Morgunblaðið - 09.08.1992, Page 1
80 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
178. tbl. 80. árg.
SUNNUDAGUR 9. AGUST 1992
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Spakvitrar
spjarir
SKYRTUR og aðrar flíkur, sem laga sig
að breytilegu hitastigi og gera fólki
molluna bærilegri, verða senn á mark-
aðnum. Framleiðendur í Japan kynntu
nýlega efni sem þeir sögðu að gerði
mögulegt að búa til slíkan fatnað. Efnið
hegðar sér líkt og húð mannsins með
opnun og Iokun svitaholanna. Það er
gert af langri sameindakeðju og eru
hlekkirnir allir nákvæmlega eins. Þegar
hitastig hækkar gleikkar bilið á milli
hlekkjanna og efnið hleypir lofti inn og
vatnsgufu út. Er kóinar á ný man efnið
fyrra far sitt, skreppur saman og veitir
einangrun. „Efnið kemur í veg fyrir að
fólk svitni í heitu veðri, en heldur einnig
á því hita að vetri til,“ sagði talsmaður
framleiðenda. „Það sér til þess að loft-
ræsting sé næg, en veitir jafnframt góða
vatnsvörn." Búist er við að „spakvitru
spjarirnar" komi á markað næsta vor.
Hafrakexið
hundrað ára
Á ÞESSU ári eru liðin hundrað ár siðan
hafrakexið var fundið upp. Kexfræðing-
ar te(ja að fyrsta kakan af þessari gerð
hafi verið bökuð af Skotanum Alexander
Grant árið 1892 og hafa bresk blöð skrif-
að töluvert um þessi tímamót í matar-
menningu þarlendra og þá sérstaklega
um þann sið að dýfa kexi í te eða kaffi.
Nú þykir þessi siður frekar ófinn, en
rannsóknir hafa leitt í ljós að á 18. öld
hafi kexdýfingar þótt merki um siðfágun
og jafnvel voru til sérstakar dýfingar-
tangir úr silfri, sem nú eru verðmætir
forngripir. Með tilkomu hafrakexins
breyttist gildismat fólks, nýja kexið þótti
of mjúkt og skildi eftir brúna leðju á
botni bollans og því lögðust kexbleyting-
ar enska aðalsins að mestu af á tímum
Viktoríu drottningar.
Selja vodka
tíl Rússlands
MÖRG vestræn fyrirtæki reyna nú að
selja Rússum vodka, þrátt fyrir að það
sé ein af fáum neysluvörum sem enginn
skortur er á í Rússlandi. Sum reyna að
flíka rússneskum nöfnum eins og Rasput-
in og Petrov, en önnur róa á mið nýj-
ungagirni og fíkni í vestrænar vörur
með nöfnum eins og Schmidt og Hasko-
vitch. Lengst hefur bandaríski framleið-
andinn Smirnoff gengið, sem auglýsir
„heimsins tærasta vodka“ í sjónvarps-
auglýsingum í útsendingum frá Ólympíu-
leikununi, en Smirnoff styður lið sam-
veldisins með fé. Rússneskir framleið-
endur vona að rótgróin íhaldsemi þjóðar-
innar komi innlendum iðnaði til bjargar.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Á KLYFJUÐUM REIÐSKJÖTUM t ÁGÚSTSUDDANUM
A A *
Saddam Hussein hreykir sér af árangri í Persaflóastríðinu
Hvetur Iraka til þess að
hrínda öllum árásum
SADDAM Hussein, forseti íraks, flutti ræðu í gær er hann minntist þess að fjögur ár voru
liðin frá því vopnahlé var samið í átta ára strí ði Iraka og írana. Hann hreykti sér af árangri
íraka í striðinu gegn bandamönnum á síðasta ári og hvatti þjóðina til að verjast öllum
árásum en minntist ekkert á aukinn þrýsting af hálfu Sameinuðu þjóðanna eða hótanir
Bandaríkjamanna um að vopnavaldi yrði beitt ef nauðsyn krefði til að fá íraka til að hlíta
vopnahlésskilmálum. Hópur eftirlitsmanna SÞ, sem fylgjast á með því hvort írakar standi
við loforð um að eyðileggja vopnabúnað, kom til Bagdad á föstudag en ákvað að fresta
störfum þar til í dag, sunnudag, vegna hátíðahaldanna í tilefni vopnahlésafmælisins.
„Látum oss hrinda árásum hinna and-
styggilegu," sagði Saddam Hussein í ræðu
sinni. „Móðir allra bardaga braut niður fang-
elsismúrana, leysti araba úr haldi og varð
til þess að þeir tóku að sér hið mikla hlut-
verk, að leysa mannkynið undan áþján ótt-
ans, veikleikans og sektarkenndarinnar."
Stjórn hans hefur ítrekað hótanir sínar um
að eftirlitsmönnum SÞ verði á ný neitað um
aðgang að ráðuneytum til að kanna skjöl
þeirra.
Mjög er um það deilt meðal stjórnmála-
skýrenda hvort Saddam sé traustur í sessi.
Minnt er á að nokkrum vikum fyrir fall Nic-
olae Ceausescus í Rúmeníu hafi nær allir
talið að hann myndi halda einræðisvöldum
sínum til æviloka. Breski fréttamaðurinn
John Simpson, er var fréttaritari í Bagdad
í Persaflóastríðinu, segir í grein í vikuritinu
Spectator að ekkert sé að marka opinber
ummæli embættismanna eða fólks á götum
úti í írak. Nær allir landsmenn hati forset-
ann en enginn þori að tjá raunverulegan hug
sinn af ótta við grimmdarverk Saddams og
ættmenna hans. Margir írakar séu sann-
færðir um að bandamenn vilji, þrátt fyrir
allt, að Saddam verði áfram við völd, ella
væru þeir búnir að steypa honum.
Simpson segir m.a. að nokkrir af sendi-
herrum Saddams hafi með leynd samband
við samtök útlægra stjórnarandstæðinga en
einræðisherrann beiti miskunnarlausum
þvingunum til að koma í veg fyrir pólitísk
brotthlaup. Hann nafngreinir Abdul Amir
al-Anbari, sendiherra hjá SÞ, og hefur eftir
heimildarmönnum að Saddam hafi bræður
al-Anbaris í haldi í Bagdad svo að sendiherr-
ann svíki sig ekki. Einnig beiti Saddam
óspart þeirri aðferð að þvinga háttsetta
embættismenn til hvers kyns fólskuverka
sem síðan eru látin „leka“ til almennings.
Þar með eiga mennirnir ekki lengur í önnur
hús að venda og hljóta að standa eða falla
með einræðisherranum.
10
Dýrir, fáir
fiskar smáir
24
FISKIIRINN
GULL