Morgunblaðið - 09.08.1992, Blaðsíða 10
II
10
S(ítíl T3ÚOÁ .6 ii'Jí)h(lU'/MU?. GlOAjgKiJuliOt/
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 1992
íslenskar laxveiði-
ár standa höllum
f æti í harónandi
samkeppni við
gjöfulli og ódýrari
ár í Kanada og
Rússlandi
eftir Guðmund Löve
VIKA í einni af bestu laxveiðiám
landsins getur hæglega kostað
útlending hálfa milljón króna á
besta tíma. Fyrir nokkrum árum
síðan komu Bandaríkjamenn
hingað til lands í stórum stíl til
að renna fyrir lax í dýrum, ís-
lenskum veiðiám. Þeir greiddu
það verð sem upp var sett, því
fáir valkostir voru í boði. Nú er
það af sem áður var. íslensku
árnar þykja of dýrar, fiskarnir
of smáir og verðlag í landinu
almennt of hátt. Síaukin sam-
keppni hefur valdið miklum
breytingum á markaðinum.
anadamenn
hafa á undan-
fömum árum
ræktað lax í
fjöldamörg-
um ám, og
gengur nú í
þær töluvert
magn af stórum físki. Þangað er
mun ódýrara fyrir Bandaríkjamenn
að fara — verðið nemur allt niður
í þriðjung þess sem bestu ámar
hér á landi kosta. Þá hefur Rúss-
land opnast á allrasíðustu árum,
og komið hefur í ljós fjöldi góðra
veiðiáa, sem legið hafa ónýttar að
miklu leyti fram til þessa. Þar er
ódýrt að veiða og mönnum þykir
spennandi og framandi að fara
þangað. I Noregi er verðlag svipað
og gerist hér á landi, en Norðmenn
hafa verið á undan okkur að átta
sig á nauðsyn þess að verðleggja
sig ekki út af markaðinum, og þar
eru aðeins albestu árnar verðlagð-
ar jafnhátt og margar íslensku
ánna. Þær norsku skila auk þess
gjaman fleiri og stærri fískum.
Til marks um mikilvægi verðlags
og nálægðar, sér Skotland fyrir
um helmingi breska laxveiðimark-
aðarins, þótt einn viðmælenda
Morgunblaðsins í Bretiandi hafi
orðað það svo, að þar væri „frekar
hræðilegt", að veiða.
Laxveiði á íslandi er
bara fyrir stórlaxa
ímynd er hluti þess vanda sem
íslendingar eiga við að etja and-
spænis aukinni samkeppni. í Bret-
landi er sú hugmynd ríkjandi, að
laxveiðar á Islandi séu aðeins á
færi stórlaxa á borð við Karl Breta-
prins — að hér sé aðeins hægt að
veiða hafí maður vemleg auraráð.
Þetta má ef til vill til sanns veg-
ar færa þegar þess er gætt, að
dagurinn í einni af 10-20 bestu
laxveiðiám okkar kostar útlend-
inga um 70 þúsund krónur. Sex
Morgunblaðið/Kristinn
daga vika með öllu kostar því rúm-
ar 400 þúsund krónur, og er þá
ótalinn ferðakostnaður til landsins,
sem hæglega getur hleypt verðinu
upp hálfa milljón króna.
Bandaríkjamenn, sem áður voru
fastagestir í dýrustu íslensku veiði-
ánum, láta nú ekki á sér kræla.
„Við höfum hreinlega verðlagt
okkur út af markaðinum," sagði
einn hérlendra skipuleggjenda lax-
veiði fyrir útlendinga. Hann sagði
hreinlega þörf á að kúvenda í verð-
lagningu, því fólk léti ekki bjóða
sér hvað sem er. „Við höfum hækk-
að okkur jafnt og þétt um nokkur
prósent á ári, og það hefur einfald-
lega gengið of langt.“
í nýjasta hefti útbreidds sölu-
tímarits sem stangveiðitækjafram-
leiðandinn Abu-Garcia gefur út,
er grein um stangveiðar á íslandi.
Ber hún yfirskriftina „Þú þarft
ekki að vera milljónamæringur til
að uppgötva ísland.“ Þá er í inn-
gangi lýst, hversu dýrt sé að veiða
lax í íslenskum ám, og upphæðin
100 þúsund krónur á dag nefnd í
því samhengi. Því fara greinarhöf-
undar á stúfana og fá fólk hér á
landi til að skipuleggja sérstaklega
fyrir sig silungsveiðar.
