Morgunblaðið - 26.06.1992, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 26.06.1992, Blaðsíða 48
Gæfan fylgi þér í umferðinni SiÓVÁ^ftnMENNAR MOKGUNBLADW, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK Sim 091100, SlMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRl: IIAFNARSTHÆTI 85 FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1992 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Mannréttindadómstóll Evrópu: Tj áningarfrelsi skert meira ennauðsyner Slökkviliðsmenn frá Hveragerði að slökkvistörfum við rútuna. Morgunbiaðið/sigurður jðnsson. Bifreiðin varð eld- haf á stuttum tíma inn braust út og hann læsti sig strax í innréttinguna í bílnum og ekki viðlit að slökkva. Bíllinn varð eitt eldhaf á stuttum tíma,“ sagði Grímur. Bíllinn er gjörónýtur. Bömin voru ásamt leiðbeinend- um á íþrótta- og leikjanámskeiði félagsmiðstöðvarinnar í Tónabæ í skemmtiferð og voru að koma frá Hveragerði þegar eldurinn braust út. „Við náðum bömunum saman í hóp og margtöldum í hópnum til þess að vera viss um að engan vantaði. En krakkarnir vora furðu rólegir eftir þetta,“ sagði María Reyndal einn leiðbeinendanna. Lena Dögg Davíðsdóttir 7 ára sem fékk snert af reykeitran fór í skoðun á Sjúkrahús Suðurlands. Hún jafnaði sig fljótt og fékk að fara heim eftir skoðun. Hún sagði að þegar þau hefðu verið að horfa á bílinn brenna hefðu þau hugsað um að ef einhver væri inni í bílnum þyrfti hann að flýta sér út. „Við hlupum yfir götuna til að lenda ekki í reyknum og það gleymdu allir dótinu sínu nema ég, ég tók töskuna mína með mér,“ sagði Lena Dögg. Sig. Jóns. Mannréttindadómstóll Evr- ópu hefur komist að þeirri nið- urstöðu að brotið hafi verið gegn Mannréttindasáttmála Evrópu með dómi Hæstaréttar Islands yfir Þorgeiri Þorgeirs- syni rithöfundi fyrir meiðyrði í garð iögreglunnar í Reykjavík og brot gegn 108. grein al- mennra hegningarlaga. Þor- Stærsti lax sem veiðzt hefur úr á Bakkafírði. FJÖRUTÍU og þriggja punda lax, um 130 sentimetra lang- ur, veiddist í Bakkaá í Bakka- firði í fyrradag. Þetta var ekki aðeins stærsti laxinn úr Bakkaá, heldur stærsti lax, sem veiðzt héfur í á hérlend- is. Hins vegar var þetta fyrsti lax veiðimannsins, Marinós Jónssonar. Að sögn Marinós tók um 20 mínútur að landa stórlaxinum. Marinó kvaðst sæll og glaður með fenginn, enda er hann al- veg óvanur stangveiðimaður. Veiðistöngin var lítil stöng, sem hafði verið keypt í pakka ásamt spúninum, sem Marinó tókst að krækja í laxinn með. Veiði- tækin voru keypt saman í pakka í kaupfélaginu á Bakka- firði fyrir 2.000 krónur. Stærsti lax, sem veiðzt hefur hér við land, er Grímseyjarlax- inn svokallaði, sem veiddist undan Grímsey 1937. Hann vó 49 pund eða 24,5 kíló og var 132 sentimetra langur. Tveir stærstu laxar, sem vitað er að hafí veiðzt í ám, komu báðir úr Hvítá í Ámessýslu. Annar var 38,5 pund og veiddist 1946, hinn 37,5 pund og náðist 1952. Áki steinn Pálsson dómsmálaráð- herra kveðst munu skipa nefnd á næstunni sem falið verði að kanna hvernig bregðast skuli við dóminum, þar á meðal hvort lögfesta skuli hér á landi mann- réttindasáttmála Evrópu og hvort stjórnvöld skuli beita sér fyrir breytingu á 108. grein al- mennra hegningarlaga. Þetta er fyrsti dómurinn sem gengur gegn íslenska ríkinu fyrir mannréttindadómstólnum. Mannréttindanefnd Evrópu samþykkti í mars 1990 að bera undir Mannréttindadómstólinn hvort ákvæði 6. greinar sáttmál- ans um réttarhöld fyrir óháðum og óhlutdrægum dómstóli hefðu verið brotin við meðferð máls Þor- geirs fyrir sakadómi og hvort sak- felling hans vegna ummæla í blaðagreinum í desember 1983 um meint ofbeldisverk ótilgreindra lögreglumanna í Reykjavík hefði verið andstæð ákvæðum 10. grein- ar Mannréttindasáttmála Evrópu. í