Morgunblaðið - 15.08.1992, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1992
23
!
Karpov ekki af baki dottinn
Skák
Margeir Pétursson
EFTIR mótlæti síðustu missera
virðist Anatólí Karpov, fyrrum
heimsmeistara, nú hlaupið kapp
í kinn. Honum hefur gengið
fremur illa á mótum, féll út úr
áskorendakeppninni með tapi
fyrir Nigel Short og gat síðan
ekki hugsað sér að tefla í Ólymp-
íuliði Rússlands, sem stjórnað
var af Garríj Kasparov, heims-
meistara. En snemma sumars
sigraði Karpov með yfirburðum
á móti í Madríd og um mánaða-
mótin lék hann sama leikinn á
árlegu stórmóti í Biel í Sviss.
Yfirburðir Karpovs voru miklir
þrátt fyrir að andstæðingamir hafi
ekki verið af lakara taginu. Tefld
var tvöföld og umferð og Karpov
sigraði t.d. Alexei Shirov, fjórða
stigahæsta skákmann heims, í báð-
um viðureignum þeirra.
ÍT Anatólí Karpov, Rússl. IOV2 v.
af 14 mögulegum
2. Kíríll Georgíev, Búlgaríu 9 v.
3. Tony Miles, Englandi 7 v.
4. -5. Alexander Beljavskí, Úkra-
ínu.
4.-5. Joel Lautier, Frakklandi 6V2
v.
6. Viktor Kortsnoj, Sviss 5*/2 v.
7. Aleksei Shirov, Lettlandi 5'A v.
8. Curt Hansen, Danmörku 4‘/2 v.
Eftir að Karpov náði ekki að
finna veikan blett á Sikileyjarvöm
Kasparovs í einvígjum þeirra lagði
hann kóngspeðsbyrjun á hilluna,
en í Biel greip hann til kóngspeðs-
ins að nýju og virðist litlu hafa
gleymt.
Hvítt: Anatólí Karpov. Svart:
Alexander Beljavskí
Spánski leikurinn
1. e4 - e5 2. Rf3 - Rc6 3. Bb5
- a6 4. Ba4 - Rf6 5. 0-0 - Be7
6. Hel - b5 7. Bb3 - d6 8. c3
- 0-0 9. h3 - Rb8
Hið trausta Breyer-afbrigði,
uppáhaldsvopn Beljavskís, og
Karpov hefur sjálfur beitt því mik-
ið. Spasskí notaði það einnig gegn
Fischer í Reykjavík 1972.
10. d4 - Rbd7 11. Rbd2 - Bb7
12. Bc2 - He8 13. a4 - Bf8 14.
Bd3 - c6 15. b3 g6 16. Dc2
ívantsjúk lék 16. Ba3 gegn
Beljavskí í Linares 1990.
16. - Bg7 17. Bb2 - Rh5 18.
Bfl - Db6
Það er vafamál hvort svarta
drottningin eigi eitthvert erindi út
á drottningarvænginn. Hér hefur
áður verið leikið 18. — Rf4 í stöð-
unni.
19. b4 — Rf4 20. dxe5 — Rxe5
21. Rxe5 — dxe5 22. c4! Mikil-
vægur áfangi í stöðubaráttunni,
sem byggir á því að eftir 22. —
bxc4? 23. Rxc4 - Dxb4?? 24. Ba3
er svarta drottningin lokuð inni.
22. - Had8 23. axb5 - axb5 24.
Ha5 - Bf8 25. Bc3 - Re6 26.
Rf3 - Rd4 27. Bxd4 - exd4 28.
c5 - Dc7 29. Ha7 - Db8 30. Da2
Það er hrein unun að sjá hvem-
ig Karpov hefur tekist að gera bisk-
upapar svarts áhrifalaust. Nú lætur
Beljavskí d-peð sitt af hendi til að
reyna að ná mótspili, en þá nær
Karpov sóknarfærum á miðborði
og kóngsvæng.
30. - d3?! 31. Ha3 - d2 32.
Rxd2 - Hd4 33. e5! - Hxb4 34.
e6 — fxe6 35. Hxe6 — Kh8 36.
Hae3 - Hxe6 37. Dxe6 - Hf4
38. Re4 - Dd8?
Ljótur afleikur í erfíðri stöðu.
39. De5+ og svartur gafst upp.
Sigurför til Gausdal
Fjórtán íslenskir skákmenn tóku
þátt í .opnu alþjóðlegu skákmóti í
Gausdal í Noregi sem lauk fyrir
skömmu. Þeir voru flestir að
spreyta sig í fyrsta sinn á erlendum
vettvangi en máttu þó afar vel við
árangurinn una. Fimm keppendur
hlutu verðlaun í sínum flokkum.
