Morgunblaðið - 23.06.1992, Síða 47

Morgunblaðið - 23.06.1992, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1992 37 250 röntgenlækn- ar þinga í Reykjavík RÁÐSTEFNA Norrænna röntgenlækna, Nordiska Radiologkongress- en, hin fimmtugasta í röðinni, verður haldin í Háskólabíói 23.-26. júní. Þetta er í þriðja sinn sem slík ráðstefna er haldin hérlendis. Virkir þátttakendur eru lang- flestir úr röðum norrænna röntgen- lækna, um 250, þar af 26 frá ís- landi en auk lækna sækja þetta þing eðlisfræðingar og tæknimenn og fulltrúar frá lyíja- og tækjafram- leiðendum. Með mökum þátttak- enda sækja þetta þing á fímmta hundrað manns. Vísindalegir fyrir- lestrar fara fram samtímis í þremur sölum í Háskólabíói. Fjallað verður um flest svið myndgreiningartækni. Eftir hádegi á miðvikudag verður fjallað um bijóstaröntgenrannsókn- ir og m.a. greint frá niðurstöðum úr fyrstu umferð hópleitar að bijóstakrabbameini með röntgen- myndatöku á vegum Krabbameins- félags íslands. Þrír erlendir gestir flytja fyrirlestra um bijóstamynda- rannsóknir og hópskoðun við leit að krabbameini. Þá verða fyrirlestr- ar um ísotóparannsóknir í öðrum sal. í þriðja salnum verða flutt fijáls erindi um segulómunarrannsóknir. I öðrum sal verða flutt fijáls erindi og í þriðja salnum verður fjallað um ómskoðanir (sonar). Þar sem þetta er 50. þingið var ákveðið að allir þátttakendur færu í sameiginlega Þingvallaferð auk þess sem Nesjavallavirkjun verður skoðuð eftir hádegi á fímmtudag. Á föstudaginn verða flutt erindi er tengjast rannsóknum á miðtaug- akerfí. Eftir hádegi verður talað um gæðamál og flytja þar erindi K. J. Olesen frá Kaupmannahöfn og Gunnar H. Guðmundsson, Reykja- vík. Setningarathöfn þessa þings héfst á miðvikudagsmorgun kl. 9.30 í Háskólabíói að viðstöddum forseta íslands og vemdara þingsins Vig- dísi Finnbogadóttur. Heiðursfyrir- lestur við opnun þingsins flytur Ásmundur Brekkan prófessor. Ás- mundur nefnir fyrirlesturinn „Kan vi vad vi förmár?“, „Völdum við því sem við getum?“ og höfðar hann þar til þeirrar geysiöru þróunar sem er og hefur verið í læknisfræðilegri myndgreiningu á síðustu áratugum. Norræn röntgenlæknaverðlaun verða veitt íslendingi skv. sjóðsregl- um við opnunarathöfnina. Hamra- hlíðarkórinn mun syngja undir stjóm Þorgerðar Ingólfsdóttur. Kl. 11.30 flytur Holger Petterson frá Lundi erindi um segulómunarrann- sóknir og þróun þeirra síðustu 10 árin. Nokkur fyrirtæki hafa leigt svæði í anddyri Háskólabíós og verða þar með sýningu og kynningu á meðan á ráðstefnunni stendur. Forseti þingsins er Öm Smári Am- aldsson yfírlæknir röntgendeildar Borgarspítalans, ritari er Baldur F. Sigfíísson dósent, yfírlæknir röntgendeildar Krabbameinsfélags- ins og gjaldkeri er Einar Stein- grímsson sérfræðingur á röntgen- deild Landakotsspítala. Markaðsdagar í Kringluimi FYRIRTÆKIN í Kringlunni hafa ákveðið að efna til sérstakra markaðsdaga, sem nefndir eru Kringlukast. Þeir verða í fyrsta sinn á miðvikudaginn og fimmtudaginn í þessari viku. Góðar vörur verða á sérstökum tilboðum, sem gilda einungis þessa tvo daga. Verslanir og flest þjónustufyrir- tæki í Kringlunni verða með sér- stök tilboð á nýjum vömm 24. og 25. júní. Fyrirtækin bjóða ýmist eina vömtegund, vöraflokk eða allar vömr í viðkomandi verslun. Á meðan á Kringlukastinu stendur er veittur 20-40% afsláttur á þeim vömm sem tilboðin ná til. Ekki er um útsölu eða rýmingar- sölu að ræða og við undirbúning er lögð áhersla á að í boði séu ein- ungis nýjar vömr. Það verður hægt að gera kjara- kaup á fyrsta Kringlukastinu. Samtals verða fyrirtækin í Kringl- unni með rúmlega 140 tilboð og auk einstakra tilboða verða nokkr- ar verslanir með 20-25% afslátt af öllum vömm sínum. Þær vömr sem em á tilboði hjá hveiju fyrir- tæki verða auðkenndar með sér- stöku Kringlukastsmerki. (Úr fréttatilkynningu.) Heildarvinningsupphæfiin : 87.176.819 kr. Rööln :X11 -222-22X-2121 13 réttir: 12 réttir: 11 réttir: 10 réttir: 184 raðir á 4605 raðir á 43.725 raðir á 233.214 raðir á 127.920 - kr. 3.210-kr. 350-kr. 0-kr. 7 raöir komu fram meö 13 rétta hérlendis aö þessu sinni. Vinningsupphæöin fy rir 10 rétta flyst yfir á næstu viku þannig aö búast má viö aö 1. vinningur veröi þá um 60 milljónlr. Þaö er því til mikils aö vinna næsta laugardag. Muniö aö sölukerfi lokar á laugardag kl 12.00. Jón Garðar Henrýsson Sýnir í Gallerí Ingólfsstræti Á VEGUM óháðu listahátíðarinnar var opnuð laugardaginn 13. júni sl. sýning á málverkum Jóns Garðars Henrýssonar. Sýningin er í Gallerí Ingólfsstræti, á horni Ing- ólfsstrætis og Bankastrætis. Sýningunni lýkur sunnudaginn 28. júní. Opið er daglega frá kl. 14 til 18 og er aðgangur ókeypis. M A itubrennslu Oddný Ölqfsdóttir, Edda Sigurbergsdóttir og Jngibjörg Sigu röa rdóltir misstu samtals 34 kg affitu. Líkamsrœkt er ntí peirra lifsstfU. íMm. og pú ncet'ö ánœgjttlegum árangrr - mæting 5x í viku í leikfimi - fitumælingar og vigtun - matardagbók- þátttakendur skila matardagbók og fá umsögn og ráðgjöf um breytt mataræði - Ijúffengar mataruppskriftir m. léttu fæði - aðhald og hvatning Skemmtilegir tímar í góðum félagsskap og þú losnar við óvelkomna fitu og lærir að tileinka þér nýjan lífsstíl svo að aukakílóin verði ekki framar vandamái. Þú færð allar upplýsingar í síma 68 98 68.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.