hinum borðunum höfðu íslending-
arnir betri stöður. Skák Helga og
Hertnecks var þó mjög flókin og
staðan viðkvæm. Náði andstæðing-
urinn hættulegri kóngssókn á mikil-
vægu augnabliki þegar Helgi lék
af sér og náði síðan að skipta upp
í unnið endatafl.
Hannes tefldi lengi vel af sama
öryggi og í fyrri skákum og allt
stefndi í sigur hans en Þjóðveijarn-
ir voru sjálfir búnir að afskrifa
Lutz. Ef til vill hefur reynsluleysi
Hannesar háð honum þegar hér var
komið og hann flýtt sér um of.
Ollu þessi úrslit verulegum von-
brigðum að sögn Áskels Kárasonar,
fararstjóra liðsins, og eru í raun
fyrstu slæmu úrslitin í öllu mótinu
fyrir íslendingana en eftir 12 um-
ferðir hafði íslenska sveitin teflt við
7 af 8 sterkustu sveitum mótsins.
Því var ljóst að íslenska sveitin yrði
að ná mjög góðum úrslitum í loka-
umferðunum til að eiga von um að
bæta besta árangur Islendinga til
þessa, sem var 5. sæti á Ólympíu-
skákmótinu í Dubai árið 1986.
Af öðrum úrslitum í 12. umferð
má nefna að Rússland vann Bosníu
3-1, Uzbekistan vann Armeníu 2
1/2- 1 1/2, lettneska sveitin vann
bandarísku sveitina 2 1/2-1 1/2,
sveit Georgiu vann Ungveijaland 2
1/2-1 1/2, Indland vann England 2
1/2-1 1/2 og Israel vann Moldóvu
með 3 1/2 vinningi gegn 1/2.
í 13. umferð sem tefld var í gær
náðist hins vegar góður árangur
íslensku skákamannanna en ís-
lenska sveitin náði 3 vinningum
gegn 1 vinningi rúmensku sveitar-
innar. Var baráttan geysilega hörð
í þessari viðureign. Jóhann hafði
hvítt gegn Suba á 1. borði og end-
aði skákin með jafntefli. Margeir
og Marin gerðu einnig jafntefli en
Jón L. vann Ionescu og Hannes
vann Istratescu.
Voru skákir Jóhanns og Margeirs
báðar afar flóknar og tvísýnar. Jó-
hann hafði þijú peð gegn hrók Suba
í lokastöðunni, efr neyddist til að
þráskáka vegna stórhættulegra
^ _______
Olafur Thors og land-
helgismálið í Stefni
STEFNIR, tímarit um stjórnmál
og menningu, er komið út og er
það 1. tölublað 43. árgangs.
Helsta efni blaðsins er grein
Davíðs Ólafssonar, fyrrv. Seðla-
bankastjóra, og ber hún heitið
Landauðn eða landhelgi og fjall-
ar um Ólaf Thors og landhelgis-
málið.
Meðal annars efnis í blaðinu má
nefna grein eftir Davíð Oddsson,
forsætisráðherra, sem nefnist Ný
viðhorf í utanríkismálum og Björn
Bjarnason, alþingismaður ritar um
hrun Sovétríkjanna og áhrif þess á
íslensk stjómmál. í grein Ólafs G.
Einarsson, menntamálaráðherra,
fjallar hann um menntun og menn-
ingu sem lykil að velferð og fram-
förum. ólafur segir í greininni, að
hann hafi verið þeirra skoðunar að
skynsamlegt sé að skipta mennta-
málaráðuneytinu í tvennt, ráðuneyti
menntamála og menningarmála.
hótana Subas. Margeir þræddi ein-
stigið í erfiðri skák gegn Marin og
virtist ná betri stöðu um síðir en
þá náði Rúmeninn að þvinga fram
jafntefli.
Istratescu tefldi stíft til jafnteflis
í viðureigninni við Hannes sem
tókst með seiglunni að ná fram
vinningi úr þröngri stöðu. Er sigur
Hannesar mjög mikilvægur bæði
fyrir sveitina og hann sjálfan en
Hannes þarf nú einungis að tefla
eina skák til viðbótar til að ná þriðja
áfanga að stórmeistaratitli og
skipta úrslit skákarinnar engu máli
í því sambandi. Hins vegar er óvíst
að titillinn fáist staðfestur strax þar
sem Hannes hefur ekki náð þeim
2.500 stigum sem krafist er.
Nokkrum biðskákum var enn
ólokið í gær en staða efstu liða
fyrir síðustu umferð mótsins sem
fram fer á morgun var þessi: Rúss-
ar eru í 1. sæti með 37 vinninga,
armenska sveitin er í öðru sæti með
32 1/2 vinning og Uzbekistan í
þriðja sæti með 32 vinninga. í 4.-6.
sæti eru Bandaríkin, Lettland og
ísrael með 31 1/2 vinning. íslend-
ingar, Englendingar og sveitir
Tékkóslóvakíu og Bosníu eru svo í
7.10. sæti með 31 vinning.
LEIÐBEINENDA
NÁMSKEIÐ í
SKYNDIHJÁLP
Fræðslumiðstöð Rauða kross íslands heldur LEIÐBEIN-
ENDANÁMSKEIÐ í SKYNDIHJÁLP dagana 28. ágúst
til 5. september n.k.. Námskeiðið er ætlað fólki úr
heilbrigðisstéttum, sjúkraflutningamönnum og félögum
úr hjálpar- og björgunarsveitum. Námskeiðinu lýkur
með prófi og öðlast þátttakendur réttindi til að kenna
almenningi skyndihjálp.
Umsóknarfrestur er til 10. júlí.
Skráning og nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
RKÍ í síma 91-626722.
FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ
RAUÐA KROSS ÍSLANDS
Rauðarárstíg 18 - Reykjavík - sími 91-626722
Stefr.ir kemur út fjórum sinnum
á ári. Ritstjóri blaðsins er Árni Sig-
urðsson.
BARUSTAL
KLÆÐIR HðSIÐ MTT
Sígilt form. Litaö eöa ólitaö.
Afgreitt í lengdum aö ósk kaupenda.
Hagstætt verð.
= HÉÐINN =
STÓRÁSI 6, GARÐABÆ, SÍMI 652000
ARGUS/SIA