niðurstöðum dómsins sem birt- ar voru í gær er því hafnað að réttarhöldin yfir Þorgeiri í saka- dómi hafí ekki verið fyrir óháðum og óhlutdrægum dómstóli eins og haldið var fram af hálfu Þorgeirs, sem taldi svo vera þar sem saka- dómara hefði verið falið að gæta hagsmuna fjarstadds ákæruvalds. Mannréttindadómstóllinn telur að fulltrúi ákæruvalds hafí verið við- staddur þegar fjallað var í málinu um efnisatriði málsins sem vörð- uðu sekt eða sýknu. • Á hinn bóginn telur dómstóllinn að þær hömlur sem tjáningarfrelsi Þorgeirs voru settar með dómi Hæstaréttar hafí verið í andstöðu við 10. grein sáttmálans þar sem þær hafí ekki verið innan þess ramma sem talinn sé nauðsynlegur í lýðfrjálsu þjóðfélagi. Sjá einnig bls. 20-21. Samdráttur í ferðum útlendinga til íslands í sumar: Sumir virðast halda að bjóða megi markaðinum hvað sem er FORRÁÐAMENN þriggja evrópskra ferðaskrifstofa, sem Morgun- blaðið hafði tal af, kváðust búast við 10-22% fækkun bókana í íslands- ferðir í sumar miðað við árið áður. „Við höfum verið að reyna að fá samstarfsaðila okkar til að stöðva sífelldar verðhækkanir, en sumir virðast halda að það megi bjóða markaðinum hvað sem er,“ sagði Beat Iseli, eigandi ferðaskrifstofunnar Saga Reisen i Sviss. í frétt Morgunblaðsins í gær sagði meðal annars, að sum ferða- þjónustufyrirtæki á Islandi reikn- uðu með 25-50% samdrætti í hóp- ferðum útlendinga hingað í ár frá því í fýrra, og að Islandsferðir hefðu hækkað í verði um 22% á tveimur árum. Beat Iseli sagði ennfremur, að nú væri svo komið, að unnt væri að fá ferðir til Tyrklands og Grikk- lands fyrir 16.000 krónur. Slíkar ferðir væru því farnar að veita dýr- um íslandsferðum samkeppni. Hann kvað hótel, bílaleigur og mat vera of dýran hér á landi. Gerard Alant, sem rekur ferða- skrifstofu í París, sagðist hafa orð- ið var við nokkum samdrátt í tjald- og hálendisferðum, en mest fækkun hafí verið á bakpokaferðalöngum. „Þótt þetta fólk hafí efni á flugmið- anum gerir það sér ekki grein fyrir því hversu dýrt er að lifa á íslandi, svo við verðum hreinlega að vara það við,“ sagði hann. Þó nytu hótel- ferðir vinsælda eldra og efnameira fólks. Clive Stacey hjá bresku ferða- skrifstofunni Arctic Experience sagði hins vegar að verðið væri ekki aðalvandinn. Um væri að ræða almennan samdrátt samfara efna- hagslegri lægð. „Ég hef sjálfur gengið úr skugga um, að verðlag á hinum einstöku þáttum ferðaþjón- ustunnar getur ekki talist óeðli- legt,“ sagði hann. Þó væri matur á veitingastöðum mjög dýr á íslandi. Hjá Arctic Experience er reiknað með um 10-15% samdrætti í ís- landsferðum í sumar. Ómar Benediktsson, fram- kvæmdastjóri Island Tours í Þýska- landi, kvaðst hins vegar vænta um 10% fjölgunar bókana í sumar. „Vissulega má til sanns vegar færa að ísland er dýrt,“ sagði Ómar, „Við viljum selja okkur dýrt, þótt það sem við höfum upp á að bjóða sé oft á tíðum ekki í hæsta gæða- flokki," sagði hann. Sjá einnig á miðopnu. 32 böm, leiðbeinendur þeirra og bíl- stjóri náðu að forða sér undan eldinum Selfossi. RÚTUBIFREIÐ gjöreyðilagðist í eldi á Kambabrún síðdegis í gær. Auk bílstjóra voru í rútunni 32 börn og 6 leiðbeinendur frá félagsmið- stöðinni í Tónabæ í Reykjavík. Fólkinu tókst að komast út úr bíln- um, sem gereyðilagðist. Er eldsins varð vart ók bílstjór- vel. Þetta fór eins vel og á varð inn út í vegarkant og skipaði öllum kosið," sagði Grímur A. Grímsson út. „Fyrsta hugsunin var að koma bílstjóri. „Eg reyndi að slökkva en bömunum út og það gekk mjög það varð gífurlegt bál þegar eldur- Morgunblaðið/Aki Marinó Jónsson með metlax- inn og stöngina góðu. Bakkaá í Bakkafírði: -«át O-W María Reyndal, Lena Dögg Davíðsdóttir og Grimur A.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.