Hópurinn samanstóð af nemendum
í Skákskóla íslands og skákmönn-
um af landsbyggðinni. Þetta er
annað árið í röð sem nemendur
skólans tefla á sumarmóti í Gaus-
dal. Kristján Guðmundsson, skóla-
stjóri Skákskólans, sagðist sjá mik-
inn árangur af starfi síðasta vetr-
ar, en unglingarnir sem fóru til
Gausdal höfðu flestir Þröst Þór-
hallsson, alþjóðameistara, sem leið-
beinanda. Þá sagði Kristján að
unglingarnir hefðu tekið keppnina
afar alvarlega.
Þátttakendur á mótinu voru 90
talsins, þarf af 10 stórmeistarar
og 12 alþjóðlegir meistarar. Að ná
meira en 50% vinningshlutfalli í
slíku móti verður að teljast mjög
góður árangur hjá titillausum skák-
mönnum. Sigurvegari á mótinu
varð ungi rússneski stórmeistarinn
Tivjakov sem hlaut Vh v. af 9
mögulegum.
Matthías Kjeld hlaut tvenn verð-
laun, fyrir bestan árangur kepp-
enda 17 ára og yngri og fyrir best-
an árangur skákmanna með 1.800-
2.000 stig. Ólafur B. Þórsson deildi
stigaverðlaunum með Matthíasi.
Kristján Eðvarðsson hlaut verðlaun
fyrir bestan árangur skákmanna
með 2.000-2.200 stig og Bolvíking-
urinn Guðmundur Daðason náði
bestum árangri þeirra sem höfðu
minna en 1.800 stig.
Teflir Fischer aftur?
Morgunblaðið hefur fylgst náið
með framvindu mála í Svartfjalla-
landi þar sem þess er vænst að
sjálfur Bobby Fischer setjist að
tafli gegnt Boris Spasskí í byijun
næsta mánaðar. Þegar þær fréttir
sem borist hafa eru metnar er ljóst
að Fischer hefur aldrei verið eins
nálægt því og núna að hefja aftur
taflmennsku.
Svo virðist sem tíminn hafi að
vissu leyti staðið í stað hjá þessum
mikla snillingi skáklistarinnar.
Hann lítur á sig sem heimsmeist-
ara, enda var titilinn aldrei unninn
af honum. FIDE lýsti Karpov
heimsmeistara árið 1975 þegar
sýnt þótti að Fischer myndi ekki
verja titilinn á þeim forsendum sem
sambandið ákvað.
En nú eru bæði Bobby Fischer
og Boris Spasskí mættir til Sveti
Stefan í Svartfjallalandi og þykir
mörgum sem Fischer sé nú orðinn
sjálfum sér líkur. Hann hefur t.d.
þegar hafnað þeim skákstað^ sem
upphaflega var ákveðið að tefla á
og gert kröfur um breytingu á
ljósabúnaði á þeim nýja. Einnig
mega áhorfendur ekki koma nær
keppendum en 15 metra.
Verðlaunin eru þau hæstu sem
um getur í skáksögunni, eða sam-
tals 5 milljónir Bandaríkjadala, eða
jafnvirði 270 milljóna ísl. króna.
Þetta eru svipuð verðlaun og ráð-
gert er að verði í heimsmeistaraein-
víginu í Los Angeles á næsta ári.
Spasskí hefur þegar ráðið sér að-
stoðarmenn og eru þeir ekki af
lakari endanum, heldur sovéski
stórmeistarinn Júrí Balashov, að-
stoðarmaður Karpovs til margra
ára, Nikitin, yfírþjálfari Kasparovs
til margra ára, og júgóslavneski
stórmeistarinn Borislav Ivkov, liðs-
stjóri júgóslavneska Ólympíuliðsins
á meðan það var og hét.
Fischer hefur aldrei lagt mikið
upp úr aðstoðarmönnum, en hefur
samt ráðið stórmeistarann Eugenio
Torre frá Filippseyjum til að hjálpa
sér við undirbúning. Af öllu þessu
má ráða að Ioksins sé alvara á ferð-
um. Svartfjallaland er líka ákjósan-
legur keppnisstaður í augum Fisch-
ers, því að landið er ásamt Serbíu
í algeru samskiptabanni hjá Sam-
einuðu þjóðunum og skemmst er
að minnast er Júgóslövum var
meinuð þátttaka á Ólympíuskák-
mótinu.
Signrður Halldórsson og Daníel Þorsteinsson.
Halda tónleika í
Siguijónssafni
SIGURÐUR Halldórsson sellóleikari og Daníel Þorsteinsson píanó-
leikari koma fram á þriðjudagst
Ólafssonar þann 18. ágúst nk. kl.
ir Dmitríj Sjostakóvítsj, Claude
Bohuslav Martinu.
Sigurður Halldórsson lauk burt-
fararprófi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík vorið 1985, þar sem
kennari hans var Gunnar Kvaran.