Þótt sá gæðastimpill sem kann
að fylgja háu verðlagi geti verið
æskilegur, getur sá böggull fylgt
skammrifí, að það séu einfaldlega
of fáir kaupendur í þessum hluta
markaðarins til að standa undir
rekstri íslenska laxveiðiiðnaðarins
eins og hann er í dag. Ef til vill
er grundvöllur fyrir markaðssetn-
igu erlendis á veiðiferðum svipuð-
um þeim og Svíarnir þurftu að
skipuleggja sjálfir, og ná þannig
til áður ónýtts markaðar.
Fjórir dagar með öllu í Kanada
fyrir 90 þúsund krónur
Knight Inlet er nafn lítils veiði-
hótels skammt frá Vancouver á
vesturströnd Kanada. Fyrir 87
þúsund krónur er boðið upp á flugf-
ar með sjóflugvél frá Vancouver,
3-4 nátta gistingu, ótakmarkaða
laxveiði í innfírði með leiðsögu-
manni, báta, veiðarfæri og beitu.
Vilji menn gista 7 nætur er verðið
156 þúsund.
I Knight Inlet stendur laxveiði-
tímabilið frá 27. mars til 14. sept-
ember, og á staðnum er boðið upp
á ýmsa þjónustu umfram sjálfar
veiðarnar. Þangað geta menn bók-
staflega mætt í fötunum sem þeir
standa í, og fengið allt sem þeir
þarfnast á
staðnum.
Meðalþyngd
fiskanna í
fyrra var tæp
20 pund, en
einnig komu
ófáir 40
punda laxar á
land, að því
er segir í
fréttabréfi
sem gefið er
út á staðnum.
Sem dæmi
um sam-
keppnishörk-
una hefur
Knight Inlet
meira að
segja mark-
aðssett sig
hér á landi
með þeim
hætti, að
veiðimönnum
er hreinlega
réttur bæklingur þar sem þeir
standa við veiðar úti í dýrri, ís-
lenskri á.
ísland fyrir ríka karlakúbba
en Rússland spennandi nýjung
Kola Salmon Ltd. er breskt fyr-
irtæki sem staðsett er í London
og selur meðal annar laxveiðiferðir
til Rússlands og Noregs. George
Stevenson, annar forstjóra fyrir-
tækisins, segir að í Bretlandi sé
ímynd íslands sem laxveiðilands
hjúpuð dulúð. „ísland hefur á sér
einhvers konar karlaklúbbsblæ,"
sagði Stevenson. „Þar er mjög
gott að veiða, en mest fæst af
unglaxi eða smáum físki og verðið
er hátt.“
Um Noreg sagði Stevenson að
þar væri vettvangur þeirra sem
sæktust eftir stórlöxum. „Noregur
hefur alltaf verið rétti staðurinn í
hugum fólks til að ná „þeim stóra,“
en hefur löngum haft það orð á
sér að vera ófyrirsjáanlegur hvað
varðaði veiði,“ sagði hann. „Sögur
hafa gengið um ofveiði og dauðar
vikur, og verðið er mjög mishátt
milli áa.“
„Aftur á móti hefur Rússland
notið mikillar athygli að undan-
förnu, og þá sérstaklega Kóla-
skagi,“ sagði Stevenson. „Það er
að sumu leyti vegna fjölbreyttrar
veiði og að hluta til vegna ný-
breytninnar. Fyrir nokkrum árum
hefði enginn ímyndað sér að menn
ættu eftir að veiða lax bakvið járn-
tjaldið." Ha.nn kvað verðið vera
lægra en á íslandi og í Noregi, og
eins væri ódýrt að ferðast þar með
flugvélum og þyrlum á veiðistað-
ina. Þó væri þar enn sem komið
er víðast mun lakari aðbúnaður en
annarsstaðar.
Samkeppni frá Kólaskaga
er hættulegust
Michael Fitzgerald, forstjóri
bandarísku ferðaskrifstofunnar
Fishing Frontiers, hefur selt veiði-
SJÁ NÆSTU SlÐU
ísland hefur á sér einhvers konar
karlaklúbbsblæ. Þar er mjög gott
aö veiöa, en mest fæst af unglaxi
eöa smáum fiski og veröiö er hátt.
George Stevenson, forstjóri
Kola Salmon Ltd. í London
Þú þarft ekki aÖ vera milljónamær-
ingur til aö uppgötva ísland.
Hughreysting í sölutímariti Abu-Garcia, .
þar sem lýst er silungsveiði hér á landi.
Markaöurinn þoldi verölagiö á
níunda áratugnum, því þá voru fáir
valkostir.
Michael Fitzgerald, forstjóri bandarísku
ferðaskrifstofunnar Fishing Frontiers