Framhaldsnám stundaði Sigurður
í London. Hann lauk prófí frá ein-
leikaradeild Guildhall School of
Music and Drama og „Perform-
ance and Communication Skills“
frá sama skóla. Hann var í ein-
katímum hjá Raphael Sommer og
lærði jafnframt söng hjá Arthur
Reckless og Angus Davidson. Sig-
urður hefur meðal annars starfað
með Sinfóníuhljómsveit íslands,
Caput hópnum, Hljómeyki og
haldið tónleika hérlendis og víða
erlendis. Hann stjórnar kór Fjöl-
brautaskólans í Garðabæ.
ónleikum í Listasafni Sigurjóns
20.30. Á efnisskrá eru verk eft-
Debussy, Alfred Schnittke og
Daníel Þorsteinsson lauk burtf-
arar- og kennaraprófi frá Tón-
skóla Sigursveins D. Kristinssonar
vorið 1986 þar sem aðalkennari
hans var Sveinbjörg Vilhjálms-
dóttir. Einnig nam hann píanóleik
hjá Halldóri Haraldssyni. Frá
hausti 1988 hefur Daníel verið við
nám í Sweelinck tónlistarháskó-
lanum í Amsterdam undir hand-
leiðslu Willems Brons. Hann hefur
og starfað við dagskrárgerð hjá
Ríkisútvarpinu undanfarin ár.
Daníel hefur komið fram á tónleik-
um hérlendis og víða erlendis og
hefur haldið fjölda tónleika með
Sigurði Halldórssyni.
(Fréttatilkynning)
EFTA-löndin eru að setja á stofn
EFTIRLITSSTOFNUN EFTA
vegna samningsins um hið
EVRÓPSKA EFNAHAGSSVÆÐI
Samkvæmt samningnum um Evr-
ópska efnahagssvæðið er vald og
starfssvið Eftirlitsstofnunar EFTA, að
því er varðar EFTA-ríkin, svipað/sam-
bærilegt og vald og starfssvið fram-
kvæmdastjórnar EB að því er varðar
beitingu EES-reglna.
Eftirlitsstofnun EFTA mun, meðal
annars, rannsaka hugsanleg brot
EFTA-ríkja á reglum Evrópska efna-
hagssvæðisins og vísa málum til úr-
skurðar EFTA-dómstólsins ef nauðsyn
krefur.
Fyrstu lotu ráðninga til Eftirlits-
stofnunar EFTA er lokið. Vegna áfram-
haldandi uppbyggingar stofnunarinnar
er nú auglýst eftir reyndum starfs-
mönnum til eftirlitsstarfa á eftirtöldum
sviðum:
• Samkeppni (hringamyndun/ríkis-
styrkir).
• Frjálsir vöruflutningar (tæknilegar
hindranir í viðskiptum, tollar og
gjöld sem hafa samsvarandi áhrif,
heilbrigði dýra og plantna, opinber
innkaup).
• Frjáls þjónustustarfsemi og frjálsir
fjármagnsflutningar (flutningaþjón-
usta, fjármagnshreyfingar, fjár-
málaþjónusta, fjarskiptaþjónusta).
• Búsetu og atvinnuréttindi (gagn-
kvæm viðurkenning á starfsmennt-
un og hæfi, almannatryggingar).
• Samvinna utan marka fjórþætta
frelsisins (t.d. umhverfismál).
• Lagadeild ESE.
Almenn skilyrði fyrir ráðningu eru:
• Háskólapróf í lögum, viðskipta-
fræði eða hagfræði eða öðrum
greinum eftir því sem nánar er
kveðið á um í starfslýsingum.
• Starfsreynsla í opinberri þjónustu
eða á almennum vinnumarkaði
(helst á viðkomandi sviði).
• Þekking á þeirri EB-löggjöf er að
starfinu lýtur.
• Mjög góð enskukunnátta.
• Ríkisborgararéttur í EFTA-ríki.
Ráðningarsamningur er til tveggja
ára, endurnýjanlegur. Höfuðstöðvar
Eftirlitsstofnunar EFTA verða í Genf,
en þau störf er varða eftirlit með sam-
keppni og heilbrigði dýra og plantna
verða í Brussel.
Upplýsingar um þau störf sem í
boði eru (starfslýsingar) og umsóknar-
eyðublöð fást hjá Kristni F. Árnasyni,
Viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneyt-
isins, Hverfisgötu 115, 150 Reykjavík,
sími 609930.
Umsóknarfrestur er til
15. september 1992.
UtCa*afta»»
y/Miklotorg, simar 15014 og 17171.
Tilboð - Uppboó - Niðurboó
SELJENDUR! Komió meó sölubílinnn á stærsta sölusvæði borgarinnar.
KAUPENDUR ! Komið með létta lund, eitthvað af peningum og gerið tilboð.
Allir bílar eiga aó seljast fföstudag og laugardag.